Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.1998, Qupperneq 4
íþróttir
Bland í poka
Virgilius Alenka frá Litháen náöi á
laugardag besta árangri ársins í
kringlukasti karla. Alenka, sem varð
annar á síöasta heimsmeistaramóti,
kastaði 68,86 á móti í Halle í Þýska-
landi.
Norska kvennaliðid Bækkelaget
vann um helgina sigur i Evrópu-
keppni bikarhafa í handknattleik
meö því að bera sigurorð af króatíska
liðinu Kras Zagreb, 28-17, i úrslita-
leik liðanna, og samanlagt 51-40.
Anja Andersen fór á kostum í liði
Bækkelaget og skoraöi 13 mörk.
Þýskaland sigraði Tékkland, 24-23,
í vináttulandsleik í handknattleik
karla í gær. Martin Schwalb var
markahæstur í liöi Þjóðverja með 8
mörk og Stefan Kretzschmar kom
næstur með 4 mörk.
Conchita Martinez frá Spáni sigraði
frönsku stúlkuna Amelie Mauresmo
6-4 og 6-4 í úrslitaleik á opna þýska
mótinu í tennis sem lauk í Berlín í
gær.
Svíar urðu i gær heimsmeistarar í
íshokkí þegar þeir gerðu markalaust
jafntefli gegn Finnum í síðari úrslita-
leik liðanna en Svíar unnu fyrri ieik-
inn, 1-0.
Svíar urðu heimsmeistarar í sjöunda
sinn en þeir unnu síðast titilinn árið
1992 en þá lögðu þeir einnig Finna í
úrslitaleik.
Darren Clarke frá N-írlandi sigraði
á Benson- og Hedges-mótinu í golfi
sem iauk i Oxford á Englandi i gær.
Clarke lék á samtals 273 höggum eða
15 undir pari. Annar varð Spánveij-
inn Santiago Luna á 276 höggum.
Ron Atkinson mun ekki stýra liði
Sheffield Wednesday í ensku úrvals-
deildinni í knattspymu á næstu leik-
tlð. Það var vilji stjómar Wednesday
að endumýja ekki samninginn við
Atkinson sem tók við liðinu á miðju
tímabili.
Bröndby varð 1 gær danskur meist-
ari í knattspymu þriðja árið i röð.
Liðið tryggði sér titilinn með því að
gera markalaust jafntefli gegn Silke-
borg á meðan Köbenhavn tapaði fyrir
AB, 2-1. Þegar 3 umferðir em eftir er
Bröndby með 11 stiga forskot á Köb-
enhavn.
Sádi-Arabar bám sigurorð af Nami-
bíumönnum, 2-1, í vináttulandsleik í
knattspyrnu sem fram fór i Cannes í
gær. Islendingar og Sádar skildu
jafnir, 1-1, á sama stað í síðustu viku.
Inga Dóra Magnúsdóttir, sem gekk
til liðs við úrvalsdeildarlið Hauka i
knattspymu i vetur, byrjar ekki að
spila fyrr en á miðju sumri. Inga
Dóra fór i uppskurð vegna slitinna
liðbanda í ökkla.
Baldur Bragason og félagar i Pana-
haiki féllu f gær úr 1. deild grísku
knattspymunnar. Panahaiki, sem var
utan fallsætis allt tímabilið, tapaði
4-0 í fallslag gegn Kavala og á meðan
skomðu helstu keppinautamir, Ethn-
ikos, sigurmark á siðustu minútu í
sínum leik. -VS/GH/ih
Kvennahandbolti:
Magnús
þjálfar
lið FH
Magnús Teitsson var í gær
ráðinn þjálfari 1. deildar liðs FH
í handknattleik kvenna. Magnús
hefur þjálfað kvennalið Hauka
undanfarin tvö ár en þjálfaði
áður lið Stjömunnar í Garðabæ.
