Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.1998, Síða 11
FÖSTUDAGUR 5. JÚNÍ 1998
rökrul
ur
xoti
agga Stína lá í dái i mörg ár
eftir að Risaeðlan hætti
árið 1991. Nú er hún að
kíkja upp á yfirborðið á ný með plötu
sem hún er ekki alveg viss um hvað
á að heita; „Kannski Naturally
Naturally því fyrsta smáskífan er
með laginu Naturally og ég er ekki
viss um hvort stóra og litla platan
má heita það sama. Ég þarf að
hringja út og spyrja." Hér á hún við
að hún þurfti að fá ráðleggingar hjá
markaðsfræðingi One Little Indian-
útgáfunnar sem gefur hana út.
Magga hefur þó ekki skrifað undir
neina samninga: „Ég gerði bara plöt-
una og það hefur enginn talað við
mig um samninga, þetta er allt svo
natúralt."
En hvemig er útgáfuáætlunin?
„Ég held að smáskífan sé að koma
hingað í vikunni og svo kemur hún
út i Englandi 13. júlí, eða um allan
heim, ég man það ekki. Stóra platan
á svo að koma út í lok júlí.“ Plötuna
hefur Magga verið að gera síðasta
árið og fengið aðstoð hjá Valgeiri
Sigurðssyni (úr Birthmark og Unun),
Graham Massey (úr 808 State) og
Lhooq-félögunum Jóhanni og Pétri.
Ég er svo heppin að hafa heyrt plöt-
una og hún er algjör snilld; það kem-
ur mér stórlega á óvart ef hún vekur
ekki mikla athygli. Ég spyr Möggu
hvað hún vilji segja um tónlistina.
„Það er engum blöðum um það að
fletta að þetta eru dægurlög en ann-
ars fmn ég engan stað fyrir þessa
tónlist, ég vildi að ég fyndi hann. Ég
sem lag án þess að pæla í því hvern-
ig það á að vera, skilgreini það ekki
í fæðingu. En ég gerði eitt lag með
Sölva bróður (úr Quarashi) sem er
áþreifaniegur slagari. Það var fyndið
að vinna með honum, hann byrjaði
lagið og ég tók við því. Vanalega er
Stóru plötuna hefur Magga verið að gera síðasta árið og fengið aðstoð hjá Valgeiri Sigurðssyni (úr Birthmark og Un-
un), Graham Massey (úr 808 State) og Lhooq-félögunum Jóhanni og Pétri.
þetta á hinn veginn, ég byrja á ein-
hverju og læt aðra koma inn í það.“
Flissa meira en æfa
Fyrsta tækifærið til að heyra
Hljómsveitin Canada:
Þokkalega komin
til að vera“
Hvað er það síðasta sem
trommari segir í hljómsveit áður
en hann er rekinn? „Strákar, ég
var að semja lag.“ Þessi gamli
bransabrandari virkar þveröfug-
Popp í Reykjavík
Það hefur líklega ekki farið
fram hjá neinum að Popp í
Reykjavík-tónlistarhátíðin er í
fullum gangi. Heimasíðan á
netinu er á this.is/popmuzik
en lifandi útsending frá hátíð-
arhöldunum á www.livecon-
certs.com.
Föstudagur 5. júní
Kaffi Thomsen kl. 17-21
DJ Fingaprint
DJ Rampage
Sækópa
Dennis Rapp
Lofkastalinn kl. 18-20.30
Páll Óskar og Casino
Interspade
Brim
Sýrupólkasveitinni Hringir
Héðinsskemman kl. 21-24
Quarashi
Bellatrix
Magga Stína
Stjörnukisi
Bang Gang
Canada.
Laugardagur 6. júní
Kaffí Thomsen kl. 17-21
DJ Jón Atli
DJ Tommi
DJ Andrés
DJ Amar
+ lifandi djassgrúf
Loftkastalinn kl. 18-20.30
Biogen
Slowblow
Plastic
Óskar Guðjóns
Vector
M.Art
Héðinsskemman kl. 21-24 j
Gus gus
Móa
Vuca
Subterranean
Súrefni
„Það er orðið kúl að vera í hljómsveit aftur. Það er mikið að gerast og hnign-
unin hlýtur að fara að koma. Ætli við séum ekki einhvers konar hnignunar-
merki. Eða kannski frekar samnefnari?"
ur í tilfelli hljómsveitarinnar
Canada því þar sagði trommarinn
Óbó þetta við félaga sína og
hljómsveitin varö til. „Þetta gerð-
ist á kaldri vetramóttu ’96 og sið-
an höfum við ekkert gert að viti.“
Hér eru komnir Óbó og Ragnar
söngvari. Aðrir Canada-menn eru
hljómborðsleikarinn Úlfur, Hauk-
ur gítarleikari og nýjasti meðlim-
urinn er Doddi á bassa. Sveitin
var þó ráðin i Sirkus Skara
Skrípó og spilaði samfleytt undir
töfrabrögðunum í ár. „Það besta
við það voru peningarnir og kven-
fólkið sem sirkuslífinu fylgir."
Þarna vom spilaðir nokkrir
standardar og sérhönnuð tónverk.
„Allan þennan tíma vorum við í
Canada- þynnku og vorum svo að
pæla í heilt ár á eftir. Gerðum þó
eitt hommalag með Emilíönu
Torrini sem fékk þá frábæru
gagnrýni að það væri langversta
lag sem hún hafði komið nálægt.
Nó hard fílings hjá okkur.“ Lagið
var tekið upp síðasta sumar. „Síð-
an höfum við aðallega spilað í
heimahúsum í partíum, t.d. í frá-
bæru áramótapartíi. Tónleikarnir
í kvöld eru fyrstu stadium-tón-
leikarnir okkar. Við errnn komn-
ir.“
Til að vera?
