Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.1998, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.1998, Blaðsíða 3
T ð t i m m i m « i i (« FÖSTUDAGUR 19. JÚNÍ 1998 Tír * (kvikmyndir "*★ ★ Sex dagar - sjö nætur í Sam-bíóum: Tekin á fallegustu Hawaii-eyjunni Sex dagar - sjö nætur (Six Days, Seven Nights), sem Sam-bíóin taka til sýningar í dag, er frumsýnd hér á landi aðeins einni viku eftir að heimsfrum- sýning var á henni í Bandaríkjunum. Um er að ræða létta og skemmtilega gamanmynd með spennuívafi sem gerist á eyju í Kyrrahafinu. Segir frá samskiptum flugmanns sem þar býr og stór- borgarstúlku sem er túristi og hvernig þau bregð- ast við þegar þau verða strandaglópar á óbyggðri eyju. í aðalhlutverkum eru Harrison Ford og Anne Heche. Myndin hefur ákaflega glæsilegt yfirbragð og þessi suðræna paradís nýtur sín vel í fallegum myndskeiðum. Sex dagar - sjö nætur er tekin að mestu á eyjunni Kauai sem er af mörgum talin fal- legasta eyjan i Hawaii-eyjaklasanum. Hefur eyjan verið tökustaður margra frægra kvikmynda. Það var árið 1933 sem Kauai var fyrst notuð í kvik- mynd. Var það í White Heat, rómantískri mynd um líf á plantekru og forboðna ást. Síðan hafa útiatriði í meira en fimmtíu kvikmyndum verið tekin á þessari mikilfenglegu eyju. Má þar nefna frægar kvikmyndir eins og South Pacific, Blue Hawaii, Ju- rassic Park og framhald hennar, The Lost World, og Outbreak. Þá má geta þess að í einni af stór- myndum sumarsins, Mighty Joe Young, sem eftir á að frumsýna, er Kauai orðin aftur vettvangur stórra atburða. Harrison Ford Ford er fjölskyldumaður og býr með eiginkonu sinni, handrits- höfundinum Melissu Mathieson, og hörnum þeirra á sveitabýli í Maine þar sem hann tekur enn til hend- inni þeg- ar þarf að lag- færa smíða. Hér til hliðar er listi yfir þær kvikmyndir sem Harrison Ford hefur leikið i frá því hann lék í American Graffiti. -HK Harrison Ford er einn vinsælasti leik- ari samtímans og sá sem þykir ein örugg- asta fjárfestingin svo það kemur ekki á óvart að hann skuli yfirleitt fá í hendurn- ar fyrstur þau handrit sem mestur fengur þykir að fyrir karlleikara. Harrison Ford er þó ekki dæmigerð kvikmyndastjarna, hann er varkár, líður yfirleitt illa í Hollywood og er oftar en ekki lokaður í viðtölum. Sjálfsagt er ein mesta viðurkenningin sem Harrison Ford hefur fengið sú að vera tilnefndur af samtökum kvikmyndahúsa- eiganda mesta kvikmyndastjama tuttug- ustu aldarinnar. Þetta kom samt ekki mörgum á óvart þegar tekið er tillit til þess að hann hefur leikið i nokkrum af vinsælustu kvikmyndum sögunnar. Má þar nefna Star Wars-seriuna og Indina Jo- nes-myndimar. Harrison Ford fæddist í Chicago 13. júlí 1942. Ekki varð skólaganga hans löng. Löngun hans til að verða kvikmyndaleik- ari varð yfirsterkari svo hann yfirgaf heimaslóðir og hélt til Hollywood. Þar komst hann á samning hjá Columbia en hafði svo litið að gera að hann kaus frek- ar að vinna sem smiður fyrir kvikmynda- stjörnumar þegar honum bauðst það. Eft- ir átta ára vist í Hollywood bauð George Lucas honum hlutverk í American Graffiti. í kjölfarið fékk hann hlutverk í kvikmynd Francis Ford Coppola, The Conversation, og Lucas mundi siðan eftir honum þegar farið var að ráða í hlutverkin í Star Wars. Síðan þá hef- ur gatan verið greið hjá Harrison Ford og fáir leikarar hafa átt jafnfarsælan feril. Harrison American Graffiti, 1973 The Conversation, 