Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.1998, Síða 17
)
)
)
I
ÞRIÐJUDAGUR 2. JUNI 1998
íenning
Helgi Þorgils Friöjónsson sýnir á Safnasafninu í júní.
DV-mynd GVA
Safnasafn fyrir
ferðalanga
Á hvítasunnudag var opnuð sýning
á verkum eftir Helga Þorgils Friðjóns-
son á fyrstu hæð Safnasafnsins á
Svalbarðsströnd. Þar sýnir hann olíu-
* málaða skúlptúra úr leir, skissur fyr-
ir gosbrunna og verk samtengd fjölda-
framleiddum skrautstyttum, einnig
teikningar og eldri verk úr ýmsum
efnum.
Safnasafnið á Svalbarðsströnd er
sannkallað gósenland fyrir ferða-
menn um Norðurland, stórt og geysi-
lega fjölbreytt. Það var stofnað í
Reykjavík árið 1995 af Níelsi Hafstein
og Magnhildi Sigurðardóttur en flutt-
ist á Svalbarðsströndina um áramótin
I og var opnað fyrir almenning 9. maí.
Áður hafði safnið staðið fyrir sýning-
um í Nýlistasafninu í Reykjavik.
Markmið þess er að safna verkum
eftir alþýðulistamenn, uppfinninga-
menn, hagleiksmenn, einfara og lista-
menn sem vinna undir áhrifum frá
verkum slikra manna. Einnig að
safna munum og heimildum um al-
þýðulistamenn, efla alþýðulist og
sinna almennum skyldum safns um
söfnun verka, varðveislu, skráningu,
i kynningu og sýningar. Hafa safninu á
þessum þremur árum borist þúsundir
muna og listaverka að gjöf.
Safnið er til húsa í gamla þinghús-
inu á Svalbarðsströnd. „Við vorum
búin að leita lengi að hentugu húsi,“
segir Níels Hafstein. „Um tíma var
ætlunin að setja safnið upp í stóru
húsi á Hvammstanga en það gekk því
miður ekki. Húsið hér er strax orðið
oflítið."
Sýningarsalir eru á tveimur hæð-
um en umsjónarmenn búa á þriðju
hæð. Settar eru upp 6-8 sýningar á
sumri og verða Ásta Ólafsdóttir og
Anna Líndal með sýningar í Suðursal
núna i sumar auk Helga Þorgils. Með-
al listamanna sem eiga verk í öðrum
sölum safhsins eða utan húss i sumar
eru Ragnar Bjamason frá Öndverðar-
nesi, Eggert Magnússon, Stefán Jóns-
son frá Möðrudal, Gunnar Kárason
frá Sólheimum í Grímsnesi og Sæ-
mundur Valdimarsson. Auk þess er
brúðusýning í miðrými á jarðhæð
með hvorki meira né minna en 370
brúðum - þær elstu eru frá öldinni
sem leið - 32 verk frá Afríku, sýning
á munum úr tönnum, beini, steini,
horni og tré, hannyrðasýning og
margt fleira.
„Við erum með hugmyndir að 360
sýningum," segir Níels, „mér endist
ekki aldur til þess í þessu húsi að
koma þeim öllum upp.
Safnasafnið er opið alla daga vik-
unnar frá kl. 10 til 18 til september-
loka.
Höfum flntt starfscmi okkar úr Hafnarflrði
í Skeifuna 3a Reykjavík. Verið velkomin
Skelfen 3a
„úr SÍIX'
KÍT Skeifan 3a
108 Reykjavik
Sími: 588-2108
Starfslaun listamanna
Auglýst er eftir umsóknum um starfslaun listamanna hjá Reykja-
víkurborg. Menningarmálanefnd borgarinnar velur þá listamenn
er starfslaun hljóta. Þeir einir koma til greina við úthlutun starfslauna
sem búsettir eru í Reykjavík.
Starfslaun skulu veitt í allt að 12 mánuði. Þeir listamenn sem
starfslaun hljóta skuldbinda sig til að gegna ekki fasdaunuðu starfi
á meðan þeir njóta starfslaunanna.
Starfslaunin verða kunngerð í tengslum við afmælisdag Reykjavíkur
hinn 18. ágúst n.k. og hefst greiðsla þeirra 1. október eftir til-
nefningu.
Umsóknum um starfslaunin skal skila til Menningarmálanefndar
Reykjavíkurborgar, Kjarvalsstöðum, v/Flókagötu fyrir 20. júlí n.k.
17
Verzlunarskóli íslands
INNRITUN NÝNEMA VORIÐ 1998
Nýútskrifaöir grunnskólanemar
Umsóknarfrestur um skólavist í Verzlunarskóla
✓
Islands rennur út föstudaginn 5. júní kl. 16.00.
Verzlunarskóli íslands getur nú innritað 280 nemendur til
náms í 3. bekk. Berist fleiri umsóknir verður valið úr þeim
á grundvelli einkunna í samræmdum greinum á
grunnskólaprófi. Reiknað er meðaltal samræmdra einkunna
og skólaeinkunna. Eldri umsækjendur og þeir sem hafa
stundað nám í erlendum grunnskólum eru þó metnir
sérstaklega.
Námsbrautir Verzlunarskóla íslands hafa verið
endurskipulagðar og geta nemendur sem nú innritast valið
eftirtaldar námsbrautir til stúdentsprófs:
Braut IglSérkeniii
Alþjóöabraut:
Hagfræöibraut:
Málabraut:
Stæröfræöibraut:
Viðskiptabraut:
Samskipti á erlendum tungumálum. Saga og menning helstu
viðskiptalanda, alþjóðastofnanir og starfsemi þeirra.
Viðskiptagreinar, stærðfræði og tungumál. Góður gruimur að
háskólanámi í hagfræði og öðrum þjóðfélagsgreinum.
Fimm erlend tungumál í kjama. Góður grunnur að háskólanámi
í erlendum tungumálum og málvísindum.
Stærðfræði, raungreinar og viðskiptagreinar. Góður grunnur að
háskólanámi í verkffæði og raunvísindum.
Rekstur og stjómun fyrirtækja. Stofnun og rekstur eigin fyrirtækis.
Góður gmnnur að háskólanámi í viðskiptagreinum.
• A fyrsta ári eiga nemendur val milli þýsku og frönsku en að öðru
leyti stunda allir sama nám.
• Að loknu fyrsta námsári er valið milli brauta.
• Sérkenni hverrar brautar mótast af því framhaldsnámi sem stefnt
er að og þeirri þjálfun sem nemendur fá til starfa í atvinnulífinu.
• Verslunarpróf er tekið að loknu tveggja ára námi á öllum brautum.
Umsóknareyðublað fylgir grunnskólaskírteinum en það
má einnig fá á skrifstofu skólans og þar sem sameiginleg
innritun íframhaldsskóla ferfram.
Upplýsingar um nám er að finna á heimasíðu skólans
http://www.versIo.is. Þar er einnig hægt að leggja inn
fyrirspurnir og umsókn um skólavist.
Opið hús
verður í Verzlunarskóla Islands þriðjudaginn 2. júní 1998 kl.
15.00-18.00. Þar munu kennarar og námsráðgjafar veita
upplýsingar um námið í skólanum og taka á móti umsóknum.
Verið velkomin