Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.1998, Blaðsíða 4
18
m helgina
FÖSTUDAGUR 29. MAÍ 1998
PV
Kaffileikhúsið:
Húmor
og tregi
í kvöld kl. 21 frumsýnir KafBleik-
húsið í Hlaðvarpanum nýtt islenskt
leikrit eftir Hallgrím H. Helgason. Það
ber nafhið Annað fólk og er fyrsta
dramatíska leikverk Hailgrims sem
sýnt er á íslensku leiksviði. Jafnframt
kynnir Kaffileikhúsið með þessu
verki nýjan leikstjóra, Vigdísi Jakobs-
dóttur.
Annaö fólk er sérstaklega samið
fyrir húsakynni Kaffileikhússins og
gerist í Reykjavík nútimans. Þetta er
húmorískt verk með tregafullum und-
irtóni sem er ekki síst byggt á stemn-
ingarríkum svipmyndum og sterkri
persónusköpun.
Söguþráðurinn er á þá vegu að ung
og atorkusöm kona fLyst í gamalt hús
í Reykjavík og smám saman kynnist
hún nágrönnum sínum, heldri konu á
efri hæðinni og dulum manni í kjall-
aranum. Samskipti þeirra taka síðan
á sig ýmsar myndir, jafnframt þvi
sem sitthvað vaknar úr fortíð hússins
og hefur áhrif á framvinduna.
Með hlutverkin þrjú fara Marta
Nordal, sem leikur ungu stúlkuna,
Helga Bachmann, sem leikur heldri
konuna, og Jón Hjartarson, karlinn í
kjallaranum.
Helga Bachmann og Jón Hjartarson leika íbúa gamals húss í Reykjavík. Inn til
líf í hversdaginn.
þeirra flytur ung stúlka og þá færist
DV-mynd BG
Dómkirkja Krists konungs:
Tónlistarlegar fornleifar
Á sunnudaginn kl. 18 og 24 og
mánudaginn kl. 12, 18 og 20 flyt-
ur Kanúkaflokkurinn Voces
Thules Þorlákstíðir. Þorlákstíðir
eru fom helgitónlist sem til-
einkuð er Þorláki biskupi Þór-
hallssyni, eina dýrlingi íslend-
inga. Verkið verður nú flutt f
heild sinni í fyrsta sinn eftir
siðaskipti en það hefur
verið varðveitt í íslensk-
um handritum.
DV spurði Sverri
Guðjónsson, einn
meðlima Voces
Thules, nánar út í
aðdraganda þessa
flutnings. „Það var í
raun fyrir fimm
árum sem þetta
Það er Aöalsteinn
Bergdal sem flytur
texta Markúsarguð-
spjalls og ber hita og
þunga af uppfærslu
Leikfélags Akur-
eyrar á verk-
inu.
DV-
mynd
BÓS
barst til tals, þegar rétt 800 ár
voru liðin frá dánardægri Þor-
láks. En vinnan við að finna tón-
listina og koma henni í heppilegt
form hefur verið það mikil að nú
fyrst er hún tilbúin til flutnings,
þegar 800 ár eru síð-
an Þorlákur
var tekinn
í dýr-
H linga-
tölu,“
Sverrir. „Leitin í handritum og
útfærsla tónlistarinnar er geysi-
mikil og krefjandi og í raun má
líkja þessu við fornleifauppgröft
á tónlist.“
Sverrir vill einnig benda þeim
sem koma til að hlýða á Þorláks-
tíðir að þarna sé ekki um eigin-
lega tónleika að ræða. „Þetta er
frekar helgistund og fólk ætti að
mæta með því hugarfari að slaka
á og njóta friðarins. Þannig fær
það mest út úr Þorlákstíðum."
Kanúkafiokkurinn Voces Thules: Frá vinstri eru Sverrir Guðjónsson, Eggert Páls-
son, séra Kristján Valur Ingólfsson, Guölaugur Viktorsson, séra Jakob Rolland, Sig-
uröur Halldórsson, Einar Jóhannesson og Eiríkur Hreinn Helgason.
Þjóðarbókhlaðan:
Fornir tónar
A morgun verður opnuð
sýning á fomum íslensk-
um handritiun sem
innihalda nótur. Ber
sýningin yfirskriftina
Trú og tónlist í íslensk-
um handritum fyrri
alda.
Mun meira er varð-
veitt af nótum í íslensk-
um handritum en vitað
hefur verið um til þessa
og eru þær frábrugðnar
þeim sem finna má í
prentuðum bókum frá
sama tíma. Á sýning-
unni verður
reynt aö bregða
verður frumflutt útsetning Snorra Sigfúsar Birgis-
sonar á laginu.
upp mynd af þessum menningar-
arfi sem komið hefur í leitimar
að undanfómu.
í tilefni opnunarinnar verður
haldin sérstök hátíðardagskrá í
Þjóðarbókhlöðunni milli kl. 14 og
15.30 á morgun. Þar verður m.a.
flutt tónlist sem í handritunum er
að finna. Til dæmis má nefna
frumflutning á verkinu Guðs al-
máttugs dóttir dýr, kvæði eftir sr.
Daða Halldórsson í Snóksdal
(1638-1721) í útsetningu Elínar
Gunnlaugsdóttur. Einnig verða
frumfluttar útsetningar Snorra
Sigfúsar Birgissonar úr handrit-
um Landsbókasafns fyrir sópran
og selló.
Bústaðakirkja:
Markúsarguðspjall
Um hvítasunnuna verður
Leikfélag Akureyrar með tvær
sýningar á Markúsarguðspjalli í
Bústaðakirkju í Reykjavík. Fyrri
sýningin verður á hvítasunnudag
kl. 20 og sú síðari daginn eftir á ann-
an í hvítasunnu, einnig kl. 20. Sýn-
ingin er einleikur Aðalsteins Berg-
dal og var hún frumsýnd á Renni-
verkstæðinu við Strandgötu um
páskana.
Sýning LA var frumsýning Mark-
úsarguðspjalls hérlendis en á und-
anfómum árum hafa nokkrir er-
lendir leikarar spreytt sig á því að
flytja fagnaðarerindi Markúsar guð-
spjallamanns á leiksviði. Sýningin
frá Akureyri er að óverulegu leyti
byggð á hinni ytri tækni leikhússins
heldur hvílir allur þunginn á leikar-
anum, rödd hans og hreyfmgum og
ekki síst nálægð hans.
I sýningunni á Markúsarguö-
spjalli flytur Aðalsteinn texta guð-
spjallsins nokkuð styttan. Felldir
vora úr guðspjallinu kaflar, einstök
vers og setningar þar sem örlar á
endurtekningu en þess gætt að
halda meginefni ffásagnarinnar til
haga.
Leikstjóri sýningarinnar er
Trausti Ólafsson, leikhússtjóri Leik-
félags Akureyrar.