Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.1998, Blaðsíða 11
L>V FÖSTUDAGUR 26. JÚNÍ 1998
tónlist 25
Beach Boys í röndóttum skyrtum
1964.
sömdu líka einhver lög sjálfir,
héldu áfram að spila á tónleikum
og gáfu út plötur við takmarkaða
hrifningu umheimsins. Þeir voru
ekki mjög fmn pappír á hippaár-
unum, þóttu hallærislegir, þó þeir
reyndu eftir bestu getu að aðlag-
ast; létu hár sitt vaxa, aðhylltust
speki austurlenskra gúrúa og
fluttu friðarboðskap. í tilefni plötu
árið 1976 náði niðurlæging Brians
hámarki með herferðinni „Brian
is back“. Hann lét hafa sig út í það
í grínþættinum „Saturday Night
Live“ að vera tekinn úr rúminu af
„brimlögreglunni" og skipað að
fara á brimbretti. Akfeitur, grá-
skeggjaður og í annarlegu ástandi
sést þessi meistari á náttsloppnum
renna sér á maganum í öldumar
með angistar- og smánarsvip í
andlitinu. Konungur brimbretta-
rokksins hafði aldrei komið á
brimbretti áður. Ekkert gekk hjá
Beach Boys fyrr en á níunda ára-
tugnum á tímum Reagan-stjórnar-
innar. Þá voru þeir orðnir „All
American Band“ og að flla þá með
nostalgíuglampa í augum stappaði
þjóðrækni næst. Þeir léku gömlu
lögin hans Brians á risatónleikum
en sjálfur var hann einhvers stað-
ar í félagsskap með ruslaralýð;
gjörsamlega týndur i lífinu. Hann
lét þó undan þrýstingi og leitaði
ásjár hjá vafasömum geðlækni, dr.
Landy, sem hafði gert kraftaverk
með fallnar stjörnur. Doktorinn
fór með Brian til Hawaii þar sem
hann var þurrkaður upp við
Niöurlæging: „brimlöggan" tekur
Brian Wilson í rúminu.
heraga. Þó líkamsvöxtur Brians
tæki á sig betri mynd var hann þó
alltaf jafnlítill í sér og ósjáifstæð-
ur. Hann tók takmarkalausu ást-
fóstri við Landy sem notaði frægð
hans í eign þágu. Undir hand-
leiðslu læknisins gerði Brian nýja
sólóplötu árið 1988, „Brian Wil-
son“ - ágæta plötu en langt frá
fyrri snilld. Platan seldist lítið og
hvarf í skuggann þvi á sama tima
komu Beach Boys, án hjálpar Bri-
ans, með lagið „Kokomo“. Það
varð geysivinsælt eftir að það var
notað í myndinni „Cocktail“;
stærsti smellur sveitarinnar síðan
„Good Vibrations" kom út 22
árum áður.
Sólin skín á ný
Brian og Landy héldu áfram að
vinna saman, gerðu plötuna
„Sweet Insanity" sem kom þó
aldrei út því plötufyrirtækinu þótti
hún ekki frambærileg. Ofurtaki
geðlæknisins var létt með lögboði
þegar aðstandendum Brians þótti
loks nóg um. Tíundi áratugurinn
hefur gengið ágætlega hjá honum.
Hann giftist og þau hjónin hafa
ættleitt tvö börn en af fyrra hjóna-
bandi á Brian tvær dætur sem hafa
getið sér gott orð í tónlistarheimin-
um með eigin tónlist. Gerð var um
hann heimildarmyndin „I just
Wasn’t Made for These Times“ og
samhliða henni plata með gömlum
lögmn í nýjum útgáfum. Eins og
áður segir kom svo nýlega út ný
sólóplata, „Imagination", sem
hann vann í heimahljóðveri í Illi-
nois ásamt Joe Thomas hljóð-
manni. Útkoman er ágæt, nýju lög-
in fallegt popp með gæðastimpli
Brians en áferðin kannski fullslíp-
uð; með framsæknari aðstoðar-
mönnum og framsæknari heildar-
hugsun hefði platan getað orðið
mun betri. Síðasta lagið á plötunni
heitir „Happy Days“ sem Brian
segir að sé um að fara til heljar en
koma aftur til baka. Sólin virðist
skína í lífi Brians á ný. Saga Bri-
ans Wilsons er saga velgengni,
mótlætis og bældrar snilligáfu.
