Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1998, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1998, Blaðsíða 2
FIMMTUDAGUR 30. APRÍL 1998 *>*j&lkmyndir * * ★ KVIKMWA íslenska huldufólkið átti það til að fá hluti lánaða og skila þeim siðan betri til baka - eða alls ekki. Þjóðsögumar gera líka ráð fyrir smávöxn- um búálfum og nú undanfarið hefur álfaáhugi aukist mikið í kjölfar kortlagningar á álfabyggð í Hafnarfirði og vaknandi vitneskju um blómáifa sem eru viðkvæmir fyrir skurki. Búálfamir í þessari búáifa- mynd em líka viðkvæmir fyrir skurki þótt þeir séu ekki af íslensku bergi brotnir heldur enskir, en það kemur ekki að sök. Búálfar em var- kárir og láta lítið fyrir sér fara því ef þeir sjást þá eru þeir klesstir af mann-sveskjunum sem mistaka þá fyrir mýs eða önnur meindýr. Þeir eru líka úrræðagóðir og flinkir að klifra. Myndin segir frá búálfafjöl- skyldunni Klukku og mennsku fjölskyldunni Lenders sem deila gömlu húsi í ensku smáþorpi. Vondi lögfræðingurinn Potter (John Goodman) svindlar húsið út úr Lendemnum svo allir þurfa að flytja. En falin í vegg er erfðaskrá sem tryggir rétt Lenderanna gegn Potter og það kemur í hlut smáfólksins að redda málunum. Sem það gerir með miklum hama- gangi og glæsibrag og allir flytja aftur til síns gamla heima. Tæknin er orðin svo fullkomin að núorðið er undantekning ef sést „ára“ í kringum svona innsetningar og smáfólkið ferðaðist af fullkomnu öryggi um eldhús, mjólkurbú og búr, velútbúið tannþráðum og tölum og herklætt Mackintosh-sælgætisbréfúm. Sjónræn útfærsla var sérlega snjöll þar sem kunnuglegir smáhlutir í nýjum hlutverkum flugu svo hratt hjá að maður mátti hafa sig alla við að fylgjast með. Það sem síð- an gerði sjónarspilið enn skemmtilegra var allt umhverfl mann-sveskj- annaf sem hafði yfir sér svipaðan ævintýrablæ og heimur búálfanna þar sem bílar og húsmunir minntu áberandi meira á leikfong en „raunveru- lega“ hluti. Sem oft áður er fjarlægð i tima notuð til að skapa þennan ævintýrablæ, sem hér virkaði einstaklega vel með tilheyrandi gamal- dags mjókurflöskum (enn við lýði þó) og hjólaskautum. Bill and Ted leikstjórinn Peter Hewitt gerir hér góða hluti sem fyrr þar sem fara sam- an sjónræn veisla, hraði og húmor. Ómissandi fyrir álfa og fólk af öllum stæröum. Leikstjóri: Peter Hewitt. Aöalhlutverk: John Goodman, Jim Broadbent, Celia Imrie og aðrir búálfar. Úlfhildur Dagsdóttir Sambíóin - Mr. Magoo: í augum uppi ** Borrowers/Búálfamir: Smáfólk *** Undanfarin ár virðist Di- sney-fyrirtækið hafa sérhæft sig í því að gera leiknar kvik- myndir eftir gömlum teikni- myndaseríum. í fyrra var það 101 Dalmatians, George of the Jungle og svo loks Mr. Magoo. Þessar endur- gerðir hafa flestar notið nokkurra vinsælda og George of the Jungle varð einn óvæntasti „smell- ur“ síðasta sumars með yfir 100 milljón dala tekjur i Bandaríkjunum einum. Engin þessara mynda getur þó talist merkileg og þótt Leslie Niel- sen hafi sýnt á sér óvæntar hliðar í Airplane og fyrstu mynd Naked Gun-seríunnar hefur liðið þónokkur tími síöán hann kitlaði hláturtaug- amar. Hann var vondur í Spy Hard og Drácula: Dead and Loving It og þrátt fyrir að Mr. Magoo sé skref fram á veginn nær hún því ekki að vera meðalmynd. Mr. Magoo er byggð á vinsælli teiknimyndaseríu frá fyrstu árum sjö- unda áratugarins. Þar segir frá hinum óvenju nærsýna Magoo sem þrátt fyrir blindu sína sleppur lifandi úr ótrúlegustu hremmingum. í þessari mynd á herra Magoo (Leslie Nielsen) í baráttu við stórhættulega gim- steinaþjófa (Kelly Lynch og Nick Chinlund) sem reyna hvað eftir annað að koma honum fyrir kattamef. Slíkt er vitaskuld vonlaust mál því að Magoo er gangandi stórslysagildra eins og þau komast að raun um. Það vakti nokkra athygli þegar talsmenn sjónskertra í Bandaríkjun- um mótmæltu þeirri ákvörðun Disney-fyrirtækisins að kvikmynda sög- una af herra Magoo. Þeir töldu söguna móðgun við blinda. í lok mynd- arinnar birtist löng yfirlýsing frá kvikmyndafyrirtækinu þar sem áhersla er lögð á að Mr. Magoo segi ekkert um samfélagsstöðu blindra. Ekki er öll vitleysan eins. Leikstjóri: Stanley Tong. Aðalhlutverk: Leslie Nielsen, Kelly Lynch, Ernie Hudson, Stephen Tobolowsky og Malcolm McDowell. Guðni Elísson Woody Allen á góöri stund í Deconstructing Harry ásamt Elisabeth Shue og Billy Crystal. Deconstructing Harry: Woody Allen kafar í einkamálin Robin Williams og Julie Kavner (sú sem talar fyrir Marge Simpson) í hlut- verkum sínum í Deconstructing Harry. í