Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1998, Qupperneq 3

Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1998, Qupperneq 3
1W FIMMTUDAGUR 30. APRÍL 1998 The Fugitive, sem gerð var árið 1993 eftir vinsælum sjónvarpsþátt- um, náði miklum vinsældum enda um hörkugóða sakamálamynd að ræða. Þrátt fyrir vinsældirnar var The Fugitive ekki kvikmynd sem hægt var að ímynda sér að framhald yrði gerð af. Samt er það nú svo að U.S. Marshall sem Sam-bíóin eru að frumsýna er óbeint framhald. Ekki er verið að fjalla meira um líf lækn- isins, sem Kevin Costner lék og var hundeltur af lögreglunni, vegna morðs á eiginkonu hans, heldur er aðalpersónan í U.S. Marshall, lög- reglumaðurinn Sam Gerard, sem stjómaði eftirforinni. Tommy Lee Jones lék Gerard og fékk hann óskarsverðlaun fyrir. Tommy Lee er aftur mættur í hlut- verkið og nú þarf hann að eltast við alvöruglæpamenn, því eins og allir vita var læknirinn í The Fugitive saklaus. Wesley Snipes leikur flótta- manninn í þetta skiptið. Auk hans leika í myndinni Robert Downey jr., Joe Pantoliano, Daniel Roebuck, Latanya Richardson, Kate Nelligan, Irene Jacob og Tom Wood. Leikstjóri er Stuart Baird sem ný- verið leikstýrði spennumyndinni Executive Decisions með Kurt Russ- ell og Steven Seagal í aðalhlutverk- um. Vcir það fyrsta kvikmyndin sem . Hann á þó að baki Eitt stórfenglegasta atriöið í U.S. Marshall er þegar stór farþegaflugvél fer út af flugbrautinni og lendir í mýri. langan feril í kvikmyndum. Baird er breskur að uppruna og hans fyrsta stcirf í kvik- myndum var sérstakur að- stoðarmaður Lindsay And- ersons við gerð If. Næst starfaði hann með Ken Russell við gerð Women in Love og var klippari Russells þegar kom að því að fullklára Tommy. í millitíðinni vann hann með Russell við gerð The Music Lovers, Savage Messi- ah, The Boyfri- end og The Devils. Samstarf þeirra endaði eftir Altered States. Stuart Baird vann sem klippari viö margar stórmyndir áður en hann sjálfur tók við að leikstýra kvikmyndum, fékk hann óskarstil- nefningu fyrir Superman og Gorillas in the Mist. Meðal annarra kvikmynda sem hann vann við má nefna Outland, Lethal Weapon 1 og 2, Maverick, The Omen, Die Hard 2 og Demolation Man Hér á eftir fer listi yfir þær kvikmyndir sem Tommy Lee Jones hef- ur leikið í: Love Story, 1970 Jackson County Jail, 1976 Rolling Thunder, 1977 The Betsy, 1978 Eyes of Laura Marsh, 1978 Coal Miner's Daughter, 1980 Back Roads, 1981 Nate and hayes, 1983 The River Rat, 1984 Black Moon Rising, 1986 The Big Town, 1987 Stormy Monday, 1988 The Package, 1989 Fire Birds, 1990 JFK, 1991 Under Siege, 1992 House of Cards, 1993 The Fugitive, 1993 Heaven & Earth, 1993 Blown Away, 1994 Natural Born Killers, 1994 The Client, 1994 Blue Sky, 1994 Cobb, 1994 Batman Forever, 1995 Men in Black, 1997 Volcano, 1997 U.S. Marshalls, 1998 Tommy Lee Jones Ferill Tommy Lees Jones spannar þrjá áratugi og hefur hann ósjaldan skapað eftirminnilegar persónur á farsælum ferli. í dag er Tommy Lee Jones einn hæstlaunaði leikarinn í Hollywood og er talið að hann hafi feng- ið tíu milljónir dollara fyrir leik sinn í U.S. Marshall. Ótal verðlaun hafa fallið Tommy Lee Jones í skaut og má geta þess að auk óskarsverðlaunanna fyrir leik sinn i The Fugitive fékk hann Golden Globe-verðlaunin, bresku BAFTA- verðlaunin og gagnrýnendur í Los Angeles og Chicago völdu hann besta leikarann. Fyrstu viðurkenn- ingu sína, tilnefningu til Golden Globe- verðlauna, fékk Jones fyrir leik sinn í óskarsverð- launamyndinni Coal Miner’s Daughter. Fyrstu óskarstiln- efningu sína fékk hann fyrir leik sinn í hlutverki Clay Shaw í JFK. Fyrsta kvikmyndahlutverk Tommy Lee Jones var í ástardramanu