„Þokkalega, hefði ég haldið.1
Betri en Doors
Hvernig tónlist spilar Canada?
Svarið stendur á sér eins og oftast
þegar svo beinhörð spurning er
lögð fram. Svo; „Þetta er bara, þú
veist, gott rokk. Það er stórhættu-
legt að kalla þetta eitthvað annað.
Viö köllum þetta bara rokk, það
gerir það enginn annar núna, allir
í einhverju ísí og indí og
kjaftæði."
Framtíðaráform?
„Það þýðir ekkert annað en að
gera plötu og spila. Lokatakmark-
ið hlýtur svo að verða besta hljóm-
sveit í heimi. Betri en Doors.“
Finnst ykkur vera mikið að ger-
ast?
„Já. Það er orðið kúl að vera í
hljómsveit aftur. Það er mikið að
gerast og hnignunin hlýtur að fara
að koma. Ætli við séum ekki ein-
hvers konar hnignunarmerki. Eða
kannski frekar samnefnari?"
Samnefnari fyrir hvað?
„Ja, samnefnari fyrir hnignun-
armerki. Ha?“
-glh
þetta efni á tónleikum býðst í
kvöld. Magga hefur hóað nokkrum
strákum saman í hóp og voru þeir
flestir með henni í Funkstrasse en
þar sá hún um bakraddir en Ótt-
arr Proppé, í gervi Prófessors
Pimp, sá um aðalrödd. „Vá maður,
við erum búin að æfa í viku. Það
er töluvert stuttur tími en alveg
passlegur til að æfa jafnflókið efni
fyrir þessa tegund af hljómsveit.
Við flissum mun meira en æfum
svo ég er ekki of viss hvernig þetta
kemur út enda eru tónleikar bara
happening, kannski slys og ég held
að þetta verði gott slys.“ Guðni
Franzson spilar á bassa; „einn
framsæknasti danshöfundur sem
ég þekki,“ segir Magga, „ég hvet
fólk til að fylgjast með sporunum
hjá honum." Pétur Hallgrímsson
„spOar á alls kyns gítara, bæði
innlenda og erlenda. Valgeir spilar
á hitt og þetta, hann er undrabarn
og ekki hægt að lýsa honum svo ég
sleppi því bara.“ Óskar Guðjóns
blæs í nokkrum lögum. „Hann átti
að spila í einu lagi en svo vildi
hann bara ekkert fara,“ og „Gjálíf-
isprinsinn" Arnar Geir Ómarsson
trommar: „Mér finnst alltaf eins
og pabbi hans hljóti að vera Omar
Shariff," fullyrðir Magga. „Við
reynum aö spila svona fimm, sex
lög og ég vona að fólk haldi ekki
að þetta sé eitthvað dúdúdú-teknó,
þótt það hafi kannski heyrt þannig
rimix í útvarpinu. Eða kannski er
gott að það haldi það bara. Fólk ^
hefur rétt á að halda það sem það
vill sem manneskjur."
Hvað gerist svo hjá ykkur á
næstu mánuðum?
„Æi, bara kynna plötuna, það er
planið en ekki nein smáatriði
komin á hreint enn þá. Þetta er
allt svo vinalegt og á mannlegu
nótunum að ég hef ekki enn náð
að hugsa um þetta pródjekt sem
vöru, enda kann ég ekki við það,
það særir mig. Ég er svo hjátrúar-
full að ég get ekki ætlað mér eitt- f
hvað um eitthvað sem er jafn óá- ’
þreifanlegt og framtíðarplön um
gengi dægurlaga. Það sem gerist,
það gerist. Það eina sem ég veit er
að ég ætla að hanga í bílskúr með
þessum tilteknu piltum þar til yfir
lýkur. Það er það eina sem er al-
veg öruggt."
-glh
Inferno
Á hinum glænýja og sjóö-
heita skemmtistað Infemo
í Kringlunni verða stuö-
böndin Reggae on ice
fóstudagskvöld og Gos
laugardagskvöld.
Stórtónleikar
á Rósenberg
Á Rósenberg verða stór-
tónleikar á laugardags-
kvöldið með hljómsveitun-
um Soma, Woofer, Dan
Modan og Bara Burt
Reyni.
Sóldögg
Hljómsveitin Sóldögg
verður í Festi á Grinda-
vík í kvöld og i Miðgaröi,
Skagafirði annað kvöld.
Sir Oliver
í kvöld og annað kvöld
verður írski trúbadúrinn
Kenneth Henningham á
Sir Oliver en þeir Vil-
hjálmur Goði og Pétur Örn
mæta á sunnudagskvöldið.
8-villt
Hljómsveitin 8-villt verður
á Kafii Reykjavík í kvöld
en mun spila á tveimur
dansleilgum í Sandgerði á
laugardagskvöld.
Spur
Hljómsveitin Spur leikur á
unglingadansleik á Eski- ""
firði í kvöld og á dúndur-
dansleik í Hótel Björk,
Hveragerði, annað kvöld.
Wunderbar
Trúbadúrinn Pétur Örn
mun haldá uppi stuðinu á
Wunderbar fostudags- og
laugardagskvöld.
Greifarnir
Greifamir verða með dans-
leik í Stapaniun í Njarðvík
í kvöld. Annað kvöld halda <
þeir síðan sameiginlegan
dansleik með Landi og son-
um í Njálsbúð.
Fógetinn
KK og Nærsveitarmenn
verða í Fógetanum í kvöld
og annað kvöld.
Diagga
„Þetta verður gott slys“
Stíra