Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.1998, Qupperneq 12
26 myndbönd
MYNDBANDA
L.A. Confidental:
Snúin söguflétta
Sögusviðið er glæsiborgin Los Angeles á sjötta áratugnum. Undir yf-
irborðinu er borgin ekki eins glæsileg eins og lögreglumenn borgarinn-
ar geta borið vitni um. Við fáum að fylgjast með þremur afar ólíkum lög-
reglumönnum en leiðir þeirra liggja saman vegna rannsóknar á morð-
máli. Við fyrstu sýn virðist um einfalt ránmorð að ræða en smám sam-
an vakna grunsemdir þeirra og eftir því sem þeir kafa dýpra í málið
flettist ofan af einhverri stærstu svikamyllu sem borgin hefur alið af sér.
Það má venjast hasarmyndunum í Hoflywood en maður verður afar
þakklátur að fá af og tfl svona myndir þar sem spennan er byggð upp
smám saman og maður bíður í eftirvæntingu eftir því hvað gerist næst.
Myndin er byggð á ákveðnum kunnuglegum hefðum án þess að fylgja
formúlunni of fast eftir. Fléttan gengur nánast algjörlega upp þótt held-
ur sé farið offari í að hnýta lausu endana í lokin. Ásamt góðri sögu býð-
ur myndin upp á mjög vel skrifuð hlutverk og frábæra persónusköpun.
Áströlsku leikaramir Russel Crowe og Guy Pearce, ásamt Kevin Spacey,
sýna leik sem sæmir stórstjörnum i aðalhlutverkunum, og það era eng-
ir aukvisar heldur í aukahlutverkunum. Danny De Vito, David Strat-
haim og Ron Rifkin eru þama. Einnig Kim Basinger sem fékk óskar fyr-
ir en sá sem hefði átt að fá hann er James Cromwell.
Útgefandi: Warner-myndir. Leikstjóri: Curtis Hanson. Aðalhlutverk: Kevin
Spacey, Russel Crowe og Guy Pearce. Bandarísk, 1997. Lengd: 136 mín.
Bönnuð innan 16 ára. -PJ
Black Jack:
Birtufælinn verndari ★★
R'Im.I'hI I
Dolph Lundgren leikur fyrrverandi alríkislög-
reglumann, Jack Drevlin að nafni, sem starfar nú
sem lífvörður. Eftir að hafa skaðast í starfi fær hann
einkennilega fóbíu og verður illt þegar hann sér hvít-
an lit. Hann fer til sáifræðings til að fá meina sinna
bót en áður en meðferðin nær að virka neyðist hann
til að hjálpa gömlum félaga sínum til að gæta ungr-
ar fyrirsætu en setið er um lif hennar. Leikstjóri
myndarinnar er hasarkonungurinn sjálfur, John
Woo, sem síðast gerði Face/Off með John Travolta
og Nicolas Cage. Það er mér með öllu óskiljanlegt
hvemig hann lætur í kjölfar slíkrar myndar, vin-
sællar toppframleiðslu með toppleikurum, hafa sig út i meðalmennsku-
graut eins og Black Jack og með Dolph Lundgren í aðalhlutverki. Sem
betur fer má sjá vinnubrögð Johns Woo í vel útfærðum skotbardögum
og hann nær að dubba Svíann upp þannig að hann virkar sæmilega sval-
ur meðan hann þarf ekki að fara meö langar setningar. Þannig nær
John Woo að hífa lélega mynd með vonlausum leikumm og kjánalegu
handriti upp í meðalmennskuna. En hann hlýtur að geta fengið eitthvað
betra úr að moða næst.
Útgefandi: Bergvík. Leikstjóri: John Woo. Aðalhlutverk: Dolph Lundgren.
Bandarísk, 1998. Lengd: 108 mín. Bönnuð innan 16 ára. -PJ
Spice World the Movie:
Kryddstelpur
★★
Það er svona varla að Spiceworld hafi söguþráð til að
rekja, en geram þó tilraun. Fimm sætar stelpur era
rosalega frægar söngkonur sem kafla sig Spice Girls.
Þær flakka um og leika sér, rífast við umboðsmanninn
sinn, hitta annað frægt fólk, styðja vinkonu sína á fæð-
ingardefldinni og halda tónleika. Inn á milli reynir
pressan að klekkja á þeim með því að snúa út úr öllu sem þær gera og segja
(sem er afrek út af fyrir sig því þær eru yfirleitt lítið að tjá sig í neinni al-
vöra, helst að þær nenni að hrópa einhver meiningarlaus slagorð). Krydd-
stelpumar reyna ekki að leika, heldur bara leika sér, sem virkar ágætlega.
