Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.1998, Síða 2
FÖSTUDAGUR 26. JÚNÍ 1998
i6 kyikmyndir
Titanic ★★★★
Stórbrotin og ákaflega gefandi kvikmynd. Af
miklum fitonskrafti tókst James Cameron
a5 koma heilli í höfn dýrustu kvikmynd sem
gerö hefur veriö. Fullkomnunarárátta
Camerons skilar sér í eðlilegri sviðsetningu
sem hefur á sér mikinn raunsæisblæ. Leon-
ardo DiCaprio og Kate Winslet eru eftir-
minnileg í hlutverkum elskendanna. -HK
The Assignment ★★★i
Leikstjórnin er til fyrirmyndar og handritiö að
sama skapi vandaö. TTmi er tekinn til að leyfa
persónunum aö mótast og fyrir vikiö veröa þær
trúveröugri. Aidan Quinn túlkar þá breytingu
sem verður á Ramirez í gervi Cariosar af mik-
illi leikni og Sutherland hefur ekki verið jafn
sannfærandi árum saman. -ge
Mouse Hunt ★★★
Músaveiöamynd sem segir frá vitgrönnu
bræörunum Smuntz sem erfa snæraverk-
smiöju og niðurnítt hús (með mús) eftir föö-
ur sinn. Sjálf músin er aöalhetja myndarinn-
ar þar sem hún klífur og stekkur og sveiflar
sér af mikilll fimi og hugrekki um húsiö, sigr-
ast bæöi á banvænum ketti og meindýra-
eyöi og hvomsar í slg kilói af osti án þess
aö svo mikiö sem gildna um miöbikið. -úd
Mad City ★★★
Sterk kvikmynd um það hvernig fjölmiölar
búa til stórfrétt. Þótt deila megi um aö
gíslatakan í myndinni geti staðiö yfir í þrjá
sólarhringa kemur það ekki aö sök. Costa-
Gavras hefur styrka stjórn á því sem hann
er fjalla um og hefur ekki gert betri kvik-
mynd í mörg ár. Dustin Hoffman og John
Travolta eru öryggiö uppmálaö í aöalhlut-
verkunum. -HK
Piparkökukallinn ★★★
Frá Robert Altman koma alltaf athyglisverö-
ar kvikmyndir og þótt Piparkökukallinn sé
ekki meistarverk á borö viö MASH, Nas-
hville, The Player og Short Cut, þá er hér
um afar athyglisverða sakamálamynd aö
ræöa sem hefur áhugaveröan söguþráö og
góöan leikarahóp sem stendur vel fyrir
sýnu. -HK
Scream 2 ★★★
Þó Scream 2 nái ekki þeirri snilld sem 1 átti
þá held ég aö ég geti ekki annað en kallað
þetta þriggja stjörnu hrollvekjuskemmtun.
Eftir magnaöa byrjun fór Scream 2 of hægt
af staö en síðan tók hún kipp og brunaði af
staö og hélt uppi þessari líka fínu spennu,
án þess aö slaka á drepfyndnum hroll-vís-
ununum og skildi viö áhorfandann ánægju-
lega hrylltan. -úd
The Big Lebowski ★ *•
Yfirhöfuö er The Big Lebowski hlaöin
ánægjulegum senum og smáatriðum eins
og við mátti búast frá þessu teymi. Jeff
Bridges er ákaflega viöeigandi lúði i hlut-
verki sínu sem hinn „svali" og algerlega
áhyggjulausi Lebowski og John Goodman
sömuleiöis góður sem bilaöur uþþgjafa Vi-
etnamhermaður. -úd
Deep Impact HHH
Vel gerö og áhrifamikll kvikmynd þar sem
fjallaö er um einhverja mestu hættu sem
vofir yfir okkur, að halastjarna taki upp á því
að rekast á jöröina. Myndin er góð skemmt-
un en um leið setur að áhorfandanum létt-
an broll. -HK
Búálfarnir ★★★
Búálfar eru varkárir og láta litiö fyrir sér fara
því ef þeir sjást eru þeir klesstir af mann-
eskjunum sem taka þá fýrir mýs eöa önnur
meindýr. Sjónræn útfærsla er sérlega snjöll
þar sem kunnuglegir smáhlutir i nýjum hlut-
verkum flugu svo hratt hjá aö maður mátti
hafa sig alla við aö fylgiast meö, sjónræn
velsla, hraöi og húmor. Ómissandi fyrir álfa
og fólk af öllum stæröum. -úd
Anastasía ★★
Sagan af týndu prinsessunni Anastasíu er
hreinn ævintýramatur. Myndin einkenndist öll
af hugmyndaríki og hélt gamlinganum mér
uppteknum allan b'mann, þrátt fyrir fremur leiö-
inlega músik, sem virðist skylda í skemmtiefnl
af þessu tagi. Fyrir utan smáhroll yfir söguskýr-
ingum fannst mér Anastasia hin besta
skemmtun og meö betri teiknimyndum sem
ég hef séð lengi. -úd
Litla hafmeyjan ★★★
Teiknimyndir Walts Disneys eru klassiskar
og þegar ný kynslóð rís eru þær settar á
markaöinn á ný og er ekkert annaö en gott
um þaö aö segja. Litla hafmeyjan kom meö
ferskan blæ inn í þetta kvikmyndaform eftir
aö teiknimyndir í fullri lengd höföu verið í
lægö um nokkurt skeiö og hún á fullt erindi
enn til ungu kynslóöarinnar. íslenska tal-
setningin er vel heppnuð. -HK
Það gerist ekki betra
Framan af er As Good as It Gets eins góð og
gamanmyndir gerast. Samræöurnar einkenn-
ast af óvenjumikilli hnyttni, leikurinn er meö
ólikindum og handritshöfundunum Andrus og
Brooks tekst aö stýra fram hjá helstu gildrum
formúlufræöanna, Það var mér þvi til mikilla
vonbrigöa þegar myndin missti flugið eftir hlé.
