Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.1998, Blaðsíða 3
FÖSTUDAGUR 29. MAÍ 1998
★ K
u
kvikmyndir
Robin
Wiiiiams
sem vélmenm
Leikarinn góökunni og leik-
stjórinn Christopher Columbus,
sem saman geröu Mrs. Doubtfire,
ætla að sameina krafta sína á ný
í Bicentennial
Man, sem byggð
er á smásögu eft-
ir Isaac Asimov.
Mun Robin
Williams leika
vélmenni sem i
tvö hundruð ár
reynir að komast
að því hvemig
hann geti orðið að manni. Hand-
ritið eftir skáldsögunni skrifaði
Nick Kazan fyrir nokkrum árum
og keypti Disney-fyrirtækið það
af honum. Uppmnalega átti Wolf-
gang Petersen að leikstýra mynd-
inni og þá var talið líklegt að
Tom Hanks léki vélmennið.
Beineix í sviðsljósið
á ný
Einn þekktasti leikstjóri
Frakka, Jean-Jaques Beineix
(Diva, Betty Blue), hefur ekki gert
kvikmynd i sex ár eða frá því
hann sendi frá sér IP5 með Yves
Montant i aðalhlutverki. Hann er
nú á fullu að undirbúa vampiru-
myndina Deal of the Millenni-
um, sem hefur fjármögnun upp á
60 milljón dollara og verður gerð
í Bandarikjunum. Hugmyndin að
Deal of the Millennium hefur ver-
ið á borðinu hjá Beineix i fjórtán
ár. Beineix skrifaði handritið á
frönsku og var það þýtt yfir á
ensku, enda um enskumælandi
kvikmynd að ræða. Beineix er
þessa dagana i Los Angeles i leit
að leikurum í aðalhlutverkin.
Sunnudagar með
Oliver Stone
Oliver Stone
er umdeildur
léikstjóri og er
ófeiminn við að
koma á framfæri
skoðunum sín-
um. Hann hefur
látið öilrnn illum
látum að undanfómu þar sem
enginn er tilbúinn til að fjár-
magna kvikmynd rnn Martin
Luther King, sem hann vill gera.
Mörgum finnst skiljanlegt að fjár-
festar skuli halda að sér höndum
þegar Stone tekur upp á því að
gera kvikmyndir um frægt fólk,
minnugir þess hversu frjálslegum
höndum hann fór um morðið á
Kennedy og þá ekki siður um ævi
Nixons. Stone er samt ekki að-
gerðalaus, hann er að fara að
gera On Any Given Sunday,
dramatíska spennumynd með A1
Pacino, Cameron Diaz, Dennis
Quaid og Edward Bums í
aðalhlutverkum.
Tökur hefjast í haust.
Adam Sandler í hlutverki söngvarans sem hefur atvinnu af aö syngja í brúökaupum.
The Wedding Singer:
Adam Sandler
I The Wedding Singer, sem frum-
sýnd er í dag, segir frá frekar sein-
heppnum söngvara á níunda ára-
tugnum sem hefur það fyrir vinnu
að syngja i brúðkaupum. Myndin
náði miklum vinsældum í Banda-
ríkjunum fyrir nokkrum vikum. í
aðalhlutverkinu er leikarinn Adam
Sandler sem er ekki mjög þekktur
utan Bandaríkjanna þar sem hann
hefur öðlast talsverðar vinsældir í
gegnum sjónvarpið. Þykir frammi-
staða hans í þessari mynd gefa til
kynna að hann eigi mikla framtíð
fyrir sér í kvikmyndum.
Sandler er einn margra frægra
gamanleikara í Bandaríkjunum sem
hafa orðið frægir á því að leika í
sjónvarpsþáttaröðinni, Saturday
Night Life, en i þann þátt var hann
ráðinn árið 1990. Framleiðandi The
Wedding Singer, Robert Simonds,
segir: „Það er eitthvað við
Adam Sandler sem gerir það
að verkum að maður fer strax
að brosa þegar maður sér
hann og þegar hann opnar
munninn þá fer maður að
hlæja.“
Þótt The Wedding Singer hafi
orðið stökkpallur fyrir
Adam Sandler í Hollywood
er hann enginn nýliði í
kvikmyndabransanum.
Hefur hann leikið í
nokkrum kvikmyndum og
er skemmst að minnast
gamanmyndarinnar,
Happy Gilmore þar sem
hann í raun lagði grunninn
að velgengni sinni. Aðrar kvik-
myndir sem hann hefur leikið í eru
meðal annars Billy Madison, Bullet-
proof, Mixed Nuts og Airheads.
Adam Sandler er margt til lista
lagt. Hann hefur gefið út þrjár
geislaplötur þar sem hann þykir
fara á kostum í ýmsum gervum og
hafa þær selst í meira en fjórum
milljónum eintaka. Fyrir tveimur
árum fór hann með skemmtipró-
gramm til tuttugu stærstu borga í
Bandaríkjunum
og var uppselt
á allar sýn-
ingar
hans,
en
auk
þess
að
Drew
Barrymore
leikur góð-
hjartaða þjón-
ustustúlku.
grínast var hann með rokksveit
með sér þar sem hann var í hlut-
verki söngvara.
Adam Sandler hefur einnig látið
til sin taka á ritvellinum. Hann var
meðhandritshöfúndur að Billy
Madison og Happy Gilmore og skrif-
ar handritið að nýjustu mynd sinni,
The Waterboy, þar sem mótleikarar
hans eru Kathy Bates og Fairuza
Balk.
