Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1998, Page 3
IjV FÖSTUDAGUR 13. MARS 1998
Skilaboð í flösku
Kevin Costner þarf heldur bet-
ur að rétta úr kútnum eftir hinar
hörmulegu viðtökur sem The
Postman fékk.
Kannski gerir hann
það í Message in
Bottle, sem tökur
hefjast á í april.
Myndin er byggð á
þekktri og dramat-
ískri skáldsögu eftir Nicholas
Spark. Mótleikarar Costners eru
ekki af verri endanum, má þar
nefha Paul Newman, Robin
Wright Penn og John Savage.
Tökur mun fara fram í Virginíu,
Los Angeles og Chicago.
Byssumenn
Hinn ágæti leikstjóri John
Sayles (Lone Star) fer leið í
sinni nýjustu kvilonynd, Men
with Guns, sem sjálfsagt eng-
inn bandarískur leikstjóri hefur
farið. Hann tók upp mynd sína
með spönsku tali og dreifir
henni síðan með enskum texta.
Leikarar í myndinni eru nánast
allir óþekktir. Men with Guns
gerist í ónafngreindri suður-am-
erískri borg og segir frá virðu-
legum prófessor sem ákveður
að gera sér ferð inn i regnskóg-
inn og heimsækja fyrrum nem-
endur sína og sjá með eigin aug-
um hvernig þeir fara með inn-
fædda. Myndin hefur fengið
góða dóma hjá gagnrýnendum.
L.A. Confidental
fær 12 BAFTA-
tilnefningar
Nú eru Bretar búnir að skila
inn sínum tilnefningum til
BAFTA-verðlaun-
anna og þar er efst
á blaði L.A. Con-
fidental og fær hún
tólf tilnefningar.
Þar á eftir kemur
The Full Monty
með eliefu tilnefningar. í
nýjasta hefti bandaríska tíma-
ritsins Premiere er birt stjörnu-
gjöf sextán helstu kvikmynda-
gagnrýnenda Bandaríkjanna á
100 kvikmyndum sem frum-
sýndar voru á síðasta ári. Þar
er efst L.A. Confídental og fær
hún fjórar stjömur hjá fimmtan
gagnrýnendum, þrjár hjá ein-
um.
Klámið í Hollywood
Laugarásbíó hefur í dag sýningar á
hinni umdeildu kvikmynd Djarfar
nætur (Boogie Nights), en fáar mynd-
ir vöktu jafnmikla athygli í Banda-
ríkjunum á síðasta ári. Er hún til-
nefnd til þrennra óskarsverðlauna og
meðal annars fá leikaramir Burt
Reynolds og Julianne Moore tilnefn-
ingar sem bestu leikarar í aukahlut-
verkum. Aðrir leikarar í myndinni
eru Don Cheadle, Wiiliam H. Macy,
John C. Reilly og Mark Wahlberg sem
leikur aðalhlutverkið, ungan mann
sem nær miklum frama í klámmynda-
iðnaðinum.
Mark Whalberg leikur Eddie Adams,
sem breytir nafni sínu í Dirk Diggler.
Boogie Nights er önnur kvikmynd
leikstjórans og handritshöfundarins
Paul Thomas Anderson sem einnig er
framleiðandi myndarinnar. Anderson
er 27 ára gamall og hefur að flestra
mati skilað frá sér einstaklega full-
mótaðri kvikmynd, sem enginn byrj-
Jackson. Var hún
sýnd fyrst á
Sundance-
hátiðinni
1996 og '
Canr.es
kvik-
mynda-
hátíð-
inni
sama
endabragur er á. Hann
mjög ungur að árum þegar
hann varð kvikmynda-
fikill og i hans huga
stóð aldrei annað til
en vinna við kvik-
myndir. Hann fékk
vinnu hjá sjónvarps-
stöð sem aðstoðar-
maður við ýmsa
þætti, tóniistar-
myndbönd og aug-
lýsingar og drakk í
sig reynslu ann-
arra. Anderson færði
sig um set yfir í kvik-
myndirnar og gegndi
álíka störfum þar. í fri-
stundum skrifaði hann
handrit að stuttmynd
sem hét Cigarettes and
Coffee og fékk upptökuvél
lánaða til að koma
handritinu á filmu.
Cigarettes and Coffee
var siðan sýnd á kvik-
myndahátíðinni í
Sundance árið 1993 án
þess að vekja neina sér-
staka athygli. Það var
þó út á þessa stutt-
mynd sem hann fékk
styrk frá Sundance-
sjóðnum til að að gera
leikna kvikmynd,
Hard Edge. Meðal
leikara í henni eru
John C. Reilly, Phil-
ip Baker Hall,
Gwyneth Palthrow
og Samuel L. Julianne Moore leikur klámdrottninguna Amber Waves.
var
Mark Whalberg, sem einu sinni
gekk undir nafninu Marky Mark, og
var þá vinsæll tónlistarmaður, segir
að það sé erfitt að segja á sómasamleg-
an hátt sögu sem gerist innan klá-
miðnaðarins: „Fólk er hrætt við þenn-
an þátt í skemmtanabransanum." Um
hlutverk sitt segir Mark: Dirk er mjög
ungur, ómenntaður, saklaus og til-
finninganæmur. Hann er aðeins í leit
að ást og finnur hana í þessum ein-
kenniiegu aðstæðum. Áður hefur
hann að vísu lent i mörgum gildrum."
