Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.1998, Side 7

Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.1998, Side 7
Þossi hefur veríð á X-inu frá upphafi og hefur því verið í fremstu víglínu ungra geð- sjúklinga í gegnum árín. Er reifarí, feknóbolfi, kjaftaskur og auðvifað sannur rokkari „Byrjaði með Funkþátt Þossa tveim vikum eftir að X-ið fór í loftið fyrir sirka fimm árum. Það er sosum enginn með það al- mennilega á hreinu hvenær ná- kvæmlega þetta byrjaði. Ailir voru fullir og vitlausir og ekki alveg að fylgjast með tímanum." Þrátt fyrir að Þossi sé geðveik- ur og tali með framandi hreim þá hefur honum tekist að stofna fjölskyldu. Þessi elskulegi og sæti piltur á konu og barn. Hvað segir Þossi um það? „Jú, einmitt. Ég er að ala upp og búa og svona. Að pabbast er það jafnskemmtilegasta sem ég geri. Ég bý annars í Kópavogi, ólst hérna upp og líkar vel á æskuslóðunum. Það var að vísu ekki mikið um að vera hérna framan af. Bara steinsteypa og vírar út úr öllum húsum. Þegar ég var polli var ekki einu sinni sjoppa til að hanga í héma í Kópavogi. En það var nú rétt fyrir tíma pönkaranna og ég hafði vit á því að flytja á Sel- tjarnarnes um svipað leyti og farið var að rita „Englaryk" upp um alla veggi.“ Fór níundi áratugurinn illa í Rauöu stjörnuna? „Hann fór alla vega ekki það illa í mig að ég væri með silfur- litaða hanska. En ég reyndi samt að passa þarna inn. Keypti mér hálfuppháa Adidas-skó og mát- aði neóngrifflur en það virkaði ekki. Ég held ég hafi bara ekki verið að ná þessu.“ Sem betur fer er þessi níundi áratugur alveg horfinn og við honum tók tíundi áratugurinn sem byrjaði í krafti danstónlist- arinnar. Varstu ekki dansfifl um tima? „Ég var reifari af guðs náð með öllu sem því fylgdi." Hvaö fylgdi? „Það kom náttúrlega nýtt dóp á markaðinn, ecstacy, og allir héldu að þeir hefðu fundið sann- leikann og fóra að prédika. Við erum að ræða um dóp sem veld- ur skynvillu og því upplifðu all- ir þennan tíma sem eitthvað yndislegt. En það var bara í fyrstu tvö skiptin því eftir það þarftu meira og meira til að komast í réttu stemninguna. Á endanum verður dópið aðalat- riðið en ekki tónlistin og félags- skapurinn. Og þá deyr bólan endanlega. En það verður að við- urkennast að þetta tímabil var ofsalega skemmtilegt til að byrja með. Það myndaðist svona tvö hundruð manna samstilltur hóp- ur sem var á fullu í að skemmta sér vel. En um leið og dópið tók yfir þá sundraðist hópurinn og allir hættu og teknóið dó. Enda var teknóið bara afsökun til að taka æðislega mikið magn af eit- urlyfium." Nú hefur X-ið skipt um tónlist- arstefnu? „Já, við erum búnir að skýra línurnar betur og einbeitum okkur nú að því að vera harðari og um leið rokkaðri. Tókum þá stefnu að þjóna okkar fólki betur. Þess má geta að það hærri sjálfsmorðstíðni i þeim lands- hlutum þar sem X-ið næst ekki og það er eiginlega ástæðan sem maður er að standa i þessu. Ég og David Hasselhoff vinnum við að bjarga mannslífum.” Þaö er sem sagt ekki mikió af negrum og teknótussum á X-inu þetta misseriö? „Nei, ekki mikið allavega. Hip hoppið er bara orðið alltof commercial og teknóið í ein- hverri lægð þessa dagana. Dans- tónlistin er bara búin og það eina sem getur bjargað henni er nýtt dóp. Það hefur enginn alls- gáður maður áhuga á því að dansa ofsalega vel. Þá held ég að það sé skárra að fara út og slammdansa. Sparka í fólk og fá glóðarauga og svona. Það er meiri stemning í þvi en að þykjast vera æðislega sætur í einhverjum teknóklúbbi." Þú ert nú svoldiö sœtur samt? „Já, takk. Enda er ég að vona að myndimar hérna geti komið mér eitthvað á framfæri. Það væri ekki verra að komast yfir geðveikan módelsamning og græða fullt af peningum og svona." Nú ertu líka búinn að vera aö plötusnúöast í gegnum tíðina. Ertu eitthvaö aö troöa upp þessa dagana? „Ekkert frekar neitt, spila alltaf öðru hvoru á Thomsen og svona. Ég er 'að vísu svoldið skrýtinn plötusnúður, er ekkert að flækja mig í nafnarugli og spila lög. Sem þykir mjög sér- stakt. Það kemur jafnvel fyrir að ég byrji bara lag á byrjuninni og spili það til enda. Þessi dj. stemning sem var er líka nánast alveg horfin. Það er mjög sjald- gæft að sjá nú orðið plötusnúð sem vekur upp múgæsingu og fær fólk til að hoppa og veltast utan í hvort öðru eins og var á reifunum í gamla daga. Þetta er allt orðið miklu rólegra í dag.“ Er Þossi sœti, sem dreymir módeldrauma og ekur um á Alfa Romeo, rómantískur? „Jæja. Ég veit það ekki. Er viðtalið nú farið að snúast upp í einhverja umræðu um hlutverk kynjanna? Þessi mál eru alla- vega frekar skýr á mínu heimili. Ég er ekkert opnandi hurðir alla daga en ég vaska upp og elda og ryksuga þrátt fyrir að margir haldi að ég sé algjör karlremba. Það er nú bara þannig að konur vilja vera með karlmanni en ekki einhverri píku sem er alltaf að tuða um hvað hún sé frábær og yndisleg. Það er nóg að vera rómó einu sinni í mánuði því ef það væri oftar þá fá konur nóg.“ Eitthvaö aö lokum? „Nei. Út í hvaða vitleysu er þetta viðtal að leysast?" -MT „Um leið og dópið tók yfir þá sundrað- ist hópurinn og allir hættu og teknóið dó. Enda var teknóið bara afsökun til að taka æðislega mikið magn af eiturlyfjum." Það er hærri sjálfsmorðs- tíðni í þeim landshlutum þar sem X-ið næst ekki 9. október 1998 f Ókus

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.