Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.1998, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.1998, Blaðsíða 10
24 FÖSTUDAGUR 27. MARS 1998 <fánlist ísland plötur og diskar - t 1.(6 ) Pottþóttll Ýmsir fiytjendur it 2.(3) Pilgrim Eric Clapton 4 3. ( 2 ) Titanic Ur kvikmynd 4 4. (1 ) All Saints All Saints $ 5. ( 5 ) Left of the Middle Natalie Imbruglia $ 6. ( 4 ) Madonna Ray of Light | 7. ( 7 ) Urban Hymns The Verve t 8.(11) Drumsanddecksandrockandroll Propellerheads t 9. ( 9 ) Moon Safari Air | 10. ( 8 ) Aquarium Aqua 4 11. (10) Let's Talk About Love Celine Dion t 12. (12) Yield Pearl Jam t 13. (Al) Together Alone Anouk t 14. (15) OK Computor Radiohead t 15. (Al) BestOf Bob Dylan t 16. (Al) BestOf Eros Ramazotti f 17.(17) Simply the Best Tma Turner t 18. (Al) Time Out Of Mind Bob Dylan t 19. (Al) Reload Motallica t 20. (Al) Greatest Hits Queen London -lög- | 1. (i ) It's Like that Run DMC Vs Jason Novins t 2. ( 3 ) My Hoart will go on Celine Dion 1 3. ( — ) Let Me Entertain You Robbie Williams ( 4. < 2 ) Stop Spico Girls | 5. (- ) No No No Destiny's Child | 6. ( 5 ) Frozen Madonna t 7. (- ) Here's Where The Story Ends Tin Tin Out & Sholley Nelson t 8. (- ) Angel SL M People | 9. ( 9 ) Truely Madly Deeply Savage Garden f 10. (- ) Fathor LL Cool J New York -lög- I 1.(1) Gettin' Jiggy Wit it Will Smith »2. ( 2 ) Nice and Slow Usher | 3. ( 4 ) No. No, No Destiny's Child | 4. (3 ) My Heart Will Go On Celine Dion t 5. ( 8 ) Frozen Madonna | 6. ( 5 ) Truely Madly Deeply Savage Garden | 7. (- ) Let's Ride Montell Jordan | 8. ( 7 ) Gone Till November Wyclef Jean t 9. ( - ) Deja Vu Lord Tariq & Peter Gunz $ 10. ( 6 ) What You Want Mase (Featuring Total) Bretland —— -plötur og diskar— Á hátindinum í höllina: Wa® Prodigy - á íslandi Koma Prodigy hingað núna er sannarlega kasrkomin. Peir eru á algjörum há- tindi vinsælda og hlýlegt til þess að vita að þeir muni eftir skerinu, en tón- leikar þeirra hér eru ekki partur af neinni tónleikaferð heldur báðu þeir sér- staklega um að koma. Á morgun spilar The Prodigy í fjóröa skipti hérlendis, í Laugar- dalshöllinni. Þessi enska hljóm- sveit er með þeim vinsælustu í heiminum í dag og líklega sú vin- sælasta á íslandi, eins og fjölmarg- ar íslenskar vefsíður og jafnvel eitt aðdáendablað ber vitni um. Síðasta plata „Fat of The Land“, sem kom út síðasta sumar, hefur selst í 7500 eintökum hér á landi og er enn á góðu skriði. Hljómsveitin hefur átt sívaxandi vinsældum að fagna hér. Fyrsta platan „Experience" hefur selst í 2000 eintökum og „Music For The Jilted Generation" i 4000 eintök- um. Þá hafa smáskífurnar „Firestarter" og „Breathe", sem komu út á miili síðustu tveggja platna, selt tæplega 3500 eintök hvor um sig. Fyrst kom hljómsveitin hingað um haustið 1994 og spilaði í Kaplakrika fyrir fullu húsi. Þá léku þeir efni af tveim fyrstu plöt- unum, en „Jilted Generation" hafði einmitt komiö út um sumar- ið og lagið „No Good“ verið vin- sælt. Aftur komu þeir um sumarið ’95 og voru ógleymanlegt lokaat- riði á Uxa-hátíðinni. Síðast komu þeir fyrir sléttum tveim árum, í mars ’96, og spiluðu fyrir troðfullri Laugardalshöll. Þá léku þeir m.a. mörg lög af „Fat of The Land“, sem þá var óútkomin. Koma Prodigy hingað