Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.1998, Blaðsíða 41
LAUGARDAGUR 16. MAÍ 1998
Bókað í geimferðir
Þaö er nokkuð síðan tvær
í bandarískar geimferðaskrifstof-
ur hófu að bóka í geimferðir
sem fyrirhugaðar eru í byrjun
I næstu aldar. Því hefur reyndar
verið spáð að slíkar ferðir séu
raunhæfar öðru hvoru megin
við árið 2020. Ævintýragjamir
ferðamenn láta hins vegar ekk-
ert aftra sér frá því að horga
inn á slíkar ferðir, jafnvel þótt
farkosturinn sé enn á teikni-
borðinu. Algeng innborgun er í
kringum 350 þúsund en heild-
arfargjaldið mun vera um 7
milljónir króna. Þeir sem vilja
kynna sér geimferðir betur
ættu að líta á vefmn spacea-
dventures.com á Netinu.
Japönsk kvennakló-
sett í flugválum
Japanska flugfélagið Japan
Airlines hefur tilkynnt að fram-
:■ vegis hafi kvenkyns farþegar fé-
lagsins aðgang að eigin salemi.
Japanskar frúr þurfa því fram-
vegis ekki að pirra sig á ýmsum
ósiðum karlpeningsins á snyrti-
herbergjum.
Kjólar drottningar
í Kensington-höll var nýlega
opnuð sýning á konunglegum
klæðnaði þar sem kjólar Elísa-
betar II verða miðpunktur sýn-
! ingarinnar. Meðal klæða drottn-
ingar munu kjólamir þrír sem
hún klæddist við brúðkaup
■ barna sinna verða hafðir saman
til sýnis en hjónaböndin hafa öll
endað með skilnaði. Það sem er
þó kannski merkilegast við
þessa sýningu er að aldrei áður
hefur mátt sjá jafnmikið af
klæðnaði drottningar og spanna
sýningargripirnir alla fimmtíu
ára valdatið hennar.
Nokkrar gagnýnisraddir hafa
heyrst um að nær hefði verið að
sýna fallegan fatnað Díönu heit-
; innar en sýningarhaldarar
skýra málið þannig að sýningin
hafi verið i þrjú ár í undirbún-
ingi en ekki sé ólíklegt að svip-
uð sýning verði haldin til minn-
ingar um Díönu einhvern tíma
í framtíðinni.
, •
Lissabon:
Heimssýningin að hefjast
Heimssýningin í Lissabon í
Portúgal verður sett með pompi og
prakt næstkomandi fostudag 22.
maí. Inntak sýningarinnar að
þessu sinni er „Úthöfln - arfur til
framtíðar" og taka alls 154 þjóðir
þátt og þar á meðal íslendingar.
Aldrei fyrr hafa jafnmargar þjóðir
verið þátttakendur og ríkir mikil
eftirvænting meðal sýningarhald-
ara sem búast við 15 milljónum
gesta á sýninguna en hún stendur í
fjóra mánuði eða til 30. september
næstkomandi.
Sýningarsvæðið er sextíu hektar-
ar að stærð og ekkert hefur verið
sparað til þess að gera það sem
glæsilegast úr garði. Gestir geta
gengið á milli ólíkra menningar-
heima og bragðað á mat frá öllum
heimshornum. Hafsvæðum heims-
ins verða gerð góð skil á sýningum
hvort sem um er að ræða leyndar-
dóma þeirra eða vandamál. Stolt
sýningarinncir er hins vegar Útópíu-
höllin en þar verða haldnar marg-
miðlunarsýningar daglangt.
Á sýningunni mun hver þjóð eiga
sinn dag og verður dagur íslendinga
þann 29. júní. Samgöngur í Portúgal
hafa verið stórbættar vegna sýning-
arinnar og þeir sem dvelja á sólar-
ströndum landsins ættu að eiga
greiðan aðgang að þeim stórvið-
burði sem heimssýning ávallt er.
49
BOMRG
HOPPARAR
Gæöi
á góðu
verði.
Einnig jarðvegs-
þjöppur, margar
gerðir.
v Skútuvogi 12A, s. 568 1044
Aiikin
þjónusta
Opið:
Mán.-fös. 8-21
Lau. 8-19
Sun. 10-19
Húsasmiðjan
Fossaleyni 2
Grafarvogi
S: 586 2000
HÚSASMIÐJAN
Vanda Sigurgeirsdóttir landsliösþjálfari
„Englandsmeistarar Arsenal eru
fullir sjálfstrausts og vinna
2-1. Alan Shearer
skorar eitt mark fyrir
Newcastle en það
verBur ekki nóg.“
)egar ski
(ióður islcnskm Viilkosíur
)Iíi þiii I iim i)ijslkcrí‘i.
Ný ferðakort
Mál og menning hefur hafið útgáfu
á nýjum kortaflokki af íslandi sem
inniheldur ferðakort af landinu í
heild auk fjögurra landshlutakorta.
Ferðakortið af íslandi, sem er á
mælikvarðanum 1:600.000, er prent-
að í náttúrlegum litum og er sérstök
áhersla lögð á gróðurlendur lands-
ins og myndræna skyggingu hálend-
isins. Fjórðungskortin, í mæli-
kvarða 1:300.000, er nýjung á is-
lenskum kortamark-
aði en landinu er
skipt í fjóra
jafna hluta
e f t i r
1 a n d s -
fjórðung-
um. Fyrsti
fjórðungurinn
í þessum nýja
kortaflokki er
Suðvesturland en
hann nær yfir svæð-
ið frá Snæfellsnesi í vestri að Mýr-
dalssandi í austri.
Á bakhlið kortanna er að finna
lýsingar og litmyndir af helstu nátt-
úruperlum landsins þar sem bent er
á ýmis einkenni viðkomandi staða.
Kortin eru unnin af Hans H. Hansen
kortagerðarmanni en til útgáfunnar
var pantaður sérstakur pappír sem
þykir sterkari og endingarbetri en
áður hefur þekkst í íslenskri korta-
gerð.
flRSEHflL - HEllJCflSTLE
Laugardaginn 16. maí
kl. 13:00.
Leikurínn er sýndur á
Stöð 2 og SÝN
Z
Áskrittarsíminn or S1S 6100
k
«
Stuðlaberg á Hofsósi hefur um árabil
framleitt hljóðkúta og púströr undir
flestar tegundir bíla.
Pústkerfi fyrir Subaru 1800.
20% lækkun dagana
18. - 23. maí
meðan birgðir endast
Sími 535 9000
Borjjartún 26,k.