Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.1998, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.1998, Blaðsíða 9
33FÖSTUDAGUR 5. JÚNÍ 1998 HLJÓMPLjjTU ★★★ Ýmsir flyjendur—Ninja Cuts FunKungFushion Þeir listamenn sem gefa út hjá Ninja Tunes-merkinu frá London eru ekki mikið í sviðs- ljósinu heldur malla sitt fjöl- breytta dansdót í svölum skugga. Það er helst að Coldcut hafi kikt úr skugganum, enda meðlimir dúettsins stjórnendur útgáfunn- ar. Merkið hefur dælt út gæða- efni síðustu árin og þetta er þriðja safnplatan sem kemur undir Ninja Cuts-merkimiðan- um. Hér erum við að tala um gæfulegan pakka; tvo diska, 31 lög á tæpum þremur tímum. Langflest lögin eru ósungin og djammkennd, mikið af djössuðum anda og draumkenndum; flest rólegt, yfirvegað og óyggjandi svalt. Veikir blettir eru nokkrir, þegar tónlistin lufsast endur- tekningafull áfram eins og rúðuþurrkur í dembu en gullmolarnir eru heilmargir. Kid Koala er spennandi gaur, eins konar Halli og Laddi út- gáfunnar, og óhræddur við að flíka fríkuðum hljóðum. Hér spinnur hann í kringum ritvélaglamur og fær snillinginn Money Mark til að hjálpa sér. Fyrsta plata Kid kemur í sumar og ég bið spenntur. Luke Vibert hleður fjölbreyttum taktvef á stofupoppslega stemmu og Ursula Rucker rappar fallega á flauelsmjúkt hljóðteppi Silent Poets. Hjá Roots Manuva kveður við skeggbroddalegri tón, gott rapp og dálítil reiði í gangi, sem er velkom- ið uppbrot á þeirri áferðarfallegu tónlist sem á undan er komin. Cabbage- boy byggir upp ævintýralegt teknó, Neotropic seiðir fram suðrænan blæ og Animals On Wheels eru djöfullega þungir og málmkenndir. Allir gömlu meistarar útgáfunnar eru svo auðvitað með, Funki Porchini, Her- baliser, DJ Vadim, DJ Food og Coldcut og halda áfram að hræra og þró- ast. Viljirðu dægurlög eða hlusta á eitthvað sem fær þig kannski til að gráta ættirðu að snúa þér annað því þessi tónlist fer dálítið inn um ann- að og út um hitt og skilur svo sem ekki mikið eftir sig. Það breytir því ekki að hér eru nýstárlegar hugmyndir í hrönnum; Ninja Tunes er sallafln tilraunastöð og hér kraumar í tilraunaglösunum. Gunnar Hjálmarsson Radiohead - Airbag / How Am I Driving ★★★ Eftir þrjár sífellt betri plötur er Radiohead orðið eitt vin- sælasta rokkband í heimi og ör- ugglega það virtasta. OK Computer var plata ársins 1997 og hér er komin kærkomin hressing, sex lög úr sömu upp- tökutöm, eins konar undan- renna úr mjólkurbúi sveitarinn- ar. Sum lögin hafa komið út áður sem B-hliðar á smáskífum, en þetta míní-albúm-fyrirkomulag er gott fyrir þá sem nenna ekki að eltast við smáskífur. Airbag af stóm plötunni ber hér af en jafnvel undanrenna frá Radiohead smakkast sem rjómi flestra annarra sveita og því standa aukalögin sex vel fyrir sínu. Þau era í svipuðum gír og OK Computer, upphafið melódískt til- raunarokk en þó óheflaðra og greinilega ekki eins útpælt. í Melatonin beitir Thom sama yfirdrifna værðartóninum og í Paranoid Android. Palo Alto minnir okkur á að Radiohead byrjaði sem frekar hefðbundið rokk- band, einnig Polyethylene (Parts 1 & 2); i báðum lögunum skiptast á mjúkir kaflar og harðir, ekki ósvipað trix og bandið beitti þegar það sló í gegn meö Creep. Meeting in the Aisle er ágætt ósungið fljótandi smá- verk, en Pearly og A Reminder fremur veikbyggð og bæta engu við. Lög- unum er pakkað í þetta líka fína umslag, allt yfirgengilega artí fartí og óskiljanlegt, en á meðan tilgerðin hleypur ekki með tónlistina í gönur mega Thom og kó vera djúppælingslega artí fyrir mér. Gunnar Hjálmarsson RADIOHEAO AIRBAG / HOW AM 1 DRIVING? 1426148550 TH:S MIM AUiUM )S MUÍD Al IMfc UM 1 HAVE TO UE 11 THE M1DDÍ.E Of THCFLOffl COMPU.TU.T MOTWWUSS HO~ OARIKC TO MCATHE. 