Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.1998, Side 35
ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚNÍ 1998
47 r'
x>v_____________________________________Fréttir
Kaupfélag Steingrímsfjarðar á merkum tímamótum:
Aldarafmæli fagnað
DV, Hólmavík:
Með óvenjuveglegum hætti var fyr-
ir stuttu minnst aldarafmælis Kaupfé-
lags Steingrímsfjarðar á Hólmavík,
eins af elstu fyrirtækjum þessa lands
sem stofnað var nokkrum áratugum
áður en sjálft óskabarn þjóðarinnar,
Eimskipafélag islands, var stofnað. Að
stofnun þess stóðu aðallega bændur
úr öllum sveitarfélögum sýslunnar
utan Bæjarhrepps. Bændur á þessu
svæði höfðu þá um alllangt skeið ver-
ið í samtökum með Breiöfiröingum
um verslunarstarfsemi sem er um
margt mjög sérstæð í verslunarsögu
þessa lands. Mörgum nútímamannin-
um er það undrunarefni hvilíku
grettistaki var lyft með stofnun þess-
ara samtaka við annað eins and-
streymi og þá var við að etja, bæði frá
hendi manna sem með málefni þessa
lands fóru og náttúrufars sem var um
margt andstæðara en víða annars
staðar um land vort.
í ræðu kaupfélagsstjórans, Jóns E.
Alfreðssonar, á hátíðinni voru spor
forgöngumannanna að nokkru leyti
rakin og staldrað við helstu tímamóta-
atburði hinnar löngu og merku sögu,
t.d. þegar rækjuvinnsla hófst þar árið
1965, þegar tilraun, sem Jóhann heit-
inn Guðmundsson stóð fyrir til að ná
rækju í Húnaflóa, gaf góðan árangur.
Alla þessa öld hefur félagið verið
burðarás í öllu uppbyggingar- og at-
vinnulífi þessa svæðis og hefur enn
mikið umleikis þó hin síðari ár hafi
Hólmadrangur hf., félag sem kaupfé-
lagið studdi fyrstu fetin, tekið upp á
sína arma meira af starfsemi þeirri
sem áður var á hendi kaupfélagsins.
Félagið hefur alla tíð notið forystu
hugumstórra hæfileikamanna sem
jafnframt hafa verið aðgætnir fjár-
málamenn. Síðustu áratugina hefur
Jón E. Alfreðsson frá Stóra-Fjarðar-
horni verið kaupfélagsstjóri. Á mann-
fagnaðardaginn voru nákvæmlega 30
ár frá því hann tók við forystu-
taumunum.
Félaginu bárust margar góðar gjaf-
ir og fimm fyrrum forystu- og starfs-
menn voru heiðraðir, menn sem hafa
helgað félaginu starfskrafta sína og
verið vernd þess og hlíf langa starf-
sævi. Mikil listakona, Bjamveig Elísa-
bet Pálsdóttir á Hólmavík, vann heið-
ursskjölin. Húsfyllir var á hátíðinni
og sumir gestanna langt að komnir.
-Guðfinnur
Fjölmenni var þegar minnst var aldarafmælis Kaupfélags Steingrímsfjarðar
á Hólmavík. -GF
Eiðavinir
stofna samtök
„Við viljum stuðla að því að sem
flestar af þeim ágætu hugmndum
sem fram hafa komið um starfsemi
á Eiðum, verði að veruleika,“ sagði
Vilhjálmur Einarsson, fyrrverandi
skólameistari. Hann hefur beitt sér
fyrir stofnun félags „Eiðavina" og
verður stofnfundur 29. maí. Þegar
hafa hundruð einstaklinga skráð sig
sem stofnfélaga. I bréfi frá undir-
búningsnefnd segir að Eiðavinir
vilji ekki að farið verði með Eiða
eins og Reykholt þar sem hús voru
seld einstaklingi til hótelhalds held-
ur verði á Eiðum rekstur sem geri
sem flestum fært að leggja stund á
þroskandi og endurhæfandi mennt-
un. „Á næsta ári verða 80 ár liðin
frá upphafi Alþýðuskólans á Eiðum.
Saga staðarins að fornu og nýju er
stórmerk, ekki síst skólasagan. Það
væri hörmulegt slys ef hátíðahöld
þar af þessu tilefni væru í jarðarfar-
arstíl. Eiðavinir vilja ekki láta það
verða“, segir orðrétt í bréfi undir-
búningsnefndar. -SB
Heiöursmenn hátíöarinnar. F.v.: Guölaugur Traustason, Ingimundur ingimundarson, Sverrir Guöbrandsson og Lýö-
ur Magnússon. Á myndina vantar Grím Benediktsson sem var fjarverandi. Á bak viö þá stendur afmælisnefndin;
Bára Karlsdóttir, Matthías Lýösson og Óskar Torfason.
