Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.1998, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.1998, Blaðsíða 11
FÖSTUDAGUR 19. JÚNÍ1998 Embrace: betri en bæði Oasis og Verve að eigin sögn. Brit-rokkararnir í Embrace: Umdeild grobbhænsn Hljómsveitin Embrace er sönn- un þess að enn er líf 1 Brit-rokkinu svokallaða. Hljómsveitinni hefur verið lýst sem nákvæmri 50/50 blöndu af The Verve og Oasis og fyrsta breiðskífa hennar, „The Good Will Out“, stökk beint í efsta sæti breska vinsældalistans en hef- ur verið að fá mjög misjafna dóma í pressunni, frá því að vera „Besta plata áratugarins" í „Mikil von- brigði". Líkt og í Oasis ber mest á bræðrum í Embrace; Danny (söng- ur) og Richard McNamara (gítar) eru foringjarnir, en sem betur fer eru þessir Brit-bræður skárri í skapinu en Gallagher-bullurnar, en þó monthanar miklir, sérstaklega Danny. Þeir hafa verið að æfa sig í ein níu ár, frá því þeir voru rétt skriðnir af fermingaraldrinum. Trommarinn Mike Heaton og bassaleikarinn Steve Firth bættust í hópinn og hjólin fóru að snúast þegar sveitin gerði samning við Hut- hljómplötufyrirtækið, sem m.a. gefur út The Verve og Smas- hing Pumpkins í Bretlandi. Oasis og Verve ber oft á góma í sambandi við Embrace og Danny tekur kok- hraustur undir: „Oasis hefur samið sex eða sjö góð lög en við erum betri“ og „Richard Ashcroft er góð- ur söngvari og það er sál í The Ver- ve, en við semjum betri lög og ég er betri söngvari". Pabbi bræðranna er sérstakur aðdáandi og mætir oft á tónleika. „Hann er í laginu eins og kamar,“ segir Danny um pabba sinn, „og í byrjun þegar menn voru með einhvern kjaft á tónleikum hjá okkur greip hann oft í taumana og lagði hendur á menn.“ Helmingur laganna á „The Good Will Out“ hefur komið út áður á smáskífum, en sum hafa verið end- urgerð fyrir stóru plötuna. Rokkið er annaðhvort stúkurokk með þriggja hljóma viðlögum sem bull- ur og byttur geta gaulað með í hálf- leik á fótboltaleik eða betur heppn- aðar rokkbailöður með strengjum og veseni. „Ég vil hljóma eins og Bítlarnir þegar þeir gerðu „Sgt Peppers" ef Brian Wilson hefði gengið í bandið á þeim tíma,“ seg- ir Danny. „Richard býr yfir sama flengikrafti og Bítlamir höfðu þá og þegar ég heyri hann spila dettur mér ekkert í hug nema „djöfull, maður“. Ég nenni ekki að gagn- rýna þá tónlist sem er í gangi núna en það verður augljóst hve allt annað er ófullkomið þegar stóra platan okkar kemur út. Eins og þetta band sem við spiluðum með um daginn, ágætis náungar en tón- listin algjört rusl og ég sagði þeim það. En ef ég ætlaði bara að um- gangast tónlistarmenn sem ég fíl- aði þyrfti ég að fara á pöbbinn með dauðu liði.“ Sálin á ferðinni Sálin hefur nýhafið sumartúr sinn og mun hún leika í Miðgarði í kvöld og í Hreðavatns- skála annað kvöld. Með í för verða fjöllistamennirn- ir Ben og Gúríon. Sóldögg Stuðbandið Sóldögg leikur í Herðubreið á Seyðisfirði í kvöld og í Sjallanum á Akureyri annað kvöld. Gaukur á Stöng Á Gauknum verður það hin rísandi hljómsveit Spur sem sér um að halda staðnum heitum í kvöld og annað kvöld. Með stuð í hjarta Það verður Rúnar Júlí- usson sem leikur fyrir dansi afla helgina á Feita dvergnum í Grafarvogi. Sixtís á Sólstöðuhátíð Hljómsveitin Sixtís heldur tjaldball á Sól- stöðuhátíð í Lónkoti, Skagafirði annað kvöld. Buttercup í Gjánni Hljómsveitin Buttercup verður með dúndur sveitaballastemningu í Gjánni á Selfossi í kvöld. SSSól í Njálsbúð Annað kvöld heldur SS- Sól risa sveitaball í Njáls- búð. Með í fór verða ungsveitirnar Quarashi og Ensími. Skítamórall fyrir norðan Skítamórafl verður á ferðinni fyrir norðan um helgina og spilar í Sjallan- um á Akureyri i kvöld, en Ýdölum í Aðaldal annað kvöld. Með í for á Ýdölum verður poppstjaman Páll Óskar sem treður upp í fyrsta sinn á sveitabafli. Café Amsterdam Um helgina mætir hljómsveitin O.fl. á Café Amsterdam. Sveitin er nýjasta