2pac: R U still down? (remember me) ★i Þó að 2pac sé löngu dauður er ekkert lát á útgáfu tónlistar hans. Að þessu sinni er það móðir hans, Afeni Shakur, sem stendur fyrir útgáfunni, en á þessum diski eru gamlar og nýjar upptök- ur i bland. Að vísu er erfitt að greina hvort upptökumar eru gamlar eða nýjar því ekki kemur fram á diskinum hvenær þær eru gerð- ar. Stundum er þó hægt að heyra á lögunum hvenær þau era gerð, svona nokkum veginn. Nokkur lög er t.d. mjög lík lögunum á Thuglife, plötu sem 2pac gerði ásamt fleir- um. Einnig má heyra sama raddeffektinn og var notaður í laginu Cali- fornia love. Flest laganna á þessum tvöfalda diski eru í rólegri kantinum og ég verð að viðurkenna að ég fila slíkt ekkert allt of vel. Þó er eitt og annað gott innan um og saman við, þar á meðal var reyndar lagið „Do for love“ en það er eitt af fáum R&B-lögum sem eru að mínum smekk. Sumir aðdáenda 2pacs hefa velt því fyrir sér hvort kappinn sé raun- verulega dauður eða hvort þetta hafi bara verið sett á svið til að gera minningu hans ódauðlega. (Aðdáendur hans hafa kannski ekki áttað sig á því að dauður maður borgar ekki skatta?) Þetta fólk hefur fundið ým- islegt á plötum hans sem bendir til þess. Ég er hins vegar gjörsneyddur öllum hæfileikum til að finna slíkt og mér er alveg sama. Þetta er allt í lagi diskur, en vel hefði mátt sleppa slatta af lögum og hafa hann einfaldan. Það voru svona 5 lög af 26 sem mér líkaði og er það heldur lítið til að kaupa heilan disk fyrir. En must fyrir alla 2pac-fans. Put TWO fingaz in the air! Guðmundur Halldór Guðmundsson tónlist Smashing Pumpkins er óefað eitt stærsta rokkband í heimi í dag og hefur verið á stöðugri uppleið. Smashing PQOffiönÐfcOOЩ geiu: o w - hefur alltaf farið eigin leiðir Smashing Pumpkins hefur gef- ið út sína fjórðu plötu, Adore. Hinum hefðbundnu háværu og rifnu gíturum hefiu verið skipt út fyrir hljóðgervla; í staðinn fyrir groddalegt rokk er komið lágvært og slétt popp, þó með myrku og dulu yf- irbragði. ímyndaðu þér foringja sveit- arinnar, Billy Corgan, fyrir aftan plötuspilara en ekki æpandi með gítar um hálsinn. Það væri hann að gera í dag ef hann væri sautján en ekki þrjá- tíu og eins; „Hver vill vera í rokk- bandi í dag?“ spyr Billy. Gitarleikar- inn James Iha bætir við: „Það er miklu auðveldara að vera plötusnúð- ur. Fáðu þér plötuspilara og sampler - ekkert mál.“ Nýja platan er þó ekkert stökk út í DJ-menninguna. Þremenningarnir eru enn þá að fást við rokk en það er orðið miklu fágaðra og rólegra. „Þetta var órokkuð plata frá upphafi," segir BiUy. „Við byrjuðum á að takmarka okkur við píanó, órafmagnaða gítara, einfóld lög, en fengum fljótt leið á því. Þá varð þetta spurning um að fara með tónlistina inn á undarleg svæði svo við gætum afrekað eitthvað sem væri nýtt fyrir okkur, náð fram öðru- vísi titfinningu í tónlistinni. Annars vegar eru lögin miklu einfaldari, ekki eins yfirdrifin og margt sem við höf- um gert, en hins vegar er nýja platan miklu margbrotnari en það sem á undan er komið.“ James bætir við að bandið hafi verið án trommara (Jim- my Chamberlin var rekinn fyrir heróínneyslu) og þess vegna hafi nýju lögin ekki verið æfð upp til agna áður en var farið með þau í hljóðver. Þótt bandið sæki á ný mið er rokk- ið enn mikilvægt fyrir sveitina. „Rokkið er tilfinningaleg óútskýr- anleg orka sem nistir inn að beini,“ segir BUly. „Sé rokkið gott er það galdri líkast, eins og Disneyland eða eitthvað. Það er ekki hægt að útskýra hvers vegna gott rokk virkar, það ger- ir það bara.