Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.1998, Page 11

Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.1998, Page 11
FÖSTUDAGUR 15. MAÍ 1998 Mnlistv, Soulfly leikur sér að eldinum og Max Cavalera fær gæsahúð. beðinn um að syngja í auglýsingu fyrir Sprite; „Það kemur mikið á óvart ef þeir samþykkja það sem ég ætla að gera því það verður eitt- hvað mjög andstyggilegt." Soulfly er samt auðvitað aðal- verkefni Max og viðamikil tón- leikaferð er framundan, m.a. verð- ur spilað á Hróarskelduhátíðinni í sumar. „Þessi plata var dýru verði keypt,“ segir Max að lokum, „Hún var gerð upp úr harmleik; að missa góðan vin og verða viðskila við hljómsveit sem ég hef spilað með síðustu fimmtán árin. Ég held að allir sem hlusta heyri hve þetta er öflug og persónuleg plata.“ Soul- fly - sáluhjálp Max Cavalera Max Cavalera er ekki þekktur fyrir að gefast upp. Hann stofnaði Sepultura ásamt bróður sínum Igor sem þrátt fyrir lítinn áhuga heima fyrir i Brasiliu, engin sam- bönd og takmarkaða tungumála- kunnáttu, varð að einu þekktasta þungarokksbandi heimsins. Með plötum sínum „Chaos A.D.“ og „Roots“ sameinuðu þeir heimstón- list og níðþungt rokk og urðu um leið eitt ferskasta þungmálmaband samtímans. Max sagði skilið við Sepultura þegar hann átti ekki lengur samleið með henni. Hann hafði aðra skoðun á framtíðinni en aðrir í hljómsveitinn. Viðskiln- aðurinn lagðist þungt á hann og ekki batnaði ástandið þegar góður vinur hans lést. Það eina sem hann gat gert var að smala saman í nýja hljómsveit; Soulfly. „Án Soulfly hefði allt orðið tiu sinnum erfiðara. Ég hef alltaf tjáð mig í tónlist og fengið þar þá útrás sem ég þarf. Allir sem hafa séð mig á tónleikum eða heyrt það sem ég hef gert vita þetta. Að halda áfram að gera tónlist hjálpaði mér í gegn- um þetta ruglaða, erfiða tímabil." Trommarinn Roy kemur úr New York-sveitinni Thorn, bassa- leikarinn Marcello hafði áður ver- ið rótari hjá Sepultura og gítar- leikarinn kom úr brasilísku sveit- inni Chico Science. „Þessir gæjar höfðu rétta „attitjútið" sem er að gera tónlist og leika sér að eldin- um um leið,“ segir Max. „Það var frábært að byrja að æfa og fá aftur gæsahúð yfir þvi að vera í hljóm- sveit.“ Gengið lengra Aðdáendur þess þunga hljóms sem Max þróaði með Sepultura verða ekki fyrir vonbrigðum með plötuna „Soulfly" sem nýlega kom út. Lög eins og „Eye for an Eye“ (eina lagið sem fjallar um aðskiln- aðinn við Sepultura) eru belgfull af hrottafullum krafti en önnur leggja nýjar línur. Max hefur orð- ið: „Eitt lagið heitir „Bumba“ (þýðir „hávaði“ á portúgölsku) og er unnið með Mario C. sem hefur unnið með Beastie Boys. Það er í fyrsta skipti sem ég hleypi sömpl- um í tónlist mína en það hefur mig lengi langað að gera. Ég held að platan sé jafnvel fjölbreyttari en „Roots“ sem ætti að gefa hugmynd um hve tilraunakennd hún er. Hún gengur miklu lengra en ég hef áður getað farið.“ Auk Mario C. koma ýmsir kapp- ar fram á plötunni, þ.á m. meðlim- ir úr Fear Factory, Deftones, Dub War, Limp Bizkit og Eric Bobo úr Cypress Hill. Auk þess að klára plötuna hefur Max snúist í ýmsu öðru; hann hefur haldið fyrirlestra um feril sinn og stöðu þung- arokksins, djammaði með Defto- nes á nýjustu plötu þeirra og var Ósk Óskar Óskars: Innblástur úr Ósk Óskars hefur gefið út geisla- diskinn Óskin og kynnir hann annað kvöld á Sóloni Islandusi. Hún vakti nokkra athygli um síðustu jól þegar hún gaf út disk með eigin tónsmíðum við jóla- og grýlukvæði, Með ósk um gleðileg jól. Auk tónlistarinnar vakti Ósk athygli fyrir að vera tveggja bama móðir sem gerði flest sjálf; samdi og tók tónlistina upp heima hjá sér í Breiðholtinu. Nýja diskinn segir hún vera tileinkaðan vorinu og sumr- inu. Lögin semur Ósk við ljóð sem hafa hriflð hana. „Fyrsta lagið varð til árið 1993 þegar ég fékk Ijóðabókina Aftanskin eftir Bjarna Marinó á tombólu. Þrjú ljóð sá ég í Lesbók Moggans og fimm eru eftir Vestur-ís- lendinginn Jakobínu Johnsen frá því um síðustu aldamót.