Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.1998, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.1998, Blaðsíða 12
26 ^jfyndbðnd MYNDBANDA RiKnftj i pnii JIHI Lv ln & Out: ★ Að vera eða vera ekki hommi Kevin Kline leikur geðþekkan kennara í smábæn- um Greenleaf. Rétt áður en hann ætlar að giftast kærustu sinni til þriggja ára tileinkar gamall nemandi honum óskarsverðlaunin sín og upplýsir i leiðinni að hann sé hommi. Þessar upplýsingar koma öllum á óvart, ekki sist kennaranum sjálfum, en eftir á að hyggja finnst bæjar- búum að finna megi ýmislegt í fari kennarans sem dragi karlmennsku hans i efa. Hann sé t.d. alltaf mjög snyrtilegur til fara, ferðist um á reið- hjóli og hafi gaman af ljóðlist og Barböru Streisand. Hér er lagt af stað með góða hugmynd, sem hefði getað orðið efni í ágætan farsa. í staðinn fáum við þessa hefðbundnu, útþynntu og ófyndnu Hollywood-gaman- mynd með góðri slummu af einfeldningslegum boðskap. Kevin Kline er óvanalega daufur og Joan Cusack er afkáralega ófyndin. Nokkrir góðir brandarar og skemmtilegur Tom Selleck bjarga myndinni upp úr mesta vonleysinu. Útgefandi: Sam-myndbönd. Leikstjóri: Frank Oz. Aöalhlutverk: Kevin Kline. Bandarísk, 1997. Lengd: 110 mín. Öllum leyfð. -PJ She's so Lovely: Vegir ástarinnar Eddie og Maureen eiga von á bami og eru alveg of- boðslega ástfangin. Það er þó varla hægt að segja að sambandið sé gæfulegt, því að þau eru bæði afar drykkfelld og Eddie er smáglæpamaður og svika- hrappur sem lætur sig stundum hverfa í nokkra daga. Þetta líf tekur sinn toll og að lokum sturlast Eddie og er lokaður inni á geðveikrahæli. Þegar hann losnar út tíu árum síðar er Maureen búin að hífa sig upp úr ólifhaðinum og orðin hamingjusam- lega gift þriggja barna móðir. Hún elskar Eddie samt enn þá. Hann kemur í heimsókn og hyggst taka hana með sér en eiginmaður hennar hefur aðrar hugmyndir. Það eru topp- leikarar í öllum hlutverkum í þessari mynd og persónumar era mjög lif- andi. Sean Penn og Robin Wright Penn ná vel saman (varla við öðm að búast), en John Travolta er síðri, kannski svolítið farinn að þreytast. Einnig em góðir leikarar í minni hlutverkum, þ.á m. hinn frábæri Harry Dean Stanton. Það er margt athyglisvert í sögunni, en hún er allt- of sundurlaus og óskipulögð til að byggja upp heildstæða kvikmynd. Útgefandi: Skífan. Leikstjóri: Nick Cassavetes. Aöalhlutverk: Sean Penn og Robin Wright Penn. Bandarísk, 1997. Lengd: 98 mín. Bönnuð innan 16 ára. -PJ The Game: Gaman eða alvara? Tilvera viðskiptajöfursins Nicolas Van Orton hef- ur verið í fóstum skorðúm en tekur stakkaskiptum þegar bróðir hans gefúr honum óvænta afmælisgjöf, gjafakort frá fýrirtæki sem sérhannar eins konar leiki handa viðskiptavinum síniun. Leikurinn reyn- ist í meira lagi harkalegur og Van Orton er ýtt út á ystu nöf. Svo virðist sem eitthvert dularfullt ráða- bragg búi að baki leiknum. Leikstjórinn David Fincher heldur sérkennum sinum í myndrænni frá- sögn þótt hann leiki sér ekki alveg eins mikið með vélina og í Seven. Hann spilar vel inn á óvissuna og leyndardóminn í sögunni og nær að byggja upp spennu sem helst svo til alla myndina. Það er ekki fym en í lokin að göt- in í söguþræðinum fara að verða áberandi og lokaatriðið er asnalegt. Michael Douglas er ekki mikill leikari en passar vel í hlutverkið. Sean Penn fer létt með hlutverk bróðurins, en