Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.1998, Síða 10
* *
4Í'
tónlísi
FÖSTUDAGUR 26. JÚNÍ 1998
ísland
plötur og diskar—
1(2) Stereo
Páll Óskar & Casino
2(1) Adore
Smashing Pumpkins
3(3) Nákvæmlega
Skítamórall
4(4) Wedding Singer
Úr kvikmynd
5 ( - ) Pottþótt diskó
Ýmsir flytjendur
6(5) Mezzanine
Massive Attack
7(6) Best of
Nick Cave & The Bad Seeds
8 (10) Version 2.0
Garbage
9(12) Big Willie Style
Will Smith
10 (13) Savage Garden
Savage Garden
11 ( 9 ) Premonition
John Fogerty
12(11) Left of the Middle
Natalie Imbruglia
13(16) íslenskir karlmenn
Stuðmenn & Karlakórinn Fóstbr.
14(8) For Ya Mind Vol. 1
Ýmsir flytjendur
15(17) All Saints
All Saints
16(18) Pottþótt 11
Ýmsir flytjendur
17(7 ) GlingGló
Björk & Tríó Guðmundar Ingólfss.
18 (20) Moon Safari
Air
19(15) Blue
Simply Red
20 ( - ) Shut 'em Down
Onyx
1. (1 ) 3 Lions '98
Baddier & Skinner & The L.
2. ( 2 ) Vindaloo
Fat Les
3. (- ) Ghetto Supastar
Pras Michel + Ol' Dirty B... & Mya
4. ( 4 ) C'est La Vie
B#witchod
5. ( 3 ) Got The Feeling
5
6. (- ) Lost In Space
Lighthouse Family
7. ( 7 ) Homy
Mousse T Vs Hot 'n' Juicy
8. ( 5 ) Carnival De Paris
Dario G
9. (- ) Looking For Love
Karen Ramirez
10. ( 9 ) IThe Boy Is Mine
Brandy & Monica
NewYork
-lög-
The Boy Is Mine
Brandy & Monica
You're Still the One
Shania Twain
Too Close
Next
My All
Mariah Carey
Everybody (Backstreet's Back)
Backstrect Boys
I Get Lonely
Janet (FeaL Blackstreet)
Adia
Sarah McLachlan
They Don't Know
Jon B
My Way
Usher
Come With Me
Puff Daddy & Jimmy Page
Bretland
— plötur og diskar —
I 1. ( 3 ) Talk On Corners
The Corrs
t 2. ( 2 ) Blue
Simply Red
t 3. ( 4 ) When We Were The New Boys
Rod Stewart
| 4. ( 1 ) The Good Will Out
The Embrace
t 5. ( -) Try Whistling This
Neil Finn
| 6. ( 6 ) Lifo Thru a Lens
Robbie Williams
t 7. ( 9) Urban Hymns
The Verve
| 8. ( 5) Where We Belong
Boyzone
| 9. ( 7 ) Left Of The Middlo
Natalie Imbmglia
t 10. (12) Trampoline
Tho Mavericks
l i.d)
I 2.(2)
| 3.(3)
t 4.(4)
I 5’ ( 6 1
| 6.(5)
Í 7'(9)
1 8(7)
1 9 1131
* 10. (-)
Bandaríkin
— plötur og diskar—
t 1. ( 1 ) MP Da Last Don
Master P
t 2. ( 3 ) City of Angels
Ur kvikmynd
t 3. (-) Never S-A-Y Never
Brandy
| 4. ( 4 ) Godzilla
Úr kvikmynd
t 5. ( 5 ) Hope Floats
Úr kvikmynd
t 6. ( 9 ) The Limited Series
Garth Brooks
t 7. ( 7 ) Backstreet Boys
Backstreet Boys
| 8. ( 2 ) Adore
The Smashing Pumpkins
t 9. (13) Come On Over
Shania Twain
$10. ( 6 ) It's Dark and Hell Is Hot
DMX
Úr sólinni til heljar
- og aftur til baka
- um gullöld og niðurlægingu Brians Wilsons
Brian Wilson. Snillingurinn aleinn á ströndinni.
