Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.1998, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.1998, Blaðsíða 3
FÖSTUDAGUR 27. MARS 1998 íJa'ikmyndir Risinn Billy Crystal fór við afhendingu óskarsverð- launanna eins og hans var von og vísa. Um sama leyti var ffumsýnd nýjasta kvik- mynd hans, The Giant, þar sem hann leikur j aðalhlut- verkið, umboðs- mann skemmtikrafta sem finnur risa einn sem getur vitnað í Shakespeare og sér sæng sína uppreidda. Hætt er við að athygli áhorfenda beinist meira að mótleikara hans, körfuboltastjömunni Gheorghe Muresan, sem leik- ur með Washington Wizard, en hann er eitthvað yfir 2.30 á hæð. Caracter Hollenska kvikmyndin Caracter fékk óskarsverð- laun sem besta erlenda kvik- myndin og kom það mörgum á óvart, sérstaklega fyrir þá sök að ekki er enn farið að sýna hana í Bandaríkjunum, en hún verður frumsýnd þar um þessa helgi. Myndin fjall- ar um ungan lögfræðing sem er ákærður fyrir morð á foð- ur sínum. Leikstjóri er Mike van Diem og sagði hann við blaðamenn að verðlaunin hefðu allt að segja fyrir dreif- ingu myndarinnar: „Áður var þetta barátta, nú opnast allar dyr.“ Lulu á brúnni Hið þekkta skáld Paul Auster fylgdist vel með þegar Wayne Wang leikstýrði Smoke eftir handriti hans og fékk meira að segja að taka þátt í leikstjóminni á Blue in the Face, sem gerð var sam- hliða Smoke. Auster hefur greinilega fengið kvikmynd- bakteríuna því hann er þessa dagana að leik- stýra sinni fyrstu kvik- mynd Lulu on the Briáge. í henni leik- ur Harvey Keitel djass-saxófón- sem verður það á að taka með sér skjala- tösku þegar hann rekst á lik á götunni. Mótleikari Keitel er Mira Sorvino, sem leikur kærastu saxófónleikarans. Upprunalega vonaðist Auster til þess að Wim Wenders leikstýrði myndinni, en ar ekkert varð af því hann að setjast sjáifúr i inn. Mánaðarvinna skiladi sér Lagt á ráðin, Dustin Hoffman, Anna Heche og Robert De Niro í hiutverkum sínum í Wag the Dog. Ef hægt er að tala um hópvinnu við gerð kvikmyndar þá er Wag the Dog gott dæmi um slíka vinnu. Barry Levinson hafði nýlokið við erfiðar upptökur á Sphere þegar hann, Robert De Niro og Dustin Hoff- man ákváðu að leiða saman hesta sína og gera á sem skemmstum tíma mynd eftir handriti sem Hilary Henkin hafði skrifað upp úr bók sem bar heitið American Hero. Til að fá meiri kraft i handritið, sérstaklega þó samtölin, var leikritaskáldið Dav- id Mamet fengið til að slípa það til sem hann og gerði á skömmum tíma. Þegar ekkert var til fyrirstöðu og búið að fá leikara og tæknilið voru tökur hafhar og var áætlaður töku- tími 29 dagar. AUt gekk samkvæmt áætlun. Meðan á tökum stóð var samið um eignarhluta í myndinni en allir þrír, Levinson, De Niro og HofF- man eiga sín eigin framleiðslufyrir- tæki, Tribeca Productions (De Niro), Baltimore Productions (Levenson) og Punch Productions (Hoffman). Levinson segir að það hafi í raun Robert De Niro leikur „Reddarann" sem fenginn er til að bjarga mál- unum þegar forsetinn er grunaður um að hafa átt mök við unga stúlku í hliðar- herbergi í Hvíta húsinu. verið Mamet sem setti alla í stuð: „Hann er einn af bestu leik- ritaskáldum í dag og þegar hann hafði sett sinn stimpill á hand- ritið með meitluð- um samtölum vor- um við vissir mn að þetta myndi ganga upp.“ Mamet vann svo með hópnum meðan á tökum stóð og breytti og bætti eftir þörfum. Hlutirnir voru unnir svo hratt að þegar Anne Heche fékk handritið í hendurnar var hennar persóna enn karlmaður, Mamet var þá aðeins búinn að gera breytingar í hug- anum. Allir leikarar í myndinni eru vinir og kunningjar sem hóað var í og má geta þess að dætur Levin- sons, De Niro og Hoffmans, Michelle Levinson, Jenna Byrne og Drena De Niro, eru allar með smáhlutverk. Þá tók Wo- ody Harrelson sér nokk- urra daga frí og leikur hlutverk án þess að vera á leikaraskrá. Wag the Dog er gott dæmi um kvikmynd sem heilladisirnar eru hliðhollar. Allt gekk samkvæmt áætlun og og bankareikningur