Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.1998, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.1998, Blaðsíða 9
U"\^ FÖSTUDAGUR 27. MARS 1998 HLJÓMPLjÍTU Éíiilifij Killah Priest - Heavy Mental ★★★ Rapplistamaðurinn Killah Priest er aðeins laustengdur rappmaskinunni Wu Tang Clan, sem hefur dælt út finu hipp hoppi síðustu árin. Hann er þvi ekki „Wu-Tang“ heldur „Wu- Fam“, líkt og íslandsvinirnir Gravediggaz og margir fleiri. Killah er góður félagi GZA (eins aðal Wu-Tang-arans) og kom fram á sólóplötu hans Liquid Swordz. Killah er einnig aðal- naglinn í Sunz of Man-hópnum en Heavy Mental er fyrsta sóló- platan hans. Ýmsir Wu- Tangarar koma fram á þessari plötu og því lík- legt að hún verði vinsæl enda Wu Tang Clan vinsælasta fyrirbæri innan rappbransans í dag. Killah tekur ekki að sér neitt smáræðis verkefni. Hann líkir sér við Móses endurborinn og hyggst leiða hjörðina aftur til landsins helga. Dá- litill predikunartónn er vitanlega á rappi frelsarans, en þetta er ekki vælulegur tónn eins og búast má við af prestum, heldur harður og ákveð- inn stíll sem tekur á sögu heimsins, pólitík og flækjum mannlegs eðlis í bland við klikkaðar hugmyndir og fantasíur. Aukinheldur vegsamar Killah vitanlega sjálfan sig, eins og röppurum er tamt; „I write shit as sick as Shakespeare trippin’ off acid“, rappar Killah og það er ekki svo vitlaus samlíking hjá honum að líkja sér við Shakespeare á sýrutrippi. Það vantar ekki að rapp prestsins er þrusugott og tónlistin undir rapp- inu nær sér oft á fantafmt flug. Taktarnir eru vel spunnir og ýmislegt skemmtilegt og frumlegt sprettur upp í tónlistinni. En þetta er ógurlega löng plata; 20 lög á 75 mínútum, svo í heildina litið eru alltof margar end- urtekningar. í eðli sínu er rapptónlist líka frekar einhæf svo það þarf nokkra þrautsegju til að þrauka áhugasamur plötuna á enda. Platan er því vegleg varða á leið rappsins, en ekki sú krappa beygja sem ég er að bíða eftir. Það er engin spuming að næsta bylting í rappinu verður að koma annars staðar frá en úr herbúðum Wu Tang. Þótt flest sé áhugavert sem kemur þaðan er ékki laust við að einhæfur tónn sé kominn í dæm- ið. Gunnar Hjálmarsson Mark Hollis - Mark Hollis ★★★★ Mark Hollis var aðalmaður- inn í Talk Talk, hljómsveit sem var upp á sitt besta á síðasta áratugi og gerði margar athygl- isverðar plötur. Tónlistin þyngdist með hverri plötu, á þeirri síðustu „Laughing Stock" voru þyngslin orðin slík að ekki dugði minna en tíu hlustanir til að fá einhvern botn í verkið, en þá lukust líka upp miklir ævintýraheimar sem voru vel þrjóskunnar virði. Þessi plata kom út 1991 en nú sjö árum seinna er Mark kominn aftur með frábæra sólóplötu. Hún er í senn níðþung og lauflétt. Mark notar eingöngu lífræn hljóð- færi, þ.e.a.s. engin tölvutól, og platan var tekin upp því sem næst „læf ‘ með tveimur hljóðnemum í hljómgóðu hljóðveri. Hljómurinn er léttur en tónlistin sjálf virðist þung við fyrstu hlustanir af því hún er ekki uppbyggð eftir hefðbundnum poppleiðum - millikafli/viðlag - heldur flæðir hún áfram og maður heyrir glitta í áhrifavaldana og það sem Mark hefúr verið að hlusta á; klassík að hætti Ravels og djass í anda Miles Davis. Það tekur þó nokkurn tíma að komast inn i þessa plötu og eins og með plötur Talk Talk borgar sú