Mótleikkona Sandlers í The
Wedding Singer er Drew
Barrymore, sem er kominn af fræg-
ustu leikarafjölskyldu í Hollywood.
Hún varð heimsfræg aðeins sex ára
gömul þegar hún lék litla krúttið í
E.T. I kjölfarið fékk hún stór hlut-
verk, en hvarf af sjónarsviðinu um
tíma vegna neyslu á áfengi og eit-
urlyflum. Frægt er orðið þegar
hún var send í sina fyrstu með-
ferð tólf ára gömul. Eftir að
hún náði tökum á lífi sínu hef-
ur komið í ljós að hún er mikl-
um leikhæfileikum gædd óg
hefur verið að vinna sig upp og
skilað nokkrum ágætum hlutverk-
um. Meðal síðustu mynda
hennar eru Boys on the
Side, Mad Love,
Batman Forever,
Everyone Says I
Love You og
Scream. Næstu
tvær myndir
hennar eru
Home Fries
$ og Cinderella.
-HK
Óskar og Lúsinda
Óskar og Lúsinda er byggð á
samnefndri skáldsögu Peter Car-
ey sem hlaut Booker-verðlaunin
á sínum tíma. Sagan fjaUar um
Óskar Hopkins (Ralph Fiennes),
sem er að læra til prests í
Englandi í byrjun þessarar ald-
ar. Hann ákveður að gefa hemp-
una upp á bátinn og byrjar að
stunda fjárhættuspil af miklum
áhuga.
Til þess að þóknast Almættinu
gefur hann ávallt vinninga sína í
sjóð handa fátækum. Dag einn
kynnist Oscar jafnoka sínum
(Cate Blachett), sem er ung, for-
rik og sjálfstæð áströlsk kona,
sem kaupir glerverksmiðju
vegna þess að henni líkar svo vel
gljái og viðkvæmni glersins.
Sameiginleg ástríða þeirra fyrir
fjárhættuspilum dregur þau
saman en síðan þróast samband
þeirra þannig að þau ákveða að
byggja glerkirkju og sigla henni
tÚ afskekktrar eyju í Norður-
Ástralíu. Kvikmyndinni er leik-
stýrt af Gillian Ármstrong sem á
að baki myndir eins og Chez
Nous og Little Women.
KVIKMYIÍDA
i
Él
mtm
jj
Laugarásbíó/Stjörnubíó -The Wedding Singer:
Brúðkaup en engin jarðarför
Enn fáum við tímabilsend-
urgerð upp i hendumar, núna
er tekinn upp þráðurinn þar
sem Boogie Nights skildi við,
og haldið inn á miðjan níimda
áratuginn, há-tið diskósins.
Robbie Hart (Adam Sandler)
vinnur fyrir sér sem söngvari í
brúðkaupum og öðrum veisl-
um, þar sem hann syngur fag-
urlega ýmsar diskóballöður og
tekur að sér hugljúf ræðuhöld líka. Hann dreymir um
borgaralegt líf með ástkærri eiginkonu og álíka ham-
ingju, en því miður gengur dæmið ekki álveg upp þvi
unnustan Linda yfirgefur hann við altarið, og kvartar
yflr því að tónlistarlegur frami hans sé á vonarvöl og þar
með fjármögnunin. Söngvarinn góði fær taugaáfall, en
með góðri hjálp þjónustustúlku (Drew Barrimore) nær
hann sér á strik. Saman undirbúa þau brúðkaup hennar,
en uppa-unnustinn er áhugalaus um slíkt með öllu,
drullusokkur með meiru og heldur stöðugt fram hjá.
Það er algert kikk fyrir mina kynslóð að sjá svona end-
urgerð á „mínum“ tíma, og yngri kynslóðin virtist vera
tilbúin til að flla þetta allt saman aflur. Diskóið hefur
enda dunið allnokkuð nú síðustu ár,
bæði í ýmsum endurgerðum sem í
frummynd sinni. Tónlistarvalið var
með eindæmum gott þar sem bæði
textar og tónar féllu vel að sögunni
hverju sinni, auk þess sem myndin er
skemmtilega pökkuð vísunum í
klæðnað, stjömur (Boy George-eftir-
líking er hljómborðsleikari í sveit
brúðkaupssöngvarans, frábærlega
leikinn af Alexis Arquette) og dans-
spor. Helsta vandamálið er hins vegar sjálf sagan, sem er
bæði þunn og fremur óáhugaverð. Brúökaupsvafstur er
vissulega eitthvað sem er orðið „in“ aftur (eins og diskó-
ið), en er kannski ekki beint viðfangsefni sem nær að
halda uppi heilli mynd, allavega ekki án eins og einnar
jarðarfarar. í byrjun var náð upp ákveðinni sjálfsíróníu
sem er nauðsynleg slíkmn tímabils-myndum, en síðan dó
það allt út og um 'leið og alvara málsins tók við fylgdi
meðalmennskan á eftir.
Leikstjóri: Frank Coraci. Handrit: Tim Herlihy. Kvik-
myndtaka: Tlm Surstedt. Tónlist: Teddy Castellucci. Að-
alhlutverk: Adam Sandler, Drew Barrymore, Christine
Taylor og Allen Covert. Úlfhildur Dagsdóttir
I