1974 Star Wars, 1977 Heroes, 1977 Force Ten from Navarone, 1978 Hanover Street, 1979 The Frisco Kid, 1979 The Empire Strikes Back, 1980 Raiders of the Lost Ark, 1981 Blade Runner, 1982 Return of the Jedi, 1983 Indiana Jones and the Temple of Doom, 1984 Witness, 1985 The Mosquito Coast, 1986 Frantic, 1988 Working Girl, 1988 Indiana Jones and the Last Crusade, 1989 Presumed Innocent, 1990 Regarding Henry, 1991 Patriot Games, 1992 The Fugitive, 1993 Clear and Present Danger, 1994 Sabrina, 1995 The Devil's Own, 1997 Air Force One, 1997 Six Days, Seven Nights, 1998 KVIKMYIÍDA Sam-bíóin - Sex dagar - sjö nætur ★★* Hasar og rómantík í fallegu umhverfi Það er bágt til þess að vita að mesti spenn- ingurinn i sambandi við frumsýningu myndar- innar Sex dagar - sjö nætur (Six Days Seven Nights) í Bandaríkjunum um síðustu helgi skuli hafa verið hvort bandarískur almenningur skyldi samþykkja Anne Heche (sambýliskona Ellen McGeneris sem ekki hefur fengið atvinnu- tilboð síðan hún opinberaði að hún væri lesbía) í rómantísku hlutverki á móti Harrison Ford. Sem betvu fer var almenningur ekki jafn yfir- borðskenndur í þetta skiptið og þeir sem ráða í Hollywood þvi myndin fékk góða aðsókn og það skal strax tekið fram að Sex dagar - sjö nætur væri hvorki fugl né fiskur ef ekki væri vegna góðs samleiks Harrisons Fords og Anne Heche. Það gneistar á milli þeirra og er greinilegt að Harrison Ford liður mun betur í námunda við Anne Heche heldur en við hlið Juliu Ormond i Sabrinu, svo dæmi sé tekið um eitt af fáum rómantískum hlut- verkum hans. Sex dagar - sjö nætur gerist á fallegum eyjaklasa í Kyrrahafinu. Harrison Ford leikur flugmanninn Quinn sem má muna sinn fífil fegri. Hann fær það verk að flytja aöstoðarritstjóra tískublaðs, Robin, og mannsefni hennar til sælustaðar þar sem bónorð er borið upp. Krísa myndast á tískublaðinu og Robin verður að taka leiguflug til Tahiti til að bjarga málum. í þessari ferð með Quinn lenda þau í ofviðri og nauðlenda á eyju einni sem virðist óbyggð með öllu. Ekki er hægt að segja að samvinna í viðleitni þeirra til að komast af fari vel af stað, enda ólíkar persónur. Sagan í Sex dagar - sjö nætur er ósköp klérí, svo ekki sé meira sagt. Fyrri helmingur myndar- innar gefur til kynna að hér sé rómantísk gam- anmynd um það hvemig tvær ólíkar manneskj- ur komast af á eyðieyju en eins og upp úr þurru birtast allt í einu nútímasjóræningjar sem hafa drepið alla á skemmtiskútu einni og vilja koma vitnum að þeim atburði, sem era að sjálfsögðu Quinn og Robin, sem fyrst í lárétta stöðu. Við það breytist yfirbragð myndarinnar en sem bet- ur fer halda Harrison Ford og Anne Heche haus í þeim látum og myndin missir lítið af sjarman- um sem þau hafa skapað. Harrison Ford hefur ailtaf átt auöveldara með að leika yfirburðamenn sem pæla ekki of mikið í tilfinningalífmu heldur en rómantískar sálir á léttum nótum og Sex dagar- sjö nætur breyta ekki þeirri staðreynd. Samt er hann hér í góðu formi og nær ásamt Anne Heche að halda uppi mynd sem þjáist af skorti á hugmyndum. Má segja að handritið sé lýsandi dæmi um það hversu slæmt ástandiö er i Hollywood i gerð góðra kvikmyndahandrita. Leikstjóri: Ivan Reitman. Handrit: Michael Browning. Kvikmyndataka: Michael Chapman. Tónlist Randy Edelman. Aðalhlutverk: Harrison Ford, Anne Heche og David Schimmer. Hilmar Karlsson TILBOt

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.