Bæði Stjarnan og Haukar urðu
íslandsmeistarar undir stjórn
hans og nú er spuming hvort FH
verður þriðja liðið sem hann ger-
ir að meisturum.
FH-liðið er ungt og mjög efni-
legt. Það hafhaði í þriðja sæti í
deildarkeppninni í vetur og
komst í undanúrslitin um ís-
landsmeistaratitilinn þar sem
það tapaði fyrir Víkingi. Viðar
Símonarson var þjálfari FH-
liðsins lengst af vetrar en eftir
að hann var úrskurðaður í bann
af aganefnd HSÍ tók Slavko
Bambir við stjóminni. -GH
+
MÁNUDAGUR 18. MAÍ 1998
Ársþing HSÍ:
Átta milljóna
tap á árinu
- hagnaður tryggður á næsta ári
Ársþing Handknattleikssam-
bands íslands var haldið um helg-
ina. Skýrsla stjórnar bar nokkurn
keim af þeim nauðungarsamning-
um sem sambandið hefur verið í. í
reikningunum, sem lagðir voru
fram, kemur í ljós að 8 milljóna
króna tap var á rekstri sambandins
á starfsárinu og ræðst sú tala nokk-
uð af vaxtagjöldum upp á rúmar 3
milljónir og vegna þess að ekki
tókst að koma inn samningum við
fyrirtæki eftir nauðasamningana.
60 milljóna hagnaöur með
nauðasamningunum
„Þó svo að reksturinn sé í mínus
núna er nánast búið að tryggja þær
tekjur að sambandið skili hagnaði á
næsta ári. Það er ríflega 60 milljóna
króna hagnaður af rekstri HSÍ þeg-
ar nauðasamningarnir eru teknir
inn,“ sagði Örn Magnússon, fram-
kvæmdastjóri HSí, við DV.
Ein breyting varð á stjóm HSÍ.
Ragnheiður Karlsdóttir óskaði ekki
eftir endurkjöri og í hennar stað
var kosin Hallgunnur Skaptason.
„Stjórnin er búin að setja markið
hátt fyrir komandi tímabil og við
ætlum að sækja fram í unglinga- og
í kvennahandboltanum," sagði Örn.
Tekiö til I lögum HSÍ
Örn sagði að tekið hefði verið til
í lögum HSÍ, fyrst og fremst til að
lagfæra þá hluti sem urðu vegna
bikarúrslitaleiksins. Þá voru gerð-
ar breytingar á starfsaðferðum
dómstóls HSÍ, hvernig eigi að vinna
að slíkum málum og samþykkt var
að samræma lög HSÍ lögum ÍSÍ.
Ein helsta breytingin á mótahald-
inu næsta vetur er sú að keppni í 3.
deild karla verður tekin upp og
keppni B-liðanna felld niður. Þá var
samþykkt að taka upp keppni í 2.
deild kvenna og i þeirri deild verða
B-liðin og „old girls“ liðin.
Tillaga lá fyrir þinginu að splitta
upp dómarapörunum í 4. hverri
umferð en það var ekki samþykkt
og var vísað til skoðunar hjá dóm-
aranefndinni. -GH
Glæsimark
frá Arnóri
Arnór lék vel með
örebro i 9ær. _ örebro burstaði Gautaborg, 4-0
DV, Svíþjóð:
Arnór Guðjohnsen skoraði glæsilegt
mark þegar Örebro vann óvæntan stór-
sigur á Gautaborg, 4-0, í sænsku úr-
valsdeildinni í knattspyrnu í gær. Þetta
var fyrsti sigur Örebro á tímabilinu og
liðið komst af botninum upp í 10. sæti.
Amór gerði fyrsta mark leiksins á
16. mínútu. Dan Sahlin sendi boltann
fyrir mark Gautaborgar frá vinstri,
Amór tók hann viðstöðulaust með
vinstra fæti, beint upp undir mark-
vinkilinn.
