Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.1998, Síða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.1998, Síða 12
26 íyndbönd 3 MYNDBANDA & 8 Heads in a Duffel Bag: Hausaveiðar Mafíósinn Tommy Spinelli þarf að fljúga til Kali- fomíu með átta hausa í handtöskunni til að sanna fyrir mafíuforingja þar að mennirnir hafi verið myrtir. Hann lendir í töskurugli og klaufa- legur læknanemi fer með kæmstu sinni og foreldrum hennar til Mexíkó með töskuna hans. Hann verður að ná hausunum aftur áður en yfírmað- ur hans missir þolinmæðina og bætir hans eigin haus í safnið. Það reyn- ist nokkurt mál að hafa uppi á læknanemanum sem lendir í ýmsum upp- ákomum með hausana og ekki bætir úr skák að honum helst einkar illa á þeim. Þetta er fin hugmynd í dellufarsa með góðan slurk af gráu gamni en handritið er ekki nógu þétt. Framan af er myndin fremur ófyndin og maður verður fljótt leiður á að sjá leikarana öskra og baða út öllum öng- um. Leikaramir eru ekki þaö góðir að þeir nái að skapa skemmtilegar persónur, fyrir utan kannski Joe Pesci sjálfan sem kann auðvitað þessa rullu utan að. Sem betur fer tekur myndin við sér síðasta hálftímann og verður nógu brengluð og yfirgengileg til að kitla hláturtaugamar. Mað- m- stendur því alla vega ekki óánægður upp. Útgefandi er Bergvík. Leikstjóri Tom Schulman. Aðalhlutverk Joe Pesci. Bandarísk, 1997. Lengd 95 mín. Bönnuð innan 12 ára. -PJ Basil: ★★* Svikamylla Myndin gerist í Englandi á nítjándu öld og segir frá Basil, ungum aðalsmanni sem á mjög strangan föður. Hann kemst í kynni við almúgamanninn Bob Mannion sem hjálpar honum að vinna ástir konu úr kaupmannastétt. Þau giftast á laun en Basil kemst síðan að því að hún er ástkona Bobs og ber bam hans undir belti. Þegar hann síðan segir föður sínum tíðindin er honum fleygt á dyr og stendur uppi allslaus. í ljós kemur að atburðarásin öll er hluti af djöfullegu ráðabruggi Bobs sem rekinn er áfram af hefndar- þorsta. Myndin er byggð á skáldsögu eftir Wilkie Collins sem er vænt- anlega í uppáhaldi hjá Christian Slater. Hann er einn framleiðenda og leikur Bob en er eiginlega svolítið út úr kú í Englandi Viktoríutímans eins amerískur og hann nú er. Fyrir utan hreiminn stendur hann sig þó ágætlega, eins og reyndar flestir leikaramir, en þama er einn þunga- viktarmaðm-, Derek Jacobi, sem ljær myndinni ákveðin atvinnumanns- brag. Sagan er ágæt, svolitið melódramatísk örlagasaga þar sem persón- urnar lenda í miklum hremmingum og ná loks að draga einhvem lær- dóm af. Persónurnar eru sæmilega lifandi þrátt fyrir að vera nokkuð Qarri okkur í tíma og frásögnin verður því aldrei leiðinleg. Útgefandi er Háskólabíó. Leikstjóri Radha Bharadwaj. Aðalhlutverk: Jared Leto, Christian Slater, Derek Jacobi og Claire Forlani. Bresk/bandarísk, 1997. Lengd 98 mín. Bönnuð innan 12 ára. -PJ ★★< Plump Fiction: Útúrsnúningar . *#■ t * u m Síðustu 10-20 árin hefur orðið vinsælt að taka ákveð- in kvikmyndaform fyrir og draga þau sundur og sam- an í háði. Það er löngu búið að taka allar helstu stefh- urnar fyrir og þvi hafa viðfangsefnin verið að þrengj- ast þangað til þau verða bundin við einstakar kvik- myndir. Plump Fiction notast við ramman úr Pulp Fiction og skýtur síðan inn í myndum eins og Reservoir Dogs, NBK, Forrest Gump, Nell, og fleir- um. í staðinn fyrir að gert sé grín að ákveðnum klisjum sem sjást í mynd- um af ákveðinni sort era tekin einstök atriði úr þessum myndum og snúið út úr þeim. Þetta er því í rauninni orðið allt öðravísi grín en það sem við sáum í Top Secret, Airplane, Naked