þremenninganna gildnaði til muna við þær góðu við- tökur sem myndin hefur fengið. -HK g I KVIKMYHDA Laugarásbíó/Háskólabíó - Wag the Dog: *** Reddarinn og kvikmyndaframleiðandinn Aumingja Bill Clinton, það er ekki nóg með að hann hafi þurft að þola að hver konan á fæt- ur annarri ásaki hann um kynferöislega áreitni og hann sé með helling af lögfræðingum á bak- inu sera geri allt til aö sverta hann heldur hafa komið frá Hollywood tvær kvikmyndir sem hafa verið ótrúlega hittnar á veiku hliðamar í fari hans. Önnur þeirra er Wag the Dog. í Wag the Dog er nánast farið i saumana á síöustu atburðum i Hvíta húsinu og svartur húmor sniðinn utan um. Það sem er skondnast i þessu er aö Wag the Dog var gerð áður en Monica litla kom fram á sjónarsviðið með ásak- anir sinar. Það er litil sæt stelpa sem aldrei sést sem á sök á atburðarásinni i Wag the Dog en myndin gerist rétt fyrir forsetakosningar. Blöðin hafa komist að þvi að forsetinn (sem aldrei sést í myndinni frekar en stúlkan) hafi gert sér dælt við unga stúlku í hliöarherbergi i Hvíta húsinu. Þetta er mikið áfall fyrir starfsmenn forsetans sem kalla til Conrad Breen sem gengur undir nafninu „Redd- arinn“ (Robert De Niro) og er vanur að fást við slík mál. Eina lausnin að hans mati er að fá blöðin til að gleyma þessu og til þess þarf eitthvað enn bitastæöara heldur en fitlið í forsetanum og hvað er betra í svona stöðu heldur en stríð? Það verður því hlutverk Breens að búa til pappírsstrið og til þess fær hann þekktan kvik- myndaframleiðanda, Stanley Motss, sem telur það ekki eftir sér að skapa eitt lttið stríð. Allt gengur að mestu vandræðalaust þar til Motss fer að uppgötva að hann hefur í raun skapað meistarverk á sviði kvikmynda. Handritið er vel skrifaö af David Mamet og Hilary Henkin, samtöl einkar snjöll og sumar setningar verða nánast eins og gullmolar sem maður gleymir ekki fljótt. Samt er það svo að eini galli myndarinnar er i sögunni sem í síð- ari hluta myndarinnar veröur nokkuð rugl- ingsleg en endirinn er góður og í anda þess svarta húmors sem einkennir myndina. Þegar sagan fer að brotna eru það frábærir leikarar sem koma til bjargar og þar er fremstur meðal jafningja Dustin Hoffmann sem fer á kostum og heföi þess vegna alveg átt skilið óskarinn. Ro- bert De Niro bregst sjaldan og nær upp finum línudansi viö Hoffman þannig að myndin fer aldrei út í farsa þótt tækifærin séu mýmörg. Þá er vert að geta Willies Nelsons í hlutverki tónskálds sem fenginn er til að semja hjartnæman óð sem fylgja á „striösmyndum" og Woody Harrelson (ekki á kretitskrá) í hlutverki „hetjunnar". Leikstjóri: Barry Levinson. Handrit: David Mamet og Hilary Henkin. Kvik- myndataka: Robert Richardson. Tónlist: Mark Knopfler. Aðalleikarar: Dustin Hoffman, Robert De Niro, Anne Heche, Denis Leary, Willie Nelson, William H. Macy og Kirsten Dunst. Hilmar Karlsson L.A. Confidental ★★★★ Skuggahliðar Los Angeles sjötta áratugar- ins eru sögusviðið í óvenju innihaldsrtkri og spennandi sakamálamynd sem enginn æUi að missa af. Spilltar löggur, ósvífnir æsifréuamenn, melludólgar og glæsilegar vændiskonur eru á hverju strái. -HK Titanic ★★★i Stórbrotin og ákaflega gefandi kvikmynd. Af miklum fítonskrafti tókst James Camer- on aö koma heilli i höfn dýrustu kvikmynd sem gerð hefur verið. Fullkomnunarárátta Camerons skilar sér i eðlilegri sviðsetningu sem hefur á sér mikinn raunsæisblæ. Le- onardo DiCaprio og Kate Winslet eru eftir- minnileg í hlutverkum elskendanna. -HK Good Will Huntinq H**** I mynd þar sem svo mikiö er lagt upp úr persónunum verður leikurinn að vera góð- ur. Sérstaklega eftirminnilegur er samleik- ur Williams og Damons. Hiö sama má reyndar segja um flesta leikara f aukahlut- verki. Bestur er þó Stellan Skarsgárd en í túlkun sinni á stærðfræöingnum Lambeau dregur hann upp sannfærandi mynd af manni með mikla sérgáfu sem þó verður aö játa sig sigraðan í návist ótrúlegrar snilligáfu. -ge Litla hafmeyian ★★★ Teiknimyndir Walts Disneys eru klassískar og þegar ný kynslóö rís eru þær settar á markaðinn á ný og er ekkert annað en gott um það aö segja. Litla hafmeyjan kom meö ferskan blæ inn í þetta kvikmyndaform eft- ir að teiknimyndir f fullri lengd höfðu veriö! lægö um nokkurt skeið og hún á fullt erindi enn til ungu kynslóðarinnar. íslenska tal- setningin er vel heppnuð. -HK Welcome to Saraievo ★★★ Ahrifamikil og vel gerð kvíkmynd um frétta- menn að störfum í rústum Sarajevo. Heim- ildarmyndum og sviðsettum myndum er ákaflega vel blandað saman og mynda sterk myndskeið. Mynd sem vekur margar spurningar um eöli mannsins i stríði og kemur við kaunin á stjórnmálamönnum sem eru mislagöar hendur f að leysa vandamál sem þessi. -HK The Boxer ★★★ Handrit þeirra Sheridans og Georges er ágætlega unnið, leikur Daniel Day-Lewis til fyrirmyndar og hnefaleikaatriöin vel úr garði gerð. Aðrir leikarar standa sig einnig með stakri prýöi. -ge Djarfar nætur ★★★ I Boogie Nights snýst allt um hin gríðar- langa lim klámstjörnunnar Dirks Digglers. Sem tímabilskönnun er mynd Anderssons afbragðsgóð, handritið er vel skrifað og ef drengurinn heföi bara skafið af eins og hálfa Tarantinósenu hér og hálfa Travolta- senu þar (og sleppt ofurlanga gúmmítypp- inu) þá hefði þetta getað orðið ansi full- komið. En verður að láta sér nægja að vera þara ómissandi. -úd Það gerist ekki betra ★★★ Framan af er As Good As It Gets eins góö og gamanmyndir gerast. Samræðurnar ein- kennast af óvenjumikilll hnittni, leikurinn er með ólikindum og handritshöfundunum Andrus og Brooks tekst aö stýra framhjá helstu gildrum formúlufræðanna. Það var mér þvi til mikilla vonbrigöa þegar myndin missti flugið eftir hlé. Leikurinn var enn til fyrirmyndar en þær fjörmiklu og óvenjulegu persónur sem kynntar voru til sögunnar í upphafi fengu ekki svigrúm til þess aö vaxa. -ge Lína langsokkur ★★★ Lina langsokkur er löngu oröin klassísk og það vill stundum gleymast aö hún er ekki erfð meö genunum heldur lesin á bókum. Lína er hinn stjómlausi óskadraumur allra barna, fgáls, óháð og gersamlega sjálf- stæð, því hún bæöi getur allt og ieyfir sér allt. Þarna tókst vel til hvaö varðaði teikn- ingar og útfærslur og þaö er óhætt að mæla með þessum Línu-pakka fyrir börn á öllum aldri. -úd Þú veist hvað þú gerðir... ★★★ Handritshöfundurinn Kevin Williamson er hér aftur búinn að hrista þessa flnu ung- lingahrollvekju út úr erminni og er hér með mynd sem er bæöi sjálfsmeövituö og al- vöru spennandi hrollvekja, smart og vel gerö. Og það ftaug popp. Það hlýtur aö vera þriggja stjörnu virði. -úd Stikkfrí ★★★ Gott handrit og góöa barnaleikara þarf til að gera góöa þarnamynd og þetta er aö finna f kvikmynd Ara Kristinssonar sem auk þess gerir góðlátlegt grfn að þeim aðstæöum sem börn fráskilinna foreldra lenda í. Skemmtileg og Ijúf fyrir alla fjölskylduna.- HK Flubber ★★★ Flubber býr yfir einfaldleika sem því miður er allt of sjaldséður I kvikmyndum sfðustu ára. Hún er barnamynd fyrir böm og ég get engan veginn séö það sem galla. Besti mælikvarðinn á slíkar myndir er salur fullur af ánægðum börnum. Og krakkarnir voru i stuði. -ge Seven Years in Tibet ★★i Myndin ber með sér að hvert einasta atriðí er þrauthugsað og raunsæið látið ráða ferð- inni, kannski um of. Myndin verður af þeim sökum aldrei þetta mikla og spennandi drama sem efnlð gefur tileíni til þótt ein- staka atriöi risi hátt. Útlit myndarinnar er óaðfinnanlegt, kvikmyndataka stórfengleg og leikur mjög góður en neistann vantar.-HK Desperate Measures ★★< Sem spennumynd er Desperate Mesures hin sæmilegasta skemmtun en bfður þó ekki upp á neitt nýtt f frásagnarfléttu og persónusköpun. Heistl kostur hennar eru ieikur Michaels Keatons, sem er afbragðs illmenni og morðhundur, og Andys Garcia sem er sannfærandi sem faðirinn sem fórnar öllu f þágu sonar síns. Túlkun þeirra tveggja er það eina sem hefur myndina yfir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.