Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.1998, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.1998, Blaðsíða 3
T>V* FÖSTUDAGUR 5. JÚNÍ 1998 (jkvikmyndir The Gingerbread Man, sem Há- skólabíó frumsýnir 1 dag, er nýjasta kvikmynd Roberts Altmans og er hún gerð eftir handriti þess fræga rithöfundar, Johns Grishams, og er þetta fyrsta handritið sem hann semur beint fyrir kvikmynd en all- ar bækur hans hafa ratað á hvíta tjaldið. The Gingerbread Man hefur yfir- leitt fengið mjög góða dóma en samt er það svo að í dreifingu í Banda- ríkjunum hefur henni verið haldið niðri þrátt fyrir að góð aðsókn hafi verið í þau fáu kvikmyndahús sem hún hefur verið sýnd í. Ástæðan er, að því er heimildir herma, karp á milli Altmans og framámanna kvik- myndafyrirtækisins sem framleiðir myndina. Þeir vildu breyta sumu í myndinni eftir að Altman hafði skil- að henni frá sér en vöruðu sig ekki á því að i samningnum við Altman, sem gerður var áður en tökur hóf- ust, stóð að lokafrágangur á mynd- inni væri á hans hendi. Þegar svo Altman neitaði að breyta var mynd- in sett í nokkurs konar bann og dreift mjög takmarkað. Fáránleg hefnd svo ekki sé meira sagt. Eins og í öllum sögum sem John Grisham hefur sent frá sér er aðal- persónan lögfræðingur. í þessu til- felli heitir hann Rick Magruder og er vel metinn lögfræðingur í Sa- vannah í Georgíu. Magruder kynn- ist dularfullri og fallegri konu sem hann verður hrifmn af. Eftir þvi sem hann heillast meira af konunni dregst hann inn í dulúðina sem um- lykur hana og um leið fara að koma brotalamir í lif hans sem hefur ver- ið slétt og fellt hingað til. Það er breski stórleikarinn Ken- neth Brannagh sem leikur lögfræð- ingi en Embeth Davidz leikur ungu stúlkuna. í öðrum hlutverkum eru Robert Downey jr., Daryl Hannah, Tom Berenger, Famke Jansen og Robert Duvall. Kenneth Brannagh leikur lögfræðinginn Rick Magruder sem flækist í dular- fulla atburðarás þegar hann kynnist ungri og fallegri stúlku. Quintet, 1979 A Perfect Couple, 1979 Health, 1980 Popeye, 1980 Come Back to the 5 and Dime, Jim- my Dean, Jimmy Dean, 1982 Streamers, 1983 Secret Honor, 1984 Fool Robert Altman for Love, 1986 Beyond Therapy, 1987 O.C. and Stiggs, 1987 Aria (leikstýrði einum hluta af tíu), 1987 Vincent and Theo, 1990 The Player, 1992 Short Cuts, 1993 Ready to Wear/Pret-a-Port- er, 1994 Kansas City, 1996 The Gingerbread Man, 1998 -HK , . i Robert Altman, sem orðinn er sjö- tugur, er sjálfsagt frægasti einfar- inn í Hollywood. Hann hefur allt frá því hann sló í gegn með MASH far- ið sínar eigin leiðir, oftast á skjön við kerflð í Hollywood, með misgóð- um árangri. Hans bestu myndir, eins og til að mynda MASH, Nas- hville, McCabe and Mrs. Miller, Three Women, Images, Streamers, Vincent and Theo, The Player og Short Cut eru hágæðamyndir sem halda nafni hans hátt á lofti. Alt- man hefur einnig gert kvikmyndir sem best eru geymdar í glatkist- unni. Má þar nefna Popeye (fyrsta kvikmyndin sem Robin Williams lék aðalhlutverk í), Buffalo BUl and the Indians, Health, O.C. and Stiggs og Beyond Therapy. Það hefur aldrei verið nein logn-' molla í kringum Robert Altman og þótt myndir hans hafl farið fyrir brjóstið á mörgum hefur það alltaf vakið athygli þegar hann sendir frá sér nýja kvikmynd. Ekki hefur hann verið í vandræðum með að fá þá leikara sem hann vill til að leika í myndum sínum, samanber The Player og Pret-a-Porter þar sem nán- ast frægir leikarar eru i öllum hlut- verkum. Nokkrir þekktir leikarar nú hafa hafið feril sinn hjá Altman. Shelley Duvall, Keith Carradine, Lily