Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.1998, Page 2

Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.1998, Page 2
FÖSTUDAGUR 15. MAÍ 1998 i6 $árikmyndir KVIKMYHDA Stjörnubíó - U-Turn: Afleggjarinn irkirk Þegar bíll Bobbys Coopers (Sean Penn) of- hitnar í miðri Arizonaeyði- mörkinni ekur hann til smábæj- arins Superior í von um að fmna verkstæði. Super- ior er ömurlegur útnári og bæjar- búamir bera svip af umhverfinu. Bifvélavirkinn Darrell (Billy Bob Thomton) er forljótur, útsmoginn þrjótur sem segir Bobby að viðgerðin muni taka nokkum tíma. 1 bænum hittir Bobby hina glæsilegu Grace McKenna (Jennifer Lopez) sem býður honum heim til sín. Eiginmaður Grace, Jake McKenna (Nick Nolte), kemur óvænt að þeim, lem- ur Bobby og rekur hann á dyr. Hremmingum hans er ekki lokið. Jake býð- ur honum stuttu seinna álitlega fjárupphæð ef hann samþykki að myrða Grace. Bobby neitar en eftir að hafa verið rændur aleigunni sér hann fram á að komast aldrei frá Superior nema hann gangi að þessum afarkostum. Málin flækjast enn frekar þegar Grace biður hann að drepa Jake. U Tum er sérkennileg blanda afkimamynda, líkum Bad Day at Black Rock (1955) og klassískra noir-mynda í anda Double Indemnity (1944) og The Postman always Rings Twice (1946). Líkt og önnur nýleg kvikmynd, Red Rock West (1992), sækir U Turn markvisst í noir-hefðina. Leikstjóri myndarinnar, Oliver Stone, gengur þó lengra en John Dahl og beitir hefðinni á nýstárlegri máta. Hann gerir stólpagrín að stöðluðum mann- gerðum noir-myndanna: svikulum eiginkonum og kynlífsóðum þrjótum. Þótt persónur noir-mynda séu venjulega flatar eru þær flestar dregnar með sterkum línum. Stone ýkir enn frekar afbrigðileika íbúanna og herðir á þeirri myrku kómedíu sem litar söguna alla. Mannlífsflóran í Superior er eftirminnileg. Þar má nefha drukkna fógetann Potter (Powers Boothe), sem kemur Bobby oftar en einu sinni til hjálpar, vitgr- anna slagsmálahundinn Toby N. Tucker (Joaquin Phoenix), aðgangs- harða kærustu hans, Jenny (Claire Danes), og gengilbeinuna Flo (Julie Hagerty). Meira að segja indíáninn, sem er fastur þáttur í flestum mynd- um Stones, er hér aðeins svipur hjá sjón. Hann er blindur og dröslast um með hund sem virðist dauður. í þokkabót skín andlit Jons Voight í gegnum lélegt gervið. í þessum bæ er enginn sem sýnist og allir bera af- káralegt dulargervi. Leikurinn er til fyrirmyndar og sama má segja um leikstjóm og kvikmyndatöku. U Turn vinnur afbragðsvel úr hefðinni. Auk þeirra mynda sem ég nefndi hér að ofan vísar hún t.a.m. í vestrann Duel in the Sun (1946) og mynd Polanskis, Chinatown (1974). Ég læt ekki uppi hvemig. Persónurn- ar eru eftirminnilegar og þótt húmorinn í noir-myndum sé oft gráglett- inn hefur sjaldan verið gengið lengra en héma. Lokasenan er í senn óborganleg og óhugnanleg. Leikstjóri: Oliver Stone. Aðalhlutverk: Sean Penn, Jennifer Lopez, Nick Nolte, Powers Boothe, Claire Danes, Joaquin Phoenix, Billy Bob Thornt- on og Jon Voight. Guðni Elísson Laugarásbíó - Shadow of Doubt: Spilling á æðstu stöðum Melanie Griffith er nokkuð sérstök leik- kona og það sem gerir hana sérstaka er fyrst og fremst drafandi rödd hennar sem á vel við í sumum hlutverkum sem hún hefur leikið, sérstaklega þegar hún