núna er sannarlega kærkomin. Þeir eru á algjörum hátindi vinsælda og hlý- legt til þess að vita að þeir muni eftir skerinu, en tónleikar þeirra hér eru ekki partur af neinni tón- leikaferð heldur báðu þeir sérstak- lega um að koma. Miðasala hefur eðlilega gengið vel. Þegar Fjörkálf- urinn fór í prentun var að verða uppselt á tónleikana. Stöðug þróun Liam Howlett er bæði heili og mótor sveitarinnar, semur flest lög- in og setur reglurnar. Sjálfur segir hann þó bandið ekki geta virkað án hinna þriggja meðlimanna. Þegar nýjasta platan kom út lét hann þau orð falla að hún yrði síðasta plata sveitarinnar. Hann var orðinn „hundfúll yfir að öllum fyndist gaman að Prodigy". Seinna stað- festi hann að þetta hefði verið sagt af því hann var undir mikilli pressu að klára plötuna og í dag segir hann að hljómsveitin haldi áfram eins lengi og einhver þróun sé í gangi. Það ætti ekki að vera mikið mál því sveitin hefur verið í stöðugri þróun frá upphafi, t.d. er langur vegur á milli reiftónlistar fyrstu plötunnar í þungt rafpönkið á þeirri síðustu. Það hefur ailtaf verið erfitt að flokka hljómsveitina og hún farið eigin leiðir. Liam er frumkvöðull og hræðist ekkert heitar en að staðna. Hann hefur neitað að vinna með stórstjömum eins og David Bowie, U2 og Madonnu (jafnvel þótt Prodigy séu gefnir út af fyrirtæki hennar Ma- verick í Bandaríkjunum) og kann betur við sig í frjórri félagsskap, t.d. er líklegt að hann vinni með rokkböndunum Biohazard og KoRn síðar á árinu. Fyrst i stað lét Keith Flint sér nægja að dansa á tónleikum en síð- an hann söng „Firestarter" og fékk sér áberandi klippingu og hring í tunguna hefur hann verið að færa sig upp á skaftið og í dag má segja að hann sé andlit sveitarinnar. Pönkuð rödd hans minnir á skemmtilegt gargið í Johnny Rott- en og því hefur Prodigy stundum verið líkt við Sex Pistols, sem er samlíking sem einhver glóra er í. Gríðarlegur kraftur Rapparinn Maxim Reality er einnig áberandi. Hann var áður í reagge- hljómsveitinni Maxim Rea- lity and Sheik Yan Groove og hefur verið að vinna að sólóplötu, sem enn er óútkomin. Dansarinn Leer- oy Thomhill er fjórði fasti meðlim- urinn og er á yfirborðinu sá ónauð- synlegasti. Þó segir Liam að hann haldi bandinu saman á einhvem dularfullan hátt. Auk þessara fjögurra kemur hljómsveitin fram með gítarleikar- aninn Graham „Gizz“ Butt og nýj- ustu viðbótinni, trommaranum Kieron Pepper, sem gekk í hópinn sl. desember. Gríðarlegur kraftur er í hljóm- sveitinni á tónleikum og er ekkert til sparað að tónleikamir á morgun heppnist sem best. Þeir flytja inn risavaxið hljóðkerfi sem verður hrein viðbót við kerfið sem vana- lega er notað í Höllinni, og álíka öfgafullt ljósakerfi svo Prodigy- upplifunin ætti að verða í sterkasta lagi. Laugardalshöllin opnar kl. 7 og snillingarnir í Quarashi hita kofann upp fyrir átökin. Gert er ráð fyrir stuði. Miklu stuði... -glh Kemur einhvern tímann út ný Guns N’ Roses-plata? » ■ « * 1 » L 1. (5) Let's Talk About Love Celine Dion 2. (2) Trtanic Úr kvikmynd 3. ( 1 ) Ray of Light Madonna 4. ( 4 ) Life Thru a Lens Robbie Williams 5. ( -) Truely - The Love Songs Lionel Richie 6. ( 7 ) Urban Hymns The Verve 7. ( 9) Leftofthe Middle Natalie Imbruglia 8. ( 6 ) Pilgrim Eric