Gun og hvað þetta allt annars heitir. Um leið gerir grínið meiri kröfúr til áhorfandans því að í staðinn fyrir að það nægi að hafa séð nokkrar myndir úr einhveijum ákveðnum geira þarf að hafa séð nákvæmlega þær myndir sem atriðin era tekin úr til að geta haft gaman af gríninu. Plump Fiction er eins ódýr og myndir gerast (þeir nota ekki einu sinni tómatsósu þegar einhver er skotinn) og leikaramir era flestir þriðja flokks. Þó era t.d. NBK- parið og Nell ansi góðar eftirhermur. Myndin er afar misjöfn - hún er á ystu mörkum fáránleikans og mörg at- riði eru bara ófyndið bull en inni á milli komu gullmolar sem fengu mig til að skella upp úr. Hún er alla vega tilbreyting við hefðbundið formúlugrín. Útgefandl er Myndform. Leikstjóri Bob Koherr. Aðalhlutverk: Tommy Davidson, Julie Brown, Sandra Bernhard, Jennifer Rubin og Paul Dinello. Bandarísk, 1997. Lengd 80 mín. Öllum leyfð. -PJ Tomorrow never Dies: Brosnan mætir aftur fji Pierce Brosnan þótti takast vel upp í hlutverki James Bond í Goldeneye. Hann smellpassar i hlut- verk harðjaxlins háttvísa og mun sjálfsagt endast nokkrar myndir í viðbót og eitthvað fram á næstu öld. Mynd númer tvö í valdatíð hans er að vísu mun slappari en sú fyrsta en þar er ekki við Pierce Brosn- an að sakast heldur handritshöfundana. Það vantar einfaldlega eitthvað aukreitis, skemmtilegri persónur, yfirgengilegri hasaratriði eða eitthvað sem lyftir henni upp úr meðalmennskunni. Goldeneye hafði a.m.k. þrjá stórskemmtilega undirskúrka og auðvitað skriðdrekaatriðið óborgan- lega. Tomorrow Never Dies hefur ekkert slíkt, fyrir utan Dr. Kaufmann sem staldrar fremur stutt við. Jonathan Pryce er fínn leikari en nær að- eins að gera aðalskúrkinn rétt rúmlega meðalbrjálaðan. Það sem bjarg- ar myndinni frá því að falla strax í gleymsku er slagsmáladrottningin Michelie Yeoh sem kemur með örlítinn ferskan vindblæ í annars frem- ur staðnaða Bond-mynd. Svo er þetta auðvitað Bond-mynd þannig að hún bara getur ekki verið beinlínis leiðinleg. Útgefandi er Warner myndir. Leikstjóri Roger Spottiswoode. Aðalhlutverk: Pierce Brosnan og Jonathan Pryce. Bandarisk, 1997. Lengd 114 mín. Bönn- uð innan 12 ára. -PJ ;ætiÍ j j FYRRp VIKA 1 gpNMNHif vÍkur Á LISTAÍ i TITILL i j ’ ’j ÚTGEF. i j j TEG. 1 •: Ný { 1 i i Tomorrow Never Dies j .... J SamMyndbönd J j Spenna 2 : -V,J. 2 i SMsaí ' j 2 i mttmm 1 Know What You Did Last Summer MMHHD Skífan i % -. j Spenna 3 1 0 l 1 i 4 1 * j The Game Hásiólabíó Spenna j 4 i i 1 3 ) i i 4 J j In & Out i j Sam Myndbönd Gaman 5 : 5 í 5 i L.A. Confidential WamerMyndir j Spenna : J 6 Í 1 i 4 i - - j 3 i j Alien: Resurection Vv,-. j j Skífan 1 j i Spenna J 7 ) 6 i 3 i j 2 i j Perlur&Svín 9' SamMyndbönd J Gaman 8 j 10 1 ’ ) ) Plump Fiction v J V:v/ry: .. J Myndform j Gaman 9 1 7 ' I 5 > j That Old Feeling CIC Myndbönd j Gaman 10 i j Ný I 1 1 i j 8 Heads in a Duffel Bag i i Bergvík j ;;vv:.V'V lil Spenna ii: 8 j 3 1 0 j Playing God Myndform Spenna j 12 1 j - 1 9 ) j j 9 J j j The Peacemaker J j CIC Myndbönd j Spenna 13 i 13 i 7 í Life Less Ordinary Skrfan J Gaman 4 j » i io ; j 4 i l Face/Off j ) Sam Myndbönd Spenna 15 i i6!; n 'j 15 i She's so Lovely j My Best Friend's Wedding j J Skrfan J Spenna i. i = I - f 10 j j Skrfan ipb - ■••.' wma Gaman 17 JL 17 i 4 i Home Alone 3 Skrfan 1 j Gaman i8 : j Ný i j 1 í J Basil i Háskólabíó j . \ 1 Drama 19 i 19 J 8 í Chasing Amy Skrfan j Gaman 20 ! j 12 i ■ j 7 J J Event Horizon mmmm CIC Myndbönd J Spenna James Bond stendur ávallt fyrir sínu og þaö þarf engum aö koma á óvart aö nýjasta