Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.1998, Qupperneq 12
26
íyndbönd
3
MYNDBANDA
&
8 Heads in a Duffel Bag:
Hausaveiðar
Mafíósinn Tommy Spinelli þarf að fljúga til Kali-
fomíu með átta hausa í handtöskunni til að sanna fyrir mafíuforingja
þar að mennirnir hafi verið myrtir. Hann lendir í töskurugli og klaufa-
legur læknanemi fer með kæmstu sinni og foreldrum hennar til Mexíkó
með töskuna hans. Hann verður að ná hausunum aftur áður en yfírmað-
ur hans missir þolinmæðina og bætir hans eigin haus í safnið. Það reyn-
ist nokkurt mál að hafa uppi á læknanemanum sem lendir í ýmsum upp-
ákomum með hausana og ekki bætir úr skák að honum helst einkar illa
á þeim. Þetta er fin hugmynd í dellufarsa með góðan slurk af gráu gamni
en handritið er ekki nógu þétt. Framan af er myndin fremur ófyndin og
maður verður fljótt leiður á að sjá leikarana öskra og baða út öllum öng-
um. Leikaramir eru ekki þaö góðir að þeir nái að skapa skemmtilegar
persónur, fyrir utan kannski Joe Pesci sjálfan sem kann auðvitað þessa
rullu utan að. Sem betur fer tekur myndin við sér síðasta hálftímann og
verður nógu brengluð og yfirgengileg til að kitla hláturtaugamar. Mað-
m- stendur því alla vega ekki óánægður upp.
Útgefandi er Bergvík. Leikstjóri Tom Schulman. Aðalhlutverk Joe Pesci.
Bandarísk, 1997. Lengd 95 mín. Bönnuð innan 12 ára. -PJ
Basil: ★★*
Svikamylla
Myndin gerist í Englandi á nítjándu öld og segir
frá Basil, ungum aðalsmanni sem á mjög strangan
föður. Hann kemst í kynni við almúgamanninn Bob
Mannion sem hjálpar honum að vinna ástir konu úr
kaupmannastétt. Þau giftast á laun en Basil kemst
síðan að því að hún er ástkona Bobs og ber bam
hans undir belti. Þegar hann síðan segir föður sínum tíðindin er honum
fleygt á dyr og stendur uppi allslaus. í ljós kemur að atburðarásin öll er
hluti af djöfullegu ráðabruggi Bobs sem rekinn er áfram af hefndar-
þorsta. Myndin er byggð á skáldsögu eftir Wilkie Collins sem er vænt-
anlega í uppáhaldi hjá Christian Slater. Hann er einn framleiðenda og
leikur Bob en er eiginlega svolítið út úr kú í Englandi Viktoríutímans
eins amerískur og hann nú er. Fyrir utan hreiminn stendur hann sig þó
ágætlega, eins og reyndar flestir leikaramir, en þama er einn þunga-
viktarmaðm-, Derek Jacobi, sem ljær myndinni ákveðin atvinnumanns-
brag. Sagan er ágæt, svolitið melódramatísk örlagasaga þar sem persón-
urnar lenda í miklum hremmingum og ná loks að draga einhvem lær-
dóm af. Persónurnar eru sæmilega lifandi þrátt fyrir að vera nokkuð
Qarri okkur í tíma og frásögnin verður því aldrei leiðinleg.
Útgefandi er Háskólabíó. Leikstjóri Radha Bharadwaj. Aðalhlutverk: Jared
Leto, Christian Slater, Derek Jacobi og Claire Forlani. Bresk/bandarísk,
1997. Lengd 98 mín. Bönnuð innan 12 ára. -PJ
★★< Plump Fiction:
Útúrsnúningar
. *#■
t *
u m
Síðustu 10-20 árin hefur orðið vinsælt að taka ákveð-
in kvikmyndaform fyrir og draga þau sundur og sam-
an í háði. Það er löngu búið að taka allar helstu stefh-
urnar fyrir og þvi hafa viðfangsefnin verið að þrengj-
ast þangað til þau verða bundin við einstakar kvik-
myndir. Plump Fiction notast við ramman úr Pulp Fiction og skýtur síðan
inn í myndum eins og Reservoir Dogs, NBK, Forrest Gump, Nell, og fleir-
um. í staðinn fyrir að gert sé grín að ákveðnum klisjum sem sjást í mynd-
um af ákveðinni sort era tekin einstök atriði úr þessum myndum og snúið
út úr þeim. Þetta er því í rauninni orðið allt öðravísi grín en það sem við
sáum í Top Secret, Airplane, Naked Gun og hvað þetta allt annars heitir.