Sahlin gerði næstu tvö mörk og
Michael Andersson innsiglaði sigurinn
með stórbrotnu langskoti. Arnór og
Sahhn vom sagðir bestu menn Örebro
í leiknum. Hvorki Hlynur Birgisson né
Gunnlaugur Jónsson léku með Örebro.
Helsingborg vann Örgryte, 0-2, á úti-
velli og Trelleborg og Norrköping
skildu jöfh, 0-0. íslendingar komu ekki
við sögu í þessum leikjum.
Helsingborg, Frölunda og Norrköp-
ing era jöfn og efst með 12 stig en ný-
liðar Frölunda eiga einn leik til góða.
-EH/VS
Magnús yfir 60 metrana
- á vígslumóti nýja Kaplakrikavallarins
Magnús Aron Hallgrimsson, Selfyss-
ingurinn efnilegi, kastaði kringlu í
fyrsta skipti yfir 60 metra í gær. Það
gerði hann á vígslumóti hins nýja og
glæsilega frjálsíþróttavallar FH-inga í
Kaplakrika. Magnús kastaði kringlunni
60,08 metra og það lofar góðu fyrh sum-
arið.
Aðstæður vora erfiðar vegna veðurs
og dró það úr árangri keppenda. Jón Ás-
grímsson úr FH kastaði þó spjóti yfir 60
metra i fyrsta skipti, 61,40 m, og Þórey
Edda Elísdóttir, FH, átti góðar tilraunir
við 3,90 m í stangarstökki. Þá náðu
Bima Björnsdótth, FH, og Bjöm Mar-
geirsson, UMSS, ágætum tímum í 800
meha hlaupi.
Fyrsti sigurvegarinn á nýja vellinum
var Ingi Sturla Þórisson, FH, sem sigraði
í 300 m grindahlaupi drengja. -VS
Sigrún Óttarsdóttir, fyrirliöi Breiöabliks, meö deildabikarinn eftir sigurinn á Val í gærkvöld. DV-mynd Brynjar Gauti
Breiöablik deildabikarmeistari kvenna:
„Bara byrjunin"
- Margrét með þrennu í framlengdum úrslitaleik
„Þetta er bara byrjunin á sumr-
inu, það verður barátta fram á síð-
ustu mínútu. Deildabikarkeppnin í
vor hefur sýnt fram á það að deild-
in verður jöfn í sumar. Og í dag
voram við að láta vita af okkur,“
sagði Margrét R. Ólafsdótth sem
skoraði öll mörk Breiðabliks í úr-
slitum gegn Val í Deildabikarkeppn-
inni þar sem Breiðablik sigraði 3-2.
Valur byrjaði leikinn betur og á
16. mínútu skoraði Ásgerður H.
Ingibergsdótth með fóstu skoti úr
teig efth laglega sókn Vals. Mar-
grét jafnaði leikinn fyrir Breiðablik
á 67. mínútu með glæsilegu skoti af
um 25 metra færi. Margrét kom
Breiðabliki síðan yfir fimm mínút-
um síðar með skalla efth horn-
spyrnu. Þegar venjulegum leiktíma
var lokið braust Rakel Logadótth
upp vinstri kantinn, jafnaði leikinn
fyrh Val með góðu skoti og tryggði
framlengingu.
Sigríður Þorláksdóttir fiskaði
vítaspymu fyrir Breiðablik
skömmu fyrh hálfleik ffamlenging-
arinnar og úr henni skoraði Mar-
grét þriðja mark sitt og hyggði þar
með Blikum deildabikarinn.
Leikurinn var vel leikinn og
sýndu bæði lið að þau koma mjög
vel undhbúin í íslandsmótið sem
hefst á föstudag.
„Við ætlum okkur að vera í topp-
baráttunni í sumar. Hópurinn, sem
er mikið breyttur frá í fyrra er alltaf
að ná betur og betur saman. Við
erum með nýjan þjálfara, Jörand
Áka Sveinsson, sem hefur náð að
binda hópinn saman. Hann er harð-
ur en með húmorinn í lagi,“ sagði
Margrét.
