Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.1998, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.1998, Blaðsíða 11
FÖSTUDAGUR 27. MARS 1998 ★ ★ 25 V Á nýju plötunni eru pælingarnar frekar „fullorðnar", en Jarvis hefur þó engar sérstakar áhyggjur af því að yngri að- dáendur hætti að hlusta á bandið. og gula pressan komst í feitt. Nú var hann þekktur sem „gaurinn sem réðst upp á svið hjá Michael Jackson", frekar en sem „söngvar- inn í Pulp“ og var á tímabili tíður gestur í partíum „fræga fólksins", „eftirsóknarverðasti piparsveinn- inn í London", eins og kvennalöðin kölluðu hann. Frægðin og dauðinn Jarvis dró sig smám saman úr sviösljósinu og ýmsar kjaftasögur fóru á kreik; að hann væri á kafi í heróíni og að hann þjáðist af skrif- teppu. Gítarleikarinn Russell Seni- or, sem hafði verið í hljómsveitinni síðan „Freaks" var gerð, hætti. Pulp fór að vinna að nýju efni í byrjun síðasta árs, í rólegheitum úti í sveit. Nú er platan að koma út og er hljómsveitinni nokk sama hvort hún verður vinsæl eða ekki. Jarvis veit hvað það er að vera frægur. „Ef ég ætti að lýsa tilfinningunni að vera frægur," segir hann, „þá er það ekki ósvipað því að sjá sig í fyrsta skipti á sjónvarpsskjá, að sjá sjálfan sig utan frá. Maður gerir sé grein fyrir hvernig maður gengur, hvernig maður ber sig og hvernig maður er á svipinn þegar maður tal- ar.“ Hann heldur áfram: „Megnið af minni kynslóð hefúr farið beint úr skóla á atvinnuleysisbætur og manni leið eins og ósýnilegum hluta af samfélaginu. Auðvitað var það því spennandi tilhugsun að geta tek- ið þátt í „ljúfa lífmu“, svo kallaða. Eftir sex mánaða veisluhöld komst Ný Pulp-plata: b og sjúskuö ég að því að þetta var ekkert spenn- andi líf, alveg ótrúlega innantómt og maður fljótur að brenna út.“ Jarvis vill þó ekki semja texta um frægðina: „Nei, það væri kvikindis- skapur að semja um frægðina út frá minni reynslu. Það væri að senda þessi skilaboð: „Ekki reyna að verða neitt, ekki reyna að komast út úr rútínunni sem þú ert í því hitt er hvort sem er ekkert skárra," og það væri illa gert. Það getur vel verið að margir myndu upplifa frægðina á jákvæðari hátt en ég hef gert.“ Jarvis hefur alltaf samið um hluti í umhverfi sínu og um það sem hann hefur sjálfur upplifað. Var því ekki erfitt að sleppa frægðinni úr? „Jú, kannski, en það breytist ekk- ert hvað er þess virði að semja um; ástin, kynlífið, dauðinn - hið mann- lega eðli. Það er ekki verið að finna upp neinar nýjar tilfinningar svo ég viti.“ Hraukkurnar koma Dauðinn, já. „Help the Aged“, fyrsta smáskífan af nýju plötunni er um ellina og dauðann og verður að teljast frekar óalgengt viðfangs- efni í popplagi. Hvað kom til að Jarvis fór að pæla í dauðanum? „Ég veit að það er dálítið aug- ljóst að svara þessu þannig að við deyjum öll, en samt hugsar fólk lit- ið um dauðann. Maður endaði lík- lega á stofnun ef maður væri alltaf að pæla í þessu. En ég fattaði allt í einu að ég var orðinn þrjátíu og eitthvað og hrukkurnar farnar að koma. En þetta kemur líka til af því að meðan við vorum á ferðinni svaf maður i rútum á milli borga í koju sem var eins og hálfgerð lík- kista og maður lá þarna sveittur og andvaka og ímyndaði sér að rútan keyrði út af og þessu væri öllu lokið.“ Á nýju plötunni eru pælingarn- ar frekar „fullorðnar", en Jarvis hefur þó engar sérstakar áhyggjur af því að yngri aðdáendur hætti að hlusta á bandið. Hann svarar því til að það sé nauðalík vaxdúkka af honum í „Rock Circus“safninu í London og vilji fólk upplifa gamla tíma geti það bara farið þangað með „Common People" í vasa- diskóinu. „Þetta er næstum því eins og myndin af Dorian Grey“, segir hann að lokum, „nema í mínu tilfelli snýr dæmið öfugt. Ég eldist og sjúskast en vaxdúkkan helst óbreytt." -glh Jarvis Cocker og hljómsveitin Pulp eru komin á stjá á ný, fjöl- mörgum til mikillar ánægju. Nýja platan, „This is Hardcore", er að koma út um þessar mundir og því upplagt að kíkja lítillega á fortíð bandsins og tékka á því hvaö Jarvis er að pæla í dag. Frá ömmu í gulu press- una Segja má að Pulp sé samvaxin söngvaranum Jarvis Cocker þvi hann stofnaði hljómsveitina með nokkrum vinum þegar hann var 