Kjölfestan er Richard E. Grant sem nær góðum tökum á umbanum. Senni-
lega er ég bæði af röngu kyni og a.m.k. einum og hálfum áratug of gamall
til að geta haft gaman af tónlistinni en Spiceworld er sjálfsagt himnasend-
ing fyrir aðdáendur kryddstelpnanna. Fyrir aðra er lítið hér að hafa, nema
þá að kíkja á fjölmiðlaundrið og markaðssetningarkraftaverkið Spice Girls
fyrir forvitni sakir. Létt er yfir myndinni þannig að manni þarf svo sem
ekki að leiðast og það má hlæja að sumum bröndurumun.
Útgefandi: Skifan. Leikstjóri: Bob Spiers. Aöalhlutverk: Victoria, Emma, Mel C,
Geri og Mel C. Bresk, 1997. Lengd: 90 mín. Öllum leyfö. -PJ
The Blues Brothers:
Sendiboðar guðs ★★★★
Blúsbræðurnir Jake og Elwood Blues ákveða að
taka til sinna ráða þegar nunnumar sem ólu þá upp
standa frammi fýrir þvi að vera kastað út á guð og
gaddinn vegna skattaskuldar. Til að afla 5000 dollara í
hvelli hóa þeir saman gamla blúsbandinu sínu (sem
reynist þrautin þyngri) og hefja tónleikafor en ýmis
ljón era á veginum. Meðal þeirra sem vilja læsa klónum í blúsbræðuma
eru lögregluyfirvöld, nasistaflokkurinn i Illinois og sveitasöngvarar sem
telja sig eiga harma að hefna. Þessi mynd er alveg jafn góð í dag og hún
var fyrir 18 áram. Tónlistin er eins og best verður á kosið og margir fræg-
ir tónlistarmenn koma fram, svo sem Ray Charles, Cab Calloway, John
Lee Hooker, James Brown og Aretha Franklin. Þá er hljómsveit þeirra
blúsbræðra mögnuð og tónleikaatriðið er frábært, þótt stutt sé. John
Belushi er hér i besta hlutverki síns stutta ferils en það verður forvitni-
legt að sjá hvernig John Goodman tekst að fylla skó hans i væntanlegri
framhaldsmynd. Dan Aykroyd hefur aldrei verið betri, hvorki fyrr né síð-
ar. Fyrri myndin hafði ffábærimi leikurmn í skemmtilegum hlutverkum
á að skipa og tókst að skapa kórrétta stemmningu þar sem blús og gríni
var blandað saman og kristallaðist í hinum ofursvölu blúsbræðrum.
Útgefandi: CIC myndbönd. Leikstjóri: John Landis. Aðalhlutverk: John Belus-
hi og Dank Aykroyd. Bandarísk, 1980. Lengd: 133 mín. Öllum leyfð. -PJ
F(Íi!tÍmilMXMHtIB71M}MR3 1998
5. -11. maí
SÆTI i J FYRRI VIKUR VIKA Á LISTA: 1 J TITILL >■ ÚTGEF. 1 j j j j TEG.
1 í 1 j 5 : Face/Off | Sam-myndbönd Spenna
2 2 ■! % : i 4 ! J Peacemaker, The J J j CIC- Myndbönd j .... J Spenna
3 í 5 ! 2 1 L j Event Horizon J ClC-myndbönd j Spenna
j 3 i: J ) 5 ) j My Best Friends Wedding j J J Skífan J J ) Gaman
5 ! 4 ! 4 ! G.l. Jane j Myndform j Spenna
mmm 6 - I J 8 ! i 2 ! i Life Less Ordinary j j Skífan j J J Gaman
i J 7 i J 6 j 6 i Nothing To Lose J Sam-Myndbönd J Gaman
8 j J 7 i j 3 i J Excess Baggage i 1 J J Skífan j j i Gaman
9 Mý j i ! Mortal Combat: Annihilation j Myndfonn j Spenna
10 J 10 ] J J 5 j j Shooting Fish j j j Stjömubíó j j j Gaman
11 i Ný ! i ! Blackjack j Bergvík j Spenna
12 J 9 i j j 9 i j Full Monty, The j j Skifan J ) J Gaman
13 13 ! 6 ! Money Talks J 1 j Myndfoim j Gaman
» J n ! J 3 ! J Fire Down Below j j Wamer Myndir j Spenna
15 w 1 J Chasing Amy J Skrfan J Gaman
u J 12 ! • 1 8 ! 1 AirForceOne i i j Sam-Myndbönd j j Spenna
i 14 i 3 1 i Sling Blade Sk«an j Spenna
18 J 19 ! ' :■• J j 8 j j Beverly Hills Ninja J J J Skffan j J Gaman
19 : 15 ! 7 ! Volcano Skrfan j Spenna
2. J 17 i J 11 ' j Conspiracy Theory |j J ; Wame Myndir j Spenna
Face/Off ætlar að reynast lífseig á myndbandalist-
anum og er hún búin að sitja sem fastast í efsta sæti
undanfarnar vikur og spennumyndir á borð við The
Pacemaker og Event Horizon hrófla ekki við henni.
