Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.1998, Page 6
m a t u r
- -
Sérsvið nútímalistamannsins er að vinna með form og hugmyndir sem þegar eru fyrir hendi.
Ekkert er myndlistarmanni ósamboðið. Hann vinnur með himintungl,
náttúru og drasl. Einn þeirra#
umbúðum utan af
íslensku sælgæti.
Guðmundur Oddur
les hér úr
f Ó k U S 9. október 1998
Argentína ★★★
Barónsstíg lla, s. 551 9555.
„Bæjarins besta steikhús hefur dalaö. Dýrustu
og enn þá bestu nautasteikur landsins, en ekki
alveg eins innanfeitar og safaríkar og áður."
Op/'ð 18-23.30 v.d., 18-3 um helgar.
Einar Ben ★★
Veltusundi 1. 5115 090.
„Fremur þemahús en veitingahús og leggur
meiri áherslu á umbúðir en innihald. Einar Ben.
býður yfirieitt ekki upp á vondan mat og verður
þvl seint jafnvinsæll og Fashion Café eða
Planet Hollywood." Op/'ð 18-22.
Hard Rock Café ★★
Kringlunni, s. 568 9888
„Staðurinn hæfir fólki, sem ekki þekkir annað
en skyndibita og vill ekki annað en skyndibita;
fólki, sem þolir tvöfalt verð fyrir góða hamborg-
ara og daufa ímynd þess að vera úti að borða.
Þjónustan jafn alúðleg og ágæt og fyrr." Op/'ð
11.30-23.30.
Hótel Holt
★★★★★
Bergstaðastrætl
37, s. 552 5700.
„Listasafnið á Hótei
Holti ber! matargerð-
arlist af öðrum veit-
ingastofum landsins.
Þar fara saman frum-
legir réttir og nær-
færin matreiðsla, sem gerir jafnvel baunir að
Ijúfmeti." Op/'ð 12-14.30 og 19-22.30 v.d.,
12-14.30 og 18-22 fd. og Id.
Hótel Óðinsvé ★★
v/Óðlnstorg, s. 552 5224.
„Stundum góður matur og stundum ekki, jafn-
vel í einni og sömu máltíð." Op/'ð 12-15 og
18-23 v.d., 12-15 og 18-23.30 fd. og Id.
Iðnó ★★★
Vonarstrætl 3, s. 562 9700
„Öll umgjörð Iðnó er vönduð og stílhrein. Henni
fylgir traust og góð þjónusta og matreiðsla,
sem stundum fer sínar eigin slóðir, en nær
sjaldan hæstu hæðum. Enginn réttur var að
neinu leyti misheppnaður, en fáir minnisstæð-
ir.“ Op/ð frá 12-14.30 og 18-23.
Ítalía ★★
Laugavegl 11, s. 552 4630.
„Eignarhaldið er ítalskt, kokkarnir eru ítalskir
og gæðaþjónustan er hálfítölsk. Það, sem tæp-
ast hangir í Ttölskunni, er matreiðslan." Op/ð
11:30-11:30.
Kínahúsið ★★★★
Lækjargótu 8, s. 5511014
„Margt er það, sem dregur, matreiðsla, verðlag
og andrúmsloft, sem samanlagt gera Kínahúsiö
að einni af helztu matarvinjum miöbæjarins."
Op/ð 11.30-14.00 og 17.30-22.00 virka daga,
16-23 laugardaga og 17-22 á sunnudögum.
Lauga-ás ★★★★
Laugarásveg! 1, s. 553 1620.
„Franskt bistró að Islenskum hætti sem dregur
til sín hverfisbúa, sem nenna ekki að elda I
kvöld, barnafjölskyldur utan úr bæ og ferða-
menn utan af landi og frá útlöndum. Hér koma
hvorki uppar né ímyndarfræðingar." Op/'ð
11-22 og 11-21 um helgar.
Lækjarbrekka ★★
Bankastræti 2, s. 551 4430.
„Matreiðslan rambar út og suöur, góð, fram-
bærileg eða vond eftir atvikum. Með annarri
hendinni eru gerðar forvitnilegar tilraunir en
með hinni er farið eftir verstu hefðum." Op/'ð
md.-mid. 11-23.30, fid.-sd. 11-0.30.
Mirabelle ★★★
Smlðjustfg 6., s. 552 2333.
„Gamal-frönsk matreiðsla alla leið yfir! profiter-
oles og créme brulée. Mirabelle er komin á
gott skrið." Op/ð 18-22.30.
Pasta Basta ★★★
Klapparstíg 38, s. 5613131
„Ljúfir hrfsgrjónaréttir og óteljandi tilbrigði af
góðum pöstum en lítt skólað og of uppáþrengj-
andi þjónustufólk." Op/ð 11.30-23 virka daga
og 11.30-24 um helgar. Barinn er opinn til 1
virka daga og til 3 um hetgar.