Um leið gerir grínið meiri kröfúr til áhorfandans því að í staðinn fyrir að
það nægi að hafa séð nokkrar myndir úr einhveijum ákveðnum geira þarf
að hafa séð nákvæmlega þær myndir sem atriðin era tekin úr til að geta
haft gaman af gríninu. Plump Fiction er eins ódýr og myndir gerast (þeir
nota ekki einu sinni tómatsósu þegar einhver er skotinn) og leikaramir era
flestir þriðja flokks. Þó era t.d. NBK- parið og Nell ansi góðar eftirhermur.
Myndin er afar misjöfn - hún er á ystu mörkum fáránleikans og mörg at-
riði eru bara ófyndið bull en inni á milli komu gullmolar sem fengu mig til
að skella upp úr. Hún er alla vega tilbreyting við hefðbundið formúlugrín.
Útgefandl er Myndform. Leikstjóri Bob Koherr. Aðalhlutverk: Tommy Davidson, Julie
Brown, Sandra Bernhard, Jennifer Rubin og Paul Dinello. Bandarísk, 1997. Lengd 80
mín. Öllum leyfð. -PJ
Tomorrow never Dies:
Brosnan mætir aftur fji
Pierce Brosnan þótti takast vel upp í hlutverki
James Bond í Goldeneye. Hann smellpassar i hlut-
verk harðjaxlins háttvísa og mun sjálfsagt endast
nokkrar myndir í viðbót og eitthvað fram á næstu
öld. Mynd númer tvö í valdatíð hans er að vísu mun
slappari en sú fyrsta en þar er ekki við Pierce Brosn-
an að sakast heldur handritshöfundana. Það vantar einfaldlega eitthvað
aukreitis, skemmtilegri persónur, yfirgengilegri hasaratriði eða eitthvað
sem lyftir henni upp úr meðalmennskunni. Goldeneye hafði a.m.k. þrjá
stórskemmtilega undirskúrka og auðvitað skriðdrekaatriðið óborgan-
lega. Tomorrow Never Dies hefur ekkert slíkt, fyrir utan Dr. Kaufmann
sem staldrar fremur stutt við. Jonathan Pryce er fínn leikari en nær að-
eins að gera aðalskúrkinn rétt rúmlega meðalbrjálaðan. Það sem bjarg-
ar myndinni frá því að falla strax í gleymsku er slagsmáladrottningin
Michelie Yeoh sem kemur með örlítinn ferskan vindblæ í annars frem-
ur staðnaða Bond-mynd. Svo er þetta auðvitað Bond-mynd þannig að
hún bara getur ekki verið beinlínis leiðinleg.
Útgefandi er Warner myndir. Leikstjóri Roger Spottiswoode. Aðalhlutverk:
Pierce Brosnan og Jonathan Pryce. Bandarisk, 1997. Lengd 114 mín. Bönn-
uð innan 12 ára. -PJ
;ætiÍ j j FYRRp VIKA 1 gpNMNHif vÍkur Á LISTAÍ i TITILL i j ’ ’j ÚTGEF. i j j TEG.
1 •: Ný { 1 i i Tomorrow Never Dies j .... J SamMyndbönd J j Spenna
2 : -V,J. 2 i SMsaí ' j 2 i mttmm 1 Know What You Did Last Summer MMHHD Skífan i % -. j Spenna
3 1 0 l 1 i 4 1 * j The Game Hásiólabíó Spenna
j 4 i i 1 3 ) i i 4 J j In & Out i j Sam Myndbönd Gaman
5 : 5 í 5 i L.A. Confidential WamerMyndir j Spenna
: J 6 Í 1 i 4 i - - j 3 i j Alien: Resurection Vv,-. j j Skífan 1 j i Spenna
J 7 ) 6 i 3 i j 2 i j Perlur&Svín 9' SamMyndbönd J Gaman
8 j 10 1 ’ ) ) Plump Fiction v J V:v/ry: .. J Myndform j Gaman
9 1 7 ' I 5 > j That Old Feeling CIC Myndbönd j Gaman
10 i j Ný I 1 1 i j 8 Heads in a Duffel Bag i i Bergvík j ;;vv:.V'V lil Spenna
ii: 8 j 3 1 0 j Playing God Myndform Spenna
j 12 1 j - 1 9 ) j j 9 J j j The Peacemaker J j CIC Myndbönd j Spenna
13 i 13 i 7 í Life Less Ordinary Skrfan J Gaman
4 j » i io ; j 4 i l Face/Off j ) Sam Myndbönd Spenna
15 i i6!; n 'j 15 i She's so Lovely j My Best Friend's Wedding j J Skrfan J Spenna
i. i = I - f 10 j j Skrfan ipb - ■••.' wma Gaman
17 JL 17 i 4 i Home Alone 3 Skrfan 1 j Gaman
i8 : j Ný i j 1 í J Basil i Háskólabíó j . \ 1 Drama
19 i 19 J 8 í Chasing Amy Skrfan j Gaman
20 ! j 12 i ■ j 7 J J Event Horizon mmmm CIC Myndbönd J Spenna
James Bond stendur ávallt fyrir sínu og þaö þarf
engum aö koma á óvart aö nýjasta Bond-myndin,
Tomorrow never Dies, skuli fara beint í efsta sæti
myndbandalistans. Myndin er tilvalin afþreying og
heldur öllum viö skerminn meöan á sýningu stend-
ur. Aö ööru leyti eru ekki miklar breytingar á listan-
um. Þaö þarf aö fara í tíunda sætiö til aö finna aöra
nýja mynd, 8 Heads in a Duffel Bag, svarta kómed-
íu með Joe Pesci í aöalhlutverki. Leikur hann leigu-
moröingja sem þarf aö sanna fyrir mafíuforingja aö
hann hafi drepið átta menn og það gerir hann meö
því aö skera af þeim hausinn og setja í tösku. Upp
kemur stórt vandamál þegar sakleysingi tekur tösk-
una sem hann heldur sína. -HK
Tomorrow
never Dies
Pierce Brosnan og
Jonathan Price.