hefur fengið að spreyta sig á gamanhlutverk- um. Þegar kemur að dramatískum hlutverk- um virkar rödd hennar oftar en ekki tilgerðar- leg og gerir þá persón- una ósannfærandi og í Shadow of Doubt á Melanie Griffith ekki góðar stundir sem stjömulögfræðingurinn Kit Deveraux sem fengin er til að verja rappstjömuna Bobby Medina sem ákærður er fyrir nauðgun og morð á milljóneradóttur. Það kemur fljótt í ljós að það er maðkur í mys- unni og óvist að rappstjarnan hafi nokkuð komið nálægt morðinu þótt hann hafi sængað hjá henni nóttina sem morðið var framið. Milljónera- dóttirin hafði sem sagt ekki verið öll sem hún var séð og hafði meðal annars sængað hjá væntanlegum forsetaframbjóðanda sem fyrrum eig- inmaður Deveraux vinnur fyrir. Hann gerir sér vonir um að verða dómsmálaráðherra nái frambjóðandinn, sem er fjarstýrður af ráðríkri móður, að komast í Hvíta húsið. Sagan er afþreying undir meðallagi og oftar en ekki er fyrirsjáanlegt hvaða stefnu myndin tekur og þótt það komi vissulega á óvart í lokin hver morðinginn er þá er maður löngu búinn að missa áhugann á mál- inu og þá myndinni um leið. Slakur leikur Melanie Griffith smitar út frá sér og ágætir leikarar á borð við Tom Berenger og Craig Sheffer hafa yf- irleitt átt betri dag. Það er helst að gaman megi hafa af söngvaranum góðkunna Huey Lewis í hlutverki tæknivæddrar einkalöggu. Leikstjóri Shadow of Doubts gerði sína bestu kvikmynd, Grease, fyr- ir fjöldamörgum árum og hefur í raun ekkert gert af viti síðan, svo það kemur ekki á óvart að Shadow of Doubt skuli þegar á heildina er litið vera lítið skárri en fljótgerður þáttur í sæmilegri sjónvarpsseríu. Leikstjóri: Randal Kleiser. Handrit: Myra Byanka og Raymond DeFelitta. Kvikmyndataka: Craig Haagensen. Tónlist: Joel Goldsmith. Aðalleikarar: Melanie Griffith, Tom Berenger, Craig Sheffer, Huey Lewis og Nina Foch. Hilmar Karlsson Músa- veiðar Mouse Hunt, sem Sam-bíóin ftum- sýna, fjallar um bræðuma Emie og Lars Smuntz, sem erfa gamalt og illa farið stórhýsi sem þeir í fyrstu halda að sé verðlaust. Annað á þó eftir að koma á daginn því húsið þykir meist- arverk i arkitektúr og er því milljóna virði. Þeir bræður flytja inn í húsið fúllir bjartsýni um að það eigi eftir að gera þá ríka. Bræðumir komast þó fljótt að því að þeir eiga við vandamál að etja, sem er lítið en þó stórt. Það vill nefhilega svo til að í húsinu hefúr sest að litil mús sem er ekkert vel við að fá aðra í sambýli við sig. Bræð- umir halda í fyrstu að það sé lítið vandamál að losa sig við eina mús. Þar hafa þeir verulega rangt fyrir sér, músin er snjöll og brátt ríkir stríðsástand í húsinu sem gæti jafnvel endað með því að ekkert stæði eftir af hinu verðmæta húsi annað en rústir einar. í aðalhlutverkum em Nathan Lane og Lee Evans, sem báðir era þekktir gamanleikarar, Lane þó öllu frægari. Hann var þó ekki nema miðl- ungs þekktur leikari á Broadway þeg- ar Mike Nichols valdi hann til að leika á móti Robin Williams í The Birdcage. Áður hafði hann leikið nokkur minni háttar hlutverk í kvik- myndmn og var rödd Timons í The Lion Nathan Lane og Lee Evans leika bræðurna Ernie og Lars Smuntz sem erfa gamalt og verðmætt hús. Tvær gerðir af músum sjást i myndinni, lifandi mýs og töivustýrð mús. King. Á Broadway hafði