Dennis Wilson drukknaöi árið 1983
og nýlega féll Carl fyrir krabba-
meini. Brian er því orðinn einn eft-
ir og segja má að sögu Beach Boys
sé lokið. Að Brian komi einhvem
tímann með verk sem jafnast á við
meistaraverkin sem hann gerði á -
sjöunda áratugnum er ólíklegt en
aðdáendur hans leyfa sér að lifa í
voninni.
-glh
Vinsælar bíóplötur:
Englar, gúmmíeðla
og sítt að aftan
Það er alltaf að færast í vöxt að
plötur með tónlist og lögum úr bíó-
myndum verði vinsælar og er
Titanic-platan auðvitað skýrasta
dæmið. Nýlega voru best seldu
plötur Bandaríkjanna einmitt
tvær bíóplötur, úr City of Angels
og Godzilla. Tónlistin úr The
Wedding Singer hefur einnig verið
vinsæl hér á landi og erlendis, í
Bandaríkjunum hefur platan selst
í yfir milljón eintökum og hefur
verið að dóla sér á topp 100 í tæp-
lega 20 vikur.
Grátbólgnir englar
Tónlistin í City of Angels undir-
strikar sitt rómantíska englainn-
ræti. Hér er farin sú leið að bjóða
upp á glæný lög með vinsælum
flytjendum og gömul englatengd
lög. Líklega þykir Kananum mest
til nýs lags með Alanis Morissette
koma, hún hefur orðið hálfgert
skurðgoð eftir vinsældir „Jagged
Little Pill“ en hér mætir hún -
kannski ekki í sínu besta formi -
með uppsprengt fiðlulag og stutt í
vota hvarma. Peter
Gabriel er metnaðarfull-
ur að vanda og samur við
sig með átta mínútna
hrútleiðinlegt nýaldar-
jarm. Ekki eins tilgerðar-
leg eru lögin með Goo-
GooDolls og Jade, ágæt
ný lög þar og Eric
Clapton, Jimi Hendrix,
John Lee Hooker, Sarah
McLachlan, U2 og Paula
Cole leggja áður útkomin
og fín lög í púkkið. I lok
piötunnar koma svo sýn-
ishorn af ágætri kvik-
myndatónlist Gabriels
Yareds.
Dinnertónlist fyrir
hungraða eðlu
Öllu rokkaðri er tón-
listin i hinni yfirvofandi
stórmynd um gúmmíeðl-
una Godzilla og allar upp-
tökur nýjar og sérgerðar
fyrir myndina. The Wall-
flowers byrjar á enn einni útgáf-
unni af Bowie/Eno-smellinum
„Heroes“ - litlaus útgáfa þar - en
strax á eftir er tíðrætt samstarfs-
verkefni rappgúrúsins Puffs
Daddys og Jimmys Page, verk-
smiðjuframleiðsla á nokkrum Led
Zeppelin-riífum sem er blandað
saman við niðursuðudollutakt og
margtuggið rapptaut af færibandi.
Þeir Led Zeppelin-aðdáendur sem
eru ekki þegar orðnir gráhærðir
Godzilla *
ættu að verða það eftir að hafa
heyrt þessa hörmung. í kjölfarið á
þessari lélegu byrjun koma ný
rokklög í kippum og í svona rám-
dýrri Hollywood-framleiðslu má
ekki búast við nýjungum eða
frumlegri hugsun, enda vænleg-
ast að fylgja margtroðinni
rokkslóð og dæla dölum í dæmið
svo allt glansi af fágun og hvergi
glitti í saumana. Hér er allt alltof
smurt og skínandi, rokkið klisjur
á klisjur ofan og næsta tilgangs-
laust að hlusta á þetta án þess að
hafa eðluna fyrir augunum.
Stærstu nöfnin eru Jamiroquai,
Rage Against the Machine, Foo
Fighters og Green Day sem gera
snyrtilegt skrímslamix af gamla
laginu „Brain Stew“ og fá eðluna
til að hrína með. Ben Folds Five,
Fuel, Days of the New, Sil-
verchair, Michael Penn og Fuzz-
bubble eru líka með og rokka vél-
rænt undir á meðan Godzilla
ryðst áfram og étur fólk og fim-
indi í Dolby og Cinemascope. Líkt
og á City of Angels-plötunni end-
ar þessi á kvikmyndatónlist, í
þetta skiptið eftir David Arnold
sem er eins og annað á þessari
plötu klisja.