Lelkurinn var enn til fyrirmyndar en þær fiör-
miklu og óvenjulegu persónur sem kynntar
voru til sögunnar í upphafi fengu ekki svigrúm
til þess að vaxa. -ge
Six Days, Six Nights
Fremur hugmyndasnauð en þó skemmtlleg
rómantísk gamanmynd sem gerist í fallegu
umhverfi á eyjum i Kyrrahafinu. Myndinni er
haldið er uppi af góöum leik aðalleikaranna
Harrison Fords og Anne Heche, sem ná ein-
staklega vel saman, Aörir leikarar standa
sig ágætlega en hverfa f skuggan af gnei-
standi samleik Fords og Heche. -HK
Mr. Nice Guy í Laugarásbíói:
Sjónvarpskokkurinn
Jackie Chan
í dag frumsýnir Laugarásbíó
nýjustu kvikmynd slagsmála-
leikarans Jackie Chan, Mr. Nice
Guy. í henni leikur Chan vin-
sælan sjónvarpskokk sem lendir
í klónum á miskunnarlausum
eiturlyfjasölum, sem halda að
hann lumi á myndbandi þar
sem sjást aðferðir þeirra. Að
sjálfsögðu er þetta allt byggt á
misskilningi. Það vill svo til að
óreyndur fréttamaður, ung og
falleg stúlka, náði aðgerðum
glæpamannanna á myndband.
Þegar Jackie Chan lendir óvænt
í hringiðu atburða þar sem
skúrkarnir eru að þjarmna að
ungu stúlkunni hagar hann sér
eins og sannur skáti og kemur
stúlkunni til hjálpar. í látunum,
sem fylgja víxlast spólur og
Jackie Chan tekur óvart með
sér heim spóluna sem stúlkan
var með og fréttahaukurinn
ungi er með spólu þar sem
Jackie Chan sýnir hvernig búa
eigi til pasta. Til að gera vanda-
mál Chan enn stærri hafa keppi-
nautar skúrkanna komist á snoðir
um myndbandið og því þarf okkar
maður að berjast við tvær glæp-
aklíkur.
Jackie Chan er orðinn nokkuð
vinsæll í Bandaríkjunum og gat þvi
fengið það í gegn að besti vinur
hans og lærifaðir Samo Hung fengi
að leikstýra Mr. Nice Guy, en hann
hefur leikstýrt Chan í sjö kvik-
myndum, sem gerðar voru í Hong
Kong. Að sjálfsögðu mæðir mest á
Jackie Chan í Mr. Nice Guy, en
meðal annarra leikara má nefna
Richard Norton, Miki Lee, Gabrielle
Fitzpatrick, Barry otto og Peter
Houghton.
Þegar Jackie Chan hafði feng-
ið það í gegn að Samo Hung
fengi að leikstýra Mr. Nice
Guy, settust þeir félagar
saman til borðs og fóru að
semja uppdrátt af sögunni.
Þeim kom saman um að
Jackie Chan væri búinn að
Jackie Chan á ekki í
vandræöum þótt
andstæðing-
arnir séu
tveir.
Slagsmál á slagsmál ofan er eitt helsta aðdráttarafl kvikmynda Jackie Chan.
leika svo margar löggur að gott
væri fyrir hann að leika algjöra
mótsögn og þannig varð sjónvarpsk-
kokkurinn til, fannst þeim félögum
að með þessu væri hægt að finna
betri flöt fyrir húmorinn í mynd-
inni. Kokkurinn
sem í
mynd-
inni heit-
ir Jackie
hefur þó
alltaf átt
sér þann
draum að verða lögga, en faðir hans
hafði harðbannað honum það„
Upphaflega átti að gera Mr. Nice
Guy i New York, þar sem sagan ger-
ist, en horfið var frá því vegna
kostanaðr og Melboume valin í
staðinn og er þess vegna nokkrir
ástralskir leikarar í myndinni, með-
al annars Richard Norton sem áður
hefur unnið með Jackie Chan og
hefur auk þess að starfa sem leikari
verið lífvörður á tónleikaferðalög-
um hjá ekki ómerkari poppurum,
en Paul McCartney, The Rolling
Stones, Joe Cocker, David
Bowie, Stevie
Nicks, James
Taylor
Lindu
stadt.