13 ára í Sheffield árið 1978. Hljómsveit- in æfði í byrjun hjá ömmu Jarvisar. Hann hefur alltaf verið áhugasamur um kvikmyndagerð og áður en hljómsveitin spilaði opinberlega sýndi hún stuttmyndina „Þrír Spartverjar" í skólanum. Fyrstu tónleikamir voru 1980 og ári síðar fékk sveitin tækifæri til að taka upp efni fyrir vinsælan útvarpsþátt John Peel á BBC. Fyrsta platan hét „It“ og kom út 1982 fáum til stórrar ánægju. Nú tóku við örar manna- skiptingar og Jarvis prófaði ýmsa tónlistarstíla. Næsta plata kom ekki út fyrr en 1987, hét „Freaks" og vakti enga sérstaka athygli. Á þess- um tíma var Pulp „fjöllistarhópur" og á tónleikum voru sýndar kvik- myndir og skyggnur, og gerð var til- raun til að nota lykt sem hluta af sjóinu. Þetta brölt vakti þó enga at- hygli og Jarvis fór í kvikmynda- skóla um tíma í London. Áður hafði þó verið tekin upp platan „Seper- ations", sem kom ekki út fyrr en 1991. Segja má að eitthvað hafi loksins farið að ganga hjá sveitinni á þess- um áratug. Bob Stanley úr St. Etienne gaf út smáskífuna „My Legendary Girlfriend" á sínu eigin merki og varð það fyrsta lagið með Pulp sem vakti einhverja athygli, var t.d. valið „smáskífa vikunnar“ hjá NME Pulp spilaði með St. Etienne um allt Bretland og Island Records gerði samning við sveitina. Tvær vinsælar smáskifur komu út í kjölfarið, „Lipgloss" og „Do You Remember the First Time“, og þar var stíllinn sem Pulp er þekkt fyrir kominn fram, poppaður en þó djúp- þenkjandi. Breiðskífan „His 'n’ Hers“ kom út og náði 9. sæti enska vinsældalist- ans og hljómsveitin spilaði stíft næstu mánuði um alla Evrópu og fór í Ameríkutúr með Blur. Vin- sældirnar stigmögnuðust og þegar vinsælasta lag Pulp, „Common People", kom út í maí 1995 voru fáar hljómsveitir jafn vinsælar í Englandi. Sjálfur segir Jarvis að há- punktur ferilsins hafi verið á Gla- stonbury-hátiðinni þá um sumarið þegar þúsundir unglinga tóku undir í viölaginu á „Common People". Nú hafði enska gula pressan feng- ið áhuga á Jarvis og sló honum upp á forsíðu sem sjúkum eiturprangara eftir að næsta smáskífa, „Sorted for E’s and Wizz“, kom út. Öll þessi at-' hygli varð til þess að næsta breið- skífa, „Different Class” fór beint í efsta sæti enska listans um haustið. Þessu fylgdu löng og ströng tón- leikaferðalög um allar jarðir, m.a. hingað um sumarið 1996, þegar Pulp spilaði frábæra tónleika í troðfullri Laugardalshöll. Á Brit-verðlaunaaf- hendingunni 1996 náði Jarvis há- tindi frægðarinnar. Ekki fýrir að vinna einhver verðlaun heldur fyrir að hlaupa upp á svið þegar Michael Jackson var að koma fram og veifa rassinum framan í áhorfendur. Þetta gerði hann í mótmælaskyni til að eyðileggja helgislepjulega sviðs- framkomu Jacksons, sem kom fram sem hálfgerður Jesús með hjörö af smábömum og meintum betlurum (dulbúnum lífvörðum) í kringum sig. Jarvis var færður út í böndum Segja má að Pulp sé samvaxin söngvaranum Jarvis Cocker því hann stofn- aði hljómsveitina með nokkrum vinum þegar hann var 13 ára í Sheffield árið 1978. Álafoss föt bezt Rúnar Þór og félagar leika bæði fóstudags- og laugardagskvöld á staön- um Álafoss föt bezt. ar úr hinum sálugu Vin- um vors og blóma. Eyjólf- ur Kristjánsson og Siggi Gröndal mæta síðan og skemmta á sunnudags- kvöld. Skítamórall Hljómsveitin Skíta- mórall ætlar að spila á Hótel Örk í kvöld en þar fer fram fegurðarsam- keppni Suðurlands. Buttercup Kaffibar Jen- sen Djasstríó Reykjavíkur ásamt Geir Ólafssyni verður á Kaffibar Jensen í Ármúla annað kvöld. Óvæntur gestur verður bomban Miss Juliette. Stuðsveitin Buttercup mun skemmta á Rósen- berg í kvöld. Annað kvöld verða þeir félagar svo á Hótel Mælifelli á Sauðárkróki. Gaukurá Stöng Café Menning Á Dalvik gerist aOtaf eitthvað á Café Menn- ingu. Þar veröur Sælu- sveitin í kvöld en annað kvöld verður unglinga- dansleikur með hljóm- sveitinni Latex. Gleðisveitin Land og synir treður upp á Gauknum bæði föstu- dags- og laugardagskvöld. Sveitin hefur tekið breyt- ingum í vetur og um borð eru komnir skallapoppar- Upplyfting Hljómsveitin Upplyft- ing leikur ásamt Ara Jónssyni í Danshúsinu Glæsibæ annað kvöld. T

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.