Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.1998, Síða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.1998, Síða 9
9. október 1998 f Ókus hlutverk með aldrínum Meginþema Ofanljóss, sem frum- sýnt verður í Borgarleikhúsinu um helgina, er ástarsamband miðaldra manns, sem leikinn er af Þorsteini Gunnarssyni, og ungrar konu sem er leikin af Guðlaugu Elísabetu. Þorsteinn er eitthvað þunglyndur yfir því að konan hans deyr og því leitar hann Guðlaugu uppi og unga undrið Friðrik Friðriksson kem- ur við sögu með óvæntum hætti. Af hverju er karlinn alltaf gamall og konan ung í bíói og leikhúsi? „Ég veit það ekki. Ætli þetta fari bara ekki eftir því hver velur i hlutverkin. í handriti að þessu leik- riti er tekið fram að karlinn skuli vera um fimmtugt og konan um þrítugt. Það er samt ekki umfjöll- unarefni í verkinu þó það sé partur af öllu dæminu." Er þessi aldurskipting raunveru- leiki sem þú kannast við? „Nei. Ég þekki engin hjón sem á er tuttugu ára aldursmunur. En ég er nú frekar ung og það má vel vera að eitthvað sé um þetta þó ég hafi ekki hugmynd um það. Það eina sem er leiðinlegt við þetta er að það blasir við flestum leikkonum að fá miklu færri hlutverk eftir því sem þær eldast.“ David Hare er með merkilegri skáldum sem hafa verið að hjakka þetta í gegnum tíðina. Hann hefur skrifað fjöldann allan af leikritmn og kvikmyndahandritum ásamt því að skrifa og leikstýra kvikmyndinni Wetherby sem vann Gullbjörninn á kvikmyndahátíð Berlínar 1985. Þekkirðu eitthvaö til þessa Davids Hares? „Nei, ekki mikið. En ég held að hann sé orðinn Sir David Hare og mjög vinsæll höfundur á föstum samningi hjá stóru leikhúsi á West End.“ Leikritiö Ofanljós? „ Já, glænýtt verk. Ég held að það hafi verið frumsýnt úti 1995. Þetta er magnað verk um ástir og örlög. Það er mjög erfitt að flokka það sem slíkt því það eru hundrað flet- ir á því. Þó segja megi að það sé drama mætti líka segja að það taki bara á öllu því sem gerist þegar um er að ræða manneskjur með skoð- anir og tilfinningar." Varstu ekki annars aö koma frá Moskvu? „Jú, Feður og synir eftir Tur- gemiev var frymsýnt þar í síðustu viku. Það var sýnt tvisvar og gekk rosalega vel. Mjög ánægjuleg upp- lifun að fá þetta tækifæri. Þeir voru líka mjög áhugasamir Rússarnir og það var uppselt á báðar sýningarn- ar.“ Er Moskva ekki viöbjóösleg borg? „Hún er alla vega stór og það er allt önnur menning í gangi þarna og en við höfum vanist. Svo er auð- vitað skelfilegt ástand þarna úti. Tíu prósent þjóðarinnar eiga alla peningana og restin á ekki bót fyr- ir boruna á sér. Veikir, aldraðir og fatlaðir eiga í engin hús að venda. En þjóðin sjálf tekur þessu með ótrúlegri ró og hugsar bara um að lifa af eins og hún hefur alltaf gert.“ Guðlaug Elísabet Ólafsdóttir útskrifaðlst frá teiklístarskólanuml 994 og hefur verið viðioðandi Borgarieikhúsið síðan. Hún er að frumsýna Ofanljós f kvðld. EHt af þemum verkslns er ástir eldri manns á yngri konu. I kvöld frumsýnir Guðlaug Elísabet leikritiö Ofanljós eftir David Hare. Karlfauskar oq ynqismeyiar I leikritinu Ofanljós er fjallað um ástir rúmlega mið- aldra manns og ungrar konu. Þótt slík sambönd þyki í raunveruleikanum frekar kjánaleg fyrir báða aðila þá er þessi aldursmunur nánast viðtekin venja í draum- heimum - alla vega þeim sem Hollywood vill kalla fram. Gamlir fauskar eins og Michael Douglas líta þannig varla við eldri konum en þrítugum. í bíói virð- ist heppilegasti aldursmunur hjóna vera eitthvað um þrjátíu ár, karlinn hefur þá stælta konu að styðja sig við inn í ellina og konan getur gefið þeim æskublóma sinn sem sárast saknar hans. Hér má sjá nokkur dæmi um pör á heppi- legum aldri úr völdum bíómyndum. 61 E Funny Face im'im'im'Hu'tHOHi Fred Astaire 57 Audrey Hepburn 27 To Catch a Thief lHLlHllm.lHllHU Cary Grant 51 Grace Kelly 25 Manhattan iHOmlHCmtHU Woody Allen 44 Mariel Hemingway 18 Husband and Wives Hu'im 'Huimimim'Hu ii Woody AÍIen 57 Juliette Lewis 19 Mighty Aphrodite imtm'nu'imimlm ii Woody Allen 60 Mira Sorvino 28 Everyone Says I Love You imimim'Hmm'im n Woody Allen 61 Julia Roberts 29 Bullworth imimimimim'nu Warren Beatty 61 Halle Berry 31 As Good as It Gets 'Huim'im'Huimi Jack Nicholson 61 Helen Hunt 35 6 Days, 7 Nights HU'HUim'HU'HU II Harrison Ford 56 Anne Heche 29 Bugsy tmtitomin Warrren Beatty 54 Annete Bening 33 A Perfect Murder imimimimimn Michael Douglas 53 Gwyneth Paltrow 25 The Hourse Whisperer im'im'Huimni Robert Redford 61 Kristin Scott Thomas 38

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.