hann aftur á móti unnið marga leiksigra og fékk meðal annars öll helstu leikaraverð- laun sin fyrir leik sinn í A Funny Thing Happened on the Way to the Forum og Guys and Dolls. Lee Evans er breskur gamanleikari og hafði leikið í tveimur kvikmynd- um, Funny Bones og The Fifth Ele- ment, áður en hann lék í Mouse Hunt. í mörg ár hefúr hann verið einn vin- sælasti „stand-up“ grínisti Breta og gert nokkra gamanþætti í sjónvarpi undir eigin nafni. Auk þeirra Lee Evans og Nathans Lane kemur fram í myndinni Christopher Walken i hlut- verki atvinnumúsaveiöara. Músin er að sjálfsögðu í stóra hlutverki og er notast bæði við lifandi mýs og gervi- mús, sem stjómað er af tölvu. Leikstjóri Mouse Hunt, Gore Verb- inski, er að heyja frumraun sína í kvikmyndum. Bakgrunnur hans ligg- ur í auglýsingamyndagerð þar sem hann meðal annars leikstýrði Nike- auglýsingum með Michael Jordan. -HK Bíóborgin - Out to Sea: ★★ Dansað við ölduna KVIKMYm Íl (1! i Ekki er hægt að kalla þá Herb Sullivan (Jack Lemmon) og Charlie Gordon (Walter Matthau) vini en Herb, sem nú er ekkill, var giftur systur Charlie. Charlie ræður þá í vinnu sem dans- herra á skemmtiferðaskipi og Herb veit ekki hvernig í pottinn er búið fyrr en lagt hefúr verið úr höfn. Charlie, sem er forfallinn fjárhættu- spilari, hefur í hyggju að krækja í ríka eiginkonu. Hann gerir hosur sínar grænar fyrir Liz LaBreche (Dyan Cannon), milljónamæringi frá Texas, sem er á skipinu ásamt móð- ur sinni, Mavis (Elaine Stritch). Herb, sem enn syrgir eiginkonu sína, kynnist aftur á móti hinni geð- þekku Vivian (Gloria DeHaven) sem starfaði á bókaforlagi og er á ferða- lagi með dóttur sinni og tengdasyni. Jack Lemmon og Walter Matthau hafa margsinnis leikið saman og nægir að nefna The Odd Couple (1968), myndir Billys Wilders, The Fortune Cookie (1966), The Front Page (1974) og Buddy Buddy (1981) og nú síðast Grumpy Old Men (1993) og áframhald hennar frá 1996. Auk þessara mynda má nefna Kotch (1971), einu myndina sem Lemmon hefur leikstýrt, en þar fer Matthau með aðalhlutverkið. í Out to Sea er allt lagt í samleik þeirra tveggja en þar sem handrit- ið er ekki upp á marga fiska verður oft lítið úr grín- inu. Eins og í svo mörgum myndum þeirra er Lemm- on í hlutverki hins löghlýðna og reglu- sama smáborgara en Matthau er ófyrir- leitinn en sjarmerandi bragðarefur. Out to Sea leggur ekkert nýtt af mörkum og er nánast endurvinnsla margra eldri mynda, sem er miður þar sem hér eru á ferðinni tveir af fremstu gamanleikurum sinnar kynslóðar. í öðram aukahlutverk- um eru gamla dansstjaman Donald O’Connor (Singin’ in the Rain, 52 og There’s No Buisness Like Show Buisness, 54), Brent Spiner (sem leikur Data í Star Trek: The Next Generation) og Rue McCl- anahan (úr Golden Girls þáttaröðinni). Spiner er sérlega skemmtilegur sem dansstjórinn harðskeytti, Gil Godwyn. Out to Sea er algjör meðalmynd og stendur langt að baki bestu myndum Lemmond og Matthaud. Þó má hafa sæmilegustu skemmtun af henni. Leikstjóri: Martha Coolidge. Handrit: Robert Nelson Jacobs. Kvikmyndataka: Lajos Koltal. Tónlist: David Newman. Aðalhlutverk: Jack Lemmon, Walter Matt- hau, Dyan Cannon, Gloria DeHaven og Brent Spiner. Guðni Elísson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.