Tomlin, Jeff Goldblum, Sally Kellerman, Louise Fletcher, Mich- ael Murphy og Cher stigu öll sín fyrstu spor á hvíta tjaldinu í mynd eftir hann. Auk kvikmyndanna hef- ur Robert Altman gert fjölda sjón- varpsmynda. Hér á eftir fer listi yfir þær kvikmyndir sem Robert Alt- man hefur leikstýrt: The Delinquents, 1957 Countdown, 1968 That Cold Day in Park, 1969 MASH, 1970 Brewster McCloud, 1970 McCabe and Mrs. Miller, 1971 Images, 1972 The Long Good- bye, 1973 California Split, 1974 Nashville, 1975 Buffalo Bill and the Indians, 1976 Three Women, 1977 A Wedding, 1978 lífð er byggð á samnefndri skáldsögu Russels Banks en það er Egoyan sjálfur sem skrifar handritið. Mynd- in fjallar um harmleik sem á sér stað í smábæ í Bresku Kólombíu en fjórt- án böm úr bænum létu lífið þegar skólabíllinn sem þau voru í fór út af veginum og lenti i ísilögðu stöðu- vatni. í bæinn kemur lögfræðingur nokkur sem Ian Holm leikur og reynir hann að fá fólkið til að höfða skaðabótamál. Við kynnumst persónum bæjarins í gegnum samtölin sem þær eiga við lögfræðinginn og einnig þeirri sorg sem hvílir á bænum. Myndin hlaut verð- laun á kvikmyndahá- tíðinni í Cannes á síð- asta ári og einnig var hún ofarlega á blaði hjá gagnrýnendium í New York og I/OS Ang- eles og var hún út- nefnd til óskarverð- launa fyrir bestu leik- stjórn og besta hand- rit. KVIKM YKJ) A Kringlubíó - 'Til There Was You: mmi\\ Svefnlaus í Sambíóunum * ’Til There Was You er undir áhrifum frá Sleepless in Seattle. Myndin rekur sögu Gwen Moss (Jeanne Tripplehorn) og Nick Dawkan (Dylan McDermott) frá æsku fram á fullorðinsár. Þau eru sköpuð hvort fyrir annað en örlögin haga því svo að þeim virðist ekki ætlað að mgla saman reytum. Gwen trúir á hina einu sönnu ást. Hún yrkir vond ljóð og sækir verri bókmenntanámskeið í Hollywood- háskóla af verstu gerð. Eftír útskrift gerist hún rithöf- undur en sjáJfsálitið er ekki meira en svo að hún skrifar í nafni ahnarra. Erfið æska Nicks veldur því að hann getur ekki bundist neinum af heilhug. Hann lýkur námi sem arkitekt en veruleikasýn hans litar listsköpunina. Byggingar Nicks eru lífvana og nánast fjandsamlegar mönnum. Þegar Nick kynnist sjón- varpsþáttaleikkonunni Francescu Lanfield (Sarah Jessica Parker), sem hafði verið þekkt barnastjarna, fær hann gullið tækifæri til þess að sanna sig. Francesca á íbúðarbyggingu á lóð sem fjárfestar vilja leggja undir stórhýsi. Nick á að hanna gripinn og eft- ir að hafa séð hvers hann er megnugur verð ég að við- urkenna að mig hryllti við útkomunni. íbúar gömlu byggingarinnar spyrna við fæti og með Gwen í farar- broddi gera þau Nick og fjárfestunum líflð leitt. Á meðan þessu fer fram er áhorfandanum ætlað að ör- vænta yfir stóru spumingunum. Finnur Gwen ástina í lífi sínu og finnur Nick barnið i sjálfum sér? ’Til There Was You er ein andlausasta mynd þessa árs. Tripplehorn og McDermott em hræðileg og bjarga engu í þessu ójafna og oft herfilega handriti. Tripplehorn, sem fyrst og fremst er þekkt fyrir leik sinn í Basic Instinct (1992) og The Firm (1993), veldur engan veginn hlutverkinu og hlýtur að teljast ein- kennilegur valkostur sem aðalleikkona í rómantískri gamanmynd. Eini leikarinn sem nær að sýna ein- hvers konar tilþrif var Sarah Jessica Parker. Sessu- nautur minn sofnaði í miðri mynd. Ég gat því miður ekki veitt mér þann munað. Leikstjóri: Scott Winant. Aðalhlutverk: Jeanne Tripp- lehorn, Dylan McDermott, Sarah Jessica Parker og Jennifer Aniston. Guðni Elísson. tœiNGjril TVLEOD Gnoðavogi I I - Nvbvlavegi H

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.