“ Hvaö heillaöi þig viö Ijóð hennar? „Hún samdi einfóld ljóð og það er þægilegt að skilja hana. Það er mikill tregi í þeim og söknuður. Hún bjó úti frá fimm ára aldri, var alltaf á leið- inni heim en kom aldrei.“ Diskurinn hefur verið lengi í smíðum. „Lögin hafa legið lengi í salti og gerjast," seg- ir Ósk, „og það síðasta var fullklárað fyrir tveim mánuðum. Jólaplatan var komin á slétt í febrúar og þá var eftir engu að bíða og skella sér i þessa. Maður saltaði bara nokkra reikninga og fékk yfirdráttarheimild.“ Leitaðir þú ekkert til út- gefanda? „Ég gerði það við jólaplötuna en fékk nei. Ég hef svo lítið sjálfstraust að ég meikaði ekki að fá fleiri nei. Ég spar- aði mér ómakið og gef plötuna bara út sjálf. Ég get þá alla- vega gefið hana ef hún selst ekki.“ Spurð um áhrifa- valda segist Ósk helst undir áhrif- um frá gömlum is- lenskum söngkon- um, „það sem mað- ur hefur heyrt á Gufunni. Það má segja að helst komi „Fyrsta lagið varð innblásturinn úr ina Aftanskin eftir Óskalögum sjúk- linga frá árum áður.“ Ósk segir að ekki standi til hringferð um landið til kynningar en hún býður fram krafta sína ef einhvérjar uppákomur eru í gangi. Ósk vill taka fram að tónleikarnir á Sólon annað kvöld (laugardagskvöldið 16.) séu á milli 21 og 23 og það sé ókeypis inn. Birgitta Jónsdóttir les ljóð og Rósa Björg Helgadóttir sýnir hrynlist áður en Ósk stígur frarn. Víóluleikarinn til árið 1993 þegar ég fékk Ijóðabók- Bjarna Marinó á tombólu." Eyjólfur Alfreðsson spilar með Ósk í nokkrum lögum á tónleikunum og dóttir hennar, Anna Lucy Muscat, sem syngur með í þrem iögum á plöt- unni, kemur einnig fram. Margir fleiri ljá annars Ósk lið á Óskinni, þ. á m. trommarinn Ásgeir Óskarsson og fiðlarinn David Cassidy. Hljóma- lind dreifir plötunni og Ósk selur hana sjálf á Netinu í gegnum net- fangið www.isholf.is/osko. Síödegistón- leikar í dag kl. 17.05 leikur hljómsveitin 3 Hressir fyrir gesti og gangandi á Kakóbarnum Geysi. Það er Hitt húsið sem stendur fyrir hinum vikulegu síð- degistónleikum. Wunderbar í kvöld og annað kvöld verða Pétur Örn og Villi Goði með almenn leið- indi, gítarspil og smá glaum og gleði á Wunder- bar, Lækjargötu. Café Menning Á Eyrinni Veitingahúsið Á Eyrinni, ísafirði, stendur fyrir taí- lensku menningar- og matarkvöldi á laugar- dagskvöldið. Stuðboltarn- ir í Spútnik annast tón- listina á staðnum bæði fostudags- og laugardags- kvöld. Það er alltaf eitthvað að gerast á Café Menningu á Dalvík. Annað kvöld ætl- ar 1959-árgangurinn að skemmta sér þar við und- irleik Tvöfaldra áhrifa. Gammeldansk Dúettinn Gammeldansk heldur uppi stemningu í Naustkjallaranum föstu- dags- og laugardagskvöld. Reggae on ice Reggae on ice spilar í Sjallanum annað kvöld en verður á Gauknum sunnudags- og mánudags- kvöld. Nýtt lag með hljómsveitinni heyrist innan skamms á útvarps- stöðvum. Broadway í kvöld verður sýningin Rokkstjörnur íslands á Broadway, en annað kvöld býður staðurinn upp á ABBA-sýningu. Stuðbandalagið leikur fyrir dansi að loknum báðum sýningunum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.