sinni nýjustu kvikmynd Deconstructing Harry, sem Laugar- ásbíó tekur til sýningar, leikur Wo- ody Allen rithöfund sem er á vendi- punkti í einkalífinu sem og í list- inni. Hafa margir orðið til að segja að þama sé Woody Allen að nokkra að gera upp málin í eigin lífi. Allt er þó í gamni þótt húmorinn geti stundum verið beinskeyttur eins og hann yfirleitt er í öllum kvikmynd- um Allens. Allen hefur verið spurður hvort þessi mynd sé spegilmynd af atburð- um í lífi hans og hefur hann þá gert lítið úr því og meðal annars sagt að hann hafi aldrei ætlað að leika aðal- hlutverkið. Svo hafi eingöngu æxl- ast vegna þess að leikarinn sem hann hafði hugsað sér í hlutverkið gat ekki tekið það að sér. Eins og gjaman er í myndum Wo- ody Allens, er hún byggð að miklu leyti á samtölum og era hvorki meira né minna en þijátíu og fimm leikarar sem hafa talhlutverk og hafa allir meira og minna til mál- anna að leggja. Eins og ávallt er Allen ekki í erfiðleikum með að fá fræga leikara til að vinna fyrir sig þó kaupið sé lágt. í helstu hlutverk- um auk Allens era Kirstie Alley, Richard Benjamin, Billy Crystal, Judy Davis, Mariel Hemingway, Amy Irving, Julia Louis- Dreyfus, Tobey Maguire, Demi Moore, Elisa- beth Shue, Robin Williams, Stanley Tucci, Julie Kavner, Eric Bogosian, Bob Balaban og Caroline Aron. Eins og nánast allar kvikmyndir Woody Allen gerist Deconstracting Harry í New York og ættu þeir sem þekkja borgina vel og þá sérstaklega Manhattan ekki að vera í vandræð- um með að þekkja þá staði sem myndin er tekin á. Miðað við þann hraða sem einkennir vinnubrögð Woody Allens tók langan tíma að gera Deconstraction Harry. Tökur hófust 16. september 1996 og var ekki lokið fyrr en 3. febrúar. -HK KVIKMYKDA öjiöj'jjjyjT Laugarásbíó - Hoodlum: Glæponar í stórfiskaleik Hoodlum gerist á kreppuárunum í Bandaríkjun- um, nánar tiltekið í því fræga hverfi í New York, Harlem. Þar berjast glæpakóngar um hverfið og þá aura sem þar eru í boöi. Hoodlum, sem er sannsögu- leg, greinir frá ævi eins glæpakóngsins í Harlem, Ellsworth „Bumpy“ Johnson, sem flestinn er gleymd- ur í dag. Öllu frægari persónur í blóði drifinni glæpasögu mafíunnar í New York era Lucky Luciano og Dutch Schultz sem koma mikið við sögu í mynd- inni, þá má nefna öllu geðfelldari persónu, Duke Ellington, en að sjálf- sögðu er í myndinni litið inn í þann fræga klúbb, Cotton Club, þar sem Ellington réð ríkjum. Við kynnumst Bumpy Johnson fyrst þegar hann kemur úr Sing Sing fangelsinu. Honum er fagnað sem hetju í Harlem og þegar „Drottningin", sem er sú sem öllu ræður í lottóinu í Harlem, er tekin föst kemur til kasta Bumpy að taka við stjóminni og verjast ágangi mafiuforingjans Dutch Schultz sem ætlar sér stóran skammt af aurum svartra sem búa í Harlem. Schultz er ekki samvinnuþýður og þá kemur til sögunnar Lucky Luciano, sem sér lítinn hag í því að láta vand- ræðagemlinginn Schultz ganga lausan. Blóðug átök og glæponar í miskimnarlausri baráttu um völdin era því daglegt brauð í Harlem og þar er Bumpy Johnson ekki bamanna bestur. Hoodlum er að mörgu leyti skemmtileg afþreying þar sem glæsisenur taka hver við af annarri. Vand- ræðagangurinn er samt nokkur, sérstaklega að því er lýtur aö Bumpy sjálfum. Samkvæmt sögunni var Bumpy miskunnarlaus morðingi sem engum hlífði. í myndinni er stundum verið að reyna aö sýna ein- hverja góða hlið á honum með misheppnuðum ár- angri, sérstaklega er erfitt að ná endum saman í sambandi hans og Francine sem hef- ur mikla réttlætiskennd. Laurence Fishbume leikur Bumpy og það er sjaldgæft að sjá þennan ágæta leikara skila frá sér jafn líf- lausum leik og raun ber vitni. Öllu betri er Tim Roth í hlutverki Dutch Schultz. Óþverraskapurinn lekur af honum. Afrur á móti fékk ég engan botn í Lucky Luciano í meðförum Andy Garcia. Hoodlum er löng kvikmynd. Hún stendur samt vel undir lengdinni, það er alltaf eitthvað um að vera og leikstjórinn Bill Duke kann vel til verka þegar kem- ur að hasaratriðum. Er ég viss um að Hoodlum hefði getað orðið mun sterkari kvikmynd og þéttari hefði verið sleppt að reyna sýna fram á að Bumpy Johnson sé góður inni við beinið, mótsagnimar era einfald- lega of miklar til að hægt sé að trúa því. Leikstjóri: Bill Duke. Handrit: Chris Brancato. Kvik- myndataka: Frank Tidy. Tónlist: Elmer Bernstein. Að- alleikarar: Laurence Fishburne, Tim Roth, Andy Garcia, Vanessa Williams, Cicely Tyson og Queen Latifah. Hilmar Karlsson.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.