Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.1998, Blaðsíða 4
' um helgina
Krístilegt mót í Vatnaskógi:
Músík
og
messa
Almennt kristilegt mót, sem ber yfir-
skriftina Guö gefur, veröur haldið á veg-
um Sambands íslenskra kristniboðsfélaga
í Vatnaskógi um helgina (26.-28. júní).
Mjög er vandað til dagskrár og ættu all-
ir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.
Boðið verður upop á Biblíulestra, sam-
komur, lofgjörð og fyrirbæn.
Eftir hádegi á iaugardag verður vönduð
útidagskrá og kl. 22.15 um kvöldið verða
tónleikar með mörgum góðum gestum. Þar
má m.a. nefha Þorvald Halidórsson og
Margréti Scheving, Pál Rósinkranz og
Christ Gospel Band og Kangakvartettinn.
Á sunnudaginn kl. 10.30 verður guðs-
þjónusta i umsjá biskups íslands, hr. Karls
Sigurbjömssonar, en Id. 14 verður kveðju-
samkoma fyrir kristniboðana Ragnar
Gunnarsson, Hrönn Sigm-ðardóttur og
böm þeirra og Kristínu Bjarnadóttur en
þau em öll á förum til starfa í Keníu.
Allir era hjartanlega velkomnir.
I Árbæjarsafni verður boðið upp á fjallagrasamjólk og grasaseyöi um helgina.
FÖSTUDAGUR 26. JÚNÍ 1998 I>V
Árbæjarsafn:
íslensk grös og
lækningajurtir
Sunnudaginn 28. júní gefst gest-
um Árbæjarsafns kostur á að
fræðast um íslenskar jurtir, nota-
gildi þeirra og lækningamátt.
Jón Einarsson
grasalæknir verð-
ur með erindi kl.
13.30 og mun hann
fjalla mn grasa-
lækningar sem val-
kost í íslenskri heil-
brigðisþjónustu,
Kolbrún Bjöms-
dóttir grasalæknir
mun fræða gesti
um notagildi ís-
lenskra jurta kl. 15
og í gamla Árbæn-
um mun Rannveig
Haraldsdóttir grasa-
kona sjóða fjallagrasamjólk og
grasaseyði og fá allir að smakka.
Við Torgið munu ýmsir aðilar
sýna margs konar aftuðir unnar
úr íslenskum jurtum. Þar verður
m.a. hægt að fræðast um tegerð,
smyrsl, hársjampó og olíur unnar
úr jurtum, Guðrún
Jónsdóttir mun
sýna gestum
töframátt jurta-
litunar og
einnig verður
hægt að líta í
bækur sem gefn-
ar hafa verið út um
íslenskar jvutir og
lækningamátt þeirra.
Auk þess er vert
að minna á messu
sem verður í Árbæjar-
kirkju (gömlu safhkirkj-
unni) kl. 14., leikfangasýn-
ingin Fyrr var oft i koti kátt verð-
ur opin í Kornhúsinu og mun
handverksfólk veröa við iðju sína
í húsunum. í Dillonshúsi er tilvalið
að fá sér kafft og gómsætar vöfflur
og ættu því allir að geta fundið eitt-
hvað við hæfi.
Á Snæfellsnesi er margt að sjá og skoöa. Myndin er af Arnarstapa.
Snæfellsnes:
Gyðjuhelgi á
Hellnum
Helgin 26.-28. júní er sérstök
Gyðjuhelgi í Mannræktarmiðstöð
Snæfellsás-samfélagsins á Brekku-
bæ, Hellnum.
Þetta er í þriðja sinn sem Gyðjur
safnast saman síðustu helgina i júní
til að næra gyðjuna í sjálfri sér og
ná sambandi við hana. Ekki er um
beint námskeið að ræða, heldur
frekar mót þar sem konur á öllum
aldri hittast og njóta samvista við
sköpun, tjáningu og leik í hreinni
og tærri gyöjuorku í umhverfi Jök-
ulsins.