Clapton 9. ( 3 ) Tin Planet Space 10. ( -) Postcards From Heaven Lighthouso Family Bandaríkin -plötur og diskar — | 1. (1 ) Titanic Úr kvikmynd f 2. ( 2 ) Ray of Light Madonna | 3. ( 3 ) Let's Talk About Love Celine Dion f 4. (- ) Pilgrim Eric Clapton 4 5. ( 5 ) Savage Garden Savage Garden | 6. ( 7 ) Love Always K-ci & Jojo f 7. ( 9 ) The Wedding Singer Úr kvikmynd | 8. ( 8 ) Backstreet Boys Backstreet Boys 4 9. ( 4 ) My Homies |10. I -) LoftOI The Middle Natalie Imbruglia Þessarar spumingar hafa fjölmarg- ir aðdáendur spurt sig í löng fimm ár, síðan graðhestarokksveitin lofsöng pönkið á „The Spaghetti Incident". „Það getur vel verið að það komi út ný plata fyrir áramót," segir Bryn Bridenthal hjá Geffen-plötum, „en ég hef að vísu sagt þetta síðustu þrjú árin.“ Aðalástæðan fyrir þessari miklu töf er „tónlistarlegur ágreiningur" á milli Axl og Slash gítarleikara. Axl vildi fara út í harðari tónlist í anda Nine Inch Nails og Prodigy en Slash vildi halda sig við rætumar í þungarokk- inu. „Það skiptir Axl miklu að fylgjast með,“ er haft eftir umboðsmanninum Doug Goldstein. Slash er hættur í hljómsveitinni eins og aðrir og er Axl nú eini upprunalegi meðlimurinn. Gamli trommarinn Matt Somm hafði þetta að segja; „Axl hefur miklar áhyggjur af því hvað hefur verið að gerast í músik á þessum áratugi. Mest af „Use Your Ulusion I & 11“ var samið á hlaupum á tónleikatúrum, en þegar kom að því að gera þessa plötu hafði hann of rúman tíma og fór að kryfja tónlistina of mikið, pældi of mikið í því sem hann heyrði í útvarpinu eða sá á MTV. Frá mínum bæjardyrum séð er málið bara það að ef krakkam- ir vilja kaupa teknó munu þeir ekki kaupa Guns N’ Roses, sama hvað Axl rembist." En teknógúrúinn Mody er ekki sammála. Hann eyddi tíma með Axl í/ r \ér. tdÁ'ul Axl vildi fara út í harðari tónlist i anda Nine Inch Nails og Prodigy en Slash vildi halda sig viö ræturnar í þungarokkinu. nýlega og segir að Axl hafi leyft hon- um að heyra nokkur verulega góð lög sem séu rokk og ról unnin með sarps- tækni (sampling). Goldstein umboðs- maður vill meina að nú sé málið bara að setja saman góðan hóp og klára plötuna i eitt skipti fyrir öU. í sveit- inni eru nú auk Axl, gítarleikaramir Robin Finck (úr NIN) og Paul Huge og hljómborðsleikarinn Dizzy Reed. Ýms- ir aðrir hafa verið prófaðir, eins og trommararnir Dave Abbruzzese (úr Pearl Jam) og Chris Vrenna (úr NIN). Þá hafa margir þungavigtar- hljóð- stjómendur verið nefndir til sögunn- ar, eins og Flood, Moby, Rick Rubin og Steve Lillywhite, en ekki er búið að ákveða hver fær djobbið. Geffen-fyrirtækið hefur dælt miklu fé í plötuna, vel yfir milljón dali, sem þó er talið lítill peningur i hljómsveit sem hefur selt 62 milijónir eintök af plötum sínum. Innan fyrirtækisins er þó grínast með það hversu lengi plat- an hefur tafist, og moldvörpulifnaður Axl, sem varla fer út úr húsi lengur, svo upptekinn er hann af að klára plötuna, hefur hrint af stað kjaftasög- um. „Axl mun ekki láta undan þrýstingi að klára þessa plötu," segir umbinn. „Hann mun halda áfram að prófa nýtt fólk og nýjar áherslur og þegar hon- um finnst tíminn réttur - hvenær svo sem það verður - mun platan koma út.“ -glh

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.