Bond-myndin, Tomorrow never Dies, skuli fara beint í efsta sæti myndbandalistans. Myndin er tilvalin afþreying og heldur öllum viö skerminn meöan á sýningu stend- ur. Aö ööru leyti eru ekki miklar breytingar á listan- um. Þaö þarf aö fara í tíunda sætiö til aö finna aöra nýja mynd, 8 Heads in a Duffel Bag, svarta kómed- íu með Joe Pesci í aöalhlutverki. Leikur hann leigu- moröingja sem þarf aö sanna fyrir mafíuforingja aö hann hafi drepið átta menn og það gerir hann meö því aö skera af þeim hausinn og setja í tösku. Upp kemur stórt vandamál þegar sakleysingi tekur tösk- una sem hann heldur sína. -HK Tomorrow never Dies Pierce Brosnan og Jonathan Price. Styrjöld milli Bret- lands og Kína vofir yfir eftir að kínverskar þot- ur sökkva bresku her- skipi undan strönd Vi- etnams. Þrumu lostnir fulltrúar krúnunnar og hersins spjnja sig hvers vegna í ósköpunum herskipið villtist svona rækilega af leið og hvers vegna Kínveijar brugðust svona harka- lega við? Lausnin á gát- unni er falin í bæki- stöðvum fjölmiðlakon- ungsins Elliots Carvers og aðeins einn maður er fær um að leysa gát- una og koma í veg fyrir stríö. Hann heitir Bond, James Bond. I Know What You Did Last Summer Jennifer Love Hewitt og Sarah Michelle Gellar. Helen, Barry, Julie og Ray eru búin að ljúka prófum og stefha hvert í sína áttina næsta vetur. Öll hafa þau metnað tii að gera stóra hluti í lífinu og stefha hátt. Á þjóðhátíð- ardaginn keyra þau út á afskekkta strönd og skemmta sér þar við drykkju og hryllings- sögur en á leiðinni heim verða þau fyrir því óhappi að keyra á mann sem liggur hreyf- ingarlaus eftir. Þau sjá fyrir sér hneyksli og jafnvel ákærur fyrir manndráp af gáleysi og ölvun við akstur. Þau ákveða því að losa sig við líkið með því að fleygja því i sjóinn. The Game Michael Douglas og Sean Penn. Nicholas Van Orton á 48 ára afmæli. Frá bróður sínum sem hann hefur ekki séö lengi fær hann gjafa- bréf frá CRS-fyrirtæk- inu sem sérhæfir sig í að krydda tilveru manna meö óvæntum uppákomum. Van Orton þiggur gjafabréf- ið en honum finnst hugmyndin það fárán- leg að hann leiðir ekki hugann að henni fyrst um sinn. Smám saman er forvitni hans þó vakin og það endar með því að hann fer í höfuðstöðvar fyrirtæk- isins til að innheimta gjöfina. Þar með tekur líf hans kollsteypu. In & Out Kevin Kline og Joan Cusack. Lífið í smábænum Greenleaf í Indiana gengur sinn vanagang fyrir utan dálitla spennu sem er í loftinu vegna óskarsverð- launafhendingarinnar en einn af sonum bæj- arins er tilnefhdur sem besti leikari. Þegar sá hlýtur verðlaunin þakk- ar hann öllum sem hafa stutt hann, meðal ann- ars gömlum kennara sínum, Howard Beckett, sem hann segir að sé hommi. Howard, sem eins og aðrir bæjarbúar hefur fylgst með út- sendingunni, verður felmtri sleginn, enda hefur hann aldrei verið við karlmann kenndur. Hann reynir hvað hann getur til að koma í veg fyrir þennan misskiln- ing sem veldur miklu írafári í heimabæ hans. L.A. Confid- ential Kevin Spacey og Russell Crowe. Hrottalegt morð er framið inni á litlum veitingastað og í ljós kemur að einn hinna myrtu er lögreglumað- ur. Hvað hann var að gera þama er félaga hans i lögreglunni, Bud White, hulin ráð- gáta enda bendir allt til þess aö hann hafi verið flæktur í eitt- hvert glæpsamlegt at- hæfi. Bud ákveður því að hefja rannsókn á málinu upp á eigin spýtur og kemst fljót- lega að því að þar með er hann búinn að stinga sér út í lífs- hættulegt hyldýpi svika og moröa þar sem enginn er óhultur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.