Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.1998, Page 4
w
-
helgina
FÖSTUDAGUR 19. JÚNÍ 1998 T>V
18
Paö verður mikiö um að vera á vfkingahátíðinni í Hafnarfirði, t.d. verða þar bardagasýningar aö hætti eöalvíkinga.
Nú um helgina verður haldin Sólstöðuhátíð í Hafnarfirði en það er yfir-
skrift hinnar árlegu víkingahátíðar sem haldin hefur verið síðastliðin ár.
Hátíðin verður þó með nokkuð öðru sniði í ár þar sem hún er fjölskyldu-
vænni en áður. Það er Fjörukráin sem stendur að hátíðinni ásamt áhuga-
fólki um víkinga. I Fjörukránni verður dagskrá í boði sem er sett saman af
þeim uppákomum sem vinsælastar hafa verið á fyrri víkingahátíðum.
Ókeypis verður inn á hátíðina.
Þó nóg verði af ýmsu vopnaskaki að hætti víkinga verður fjölmargt ann-
að í boði. Navajo-indíánar verða með sýningu á handverki sínu í sérstöku
tjaldi ásamt því sem markaður verður á staðnum þar sem allt milli himins
og jarðar verður til sölu. Fjölbreytt tónlist verður á svæðinu, sýning-
ar verða á vinnubrögðum handverksfólks auk sýninga og fyrir-
lestra um menningu víkinganna. Reglulegar ferðir verða með vík-
ingaskipinu íslendingi og skemmtiskipinu Húna II. ■>,
Markaðurinn verður opnaður klukkan 14 föstudag, laugar-
dag og sunnudag og klukkutíma síðar hefst bardagi. Klukk-
an 16 mætir leikhópur á svæðið auk þess sem margt ann-
að stendur til boða. Á kvöldin er svo boðið til víkinga-
veislu og dansleiks.
Halló
Höfði á
laugardag
DV, Vesturiandi:_____
Útiskemmtunin Halló Höfði
verður haldin á morgun við bæ-
inn Búlandshöfða sem er um 10
kílómetra frá Grundarfírði.
Svæðið verður opnað klukkan
15 en skemmtunin hefst klukkan
16 og stendur yfir langt fram á
kvöld. Margt verður til skemmt-
unar, svo sem söngur, grín,
dansatriði, leikþáttur, leynigest-
ur, nýjar og gamlar gamanvísur,
trúður og grinhallett. Einnig
syngja og dansa ungar stúlkur
úr Grundarfirði auk þess sem
fólk fær að taka þátt í ýmsum
uppákomum. Upp úr klukkan 20
mun svo harmoníkuleikari spila
fyrir dansi langt fram á kvöld.
Inn á svæðið kostar 500 kr. fyrir
fullorðna og 200 kr. fyrir böm, 6
til 14 ára. -DVÓ
W'%
DV Akranesi:____________________________________________
Þann 17. júní opnaði Bjarni Þór Bjarnason myndlist-
arsýningu í Listasetrinu Kirkjuhvoli, Akranesi. Þar
sýnir Bjami 10 olíuverk og 30 vatnslitamyndir, sem eru
allar unnar á þessu ári. Þema sýningarinnar er sjórinn
og fjaran kringum Akranes.
Bjarni Þór er fæddur 1948 og er þessi sýning m.a. í
tengslum við stórafmæli listamannsins. Bjarni Þór var
valinn bæjarlistamaður Akraness 1997-1998. Það helsta
sem hamn hefur unnið við á því tímabili er útilistaverk-
ið Brákin í Borgamesi, útilistaverkið Hafmeyjan á
Bjarni Þór Bjarnason sýnir verk sín í Listasetrinu
Kirkjuhvoli á Akranesi. DV-mynd Daníel
Akranesi auk þess sem hann hefur haldið myndlistar-
sýningu í Borgarnesi og í Galleríi Hominu, Reykjavík.
Með sýningunni í Kirkjuhvoli má segja að Bjarni sé að
skila af sér sem bæjarlistamaður.
Sýningunni í Kirkjuhvoli lýkur 5. júlí og er listsetrið
opið daglega frá 15-18. -DVÓ
Sumar á Selfossi
Nú fjóröa árið í röð er hátíðin Sumar á Selfossi haldin til að
lífga upp á tilveruna með skemmtilegum uppákomum. Geysi-
lega mikið verður um að vera á morgun og ættu allir að geta
fundið eitthvað við sitt hæfi.
í fyrramálið bjóða fyrirtæki á Selfossi öllum bæjarbúum og
gestum til veglegs morgunverðar í tjaldinu á bílaplani Hótel
Selfoss. í fyrra komu um 2.000 manns í morgunverðinn og
stefnt er að enn betri mætingu í ár.
Bylgjulestin mætir á svæðið með Hemma
Gunn, Greifunum og Radíusbræðrum í farar-
broddi. Hálandaleikamir verða á túninu fyrir neðan hótelið og
munu íslenskir kraftajötnar sanna þar karlmennsku sína.
Of margt verður á boðstólum til að hægt sé að telja það allt
upp. Til að nefna eitthvað þá verður bílasýning á svæðinu,
módelsýning frá Eskimo models, tjaldmarkaður, spámiðlar og
fjölbreytt skemmtun fyrir börn. Götuleikhúsið mætir á svæð-
Meöal þess
sem veröur til
skemmtunar
á Selfossi á
morgun eru
Hálandaleik-
arnir þar sem
kraftakarlar
sýna hvað í
þeim býr.
inn ógurlegi. Frítt verður í sund og
tjaldstæðið verður opið.
Þetta verður því fjörug helgi á
bökkum Ölfusár og ekki tilvalið fyr-
ir alla sem leið eiga um Árhorgar-
svæðið að bregða sér á Selfoss.
Listasetrið Kirkjuhvoll á Akranesi:
Sjórinn
og fjaran