La Primavera ★★★★
Austurstrætl 9, s. 561 8555
„Sjálfstraust hússins er gott og næg innistæða
fyrir því." Op/ð 12.00-14.30 og 18.00-22.30
virka daga og um helgar fré 18.00-23.30.
Skólabrú ★★★
Skólabrú 1, s. 562 4455.
„Matreiðslan er fögur og fín, vönduð og létt, en
dálítið frosin. Þjónustan er kurteis og hófsöm."
Op/'ð frá kl. 18 alla daga.
Við Tjörnina ★★★★
Templarasundi 3, s. 5518666
„Nú virðist Tjörnin endanlega hafa gefið foryst-
una eftir og raunar annað sætið lika, gerir oft-
ast vel, en ekki alltaf og mistekst raunar stund-
um.‘ Op/ð 12-23.
Þrír Frakkar ★★★★
Baldursgötu 14, s. 552 3939
„Þetta er einn af hornsteinum íslenskrar mat-
argerðarlistar og fiskhús landsins númer eitt."
Op/ð 12-14.30 og 18-20 virka daga og 18-22
um helgar en til 23 föstudag og laugardag.
Kom óþægilega á óvart
Carve Diem: ★
Francois Fons ætti að stofna
sérstaka matstofu fyrir sína
skemmtilegu sérvizku, sem oft er
bragðgóð. Hann hefur jafnan verið
með fyrstu kokkum til að taka upp
franskar nýjungctr, svo sem ný-
frönsku, léttu eldamennskuna fyrir
tæpum tveimur áratugum og þá
sveitafrönsku fyrir einum áratug.
Hann getur áreiðanlega náð í við-
skiptavini, ef hann rífst ekki of
mikið við þá. Fons hefur rekið inn
nefið á ýmsum veitingastöðum og
ekki alltaf staðið lengi við. Þess
vegna er erfitt að benda á hann
sem aðdráttarafl fyrir Carpe Diem.
Hann getur verið farinn annað þeg-
ar þessi texti er lesinn. Auk þess er
hann eðlilega ekki alltaf við. í slíku
tilviki kom dapurleg matreiðsla
mér óþægilega á óvart.
Bourride-fiskisúpa hafði ekki
snefil af fiskibragði og bragðaðist
raunar eins og kokkurinn hefði
misst saffran-staukinn ofan í súp-
una, á jaðri þess að vera óæt.
Skötuselur „að hætti Frangois
Fons“ var eldaður sundur og sam-
an, bragðlaus og borinn fram í
ólystugum meðlætishaug. Lauk-
Guðmundur Oddur Magnús-
son er deildarstjóri í grafiskri
hönnun við Myndlista- og handíða-
skólann. Fyrir framan hann liggur
hrúga af íslensku sælgæti. Magn
sem kostaði eitt þúsund krónur
með tómat og sinnepi.
„Ég er að kenna umbúðarhönn-
un þessa stundina og hef spurt
nemendur mína hvort umbúðir séu
tengdar bragði og lykt. Því þær eru
það í rauninni. Leturval er til
dæmis tónsett huglægt. Það er til
sunnudagsletur, mánudags- og
hversdagsletur - hátíðaletur - syk-
ursætt og basískt." Guðmundur
Oddur smellir í góm og
horfir stíft á sælgætis-
hrúguna.
„Og það er nú bara
þannig að allt sem varð-
ar sælgæti og þann
heim er kærkomið tæki-
færi fyrir þunglynda
myndlistarmerm til að hugsa já-
kvætt og bjart. Þegar þeir taka að
sér að hanna sælgætisumbúðir fyr-
ir auglýsingastofur þá fá þeir
tækifæri til að lyfta sér upp í
litagleðinni. Súkkulaðiumbúð-1
imar eru hátíð listamannsins I
eða hönnuðarins í gleðinni. Það
er nefnilega þannig að það sem #'
súkkulaðiumbúðahönnuðir hafa
síst í huga er að höfða til vitsmuna
fólks. Við höfðum til undirmeðvit-
undarinnar. Þar eru draumar og
hvatir, öfund, þrár, vonir, reiði,
gleði og sorg. Ekki hlutlæg efni
heldur huglæg.“
Guðmundur tekur Californiu
rúsínurnar, Florida súkkulaðið,
V:. Lll £
Staur og Eitt sett:
„Einu umbúðirnar í þessu úrvali sem
eru eighties. Hrikalegar post-
módernískar klisjur."
vísanir í gimsteina en útlit-
ið í engu samræmi. Opal
er undir áhrifum frá op-art
sjötta áratugarins í Evrópu
- eins konar euro-fifties.“
Florida:
„Frekar hallæris-
legt, fifties."
California rúsínur: „Þrátt fyrir
að verið sé að vísa í sólarlag
nærri miðbaug er fullþungt
yfirbragð - en kannski
er þetta fullkomið
- súkkulaði
hjúpuð sól!"