Deborah Kara Unger gerir lít- ið annað en að fara með línurnar sínar. Útgefandi: Háskólabíó. Leikstjóri: David Fincher. Aðalhlutverk: Michael Douglas, Sean Penn og Deborah Kara Unger. Bandarísk, 1997. Lengd: 123 mín. Bönnuð innan 16 ára. -PJ Nil by Mouth: Dóp, drykkja og ofbeldi **** Gary Oldman spreytir sig hér fyrir aftan kvik- myndavélarnar í fyrsta skipti. Hann leikstýrir, skrif- ar handritið og er einn framleiðenda í þessari afar persónulegu mynd, sem hann byggir á uppvaxtarár- um símnn og tileinkar fóður sínum. Hún fjallar um fátæka lágstéttarfjölskyldu í London. Heimilisfaðir- inn er drykkjusvoli sem lemur sína nánustu í spað þegar þannig liggur á honum og sonurinn er sprautuflkill. Það er ekki mikill söguþráður í mynd- inni og frásögnin er svolítið mglingsleg, sérstaklega í byrjun, sem gerir áhorfandanum erfitt fýrir að kynnast persónunum. Þegar það síðan tekst fer myndin að verða gríp- andi og eftirminnileg. Dramatíkin er sterk og óvægin, en það sem gefur myndinni mestan drifkraft er frábær persónusköpun og leikur. Þrátt fyrir að sumar persónurnar séu fremur ógeðfelldar era þær allar mann- legar og sagan veitir góða innsýn í þær. Gary Oldman fer þá leið að velja tiltölulega óþekkta leikara í hlutverkin, sem gengur afar vel upp, þvi Ray Winstone, Kathy Burke og Charlie Creed-Miles sýna öll afburðaleik. Útgefandi: Myndform. Leikstjóri: Gary Oldman. Aðalhlutverk: Ray Win- stone, Kathy Burke og Charlie Creed-Miles. Bresk, 1997. Lengd: 128 mín. Bönnuð innan 16 ára. -PJ SÆTI; J FYRRI VIKA ; vikur ; Á LISTAj i i TITILL j ÚTGEF. J j TEG. i ; 1 i 2 : 1 i : j' J L.A. Confidential ; WamerMyndir J Spenna J 2 j Ný In&Out J J j SamMyndbönd j l J Gaman 3 ; Ný 1 1 1 j 1 i Game, The Háskólabió Soenna J 4 1 J 8 j J J 2 J j j That Oid Feeting 1 1 J CIC Myndbönd j Gaman J 5 j 2 J e J j 6 j Peacemaker, The ! CIC Myndbönd \ Spenna nwi 6 i 9 -i ; < i 2 i 1 »91 Spice World: The Movie J J Skrfan J | i Gaman 7 1 J: 8 j 3 j 7 J FaceOff 1 1 J SamMyndbönd J Spenna 4 J 1 : t : j j Event Horizon J .... j ! CIC Myndbönd j Spenna 9 1 6 i 4 i Life Less Ordinaiy Skifan j Gaman io; j 5 ; 7 ;■ j:l:‘ j My Best Friend's Wedding I j J Skrfan J j - i J Gaman ii; 7 J J j 6 J G.l. Jane Myndfotm Spenna 12 | n j J ) 3 < j J Chasing Amy J- J J Skífan J J ) Gaman 13 i 10 J 8 1 j 8 j Nothing To Lose J J j SamMyndbönd j Gaman H i Ný j .. J : > : r i Home Alone 3 J J j Skífan j J J Gaman i 17 J 1 i n j Full Monty, The J Skrfan J Gaman i6 ; j 13 •'J. WJSlt'# J 7 J ) 7 J j J Shooting Fish J , RV •' ■’ J •• j Stjömubíó j j j Gaman 17 i 15 í- 5 i Excess Baggage ! Skffan j Gaman i8; 12 ! 3 ! j. j Blackjack J J J Bergvik J J J Spenna 19 ; Ný 1 i J j 1 j She‘s So Lovely ! Skffan J Spenna J 20 i 16 j j J ío ; AirForceOne J J J SamMyndbönd 1 Spenna Nokkrar breytingar veröa á röð efstu mynda á listanum. L.A. Confidental lætur þó ekki eftir efsta sætið og situr þar sem fast- ast. í næstu sætum eru nýjar myndir, gamanmynd og sakamála- mynd, þá skríður That Old Feeling upp um fjögur sæti í það fjórða. Tvær aðrar nýjar myndir komast inn á listann, en báðar eru aftarlega, Home Alone II þarfnast ekki skýringa, þar er kom- in þriðja myndin í þessum vinsæla myndaflokki. Hún varð þó ekki jafnvinsæl og tvær fyrri, enda engin Macauley Culkin til að bera hana uppi. Shooting Fish er bresk úrvalsmynd, sem tilheyr- ir hinni nýju bylgju breskra