Snillingur! Þaö er sú lýsing sem
fest hefur við Brian Wilson. Jafn
lofaöan mann í poppsögunni er
erfitt að fmna. Paul McCartney
lærði bassaleik af honum og segir
lag hans „God only Knows" besta
popplag sem samið hefur verið.
Yngri popparar eins og Garbage,
R.E.M. og Primal Scream ausa tón-
list hans lofi og þeir sem á annað
borð kynna sér tónlist hans drag-
ast dáleiddir inn í töfraheimana.
Það þykja því tíðindi í bransanum
þegar þessi meistari gefur út nýja
plötu. I tilefni þess að ný sólóplata,
„Imagination", er nýkomin út er
ekki úr vegi að kíkja á feril hans.
Úr sólinni í Kaliforníu
Brian Wilson er elstur þriggja
bræðra, fæddur í Hawthorne, út-
hverfi í Los Angeles, árið 1942.
Hann heillaðist snemma af píanói
heimilisins og eftir að hann heyrði
mjúkar harmóníur The Four Fresh-
men-sönghópsins fór hann að æfa
yngri bræður sína, Dennis og Carl,
í samsöng. Frændinn Mike Love
bættist í hópinn og skólafélaginn A1
Jardine. Þama var strax komin hin
klassíska Beach Boys-liðskipan.
Dennis benti bróður sínum á að
sniðugt væri að semja lag um brim-
brettaiðkunina sem vinsæl var á
ströndinni og Brian samdi sitt
fyrsta lag, Surfin’. Drengimir voru
nú hættir að syngja saman við pi-
anóið og komnir meö bassa, gítar og
trommur og notuðu vasapeningana
til að taka þetta nýja fmmsamda lag
upp. Þeir vildu kalla sig „The Pend-
letones" eftir röndóttu skyrtunum
sem þeir héldu upp á en eigendum
hljóðversins fannst „Beach Boys“
miklu betra og það stóð. Þetta var í
september 1961. Surfin’ kom út hjá
smáfyrirtæki og gekk ágætlega en
hjólin fóm fyrst verulega að snúast
þegar pabbi Wilsons, Murrey, kom
þeim á samning hjá stórfyrirtækinu
Capitol. Pabbinn var bölvaður
skúrkur; í ævisögum Brians kemur
fram að hann beitti synina andlegu
og líkamlegu ofbeldi sem skilaði sér
seinna í þeim geðflækjum sem
hertóku Brian. Murrey Wilson hafði
sjáifur fengist við iagasmíðar og leit
á sjálfan sig sem miklu betri laga-
höfiind en soninn. Það hindraði
hann þó ekki í að koma Beach Boys
áfram af hörku og á árunum 1962-66
var bandið vinsælasta sveit Banda-
ríkjanna og gaf út heilar tólf plötur
með lögum Brians. Hann óx og dafn-
aði hratt sem lagasmiður og lögin
urðu sífellt flóknari. Aðal bandsins
var þó alltaf harmóníski samsöng-
urinn, léttar sólskinsmelódíur og
textar um gelgjuástir og ljúfa lífið i
sólinni sem beindu augum dreym-
andi ungmenna um allan heim að
Kaliforníuströndum. Frægðinni
fylgdi mikið álag og tíðar tónleika-
ferðir. Á einni slikri fékk Brian
taugaáfall og það varð úr að Beach
Boys fengu varamann (fyrst Glen
Campell en svo Bruce Johnson) til
að fylla í skarðið. Brian var í skýj-
unum með þessa nýju tilhögun,
hann samdi og vann í hljóðverinu
með her atvinnuhljóðfæraleikara en
Fjörulallamir ferðuðust um heim-
inn og spiluðu og komu þess á milli
í hljóðverið til að syngja inn á plöt-
ur.
Platan sem
kom aldrei út
Skuggi féll á vinsældir Beach
Boys þegar Bítlarnir slógu í gegn.
Brian leit á samkeppnina sem
ögrun og vOdi gera enn betur.