“ Önnur breyting sem gefur til kynna að með plötunni sé Smashing Pumpk- ins að fullorðnast, er að í textunum er verið að fjalla um „fullorðnari" þem- ur. „Ég er ekki lengur að tala ein- göngu til unglinga," segir Billy. „Núna er ég að tala til allra, alls heimsins, ég er að tala til fólks sem er eldra en ég og þess sem er jafngamalt og ég. Á mjög einfaldaðan hátt má segja að ég sé að syngja um ástina og söknuðinn en annars vil ég sem minnst segja um textana því mér finnst það algjör óþarfi. Fólk á að fá að draga sínar eigin ályktanir af þeim.“ Velgengnin þýðir frelsi Smashing Pumpkins er óefað eitt stærsta rokkband í heimi í dag og hef- ur verið á stöðugri uppleið. Fyrsta platan, Gish, kom út nákvæmlega sama dag og Nevermind Nirvana í maí 1991 og féll dálítið í skuggann en Siamese Dream frá 1993 kom bandinu á kortið svo um munaði. Tvöfalda platan Mellon Collie And The Infinite Sadness kom 1995 og styrkti bandið enn. Billy Corgan reyndi hvað hann gat til að gefa skít í rokkstjömuí- myndina, rakaði sig sköllóttan og var í eins fótum á 200 tónleikum árin 1996-1997; siifurbuxum og bol sem stóð á Zero. En hafa frægðin og fram- inn gert þremenningana hamingju- sama? „Nei, ekki beint,“ segir sá sköllótti. „Velgengnin hefur kennt manni mikið - góða hluti og vonda. Maður lærir t.d. að bandið er það sem er langmikilvægast, miklu mikilvæg- ara en aðdáendurnir og gagnrýnend- urnir. Tónlistin sem þú gerir er miklu mikilvægari en hvað fólki finnst um hana. Svo má snúa spurningunni við og spyrja hvort við verðum óham- ingjusöm ef nýja platan gengur illa. Ég held ekki. Þegar ég hugsa um ham- ingju, hugsa ég um frábæra tónleika sem við höfum spflað á og frábær lög sem við höfum gert. Ég sé ekki fyrir mér hrúgu af seðlum. Það er ekki mikilvægt fyrir mig.“ „Við höfum ekki tíma til að eyða neinu hvort sem er,“ bætir D’Arcy Wretzky bassaleik- ari við. En hvað hefur velgengnin þá fært Smashing Pumpkins? „Aðallega frelsi," segir James Iha. „Ef okkur langar í eitthvað, gítar, hljómborð, tölvukerfi, þá getum við keypt það og við höfðum líka efni á að búa til plötu eins og Adore. Ég var að hugsa um það þegar við vorum að byrja þá vor- um við að skrölta um á sendibíl og einn þurfti alltaf að sofa aftur í á krossviðarplötu sem sett var ofan á bassamagnarann. Maður lá þarna, glápti upp á sendibílsþakið og sofnaði, rumskaði svo og sá ekkert nema upp á þakið, heyrði skröltið og steinsofn- aði aftur.“ Finnst ykkur vera langt síðan þetta var? „Nei, ekki nógu langt," segir D’Arcy. „Manni líður stundum eins og mað- ur hafi verið milljón ár í bransanum en svo rifjast upp atvik eins og þetta og þá virðist vera stutt síðan við byrj- uðum,“ segir Billy. Hvað hvetur ykkur áfram? Hvað hefur áhrif á ykkur? „Við gerum allt til að þurfa ekki að skrölta aftur ofan á bassamagnar- anum. Nei, hvað áttu við? Hvað hvetur okkur áfram í músíkinni?" spyr Billy á móti. Já, eða til að fara á lappir á <. morgnana? „Við höfum alltaf haft ný og ný markmið til að stefna að. Þegar við byrjuðum var það t.d. markmið að spila á Cabaret Metro (klúbbur í Chicago) af því að Dinosaur Jr hafði spilað þar eða eitthvað. Eftir því sem bandið hefur stækkað og breyst hafa takmörkin þróast, síðast var það t.d.; gerum plötu án málamiðlana, plötu sem hljómar ekki eins og það sem fólk býst við að heyra frá okkur. Þetta eru stór takmörk og það sem heldur okk- ur gangandi. Að gera það augljósa og það sem fólk býst við er bara ömur- lega leiðinlegt, þá ertu bara leikbrúða í höndum markaðarins. Við byrjuðum í þessu bandi af því við höfðum ógeð á því rokki sem var í gangi, af því all- ir hljómuðu bara eins og einhverjar helvítis dúkkur. Við höfum alltaf far- ið eigin leiðir." -glh v

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.