The Love Story, árið 1970. Tommy Lee Jones hefur einnig leikið í sjónvarpsmyndum sem vakið hafa at- hygli, má þar nefna The Executioner’s Song, en hann fékk Emmy- verðlaunin fyrir leik sinn í hlutverki dauðafangans Gary Gilmore, þá má nefna úrvals sjón- varpsmyndir á borð við The Lonesome Dove, The Good Old Boys, The Amazing Howard Hughes, April Moming og Cat on a Hot Tin Roof. Tommy Lee Jones fæddist í San Saba, Texas og vann um stund með föður sín- um við olíuboranir áður en hann settist á skólabekk við Harvard-háskólann þar sem hann lauk háskólaprófi í enskum hókmenntum. Að námi loknu flutti hann til New York þar sem hann reyndi fyrir sér á Broadway með ágætum ár- angri. KVIKMYNDA Sambíóin - US Marshals: ★★ Ég verð að byrja á því að játa að ég náði aldrei alveg að heillast af hinum upprunalega Flóttamanni enda um það leyti orðin mjög leiö á Harrison Ford. Hins vegar gleðst ég alltaf yfir væntingunni um Wesley Snipes og neita þvl að líta svo á að ég hafi komið að þessari mynd full fordóma. En ekki einu sinni Wesley gat bjargað þessum ósköpum frá hinni fullkomnu meðalmennsku. US Marshals segir frá hinum fundvísa flóttamanna-leitara, Samuel Gerard (Tommy Lee Jones), og nýjasta viðfangsefhi hans, flótta- manninum Sheridan (Wesley Snipes). Líkt og í fyrri myndinni er leitarmaðurinn eitilharður nagli og flótta- maðurinn ekki allur þar sem hann er séður og saman ferð- ast þeir í gegnum helstu hasarmyndir síðustu ára, byrja á flugvélarsenu beint úr Con Air, fara þaðan í frumskógar- stemningu á fenjasvæði, stoppa stutt við í lestarsenu og enda svo með slagsmálum á skipi. Og inn á milli eru svo nokkrir hefðbundnir bílaeltingjaleikjakaflar. Þetta þarf alls ekki að vera svo slæm blanda ef hasarnum og húmornum er haldið uppi og skemmtilega unnið úr þess- um ánægjulega kunnuglegu hasarþemum en því miður þá var þetta allt saman einhvern veginn eins og örbylgjumat- ur, kólnar fljótt og verður seigt undir tönn. Vondi maður- inn er svo fyrirsjáanlegur að það var vandræðalegt og það var ekki að sjá að Wesley eða Tommy næðu nokkum tíma að koma sér i stuð. í stað þess að vera kúl var Jones stirðlegur og Snipes var allt of aumingjalegur til að vera hinn fullkomni og stórhættulegi flóttamaður/leyniþjónustumað- ur. Þetta var myndin sem átti að velta Titanic úr fyrsta sætinu og þó ég sé enginn Titanic-aðdáandi get ég vel skilið að þessum meðal-Jones hafi ekki tekist að sökkva óskarsvæna risaskipinu. Leikstjóri: Stuart Baird. Aðalleikarar: Tommy Lee Jones, Wesley Snipes, Robert Downey Jr. Úlfhildur Dagsdóttir kvikmyndir. L.A. Confidental ★★★★ Skuggahliðar Los Angeles sjötta áratugar- ins eru sögusviðiö í óvenju innihaldsríkri og spennandi sakamálamynd sem enginn ætti að missa af. Spilltar löggur, ðsvífnir æsifréttamenn, melludólgar og glæsilegar vændiskonur eru á hverju strái. -HK Titanic ★★★★ Stórbrotin og ákaflega gefandi kvikmynd. Af miklum fítonskrafti tókst James Cameron að koma heilli í höfn dýrustu kvikmynd sem gerð hefur verið. Fullkomnunarárátta Camerons skilar sér í eðlilegri sviðsetningu sem hefur á sér mikinn raunsæisblæ. Leon- ardo DiCaprio og Kate Winslet eru eftir- minnileg í hlutverkum elskendanna. -HK Good Will Hunting ★★★★ i mynd þar sem svo mikiö er lagt upp úr per- sónunum verður leikurinn að vera góður. Sérstaklega eftirminnilegur er samleikur Williams og Damons. Hið sama má reyndar segja um flesta leikara f aukahlutverki. Bestur er þó Stellan Skarsgárd en í túlkun sinni á stæröfræðingnum Lambeau dregur hann upp sannfærandi mynd af manni með mikla sérgáfu sem þó veröur að játa sig sigraðan í návist ótrúlegrar snilligáfu. -ge Anastasía ★★★ Sagan af týndu þrinsessunni Anastasfu er