Kaehskapar
á ótrúlegu verði í miulu úrvalil
Mál hxbxdx Tegund Vörunúmer Kælirými Lítrar Frystirými Litrar Frystir Staðsetning Stadgreitt
85x50x60 AEG SANTO 1533TK 140 L 37.570,-
85x51x56 INDESIT RG 1150 134 L 26.900,-
85x55x60 AEG SANTO 1443TK 115 L 19 L Innbyggður 43.191,-
85x60x60 General Frost C 175 158 L 17 L Innbyggður 25.900,-
117x50x60 INDESIT RG 2190 134 L 40 L Uppi 37.900,-
127x54x58 AEG SANTO 2532 KA 241 L 59.990,-
127x54x58 AEG SANTO 2232 DT 167 L 46 L Uppi 62.900,-
127x54x58 AEG SANTO 2332 KA 219 L 18 L Innbyggður 62.900,-
130x60x60 General Frost C 275 222 L 28 L Innbyggður 33.900,-
139x55x59 INDESIT RG 2250 184 L 46 L Uppi 39.900,-
144x54x58 AEG SANTO 2632 DT 204 L 46 L Uppi 64,900,-
147x55x60 INDESIT RG 1285 232 L 27 L Innbyggður 37.900,-
149x55x60 AEG SANTO 2632 KG 161 L 59 L Niðri 65.900,-
150x55x60 General Frost SCD 260 186 L 59 L Uppi 37.900,-
150x55x60 INDESIT CG 1275 175 L 56 L Niðri 53.900,-
155x60x60 AEG SANTO 1555 KS 302 L 72.900,-
162x54x58 AEG SANTO 3032 DT 225 L 61 L Uppi 69.949,-
164x55x60 INDESIT RG 2290 215 L 67 L Uppi 48.900,-
165x55x60 General Frost SCD 290 225 L 62 L Uppi 39.900,-
165x60x60 INDESIT CG 1340 216 L 71 L Niðri 59.900,-
170x60x60 INDESIT RG 2330 258 L 74 L Uppi 49.900,-
170x60x60 AEG SANTO 3232 KG 216 L 79 L Niðri 75.900,-
177x60x60 AEG SANTO 3633 KG 238 L 90 L Niðri 104.900,-
185x60x60 AEG SANTO 1855 KS 354 L 82.900,-
185x60x60 AEG SANTO 1855 KF 178 L 112 L Niðri 89.900,-
186x60x60 General Frost SCB 340 207 L 88 L Niðri 59.900,-
195x60x60 AEG SANTO 4133 KG 293 L 90 L Niðri 110.974,-
AEG
^índesíí Jp
'ENERAL FROST
Lágmúla 8 • Sími 533 2800
1,6 GLX 4x4: 1.495.000 kr.
SUZUKI ™
1,3 GL: 1.265.000 kr.
1,6 GLX: 1.340.000 kr.
SUZUKI SÖLUUMBOÐ: Akranes: Ólafur G. Ólafsson, Garðabraut 2, sími 431 28 00. Akureyri: BSA hf., Laufásgötu 9, simi 462 63 00.
Egilsstaðir: Bila- og búvélasalan hf., Miðási 19, sími 471 20 11. Hafnarfjörður: Guðvarður Elíasson, Grænukinn 20, sími 555 15 50. Isafjörður: Bílagarður ehf.,
Grænagarði, sími 456 30 95. Keflavík: BG bílakringlan, Grófinni 8, sími 421 12 00. Selfoss: Bílasala Suðurlands, Hrísmýri 5, simi 482 37 00.
SUZUKI BILAR HF
Skeifunni 17. Sími 568 51 00.
Stílhreinn og glæsilegur
f jölskyldubíll
Baleno Sedan er hagkvæmur
í rekstri, sameinar mikið afl
og litla eyðslu. Loítpúðar,
kippibelti og krumpusvæði
að framan og aftan stórauka
árekstursöryggi. Farþega-
rýmið er óvenju mikið
og áhersla er lögð á þægilegan
og hljóðlátan akstur.
ALLIR
SUZUKI BÍLAR
ERU MEÐ 2 ÖRYGGIS-
LOFTPÚÐUM
SUZUKI
AFL OG
^ÖKYGGI^
I