Aðrar myndir sem Whalberg hefur
leikið i eru: Renaissance Man, The
Basketball Diaries og Fear, nýjasta
kvikmynd hans er Traveller sem leik-
arinn Bill Paxton leikstýrir og fljót-
lega verður frumsýnd The Big Hit þar
sem hann er einn leikara.
Burt Reynolds, sem er fyrir miöri mynd, er tilnefndur til óskarsverölauna. _jjk
KVIKMYI&DA
Laugarásbíó - Boogie Nights:
Klám og kýlingar ★★★
Limlengd karla hefur löngum verið viðkvæmt mál. Konur vilja
helst ekki viðurkenna að stór typpi henta best, og karlar hafa viljað
halda því fram að litil typpi lengist mest. í Boogie Nights snýst allt
um hinn gríðarlanga lim klámstjömunnar Dirk Digglers. Það er þessi
rosaböllur sem kemur honum á toppinn í klámbransanum, og að
sama skapi verður reðurstærðin til þess að drengurinn ofmetnast og
missir tökin. Það er ekki laust við að þessi vandamál hvað varðar
lengd og stærð hafi smitast yfir á handritshöfundinn og leikstjórann
Paul Thomas Anderson, en einhvern veginn fær áhorfandinn á tilfinn-
inguna að drengurinn sá hafi líka misst tökin á sínum tólrnn, því
Boogie Nights þjáist mjög af óhóflegri lengd. Ekki svo að skilja að
þetta sé eina dæmið um óþarfa framlengingar, nú um tíðir þykir
greinilega sem finast að hafa myndir í vænni lengd, ýmist til að gefa
þeim „epískt" yfirbragð, eða bara til að tryggja nógu langa bíóhúsa-
setu. Titanic er nýjasta dæmið um rosaböll sem óx fram úr hófi (og
sökk). En lengdin er (á þversagnakenndan hátt) það eina sem háir
Boogie Nights.
Mark Wahlberg sýnir hér og sannar að hann getur annað og meira
en rifið kjaft og fyllt upp í Calvin Klein (nærföt); með samblandi af
barnslegri einlægni og temmilegri geðsýki skilar hann af sér per-
formans sem ber myndina uppi á hans ánægjulega bera baki. Aðrir
leikarar eru hver öðrum betri og hver öðrum betur valinn, Burt
Reynolds fer með ódauðlegar Ed Woodskar linur með glæsibrag, Willi-
am H. Macy er gúmmílegri en nokkru sinni, Heather Graham er full-
komlega sannfærandi sem áhyggjulaus klámstjarna á hjólaskautum,
en að öðrum ólöstuðum er það Julianne Moore sem stendur upp úr.
Samspil hennar við Wahlberg er alveg frábært, þar sem hún ýmist er
í móður- eða mótleikkonuhlutverki.
Sem tímabilskönnun er mynd Anderssons afbragðsgóð, tekur fyrir
mál eins og vídeóbransann, síðasta „frjálsa" kynlífstímabilið (fýrir
eyðni) og svo náttúrlega þessa yndislegu diskómúsík og nælonfot.
Handritið er vel skrifað og ef drengurinn hefði bara skafið af eins og
mÁ
hálfa Tarantinósenu hér og hálfa Travoltasenu þar (og sleppt ofur-
langa gúmmítyppinu) þá heföi þetta getað orðið ansi fullkomið. En
verður að láta sér nægja að vera bara ómissandi.
Leikstjórn og handrit: Paul Thomas Andersson. Aðalleikarar: Mark Wa-
hlberg, Julianne Moore, Burt Reynolds, William H. Macy, Heather Gra-
ham, Don Cheadle, John C. Reilly
Úlfhildur Dagsdóttir
★ *
kvikmyndir
:__i__________
L.A. Confidental ★★★★
Skuggahliðar Los Angeles sjötta áratugar-
ins eru sögusviðiB í óvenju innihaldsrikri og
spennandi sakamálamynd sem enginn ætti
að missa af. Spilltar löggur, ósvífnir
æsifréttamenn, melludóigar og glæsilegar
vændiskonur eru á hverju strái.
-HK
Titanic ★★★*
Stórbrotin og ákaflega gefandi kvikmynd. Af
miklum fítonskrafti tókst James Cameron
að koma heilli í höfn dýrustu kvlkmynd sem
gerð hefur verið. Fullkomnunarárátta
Camerons skiiar sér í eðlilegri sviðsetningu
sem hefur á sér mikinn raunsæisblæ. Leon-
ardo DiCaprio og Kate Winslet eru eftir-
minnileg f hlutverkum eiskendanna.
-HK
Good Will Huntinq *★★%
I mynd þar sem svo mikið erlagt upp úr per-
sónunum verður leikurinn aö vera góður.