Styrjöld milli Bret-
lands og Kína vofir yfir
eftir að kínverskar þot-
ur sökkva bresku her-
skipi undan strönd Vi-
etnams. Þrumu lostnir
fulltrúar krúnunnar og
hersins spjnja sig hvers
vegna í ósköpunum
herskipið villtist svona
rækilega af leið og
hvers vegna Kínveijar
brugðust svona harka-
lega við? Lausnin á gát-
unni er falin í bæki-
stöðvum fjölmiðlakon-
ungsins Elliots Carvers
og aðeins einn maður
er fær um að leysa gát-
una og koma í veg fyrir
stríö. Hann heitir Bond,
James Bond.
I Know What
You Did Last
Summer
Jennifer Love
Hewitt og Sarah
Michelle Gellar.
Helen, Barry, Julie
og Ray eru búin að
ljúka prófum og stefha
hvert í sína áttina
næsta vetur. Öll hafa
þau metnað tii að gera
stóra hluti í lífinu og
stefha hátt. Á þjóðhátíð-
ardaginn keyra þau út
á afskekkta strönd og
skemmta sér þar við
drykkju og hryllings-
sögur en á leiðinni
heim verða þau fyrir
því óhappi að keyra á
mann sem liggur hreyf-
ingarlaus eftir. Þau sjá
fyrir sér hneyksli og
jafnvel ákærur fyrir
manndráp af gáleysi og
ölvun við akstur. Þau
ákveða því að losa sig
við líkið með því að
fleygja því i sjóinn.
The Game
Michael Douglas og
Sean Penn.
Nicholas Van Orton
á 48 ára afmæli. Frá
bróður sínum sem
hann hefur ekki séö
lengi fær hann gjafa-
bréf frá CRS-fyrirtæk-
inu sem sérhæfir sig í
að krydda tilveru
manna meö óvæntum
uppákomum. Van
Orton þiggur gjafabréf-
ið en honum finnst
hugmyndin það fárán-
leg að hann leiðir ekki
hugann að henni fyrst
um sinn. Smám saman
er forvitni hans þó
vakin og það endar
með því að hann fer í
höfuðstöðvar fyrirtæk-
isins til að innheimta
gjöfina. Þar með tekur
líf hans kollsteypu.
In & Out
Kevin Kline og
Joan Cusack.
Lífið í smábænum
Greenleaf í Indiana
gengur sinn vanagang
fyrir utan dálitla
spennu sem er í loftinu
vegna óskarsverð-
launafhendingarinnar
en einn af sonum bæj-
arins er tilnefhdur sem
besti leikari. Þegar sá
hlýtur verðlaunin þakk-
ar hann öllum sem hafa
stutt hann, meðal ann-
ars gömlum kennara
sínum, Howard Beckett,
sem hann segir að sé
hommi. Howard, sem
eins og aðrir bæjarbúar
hefur fylgst með út-
sendingunni, verður
felmtri sleginn, enda
hefur hann aldrei verið
við karlmann kenndur.
Hann reynir hvað hann
getur til að koma í veg
fyrir þennan misskiln-
ing sem veldur miklu
írafári í heimabæ hans.
L.A. Confid-
ential
Kevin Spacey og
Russell Crowe.
Hrottalegt morð er
framið inni á litlum
veitingastað og í ljós
kemur að einn hinna
myrtu er lögreglumað-
ur. Hvað hann var að
gera þama er félaga
hans i lögreglunni,
Bud White, hulin ráð-
gáta enda bendir allt
til þess aö hann hafi
verið flæktur í eitt-
hvert glæpsamlegt at-
hæfi. Bud ákveður því
að hefja rannsókn á
málinu upp á eigin
spýtur og kemst fljót-
lega að því að þar með
er hann búinn að
stinga sér út í lífs-
hættulegt hyldýpi
svika og moröa þar
sem enginn er óhultur.