þrákelkni sig á endanum. ÖU platan er einstaklega þægileg og afslappandi og maður hefur stundum á tilfinningunni að Mark sé að fara að gráta, slíkur er treg- inn í röddinni (hann á erfiða daga að baki, heróínfíkn og aðra bömmera). Mark lagði upp með þá hugmynd að gera þögninni betri skil en áður hefúr tíðkast. Þetta tekst honum vel þvi stundum fer svo lítið fyrir plöúmni að maður gleymir að hún sé á, en rankar svo við sér, kannski í miðjum klarinettkafla, endumærður eins og eftir ör- stuttan og draumlausan blund. Hugljúfara verk og meira afslappandi hef ég ekki heyrt lengi og er platan fyUilega samkeppnishæf við jóga- tíma og freyðiböð. Gunnar Hjálmarsson Symposium - One Day at a Time ★★★ Symposium er svar London við Green Day, sagði BiUboard í fyrra um þessa hálfgerðu pönk- sveit, ættaða frá vestur London og skipuð fimm ungum mönnum sem byrjaðu sem “coverband”. Symposium hefur að undan- förnu komið með hvem smeU- inn á fætur öðrum í heimalandi sínu Englandi og má finna þau lög á þessum diski. Sveitin gerði nýlega samning við útgáfúfyrir- tækið Red Ant Entertainment og er að vinna að siimi fyrstu fúllr- ar lengdar plötu. í miUitíðinni er þessi diskur gefinn út og inniheldur átta lög auk bónusdisks sem státar af fjórum lögum. SmeUimir Drink The Sunshine, FareweU To Twilight og Fairweather Friend standa fyrir sínu, hraðir rokkarar í ætt við melódískt pönk og fuUir af sólskini og krafti. Af öðrum lögum má nefna Fear Of Flying, ágætislag og einfalt, og lagið A Song af bónusdisknum sem kemur skemmtUega á óvart. One Day At A Time er skemmtUeg plata þó hér séu engar djúpar pæl- ingar } textum eða lagasmíðum. Einfaldleikinn ræður hér ríkjum, hraði, kraftur, rokk og oft á tíðum er það þetta þrennt sem fær okkur tU að gleyma amstri hversdagsins og vandamálum líðandi stundar. Páll Svansson - *' nlist 23 * Hún heitir Emma Townshend, er tuttugu og átta og var aö gefa út sína fyrstu sólóplötu, „Winterland". Hún er dóttir Pete Townshend, hins aldna gítarbrjálæðings úr The Who, en segir að það sé ekki svo erfitt að vera í frægðarskugganum af pabba gamla. Hún var alin upp við tónlist í báðum ættum, sem dæmi er afi hennar í móðurætt Edwin Astley, sá sem samdi titUlagið fyrir sjónvarps- þáttinn Dýrlinginn. Tónlistin var í blóðinu og Emma dundaði sér í stúdíóinu hjá pabba sem smástelpa. Húsið var fúUt af hljóðfærum og i stað þess að heyra ævintýri hjá pabba sínum fyrir háttinn töluðu mæðginin um rokk og ról. Fyrir tíu árum hafði hún tækifæri tfl að fá samning og gera plötu en það var uppreisn í stelpunni og hún vUdi frekar ganga menntaveginn og lærði sagn- og félagsfræði í Cambridge tU margra ára. Öfugt við flesta foreldra vUdi Pete frekar að Emma legði stund á tónlist og fannst lítið tU þessa menntastúss i stelpunni koma, en át svo aUt ofan í sig þegar hún útskrifaðist. f miðri doktorsritgerð - um fé- lagslega sögu garðyrkju - fór fjöl- skylduiðnin að toga fast í Emmu og ekki batnaði ástandið þegar hún kynntist Dylan Rippon, sem hafði nákvæmlega sömu skoðun og smekk á tónlist og hún. Þau fóru að búa og gera tónlist saman, en bæði spUa þau á ýmis hljóðfæri. Þau komu sér upp upptökuaðstöðu í stofunni hjá sér, 12 rása gamaldags * f Emmu hefur veriö líkt viö Fionu Apple, Kate Bush og Björk, en sjálf segist hún hafa viljaö gera