Mánarúllur:
„Lakkrísumbúðir eru
náttúrlega svartastar, með
smá gulu eða gyllingu. Tilvísun í
basa eða jörð. Stutt í apótekarann."
og
Hraun:
„Seventies
letur, sennilega
Eras extra bold, og aft-
ur sólarlitum blandað sam-
% * an við brúnt. Hryilileg samsetn-
ing þrátt fyrir tilvísun í appelsínu
súkkulaði."
Malta, Buffalo og Lakkrísdraum-
inn og raðar þessu í hrúgu á borð-
inu. „Þetta er allt draumurinn um
ferðalagið. Þetta eru huglæg efnis-
tök. Við höfum Kalifomíu, Flórída,
Möltu á Miðjarðarhafinu og
Buffalóævintýrið. Sólarlönd sykur-
sins.“
Því næst setur Guðmundur Odd-
ur Apollo lakkrísinn og Freyju
karamellurnar saman.
„Hér er það goðafræðin,
sú gríska og norræna."
Þá fara Opal og Tópas
saman. „Gimsteinar eins
og svo algengt er með þessa
tegund sælgætis."
Hraunið, Staurinn, Trompið
og Eina settið staflast ofan á
hvert annað. „Orðaleikirnir sem
eiga að skemmta okkur. Fjallar lít-
ið um innihaldið og nöfhin meira
til gamans."
Að lokum eru það lakkrísinn,
myntusúkkulaðið Pipp og háls-
brjóstsykurinn. „Þessar teg-
undir eru undantekning frá
reglunni. Þær tengjast líka
; allar kvefl og flensu og
með sterka tilvísun í apó-
tekið.“
Eru umbúöir viöfangsefni mynd-
listarmanna?
„Ja, sá sem reið á vaöið var nátt-
úrlega listamaður bjartsýninnar,
Andy Warhol sem byrjaði með
Brillo-boxin sem voru nú reyndar
sápuumbúðir sem vora ekki hann-
aðar af honum heldur þunglyndis-
legum listamanni, Steve Harvey
sem var abstrakt expressjónisti
.. sem varð að vinna fyrir sér með
því að búa til bjartsýn sápu-
umbúðaform. Warhol not-
aði svo líka til dæmis
Coca Cola-flöskur og
súpudósir og fannst
allt alveg ferlega
flott.“
-MT
súpa „að hætti Halles" var mild og
hversdagsleg laukssúpa með ristar-
brauðsþaki. Betra var ofnsteikt ís-
lenzkt grænmeti í eigin safa og
balsamediki, kaldur og skemmti-
legur forréttur. Góður var einnig
meyr smokkfiskur með papriku og
hvítlauk í góðri sósu þurrkaðra
tómata. Saltflskur var fmn, borinn
fram með olíuleginni sítrónu,
bragðsterkri bökusneið kaldri og
skinkubitum, baunagraut og ljós-
gulum, litlum baunum. Pönnu-
steiktar steinbítsræmur vora góð-
ar, bornar fram með miklu af
perlulauk og sveppum í brúnni og
yfirgnæfandi Búrgundarsósu
góðri. Hunangsgljáð og rósmar-
ínkrydduð kjúklingabringa var
meyr, borin fram í óviðkunnanleg-
um meðlætishaug með kartöflu-
þynnum og brúnni sósu. Verri var
ofnsteiktur, grár og feitur lamba-
hryggur á pönnusteiktum kartöflu-
þynnum undir haug af brúnni
sósu.
Tatin-tertan var heit, en ekki
köld og fólst í hálfum, bökuðum
eplum, en nánast engu deigi og
minnti lítið á uppskriftina. Kara-
„Hátt verðlag hæfir ekki tilviljanakenndri og brokkgengri
matreiðslu staðarins og freistar ekki einu sinni embættismanna
utanríkisráðuneytisins handan götunnar."
mellukrem var vanillubúðingur án
karamellubragðs og karamellumar-
ineraðar appelsinur voru súrar
appelsínusneiðar án karamellu-
bragðs. Rauða og gula þemað í inn-
réttingum Carpe Diem hefur verið
eflt til að reyna árangurslaust að
gera staðinn hlýlegri. Vélsmiðju-
skreytingarnar hafa verið dempað-
ar, meðal annars með því að fjar-
lægja járnsoðinn vínrekk á miðju
gólfi. Samt er þetta enn kaldur og
stemmningarsnauður hótelsalur.
Hátt verðlag, 3.600 krónur fyrir þrí-
réttað með kaffi, hæfir ekki tilvilj-
anakenndri og brokkgengri mat-
reiðslu staðarins og freistar ekki
einu sinni embættismanna utan-
ríkisráðuneytisins handan götunn-
ar. Jónas Kristjánsson
Pipp: „Notar sama efni og Andy Warhol
notaði í blöðrurnar sem flutu í
verksmiðju hans. Fifties bogadregin
form í uppsetningu.“
Buffalo: „Machine-letrið sem Ameríkanar
nota til dæmis á körfuboltabúninga.
Miðjusett og óspennandi look.“
meizra á.
www.visir.is