kvikmynda sem fara sigurför um heiminn, góð og raunsæ kvikmynd með frábærum leik. Vert er einnig að benda á Chasing Amy fyrir þá sem vilja öðruvísi kvik- mynd. Mynd þessi hefur yfirleitt fengið góðar viðtökur þótt sitt sýnist hverjum um gæöi hennar. -HK L.A. Confid- ental Kevin Spacey og Russell Crowe. Hrottalegt morð er framið inni á litlum veitingastað og í ljós kemur að einn hinna myrtu er lögreglumað- ur. Hvað hann var að gera þarna er félaga hans í lögreglunni, Bud White, hulin ráð- gáta, enda bendir allt til þess að hann hafl verið flæktur í eitt- hvert glæpsamlegt at- hæfl. Bud ákveður því að hefja rannsókn á málinu upp á eigin spýtur og kemst fljót- lega að þvi að þar með er hann búinn að stinga sér út i lífs- hættulegt hyldýpi svika og morða þar sem enginn er óhultur. In & Out Kevln Kline og Joan Cusack. Lífið í smábænum Greenleaf í Indiana gengur sinn vanagang fyrir utan dálitla spennu sem er í loftinu vegna óskarsverðlaunafhend- ingarinnar, en einn af sonum bæjarins er til- nefndur sem besti leik- ari. Þegar sá hlýtur verðlaunin þakkar hann öllum sem hafa stutt hann, meðal annars gömlum kennara sínum, Howard Beckett, sem hann segir að sé hommi. Howard, sem eins og aðrir bæjarbúar hefur fylgst með útsending- unni, verður felmtri sleginn, enda hefúr hann aldrei verið við karlmann kenndur. Hann reynir hvað hann getur til að koma í veg fyrir þennan misskiln- ing sem veldur miklu írafári í heimabæ hans. The Game Michael Douglas og Sean Penn. Nicholas Van Orton á 48 ára afmæli. Frá bróður sínum sem hann hefur ekki séð lengi fær hann gjafa- bréf frá CRS-fyrirtæk- inu sem sérhæfir sig í að krydda tilveru manna með óvæntum uppákomum. Van Orton þiggur gjafabréf- ið, en honum finnst hugmyndin það fárán- leg að hann leiðir ekki hugann að henni fyrst um sinn. Smám saman er forvitni hans þó vakin og það endar með því að hann fer í höfustöðvar fyrirtæk- isins til að innheimta gjöfina. Þar með tekur lif hans kollsteypu. That Old Fe- eling Bette Midler og Dennis Farina. Lily og Dan hafa ver- ið hamingjusamlega skilin í fjóitán ár og eiga aðeins einn hlut sameig- inlegan, dóttur, sem nú er að fara að gifta sig. Þar sem þau hafa aldrei þolað hvort annað þá munar engu að brú- kaupsveislan fari út um þúfur þegar þau hittast þar. í miðju klúörinu gerist nokkuð óvænt. Ævafom ástameisti sem allir héldu að væri löngu kulnaður, ekki síst Lily og Dan, blossar skyndilega og verður að miklu ástarbáli. Eins og við er að búast breytast allar aðstæður og skyndi- lega em ástarfúglamir komir á flótta undan æst- um blaðaljósmyndara sem ásamt stressaðri dótturinni reynir að hafa uppi á þeim. The Peac- emaker George Clooney og Nicole Kidman Þegar rússnesk lest, sem flytur kjamaodda, ferst við afar grunsam- legar aðstæður er kjameðlisfræðingurinn dr. Julia Kelly (Kidman) fyrst allra að átta sig á því að „slysið" var sett á svið til að hylma yfir djöfullegar ráðagerðir hryðjuverkamanna. sér- sveitarmaðurinn Thom- as Devonc (Clooney) er settur f málið en harð- neskjulegar aðferðir hans í baráttunni við glæpamenn og hryðju- verkasamtök samrým- ast engan veginn aðferð- um og skoðunum Juhu sem vill frekar semja en skjóta. Þau verða þó að leggja ágreining sinn til hliðar því fram undan er gífurlegt kapphlaup við tímann og niðurtaln- ingu sprengjunnar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.