Valur sigraði KR í undanúrslit-
um, 7-4, eftir vítaspyrnukeppni en
Breiðablik lagði ÍA, 2-0.
-ih
Sverrir áfram
meðKA
Sverrh Björnsson, hinn stórefnilegi
handknattleiksmaður úr KA, er ekki á
förum frá félaginu eins allt benti til fyrir
nokkru. Hann leikur því með Akureyrar-
liðinu næsta vetur og anda KA-menn því
léttar því honum er ætlað stórt hlutverk
með liöinu á næsta tímabili.
Var feitasti bitinn
Sverrh hugðist fara i nám í Reykjavík
í haust og þegar þær frétth spurðust út
var hann shax orðinn feitasti bitinn á
leikmannamarkaðnum þar sem flest liðin
í 1. deildinni á höfuðborgarsvæöinu höfðu
samband við hann.
Það sem breytti því að Sverrh fer ekki
suður er sú að hann getur byrjað háskóla-
nám sitt fyrir norðan í haust. -GH
Lithái í mark
KA-manna?
Svo getur farið að landsliðsmarkvörður
Litháa í handknattleik og leikmaður
Granitas Kaunas leiki i marki KA-manna
næsta vetur. Atli Hilmarsson, þjálfari KA,
sagði við DV í gær að Litháinn væri inni
í myndinni en að það væri enn langur
vegur frá að hann væri á leið til liðsins.
Guömundur samdi viö Val
Litháanum er ætlað að fylla skarð Sig-
hyggs Albertssonar en hann hefur ákveð-
ið að hætta. Landsliðsmarkverðimh Guð-
mundur Hrafnkelsson og Reynh Þór
Reynisson voru þeh fyrstu sem KA-menn
ræddu við en nú er Ijóst að hvoragur
þeirra leikur í búningi KA næsta vetur.
Guðmundur skrifaði undan nýjan samn-
ing við Val í síðustu viku og Reynir Þór
er á leið til þýska liðsins Solingen. -GH
Dormagen
fór niður
Dormagen, lið Héðins Gilssonar og Ró-
berts Sighvatssonar, féll úr þýsku 1. deild-
inni í handknattleik í gær. Dormagen tap-
aði þá fyrh Schutterwald, 25-19, í síðari
leik liöanna um laust sæti í 1. deildinni á
næsta tímabili en Dormagen hafði áður
unnið fyrri leikinn á heimavelli, 24-21.
Þar með féllu tvö Islendingalið úr þýsku
1. deildinni en hitt liöið var Hameln, lið
Alfreðs Gíslasonar.
Héðinn Gilsson skoraði 6 mörk fyrir
Dormagen en markahæstur var danski
landsliðamaðurinn Nikolaj Jacobsen með
8 mörk. -GH
t
MÁNUDAGUR 18. MAÍ 1998
29.
I>V
íþróttir
í
, ,5, + %
Þóröur Guöjónsson, til vinstri, lyftir bikarnum ásamt félögum sínum í liöi Genk.
DV-myndir Marc De Waele
Þórður Guðjónsson:
Frábær
sigur
DV, Belgíu:
„Þetta var frábær sigur og ég
er auðvitað mjög ánægður. Þetta
hafðist einfaldlega af því að viö
gerðum allh okkar besta og hver
einasti leikmaður liðsins lagði
sig í þetta af fullum krafti," sagði
Þórður Guðjónsson við DV efth
sigurinn á Club Brugge í bikar-
úrslitinum á laugardag.
„Ég bjóst ekki við því fyrh
leikinn að við myndum bursta
belgísku meistarana með átta
landsliðsmenn innanborðs. Það
vantaði líka tvo góða leikmenn
hjá okkur. Ég fann mig vel og
trúði því að við myndum vinna.