hreinn ævintýramatur. Myndin einkenndist öll af hugmyndaríki og hélt gamlingjanum mér uppteknum allan tímann, þrátt fyrir fremur leiðinlega músfk, sem virðist skylda í skemmtiefni af þessu tagi. Fyrir utan smá- hroll yfir söguskýringum þá fannst mér Anastasfa hin besta skemmtun og með betri teiknimyndum sem ég hef séð lengi. -úd Wag the Dog ★★★ Beinskeyttur svartur húmor sem beinist að forsetaembætti Bandarfkjanna og stríðs- rekstri stórveldanna er undirstaðan f kvik- mynd sem er vel heppnuö og góð skemmt- un en er þó ekki gallalaus. Dustin Hoffman er frábær í hlutverki kvikmyndaframleiö- anda sem setur stríö ! Albanfu á sviö. -HK The Rainmaker ★★★ Hefur ekkl sama hraða og sþennu og aðrar myndir gerðar eftir sögum Grishams. Hún lýsir ekki auði og munaði hástéttarinnar og er laus viö óþarfa fegrun á bandarfsku rétt- arkerfi. En í því felst styrkur hennar. Hand- ritið er þétt og sannfærandi og leikurinn með ágætum. Gaman var að sjá gamla og nú ósköp þreytta leikara á borð vlð Mickey Rourke og Virginiu Madsen í bitastæðum smáhlutverkum. -GE Litla hafmeyian ★★★ Teiknimyndir Walts Disneys eru klassískar og þegar ný kynslóð rfs eru þær settar á markaöinn á ný og er ekkert annaö en gott um þaö að segja. Litla hafmeyjan kom með ferskan blæ inn I þetta kvikmyndaform eftir að teiknimyndir f fullri lengd höfðu veriö I lægð um nokkurt skeiö og hún,á fullt erindi enn til ungu kynslóðarinnar. Islenska tal- setningin er vel heþþnuð. -HK Ma vie en rose ★★★ Sjö ára Ludovic heldur að hann sé bara tímabundið fastur f sínum drengslíkama og að þetta sé nokkuð sem hann vex upp úr þegar hann stækkar; þá verði hann kona og geti gifst vini sínum. Mikil áherlsa er lög á hið myndræna sem er sérlega skemmtilega útfært og með vel heþþnuðu samsþili efnis og stíls tekst leikstjóranum Alain Berliner að skapa mynd sem er ekki sföur skemmti- leg en áhugaverð. -úd Fallen ★★★ Leikstjórinn Gregory Hoblit ætiar sér greini- lega stóra hluti með þessari mynd og legg- ur mikla áherslu á frumlega myndatöku og önnur myndræn brögö til þess aö undir- strika þá trufluðu heimsmynd sem hann dregur upp. Með þessu og frábærum Was- hington tekst honum vissulega aö skaþa ansi magnaða stemningu 4jáyium. -úd The Boxer ★★★ Handrit þelrra Sheridans og Georges er ágætlega unnið, leikur Daniel Day-Lewis til fyrirmyndar og hnefaleikaatriöin vel úr garöi gerð. ABrir leikarar standa sig einnig meö stakri prýði. -ge Djarfar nætur ★★★ I Boogíe Nights snýst allt um hinn gríðar- langa lim klámstjörnunnar Dirks Digglers. Sem tímabilskönnun er mynd Anderssons afbragðsgóð, handritiö er vel skrifað og ef drengurínn hefði bara skafið af eins og hálfa Tarantinósenu hér og hálfa Travolta- senu þar (og sleppt ofurlanga gúmmftypp- inu) þá hefði þetta getað oröið ansi fullkorrv ið. En verður aö láta sér nægia að vera bara ómissandi. -úd Það gerist ekki betra ★★★ Framan af er As Good as It Gets eins góð og gamanmyndir gerast. Samræðurnar ein- kennast af óvenjumikllli hnyttni, lelkurinn er meö ðlíkindum og handritshöfundunum Andr- us og Brooks tekst að stýra fram hjá helstu glldrum formúlufræðanna. Það var mér þvf til mlkllla vonbrigða þegar myrrdin mlssti flugið eftir hlé. Leikurlnn var enn tll fyrirmyndar en þær fjörmiklu og óvenjulegu þersðnur sem kynntar voru tll sögunnar f uþphaf) fengu ekki svlgrúm til þess að vaxa. -ge Flubber ★★★ Hubber býr yfir elnfaldleika sem þvf mið- ur er allt of sjaldséður I kvikmyndum sfö- ustu ára. Hún er barnamynd fyrir börn og ég get engan veginn séð það sem galla. Bestl mælikvarðinn á slfkar myndir er salur fullur af ánægðum börnum. Og krakkarnir voru í stuði. -ge

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.