afurð Útungunar- stöðvar popphljómsveita ehf á Selfossi. Forsíða nýja pakkans; Jimi og félagar með hreiður á höfðinu. Þegar músikantar hafa gefið út efni til þessa hefur það annað- hvort verið upptökur úr hljóð- veri eða af tónleikum. Eftir að útgáfa á tónlist með útvarpsupptökum hefur orðið algengari má segja að þriðji möguleikinn til að njóta tónlistarinn- ar sé kominn fram. Þegar tónlistar- menn fara í hljóðver útvarpanna fara þeir inn á léttu nótunum, enda ekki með hugann við það að gera ódauðlegt meistaraverk eins og þegar í alvöru hljóðver til að gera albúm er farið. Yf- irleitt eru tekin ný og ekkert sérstak- lega yfirlegin lög og jafnvel gantast með gömul lög. Ekki er gefinn langur tími til að taka upp og því er útkom- an oftast ansi skemmtileg, í þessu formi er heimildin um böndin einna hreinust og andrúmsloftið í tónlist- inni kannski líkt því andrúmi sem er í gangi á æfingum; böndin eru á gráu svæði á milli þess að vera á tónleikum og í hljóðveri. Útvarpsheimildasöfnun BBC á rokki hefur verið 1 gangi í fjörutíu ár eða meira en hófst fyrir alvöru árið 1967 þegar poppstöðin BBC One hóf starfsemi og þátturinn „Top Gear“ í umsjón Johns Peel fór í loftið. Margir þættir fylgdu í kjölfarið og þó margar plötur með tónlist úr „At the Beeb“, „One in Corcerts" og „Peel Sessions" þáttunum hafi komið út á síðustu árum er það þó aðeins toppurinn á ís- jakanum, ótrúlegir fjársjóðir bíða rokkleifafræðinga á safnadeild BBC. Upptökur BBC með flestum stórmenn- um rokksins hafa þó þegar komið út - tvöfaldir pakkar með Bítlunum og Led Zeppelin seldust vel - og nýlega komu út tveir diskar með The Jimi Hendrix Experience, hinn rúmlega 30 laga „BBC Sessions" pakki, sem Hendrix-aðdáendm ættu að taka gap- andi og fagnandi, enda vel að verki staðið, upptökurnar hreinsaðar upp með nýjustu tækni og bæklingur full- ur af myndum og upplýsingum. Fimm maraþon-tarnir Á timabilinu 13. febrúar til 15. des- ember 1967 fór tríó Hendrix fimm sinnum í upptökm’ á vegum BBC og hljóðritaði nóg efni á aðeins fimm dögum til að troðfyfla tvo diska. Upp- tökurnar voru sendar út inn á hvert breskt heimili, en bara einu sinni eða tvisvar og svo látnar rykfalla á hljóð- ritasafninu. Fyrirskipunin var: „ger- iði þetta vel, en ekki gera þetta erfitt." Fyrstu tvö skiptin voru fyrir þáttinn „Saturday Club“. Starfsliðið kom af flöllum þegar Jimi stakk í samband; gítarinn bjagaði um BBC-bygginguna og kvartanir bárust úr leiklistarstúd- íóinu tveim hæðum ofar. í hljóðklef- anum voru menn að ærast, slökktu á öllum hátölurum en heyrðu samt vel í bandinu og sáu glerið bylgjast. í sept- ember þegar poppstöð BBC hóf út- sendingar var The Jimi Hendrix Ex- perience orðið eitt vinsælasta band Englands og sjálfsagður gestur á nýju stöðinni. Tríóið gerði fyrst fimm lög til útsendingar fyrir „Top Gear“ þátt- inn, en lag sem fór ekki í loftið - „I Was Made to Love Her“ - er kannski skemmtilegast fyrir þá sök að trommarinn Mitch Mitchell þurfti á klósettið og Stevie Wonder rambaði á trommusettið og djammaði lagið með Jimi og Noel Redding bassaleikara. Pete Ritzema tók upp í þetta skiptið og man vel eftir Hendrix: „Hann var alltaf kátur og flissandi. Þegar hann tók upp söngviðbætur vildi hann fá skerma umhverfis hljóðnemann því annars hefðu Mitch og Noel komið honum til að hlæja með fíflalátum.“ Sautjánda október tók tríóið enn upp, fimm laga törn sem er kannski eftir- minnilegust fyrir þá sök að Jimi sleit streng í „Driving South" og Mitch kláraði lagið með trommusólói. Síð- asta BBC- upptakan fór svo fram 15. desember, enn ein heilsdags maraþon- upptökutörnin. Þegar hér var komið sögu fór tríó Hendrix til Bandaríkj- anna og eyddi mestum tíma sínum þar. Frægðin blasti við og kynningar- upptökur á vegum BBC voru orðnar óþarfi. Nýr, spikfeitur pakki: OO Jimis Hendrix % *

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.