Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.1998, Side 5

Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.1998, Side 5
FÖSTUDAGUR 26. JÚNÍ 1998 Hornafjörður: Heimsmeistaramót í Heimsmeistaramótið í Homafjarðarmanna verður haldið í annað sinn á Humarhátíð á Hornafirði laugardaginn 27. júní og hefst mótið kl. 11 í íþróttahúsinu á Höfn. Fyrsta Homafjarðarmannamótið var haldið á 100 ára byggðcirafmæli Hafnar sl. sumar en þá var spilaö í tjaldi á bryggjunni og vora þátttakend- ur 300. Að þessu sinni fer mótið fram í íþróttahúsinu eins og áður sagði og verður keppt um glæsilegan farandgrip, humarskálina, ásamt eignar- gripum fyrir þrjú fyrstu sætin. Fjöldi annarra vinninga verður veittur, t.d. Hornafjarðarmanna utan- og innanlandsflugferðir ásamt vasapeningum, ferðir með bílum auk tuga annarra fjölbreyttra og skemmtilegra verðlauna. Sérprentuð spil með reglunum voru gefln út á fjórum tungumálum í tengslum við endurvakningu á spilinu í fyrra og hafa þau farið um land allt og víða um heim. Núverandi heimsmeistari í Hornafjarðarmanna er Njáll Sigurðsson í Hafnarfirði og útbreiðslustjóri er Albert Eymundsson, skólastjóri á Höfn. Safnahús Borgarfjarðar: Handlitaðar ætingar og olíumálverk Á morgtm, 27. júní, kl. 16, hefst sýning á verkum Daða Guð- björnssonar í Safnahúsi Borgar- fjarðar í Borgarnesi þar sem hann sýnir olíumálverk og hand- litaðar ætingar. Daði Guðbjörnsson er fæddur 1954. Hann stundaði nám við Myndlistaskólann í Reykjavík 1969-76, Myndlista- og handíða- skóla íslands 1976-80 og við Rijk- sakademie van Beeldende Kunst- en í Amsterdam í Hollandi 1983-84. Hann hefur haldið marg- ar einkasýningar og tekið þátt í fjölda samsýninga hérlendis og erlendis á síðustu árum. Verk eftir Daða era í eigu helstu safna landsins, svo og fjölmargra stofn- ana og fýrirtækja. Sýningin er opin alla daga frá kl. 13-16 og lýkur 16. ágúst næst- komandi. Árnesprófastsdæmi: Pílagrímsferð um Árnesþing Sunnudaginn 28. júní verður farin „pílagrímsferð um Ámesþing". Þetta er í annað sinn sem efnt er til slíkrar ferðar en hún er endurupptaka há- tiðabrigða, er ítrekað fóra fram á veg- um Þingvallakirkju, siðasta sunnudag í júní á níunda áratuginum með vís- un til þúsund ára afrnælis kristnitök- unnar. Eins og í fyrra er ferðin farin í sam- ráði við sóknarpresta í Ámesprófasts- dæmi og er dagskráin svohljóðandi: 1. Lagt af stað frá Umferðarmiðstöð- inni í Reykjavík kl. 13.15. Fararstjóri er séra Heimir Steinsson. 2. Málsupptekt í Þingvallakirkju kl. 14. Sóknarprestur minnist kristnitök- unnar. Séra Rúnar Þór Egilsson á Mosfelli tekur við fararstjóm. 3. Numið staðar við Vígðulaug á Laugarvatni kl. 15. Prófashirinn i Ár- nesprófastsdæmi, sr. Úlfar Guð- mundsson, hefúr orð fyrir ferðamönn- um. 4. Staldrað við í Mosfellskirkju kl. 16. Sóknarprestur fræðir pilagrímana um sögu staðarins og helgi. Að lok- inni viðdvöl í Mosafellskirkju snasða menn nesti sitt, vonandi úti í Guðs grænni náttúrunni, en að öðrum kosti í rút- unni og í einkabifreið- um. 5. Ferðalok í Skál- holtskirkju kl. 17. Sókn- arprestur, sr. Egill Hali- grímsson, greinir frá þessum höfuðstað is- lenskrar kristni um aldir. 