Sérstaklega eftirminnilegur er samleikur
Williams og Damons. Hið sama má reyndar
segja um flesta leikara í aukahlutverki.
Bestur er þó Stellan Skarsgárd sem dregur
upp sannfærandi mynd af manni meö mikla
sérgáfu sem þó verður að játa sig sigraöan
í návist ótrúlegrar snilligáfu.ge
Alien: Resurrection ★★★%
Myndin er langt f frá gallalaus en að mfnu
mati nær hún að hefja sig upp yfir gallana.
Handritshöfundurinn Joss Whedon gerir
góða hluti en það er fyrst og fremst hinn
myndræni samruni Borgar týndu barnanna
og Alien sem gerir þessa mynd aö sannri
ánægju. Eins og alltaf er það Sigourney
Weaver sjálf, drottning geimveranna, sem
stendur upp úr.
-úd
Barbara ★★★★
Vel upp byggð ogvel leikin mynd f alla staði,
sérstaklega vaktl það ánægju hversu allar
aukapersónur og smáatvik voru vel og fim-
lega útfærð. Myndatakan er áferðarfalleg
og aldrei of uppskrúfuö í landslagsyfirliti og
dramatískum veðurlýsingum en nýtti jafn-
framt vel náttúrufegurö eyjanna.
-úd
Welcome to Saraievo ★★★
Ahrifamikil og vel gerð kvikmynd um frétta-
menn aö störfum f rústum Sarajevo. Heim-
ildarmyndum og sviðsettum myndum er
ákaflega vel blandað saman og mynda
sterk myndskeið. Mynd sem vekur upp
margar spurningar um eðli mannsins í striði
og kemur við kaunin á stjórnmálamönnum
sem eru mislagðar hendur í að leysa vanda-
mál sem þessi.
-HK
Djarfar nætur ★★★
í Djarfar nætur snýst allt um hinn gríðar-
langa lim klámstjörnunnar Dirk Digglers.
Sem tímabilskönnun er mynd Anderssons
afbragðsgóö, handritið er vel skrifað og ef
drengurinn heföi bara skafið af eins og
hálfa Tarantinósenu hér og hálfa Travolta-
senu þar (og sleppt ofurlanga gúmmítypp-
inu) þá hefði þetta getaö orðiö ansi fullkom-
ið. En verður aö láta sér nægja aö vera bara
ómissandi.
-úd
Það gerist ekki betra ★★★
Framan af er As Good As It Gets eins góð
og gamanmyndir gerast. Samræðurnar ein-
kennast af óvenjumikilli hnyttni, leikurinn er
meö ólíkindum. Það var mér þvf til mikilla
vonbrigða þegar myndin missti flugið eftir
hlé. Leikurinn var enn til lyrirmyndar en þær
fjörmiklu og óvenjulegu persónur sem
kynntar voru til sögunnar i upphafi fengu
ekki svigrúm til þess að vaxa. ge
Lína langsokkur HHH
Lfna langsokkur er löngu oröin klassísk og
þaö vlll stundum gleymast aö hún er ekkl
erfð með genunum heldur lesin á bókum.
Lina er hinn stjórnlausi óskadraumur allra
barna, frjáls, óháð og gersamlega sjálf-
stæð, þvf hún bæði getur allt og leyfir sér
allt. Þarna tókst vel til hvað varðaði teikn-
ingar og útfærslur og það er óhætt að
mæla með þessum Linu-pakka fyrir börn á
öllum aldri.
-úd
Þú veist hvað þú ... ★★★
Handritshöfundurinn Kevin Willlamson er
hér aftur búinn að hrista þessa fínu ung-
lingahrollvekju út úr ermlnni og er hér með
mynd sem er bæði sjálfsmeövituö og alvöru
spennandi hrollvekja, smart og vel gerð. Og
það flaug popp. Það hlýtur að vera þriggja
stjörnu virði. -úd
Stikkfrí ★★★
Gott handrit og góða barnaleikara þarf til að
gera góða barnamynd og þetta er að finna I
kvlkmynd Ara Kristinssonar sem auk þess
gerir góðlátlegt grín að þeim aðstæðum
sem börn fráskilinna foreldra lenda f.
Skemmtileg og Ijúf fyrir alla fjölskylduna.
-HK
Flubber .
Flubber býr yfir einfaldleika sem þvf miöur
er allt of sjaldséður í kvikmyndum sfðustu
ára. Hún er barnamynd fyrir börn og ég get
engan veginn séö þaö sem galla. Besti
mælikvaröinn á slíkar myndir er salur fullur
af ánægðum börnum. Og krakkarnir voru í
stuði.
-ge
Seven Years in Tibet
Ber með sér að hvert einasta atriöi er þraut-
hugsað og raunsæið látið ráöa feröinnl,
kannski um of. Myndin verður af þeim sök-
um aldrei þetta mikla og spennandi drama
sem efnið_ gefur tilefni til þótt einstaka atriði
rísi hátt. Útlit myndarinnar er óaðfinnanlegt,
kvikmyndataka stórfengleg og leikur mjög
góður en neistann vantar.
-HK