Á myndinni er Nicholas Cage í hlutverki hryðju-
verkamannsins en mótleikari hans í Face/Off er
John Travolta. Það þarf að fara í níunda sæti listans
til að finna nýja mynd á listanum. Er það Mortal
Combat: Annihilation. Er þetta önnur myndin sem
gerð er eftir vinsælum tölvuleik. í ellefta sæti er
einnig ný mynd, Black Jack, sem er sjónvarps-
mynd, leikstýrö af John Woo sem er einmitt leik-
stjóri Face/Off. í henni leikur Dolph Lundgren aðal-
hlutverkið.
FACE/OFF
$ ð
Face/Off
John Travolta og
Nicolas Cage
Sean Archer (Tra-
volta) stjómar úrvals-
sveit manna sem berst
við hættulegustu glæpa-
menn í heimi. Einn
jreirra er Castor Troy
(Cage). 1 mörg ár hefúr
Sean reynt að handsama
Castor en án árangurs.
Nú er komið að þvi að
handsama Castor og
mannskæðum bardaga
lýkur með því að Castor
slasast lifshættulega. í
ljós kemur að Castor
hafði áður komið fyrir
öflugri sprengju sem var
ætlað að valda miklum
mannskaða. Eina leiðin
til að fá upplýsingar um
hvar sprengjan er niður-
komin er að fá bróður
Castors til að upplýsa
um það. Og til að fá
hann til að tala er brugð-
ið á það ráð að græða
andlit Castors á Sean.
PIACIMKIR
•
, httei
«***»«
The Peac-
emaker
George Clooney og
Nicole Kidman
Þegar rússnesk lest,
sem flytur kjamaodda,
ferst við afar grunsam-
legar aðstæður er
kjameðlisffæðingurinn
dr. Julia KeUy (Kidman)
fyrst aflra að átta sig á
því að „slysið" var sett á
svið til að hylma yfir
djöfullegar ráðagerðir
hryðjuverkamanna. Sér-
sveitarmaðurinn Thom-
as Devonc (Clooney) er
settur i málið en harð-
neskjulegar aðferðir
hans í baráttunni við
glæpamenn og hryðju-
verkasamtök samrým-
ast engan veginn aðferð-
um og skoðunum Juliu
sem viil frekai1 semja en
skjóta. Þau tverða þó að
leggja ágreining sinn til
hliðar því fram undan
'er gifurlegt kapphlaup
við tímann og niðurtaln-
ingu sprengjunnar.
EVEflT
HQPIZQn
Event Horizon
Sam Neill og
Laurence Fishburne.
Árið er 2047.
Nokkrum árum áður
hafði eitt fuflkomnasta
geimskip sögunnar,
könnunarskipið Event
Horizon, horfið spor-
laust úti í geimnum.
Skyndilega höfðu öll
samskipti rofnað en
rétt áður tókst að
hljóðrita afar ein-
kennileg skilaboð sem
virtust koma frá skip-
inu. Nú hefur geim-
feröastofunun Banda-
ríkjanna á ný numið
hljóðmerki sem geta
ekki verið frá öðru
geimskipi en Event
Horizon. Ákveðið er að
senda björgunarleið-
angur til þess staðar
sem hljóðmerkin eiga
upptök sfn. Það sem
hópurinn finnur verð-
ur ekki með orðum
lýst.
My Best Fri-
ends Wedding
Julia Roberts og
Dermont Mulroney.
Fyrir níu árum gerðu
þau Julianne og Michael
með sér samning. Þau
ákváðu að hætta að vera
elskendur en vera þess í
stað „bara vinir". En
samningur Julianne og
Michaels innihélt svolít-
ið meira. Þau hétu því
nefnilega að ef þau yrðu
ekki gengin út þegar
þau næðu 28 ára aldri
myndu þau giftast hvort
öðru. Og nú eru þau al-
veg að verða 28 ára. En
nú er skyndilega komin
upp ný staða. Michael
hefur nefnilega ákveðið
að bera upp bónorð.
Vandamáliö er bara það
að hann bað annarrar
konu (Cameron Diaz).
Þegar hún sér fram á að
missa Michael til ann-
arrar konu áttar hún sig
á því að hann er í raun
maðurinn sem hún hef-
ur afltaf ætlað að eiga.
G.l. Jane
Demi Moore og
Viggo Mortensen.
Þegar þess er kraf-
ist að sjóherinn opni
fyrir þann möguleika
að konur geti sótt um
inngöngu í sérsveit
hans er ákveðið að
bjóða Jordan O’Neil að
spreyta sig á verkefn-
inu. Það felst í því að
komast í gegnum afar
erfiða þjálfun sem
reynir ekki síður á
andlegu hliðina en þá
líkamlegu. En Jordan
tekur áskoruninni og
þrátt fyrir að enginn
sem þekkir til í hem-
um telji að hún eigi
nokkum möguleika á
því að komast í hóp
hinna útvöldu er hún
ákveðin í að gera sitt
besta.