Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1998, Qupperneq 5
UV FÖSTUDAGUR 13. MARS 1998
19
p helgina
Námskynning 1998:
Hvað ætlar þú að verða?
Háskóli íslands veröur vettvangur Námskynningar 1998 þar sem flestir framhalds- og
sérskólar landsins kynna þjónustu stna.
Um helgina verður
haldin í Háskóla íslands
Námskynning 1998.
Kynningin er samstarfs-
verkefni skóla og þjón-
ustuaðila námsmanna en
í kynningunni taka þátt
nær allir framhalds- og
sérskólar landsins. Hér er
um geysilega viðamikinn
viðburð að ræða því þeir
aðilar sem kynna sig og
þjónustu sína eru um 200
talsins og búist er við
fimm til tíu þúsund gest-
um.
„Þegar fólk er að klára
sitt nám í framhaldsskól-
unum stendur það
frammi fyrir þeirri stóru
spumingu hvað það ætli
sér að gera í lífinu. Skólar
á framhaldsskólastigi
gera sér grein fyrir því
hve val þessa fólks er erfitt og mögu-
leikamir margir. Því reynum við að
koma tii móts við krakkana með
kynningum eins og þessari," segir
Magnús Guðmundsson, deildarstjóri
Upplýsingadeildar Háskóla íslands.
„Það sem skiptir einnig svo miklu
máli hvað þetta varðar er að stór hluti
þeirra sem kynningamar annast em
sjálfir nemar við viðkomandi skóla í
viðkomandi grein. Þannig geta gestir
spjallað við nemana sjálfa um námið
og fengið upplýsingar frá fyrstu
hendi."
Að sögn Magnúsar hafa skólamir
fengið talsverða svörun frá þeim sem
hafa komið á fyrri kynningar og margir
hafa jafiivel tekið ákvörðun um fram-
haldsnám í beinu framhaldi af þeim.
Allt á sama svæðí
í þetta skiptið verður námskynning-
in haldin öll í nokkrum byggingum á
háskólasvæðinu austan Suðurgötu.
Niðurröðun verður þannig háttað að
allar skyldar námsgreinar verða á
sama stað óháð því hvaða skólastofii-
anir eiga í hlut. í Aðalbyggingu HÍ
verða tækni- og iðnnámsgreinar, raun-
vísindagreinar, nám tengt matvæla-
iðnaði, símenntun, endurmenntun,
fullorðinsfræðsla og fjarkennsla og
nám erlendis auk nokkurra annarra
kynninga. í Ámagarði verða hugvís-
indagreinar en í íþróttahúsi HÍ verða
heilbrigðisgreinar. Lögberg verður
heimili list- og handverksgreina auk
náms í kennslu- og uppeldisgreinum.
Að lokum verða í Odda félagsvísinda-
og uppeldisgreinar auk viðskipta- og
hagfræðigreina.
Sitthvað meira verður fólki til
skemmtunar en bara fræðin og kynn-
ingar því listaskólamir verða með dag-
skrá auk þess sem Hitt húsið verður
með líflegar og skemmtilegar uppá-
komur.
Risastórir sjónaukar
Á morgun heldur danski stjömufræðingurinn Johannes Andersen
fyrirlestur þar sem hann mun segja frá risastórum stjömusjónaukum
sem nú em í smíðum viða um heim. Meðal annars greinir hann frá
nýjungum á sviði ljóstækni, verkfræði, tölvustýringar og gagna-
vinnslu sem gera smíði slíkra sjónauka mögulega. Hann mim jafii-
framt sýna fjölda mynda af hinum nýju tækjum.
Johannes er einn af fremstu stjömufræðingum Dana og starfar við
stjömufræðideild Háskólans í Kaupmannahöfh. Hann er jafiiframt að-
alritari Alþjóðasambands stjamfræðinga og formaður stjórnar Nor-
ræna stjömusjónaukans.
Fyrirlesturinn verður í stofú 101 í Odda kL 14. Hann er haldinn á
vegum Stjamvísindafélags íslands og Eðlisfræðifélags íslands.
• .
* Á / * ■ •*
• ■ AC.
» m. . , 4 •
• • * * ' • •
Sffellt stærri sjónaukar gera okkur kleift að sjá
lengra og lengra út í geiminn.
The first Baptist Girls’ Choir, margverölaunaöur stúlknakór frá Nova Scotia, heldur tónleika í Langholtskirkju á
sunnudag.
Fimmtíu stúlkur í heimsókn
Næstkomandi sunnudag verða
góðir gestir á ferð í Langholts-
kirkju. Stúlknakórinn „The first
Baptist Girls’ Choir” mun syngja í
messu kl. 11 og kl. 17 heldur hann
tónleika í kirkjunni ásamt Gradu-
alekór Langholtskirkju.
Kórinn var stofnaður árið 1983 og
hefur vaxið frá 12 félögmn upp í
tæpa 50. Hann hefur fengið margvís-
legar viðurkenningar og farið i tón-
leikaferðir um Kanada, Bandaríkin
og tvívegis til Evrópu auk þess að
gefa út fjórar hljómplötur. Stjóm-
andi hefúr frá upphafi verið Jeff
Joudrey, virtasti kórstjóri Nova
Scotia.
Auk þess að syngja í Langholts-
kirkju mun kórinn halda tónleika í
Ráðhúsi Reykjavíkur nk. miðviku-
dag kl. 17 með stúlknakór Reykja-
víkur og halda skólatónleika i Sel-
tjamameskirkju á fimmtudag kl. 14.
mSm
Eddufelli S: 587 0555
Hólagaröi S: 557 4480
Grímsbæ S: 553 9522
Arnarbakka S: 557 6611
Sólvallargötu S: 552 8272
'1 x I (> " m / 2 a I e <• <> s 1
1 750 kr,-
Opid 17:00 - 23:30
L* 'l L=^Tc?.
nrr- foflW
\ Arnarbakko Breidholti
511’
ulLDIK' TIL é APRIL
I