6. Rútan kemur að Umferðarmiðstöðinni í Reykjavík á sjöunda tímanum. Þjóðgarðurinn á Þingvöllum greiðir kostnað vegna rútuferð- ar og eru þeir sem hyggjast hagnýta sér rútuna beðnir að gefa sig fram í síma 482 2677 fóstudaginn 26. júní. Mönnum er velkomið að slást í förina hvar sem er á viðkomustöð- um ferðalanga, hvort Skálholt er mefial þeirra stafia sem heimsóttir heldur er í rútunni eða veröa f ferðinni. á eigin bifreiðum. Skjálfandaflói 6. 1 Flatey Skjálfandaflói Hvalvfk Lundey Húsavík: Dagur Garðars Svavarssonar Á morgun, 27. júní, verður haldið upp á dag Garðars Svavarssonar á Húsavík. I til- efni dagsins mun Guðni Halldórsson sagn- fræðingur hcdda fyrirlestur um útrás nor- rænna manna á níundu og tiundu öld, með sérstakri áherslu á landnám Garðars Svav- arssonar, og dr. Marit Áhlén, fomleifafræð- ingrn- frá Sviþjóð, mun halda fyrirlestur um rúnasteina. Fyrirlestrarnir verða haldnir í Gamla-Bauk kl. 14. Klukkan 20 verður siglt úr Húsavíkur- höfn vestur yfir Skjálfandaflóa og verður land numið undir Víknafjöllum. Þar verð- ur landnámsins minnst og sagan rifjuð upp og síðan verður siglt til baka og hvalir skoðaðir í leiðinni. Nánari upplýsingar er að fá hjá Norður- siglingu í síma 464-2350. Siglt verður úr Húsavíkiu'höfn kl. 20. ýjþi helgina I9 tir Elds- umbrot og afrísk tónlist Á morgun, 27. júní, hefst sýning á verkum Tolla í nýbyggingu að Dal- vegi 16 í Kópavogi. Sýningin sem hefst kl. 16. er með óvenjulegu sniði því að verkin verða fest í stálvíra sem ná upp í loft í hrárri bygging- unni, salurinn verður myrkvaður, en breytileg lýsing í bland við afríska ættbálkatónlist og ambient tónlist mun stýra gestum gegnum sýninguna. Myndirnar sem era allar nýjar eru bæði figúratívar og abstrakt en meginviðfangsefni Tolla að þessu sinni er eldurinn, hið ytra og innra. Tónlistin er framsamin af Bigga Bix en meðal annarra samstarfsað- ila Tolla á sýningunni er Sjón sem mun verða með upplestur en auk þess verður boðið upp á ýmsar óvæntar uppákomur. Sýningin er opin alla daga milli kl. 14-21 og stendur hún til 4. júlí. Hér getur afi líta nokkur verka Normu. Norma í Reykjavík Grófunnin sýning á yfir 400 myndum stendur nú yfir á Miklu- braut 16, í Reykjavík, á heimili sýn- anda Normu E. Samúelsdóttur rit- höfundar. Um er að ræða myndir sem era mest teiknaðar með tússlit- um, krotaöar á hvaða pappir sem hendi var næstur á sl. tuttugu árum (1978- 1998) en að mati sýnanda er um e.k. innsæismyndir að ræða. Sýningin verður opin frá 14-16 og 20-22 alla daga nema sunnudaga fram til 10. júlí og er aðgangur ókeypis. Gallerí Geysir: Ró Hjartar Á morgim, 27. júní, opnar Hjörtur Matthías Skúlason sína fyrstu myndlistarsýningu í Gall- erí Geysi, Hinu Húsinu við Ing- ólfstorg. Sýningin ber nafnið Ró. í myndunum tjáir Hjörtur afslöppun, kyrrð og rómantíska stemningu. Túlkaðir era ávextir, fantasíur og frægar persónur koma við sögu. Þetta eru 8 stór ol- íumálverk, öll unnin á þessu ári. Þess má geta að Hjörtur er jafn- framt einn af fulltrúum í Smimoff-fatahönnunarkeppninni í ár. Sýningin stendur til 12. júlí.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.