Einnig hélt hann mikið upp á laga-
höftmdinn Phil Spector og horfði
til hans í útsetningum en leit
einnig á hann sem keppinaut um
hinn fullkomna hljóm. Þá var
pabbinn sínöldrandi og ekki
ánægður með neitt sem sonurinn
gerði. Staðráðinn í aö sanna sig og
slá við „Rubber Soul“, sem Bítl-
amir höfðu þá nýgefið út, fór hann
enn í hljóðver að vinna að nýrri
plötu sem hann hafði þegar nær
fullunnið inni í höfðinu á sér. Úr
varð meistaraverkið „Pet Sounds"
sem óhætt er að telja til áhrifa-
mestu platna rokksögunnar. Lögin
voru orðin afslappaðri, þó full af
ógleymanlegum melódíum, og Bri-
an reyndi á þanþol hljóðversins til
hins ýtrasta og gerði tilraunir með
útsetningar og hljóðfæranotkim.
Þegar Paul McCartney heyrði plöt-
una í London lokaði hann sig inni
á hótelherbergi með Lennon og
saman hlustuðu þeir grannt á
hana dögum saman. Platan seldist
þó engin ósköp, komst hæst í 12.
sæti bandaríska plötulistans. Bri-
an var óánægður með tregðu
plötukaupenda en brúnin léttist
þegar lag hans „Good Vibrations"
sló í gegn haustið ’66. Hann hafði
samið lagið sem „minisinfóníu”;
tekið það upp í ýmsum hljóðver-
um í Los Angeles og lokaútkoman
var klippt saman úr mörgum upp-
tökutörnum. Með laginu urðu
Beach Boys snögglega vinsælasta
band heimsins á ný og slógu m.a.s.
Bítlana út i vinsældakosningum í
Bretlandi. Leit Brians að full-
komnun varð nú geðveiki líkust.
Hann lokaði sig af heima fyrir og
boðaði enn betri plötu, „Srnile”.
Samkvæmt tíðarandanum var
hann farinn að dópa, reykti hass
að staðaldri og droppaði sýru sem
vitanlega hafði ekki góð áhrif á
viðkvæmt sálarlífið. „Smile” átti
að vera „unglingasinfónía til-
einkuð guði“ og Brian tók upp á
ýmsum dyntum til að ná settu
marki. Hann lét byggja sandkassa
utan um píanóið í stofunni hjá sér
til að hann gæti spilað berfættur í
sandinum. Við upptökur á laginu
„Fire“ skipaði hann öllum hljóð-
færaleikurunum að vera með
rauða slökkviliðshjálma á höfðinu.
Þegar Brian frétti að hús í ná-
grenni hljóðversins hefði brunnið
á sama tíma fylltist hann ofsa-
hræðslu og taldi víst að hann væri
að storka örlögunum með plötu-
gerðinni. Beach Boys komu heim
af tónleikaferðalagi. Brian reyndi
að útskýra þær hugmyndir sem
hann hafði um „Smile“ en
fjörulöllunum fannst lítið til koma
um það framúrstefnupopp sem
þeir heyrðu. Smám saman fór Bri-
an að missa sjálfsöryggið og
dóptengd sálræn vandamál settu
mark sitt á hann. Upptökur á
„Smile“ hófust í lok ársins 1966 og
dröttuðust áfram fram á vorið.
Platan kom þó aldrei út í þeirri
mynd sem Brian hafði ætlað sér. í
maí var hann orðinn úrvinda og
bugaður af áhugaleysi annarra í
Beach Boys og stöðugu mótlæti.
Hann hætti við plötuna og í stað-
inn var gefin út platan „Smiley
Srnile"; samansafn misgóðra og
ófullkláraðra hugmynda. Á sama
tima gáfu Bítlarnir út „Sgt. Pepp-
er“ - Brian hafði tapað stríðinu;
gullöldin var liðin.
Margra ára niðurlæging
Þetta tímabil í sögu Brians Wil-
sons er sveipað dulúð og eins þaö
sem á eftir kom. Brian reyndi
aldrei aftur að vera bestur og
hann var orðinn skemmdur mað-
ur af dópi og geðbilun. Hann dró
sig í hlé frá umheiminum, lá mörg
ár í rúminu, dópaði og belgdist út
af djönkfæði. Annað slagið dratt-
aðist hann þó að píanóinu og
samdi lög fyrir Beach Boys. Þeir