Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.1998, Síða 1
MÁNUDAGUR 18. MAÍ1998
»g lagði annað up;
i í Belgíu - Bls. 2
Tvöfalt hjá Arsenal
- bls. 30
Valur
þjálfar
Stólana
Valur Ingimundarson hefur
verið ráðinn þjálfari úrvalsdeild-
arliðs Tindastóls í körfuknatt-
leik og tekur hann við starfi Páls
Kolbeinssonar. Valur hefur und-
anfarin þrjú ár þjálfað og leikið
með BK Odense í Danmörku og
undir hans stjórn fór liðið upp
um tvær deildir á jafnmörgum
árum og endaði í 4.-5. sæti í 1.
deildinni í vetur.
„Við erum mjög ánægðir að
vera búnir að ganga frá þessum
málum og væntum góðs af störf-
um Vals. Valur þekkir vel til
héma á Króknum og hann mun
styrkja lið okkar,“ sagði Halldór
Halldórsson, formaður körfu-
knattleiksdeildar Tindastóls, við
DV í gær en Valur mun einnig
leika með liðinu.
Valur er ekki ókunnugur liði
Tindastóls því hann hann lék
með liðinu í nokkur ár og þjálf-
aði það síðast 1992-1993. -GH
Lottó:
18 19 29 34 36 B: 30
Enski boltinn:
lxl 21x x21 2x11
Guöjón Þóröarson:
Geysilega stelt-
ur af syninum
DV, Belgiu:
„Ég er geysilega stoltur af syninum. Ég horfði á lið Genk
æfa daginn fyrir leik og það var síðan stórkostlegt að sjá leik-
inn sem var vel útfærður og vel spilaður," sagði Guðjón Þórð-
arson, landsliðsþjálfari íslands í knattspymu, sem horfði á
Þórð son sinn verða bikarmeistari með Genk á laugardaginn.
Guðjón sat ásamt Þórði fóður sínum í heiðursstúkunni á
vellinum í Brussel. Þar vom þeir í félagsskap forsætisráð-
herra Belgíu og fleiri merkra manna. -KB
Evrópumót áhugamanna í snóker í Finnlandi:
Kristján Evrópumeistari
Kristján Helgason tryggði sér í
gær Evrópumeistaratitilinn í
snóker á Evrópumóti áhugamanna
sem lauk í Finnlandi í gær. Krist-
ján sigraöi Alex Borg frá Möltu í
úrslitaleik meö 7 römmum gegn 2
og í undanúrslitunum á laugardag-
inn lagði hann N-írann að velli, 8-3,
þar sem hann náði að gera 104 skor
í einum rammanum.
Það má því segja að allt er þegar
þrennt er hjá Kristjáni en tvö undan-
ferin ár hefur hann tapaö úrshtaleik á
þessu sama móti. Þetfe er annar stóri
titillinn sem Kristján vinnur í
snókemum en fyrir nokkrum árum
hampaði hann heimsmeistaratitlinum
í flokki unglinga á móti sem fram fór
hér á landi.
Heimsmeistaratitillinn
kærari
„Þetta gekk bara mjög
vel í úrslitaleiknum. Ég
náði strax tökum gegn Borg
og hreinlega lokaöi hann
inni. Ég náði engum sér-
stökum stuðum því þetta
var vamarbarátta. Ég er að
sjálfsögðu mjög ánægður
með titilinn. Ég stefndi að
því leynt og ljóst að vinna
þennan titil og tókst það
loks í þriðju tilraun. Það er
svolítið erfitt að bera sam-
an þennan titil og heims-
meistaratitilinn en ætli mér
sé ekki sá síðarnefndi kær-
ari,“ sagði Kristján í sam-
tali við DV, skömmu
eftir að titillinn var í
höfn.
„Eftir tvo fyrstu
sigrana á mótinu fann
ég að ég gæti farið alla
leið. Maðm- fékk aukið
sjálfstraust og það er
mjög mikilvægt í þess-
ari íþrótt. Þessi sigur
opnar ekkert sérstakt
fyrir mig nema
kannski það að ég á
vonandi auðveldara
með að fá styrktarað-
ila í framtíðinni. Við
Jóhannes vorum einu
keppendurnir á mót-
Kristján Helgason Evrópumeistari áhugamanna í snóker. inu sem ekki voru
styrktir sérstaklega og það er mjög
erfitt," sagði Kristján.
Atvinnumótin í haust
Kristján er orðinn atvinnumaður
í greininni en á dögunum vann
hann sér keppnisrétt í und-
ankeppni fyrir atvinnumannamót-
in og hefst sú keppni í haust. Þar
keppa 198 snókerspilarar um 128
sæti í atvinnumannamótunum.
„Ég tel mig eiga góöa möguleika
á að komast áfram í undankeppn-
inni og steöii að sjálfsögöu aö því,“
sagði Kristján en frábær frammi-
staða hans og góð frammistaða Jó-
hannesar vakti mikla athygli í
Finnlandi. -GH