plötu sem hljómaöi eins og spóla sem fannst á háalofti úti í sveit. Emma Townshend - í skugganum af pabba sínum upptökutæki og á þessar græjur var tónlistin á „Winterland" tekin upp. Platan hljómar vinalega, eins og gamalt loðið teppi, og tU að fá fram andstæðu fór Emma í nýtískuhljóð- ver og fékk tæran og glerkenndan hljóm á sönginn. Útkoman er plata sem hefur verið að fá misjafna en í heUd ágæta dóma. Emmu hefur ver- iö líkt við Fionu Apple, Kate Bush og Björk, en sjálf segist hún hafa vUjað gera plötu sem hljómaði eins og spóla sem fannst á háalofti úti í sveit. Pabbinn er ánægður með plöt- una en hann er vanur að segja sína skoðun umbúðalaust þótt dóttir hans eigi í hlut. Emma hefur engar áhyggjur af framtíðinni; „Það er ekki eins og ég káli mér þótt platan gangi ekki neitt. Ég get alltaf farið að kenna!" - glh Breikid snýr aftur Tískan gengur í hringi. Það virðast fáir fá leið á að finna upp hjólið og finnast gömul tíska heit á ný. Nú er gamli breikdansinn aft- ur orðinn vinsæU hjá unglingum, það vinsæU að íslandsmeistara- mótið í breikdansi verður haldið nk. fimmtudagskvöld á Broadway, Hótel íslandi. Breikdansinn á rætur sínar að rekja tU Bandaríkjanna þar sem fyrirbærið myndaðist upp úr ung- lingamenningu í úthverfunum í upphafi sjöunda áratugarins. Breikið er nátengt danstónlistar- straumum og veggjakroti og sé hlustað á vinsæla breiktónlist frá síðasta áratug hefur tónlistin hald- ist skemmtflega fersk. Tvöfaldi geisladiskapakkinn „King Of The Beats“, sem var gefinn út í tUefni breska meistaramótsins í fyrra, er stútfuUur af afbragðs breiktónlist og frábær byrjunarreitur inn í þennan tónlistarheim. Fyrir utan helstu breiksmeUina geyma diskarnir myndefni, bæði sýnis- hom af breikdansi og veggjakroti. Breikið náði miklum vinsæld- um hér á landi um miðjan síðasta áratug og urðu nokkrir ungir menn þjóð- þekktir fyrir fimi sína í breikdansi. Nú eru þeir flestir orðnir ráð- settir og ný kyn- slóð af breik- hetjum koma í inn. samt legt að ein- hver af gömlu hetjunum taki strigaskóna fram á ný og rifji upp gamla takta á íslandsmeistaramót- inu. í tUefni mótsins koma hingað tU lands þeir Evo, sem er tvöfald- ur Bretlandsmeistari í breikdansi, og Tuff Tim Twist úr U.K. Rock Steady Crew. í for með þeim verð- ur breikplötusnúðurinn DJ Hooch. Þessir herramenn hafa verið á tón- leikaferðalagi með hljómsveitinni The Prodigy og sýnt listir sínar áður en sveitin spUar. Einnig komu þeir fram í nýjasta mynd- bandi Run DMC við lagið It’s Like That (Drop The Break), sem er um þessar mundir vinsælasta lagið í Englandi. Þessir sendiherrar breikdansins eru nýkomnir af Jap- ansmeistaramótinu í breikdansi sem haldið var Breikiö náöi miklum vin- sældum hér á landi um miðjan síöasta áratug og uröu nokkrir ungir menn þjóðþekktir fyrir fimi sína í breikdansi. í Tókíó á dög- unum. íslands- meistaramótið er opið öUum þeim sem vUja keppa, hvort sem um er aö ræða einstaklinga eða hópa. Nú þegar hafa fjölmarg- ir skráð sig og má búast við spenn- andi keppni. Skráning keppenda stendur yfir í Hljómalind (s. 5524717) og Dans- smiðjunni (s. 5619797). Skráningar- gjald í keppnina er 500 kr. og ald- urstakmark 14 ár. Forsala að- göngumiða er í öUum helstu hljómplötuverslunum. -glh

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.