-HK
og
Ron-
Peter
Fonda
á góðu skriði
Eftir að hafa slegið i gegn
eftir margra ára Qarveru frá
sviðsljósinu er Peter Fonda
oröinn eftirsóttur á ný. Það
má hann þakka góðri frammi-
stöðu í Ulee’s Gold en hann
fékk óskarstilnefningu fyrir
leik sinn í þeirri mynd og
hlaut Golden Globe-verðlaun-
in. Fonda er nú tekinn til við
að leika í Keeping Time, róm-
antísku drama sem
Christopher Young (Young
Guns) leikstýrir. Leikur
Fonda lögfræðing sem hittir
gamla kærustu við óvenjuleg-
ar aðstæður. Helsti mótleikari
Fonda í Keeping Time er
Brenda Blethyn (Secret and
Lies).
Dóttir
hershöfðingjans
John Travolta er einn eftir-
sóttasti leikari í heiminum í
dag og hef-
ur úr mörg-
um handrit-
um að velja.
Það hefur
nú verið
gert opin-
bert að
hann muni leika lögreglu-
mann í þjónustu hersins sem
fenginn er til að rannsaka
morðmál í The General’s
Daughter. Mótleikarar hans
eru Timothy Hutton og Leslie
Stefanson. Leikstjóri er
Simon West.
Tvöfalt laumuspil
Ástralski leikstjórinn
Bruce Beresford hefur gert
margar ágætar kvikmyndir
en ekki kvikmynd sem náð
hefur almennum vinsældum
frá því hann gerði Driving
Miss Daisy. Kannski verður
breyting á þar sem hann hef-
ur fengið einn vinsælasta
leikarann í Hollywood,
Tommy Lee Jones, til að leika
aðalhlutverkið i Double Jeop-
ardy, sem hann er að fara að
leikstýra. Um er að ræða
mynd sem fjallar um eigin-
mann sem setur á svið eigið
morð og kemur því þannig
fyrir að eiginkona hans er
ákærð fyrir morðið. Jones
mun leika lögreglumann sem
telur að eitthvað óhreint sé í
pokahominu. Aðrir leikarar
em Ashley Judd, Annabeth
Gish og Roma Mafia.
KviKMYitna
BWil
Hard Rain gerist í smábæn-
um Huntingburg í Bandaríkj-
unum. Miklar rigningar hafa
skapað neyðarástand og lögregla bæjarins
er önnum kafin við að koma íbúunum á
brott vegna flóðahættu. Tom (Christian
Slater) er öryggisvörður sem starfar við
peningaflutninga ásamt félaga sínum
Charlie (Edward Asner). Glæpagengi und-
ir stjóm Jims (Morgan Freemóm) reynir
að notfæra sér flóðin með það í hyggju að
komast yfir peningasendingarnar. Þeir
drepa Charlie. Tom kemst undan á flótta
en hann felur þó peningana áður. Hundelt-
ur af glæpamönnunum heldur hann til
smábæjarins og bófamir elta á bátum.
Lögreglustjóri bæjarins (Randy Quaid)
kemur Tom til hjálpar og hann kynnist
auk þess listakonunni Karen (Minnie Dri-
ver) sem vinnur við að uppgera gamla
kirkju. í Huntingburg fara átökin fram og
vatnið heldur áfram að hækka. Bófarnir
eru ekki eina hættan því að stíflan fyrir
ofan bæinn er komin að því að bresta.
Regnboginn- HardRain:
FlóJií
Hard Rain er dæmigerð formúlumynd
og lítið um frumlega spretti í frásagnar-
fléttunni. Hún átti þó ekki skilið þau
hörðu viðbrögð sem hún hlaut frá banda-
rískum gagnrýnendum í vor. Hér er á
ferðinni sæmilegasta afþreying með mörg-
um vel útfærðum spennuatriðum. Hand-
ritið er skrifað af Graham Yost sem þekkt-
astur er fyrir Speed og vissulega má sjá
hliðstæður með frásögnunum þótt Hard
Rain standi þeirri fyrrnefndu langt að
baki. Vegna þess hve persónurnar eru flat-
ar eiga leikararnir svolítið erfitt með að
lifa sig inn í hlutverkin. Freeman er ekki
sannfærandi í hlutverki sínu sem geð-
þekkt illmenni og Driver á vart heima í
myndinni. Sá eini sem er í essinu sínu er
Randy Quaid en hann er reyndar góður í
öllu.
Leikstjóri: Mikael Salomon. Aðalhlut-
verk: Morgan Freeman, Christian Slater,
Randy Quaid, Minnie Driver og Edward
Asner.
Guðni Elísson