Við heföum getað unnið mun
stærri sigur ef öll okkar færi
hefðu nýst,“ sagði Þórður.
Hann kvaðst vera á forum til
Suður-Frakklands í tvær vikur
en síðan myndi hann koma heim
til Islands og enda sumarfríið
þar.
Stórkostlegt tímabil
Stórkostlegu tímabili er lokið
hjá Þórði. Dagblaðið Het Nie-
uwsblad útnefndi hann besta
leikmann belgísku 1. deildarinn-
ai' og stuðningsmenn Genk
völdu hann leikmann ársins.
Bikarsigurinn á laugardag var
síðan punkturinn yfir i-ið. Þórð-
ur hefúr svo sannarlega slegið í
gegn á fyrsta tímabili sínu í
belgísku knattspyrnunni.
-KB
- Þórður skoraði og lagði upp mark í stórsigri
Genk á meisturum Club Brugge, 4-0
DV, Belgíu:
Þórður Guðjónsson er bikar-
meistari Belgíu með liði sínu, Genk.
Liði hans tókst það á laugardag sem
fáh höfðu reiknað með því Genk
gjörsigraði belgísku meistarana,
Club Bragge, 4r-0.
Þórður átti mjög góðan leik. Hann
lék inni á miðjunni, var mjög virk-
ur í vörn og sókn og vann geysilega
vel allan leikinn.
Oulare kom Genk yfh á 20. mín-
útu. Aðeins mínútu síðar hirti Þórð-
ur boltann af Van der Elst á eigin
vallarhelmingi, óð upp allan völl og
skaut, mEU'kvörður Bragge varði en
boltinn hrökk til Oulare sem skor-
aði, 2-0. Heiðurinn Vcir Þórðar sem
fékk innilegar viðtökur félaga
sinna.
Skoraöi meö hörkuskoti í
stöngina og inn
Þórður var tvívegis nálægt þvi að
skora áður en hann bætti við þriðja
marki Genk á 37. minútu með
hörkuskoti í stöngina og inn úr
þröngri stöðu.
Það var síðan Peeters sem inn-
siglaði sigurinn á 57. mínútu og þar
með var veislan hafrn hjá fjölmörg-
um stuðningsmönnum Genk.
Árangur Genk í vetur er frábær
en liðið hafhaði í öðra sæti 1. deild-
ar og vann síðan bikarinn. Aðeins
eru tiu ár síðan félagið var stofnað
en það varð til við samruna
Waterschei og Winterslag árið 1988.
Genk leit út eins og draugaborg á
meðan úrslitaleikurinn stóð yfh á
laugardag en stanslaus sigurstemn-
ing var í Genk þegar liðið kom til
borgarinnar með bikarinn eftir leik.
Hátíðahöldin héldu áfram í gær en
þá var tekið á móti leikmönnunum
í ráðhúsi Genk.
-VS
Þórður sækir boltann í mark Brugge eftir aö hafa skorað þriðja mark Genk.
Fögnuður leikmanna Genk eftir úrslitaleikinn var að vonum mikill. Þóröur er
lengst til vinstri í fremstu röö.
Þórður á fleygiferð í úrslitaleiknum. Þjálfari Genk sagði aö hraði hans og
hinna sóknarmanna liösins hefðu komið Brugge í opna skjöldu.
Þjálfari Genk:
Þórður lék
stórt hlutverk
DV, Belgiu:
„Þórður lék stórt hlutverk i því
leikkerfl sem ég setti upp fyrh
leikinn. Við lékum með einn
„djúpan senter“, Oulare, og Þórð
og Hendrikx fyrh aftan hann. Ég
held að hraðinn á þeim hafi komiö
Club Bragge í opna skjöldu. Þórð-
ur var mjög góður, sívinnandi all-
an leikinn, en það var þó liðsheild-
in sem vann þennan leik,“ sagði
Aieme Anthunies, þjálfari Genk,
við DV. -KB