Hlægilegt hallæri
í hinni ágætu grinmynd Wedd-
ing Singer ræður popptónlist síð-
asta áratugar ríkjum, tónlistin
sem „Sítt að aftan“-nafngiftin hef-
ur fest við. Þeir sem lifðu þessa
tíma þurfa kannski ekkert sér-
staklegá á upprifjun að halda
nema algjör stöðnun sé í gangi í
músíkhlustun þeirra og ekkert
nema nostalgía komist að; þá er
þessi pakki ekki verri en hvaða
„Hits from the 80’s“-pakki sem er.
Það þarf ekki nema fimmtán ár og
þá er hægt að sjá tónlistina í spé-
spegli fjarlægðarinnar og segja,
ha, ha, rosalega var allt hallæris-
legt einu sinni. Eins verður hleg-
ið og híað á það sem þykir flott í
dag á næstu öld og þá
verða kannski aðal-
stjörnurnar orðnar
varalitaðir
blúndutransar á ný.
Hér er sem sagt aút
orðið frekar hlægilega
hallærislegt og
kannski á góðri leið
með að verða svaka
svalt á ný. Flest lögin
hér em risavaxnir
smellir og erfitt að
horfa hlutlaust á þá,
maður hefur heyrt þá
einum of oft. Skemmti-
legast er því að heyra
jaðarsmellina, t.d. El-
vis Costello-lagið og
gleðismell með
krakkabandinu
Musical Youth. Varla
er hægt að segja að
hér sé nýtt efni á
boðstólum þó Pres-
idents of U.S.A. geri
nýja popprokkaða út-
gáfu af „Video Killed
the Radio Star“. Leik-
arinn Adam Sandler semur eitt
grínlag - „undir Cure-áhrifum“ -
og sú gamla Ellen Dow rappar
með Sugarhill Gang. Gaman má
hafa af þessum lögum svona sirka
tvisvar og brosa út i annað. Dead
or Alive-lagið „You Spin Me
around (Like a Record)“, sem
heyrist í byrjun myndarinnar,
vantar líka illa á þetta ágæta safn.
-glh
Wedding Singer
. pj
MUSIC
fROMTHF
MOTION riCTURE
CITY OF ANGELS
CityofAngels ***
lú.
B.P á Amsterdam
Hljómsveitin B.P. (áður
B.P. og þegiöu Ingibjörg)
verður á Amsterdam í
kvöld og annað kvöld.
8-villt
Hljómsveitin 8-villt verður
á humarhátíðinni á Höfn í
Hornafirði. í kvöld verður
fjölskyldudansleikur í
íþróttahúsinu á Höfn en
annað kvöld mun hljóm-
sveitin spila í Sindrabæ (18
ára aldurstakmark).
SÍN
Hljómsveitin SÍN mun
leika á veitingastaðnum
Við Pollinn á Akureyri.
Sóldögg
Sóldögg leikur á skemmti-
staðnum Víkinni á Höfn í
Hornafirði í kvöld en ann-
að kvöld leika þeir félagar
á Inghóli á Selfossi.
Skítamórall
Hljómsveitin Skítamórall
spilar í Hnifsdal um helg-
ina. í kvöld verður haldinn
dansleikur fyrir 16 ára og
eldri en annað kvöld fyrir
18 ára og eldri.
S.S.Sól í Keflavík.
Annað kvöld verður S.S.Sól
með sinn eina dansleik árs-
ins á Suðurnesjum. Engin
forsala verður á þetta ball
og því er mikilvægt að
mæta snemma - að sjálf-
sögðu verður boðið upp á
óvæntan glaðning til kl. 1.
Húsið verður opnað kl. 23.
Kringlukráin
Hljómsveitin í hvítum
sokkum mun leika í aðal-
sal fóstudags- sunnudags-
kvöid. Viðar Jónsson
verður í Leikstofunni í
kvöld og annað kvöld.
Buttercup
Annað kvöld verður hljóm-
sveitin Buttercup með stuð-
ball ársins á Hótel Bjargi á
Fáskrúðsfirði. Buttercup
gaf nýverið út lag sem heit-
ir Meira dót en það verður
að fmna á sumarsafndiski
Skífunnar sem kemur út
seinna í mánuðinum.
Þotuliðið
Þotuliðið frá Borgamesi
skemmtir á Ránni í Kefla-
vík í kvöld og annað
kvöld.