Þema Gyðjuhelgarinnar í ár er
sköpunin og munu mótsgestir leggja
sig fram við að skapa sína eigin
ímynd, þá konu sem þeir vilja vera,
skapa með litum og efnum náttúr-
unnar og með eigin hæfileikum.
Þetta er því tilvalið tækifæri fyrir
allar konur til aö komast í samband
við skapandi krafta sína.
Boðið er upp á þrjá verðmögu-
leika: í svefnpokaplássi og með
þremur máltiðum inniföldum kr.
8.900, í tjaldi og með þremur máltíð-
um inniföldum kr. 6.900, í tjaldi og á
eigin vegum kr. 4.500. Skráning og
allar nánari upplýsingar eru í síma
435-6754 hjá Snæfellsás-samfélaginu
og á netfangi: leidar@aknet.is
Wjmr velli og Kalda- V.
dal, sem er vel 1
fólksbílafær um þessar
mundir, eða fylgja þjóðvegin-
um um Hvalfjörö og fram hjá
Reykholti.
Borgarfjörður:
Fossasig og
Fossasig er nyjung
í ferðaþjónustu á Húsafelli
Útilífsdagar
verða haldnir á Húsa-
felli í Borgarfirði helgina
26.-28. júní. í boði verður
fjöldi afþreyingarmöguleika.
Meðal eftiis á Útilífsdögum
á Húsafelli eru ævintýraferðir
fyrir börn og fullorðna,
hestaferðir, hellaskoðun,
minigolfmót fyrir börnin og
varðeldur með fjöldasöng og
ýmsum skemmtiatriðum. Dag-
skráin hefst í dag kl. 14.30 með því að
ferðalöngum, sem fara um Kaldadal,
verður boðið að síga niður 10 metra háan
foss undir öruggri handleiðslu starfsfólks
Útilífsmiðstöðvarinnar.
Á laugardagsmorgun er ævintýraferð fyrir
börn og unglinga með leikjum og náttúruskoð-
un og eftir hádegi er svipuð en erfiðari ævin-
týraferð fyrir fullorðna þar sem hápunktur ferð-
arinncU er fossasig niður tvo tuttugu metra háa
fossa. Að kvöldi laugardagsins kl. 20 hefst Ieikjadag-
skrá fyrir börnin og kl. 21 verður kveiktur varðeld-
ur og haldin skemmtidagskrá fyrir alla aldurshópa.
Á sunnudagsmorguninn verður minigolfmót fyr-
ir böm og unglinga og verða veitt verðlaun fyr-
ir bestan árangur. Skipulagðar hesta- og hella-
skoðunarferðir verða famar reglulega alla
helgina auk þess sem golfvöllurinn og
sundlaugin á Húsafelli standa öllum
til boða. Ævintýraferðirnar verða , ■
farnar undir fararstjóm reyndra
starfsmanna miðstöðvarinnar
sem gæta þess að fyllstu ör-
yggiskröfum sé fullnægt. Á
Stofnun Útilífsmið-
stöðvar á Húsafelli er
nýjung í ferðaþjón-
ustu á staðnum en
þar er nú rekin
sundlaug, versl-
un, veitinga-
staður, bens-
ínsala, tjald-
stæði, gisti-
heimili og
sumar-
húsaút-
leiga.
Úti-
lífsmiðstöðin mun sinna afþrey-
ingarmálum dvalargesta á
Húsafelli og nágrennis en
sérstök áhersla er lögð
á ýmiss konar nátt-
úrutengda afþrey-
ingu og fræðslu
(„Survivalk
tourism") og
verður fjöldi
umhverfís-
vænna af-
þreying-
ar- og
fræðslu-
ferða
fyrir
hópa og
einstak-
linga í
sumar.
Að
rekstr-
inum
standa
Ferða-
þjónustan á
Húsafelli,
Bjami Freyr
Bjarnason,
nemi á ferða-
málabraut
Hólaskóla, og
Martin Norm-
an skíðakenn-
ari.
Húsafell er um
150 km frá
Reykjavík og
hægt er að
fara fjallveg
um Þing-