Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.1998, Page 19
Nú um helgina er réttur mánuð-
ur liðinn frá því Keikó kom heim
og var látinn síga niður í kvína í
Klettsvíkinni í Vestmannaeyjum. í
tilefni þessa hafa forráðamenn
Keikós i landi ákveðið að birta þær
upptökur sem gerðar hafa verið í
kvínni undanfarnar vikur, en þær
eru liður í því rannsóknarstarfi
sem tengist komu háhyrningsins.
Upptökur þessar, sem þeir Free-
Willy-Keiko-menn kalla „Dagbók
Keikós", eru samtals um 70
klukkustundir, 2400 síður af prent-
uðu máli, og voru þær enn sem
fyrr unnar samkvæmt þýðingarfor-
riti sjávarlíffræðingsins Joshua
heitins Browns sem á sínum tíma
var manna fremstur í túlkun
hvalamáls. Að auki var hér í fyrsta
sinn beitt nýrri „hraðeindartækni"
sem gerir mönnum kleift að hljóð-
rita hugsanir sjávardýra; skynjari
les örtiðni-bylgjur sem einungis
greinast í vatni og sá lestur er síð-
an samkeyrður með þýðingarfor-
ritinu. Útkoman er óvænt og ný
sýn í persónulegt líf sjávarspen-
dýra. Upptökurnar úr Klettsvík
eru því tvískiptar. Annars vegar er
um að ræða einræður hvalsins við
sjálfan sig og hins vegar samtöl
hans við gesti utan úr hafinu sem
heimsótt hafa hann í kvína.
Fókus birtir hér fyrstur fjöl-
miðla þrjá stutta kafla úr „Dagbók
Keikós“.
ur? Mamma ... Mamma sagði alltaf
ekki borða marglyttur. Marglyttur
vondar í maga. Þarf að fara að læra
að éta sjáifur. Ég er aumingi. Get
samt varla opnað munninn. Harð-
sperrur í kjálkavöðvum. Ahh ... Ég
er aumingi. Mata sig. Ég læt mata
mig. Það er síld héma líka. Síid í
hvert mál. Hvað halda þeir að ég
sé? Það er farið í mat núna, fjöl-
miðlafólkið. Hvernig þætti Brad að
borða síld sjö sinnum á dag? Á
hann konu? Hann talar aldrei um
sín privatmál við mig. Nei hann á
ekki konu. Einhver hvala-nörd.
Who wants a man like that? Fjöl-
miðlafólkið. Þrjú sjónvarps-crew
fyrir hádegi. Hvað er íslenska orð-
ið yfir „crew“? Samt minna en ég
hélt. Vonbrigði að sjá ekki neinn
frá NBC. Brad sagði samt að ég
hefði verið á CNN. Hvað er þetta
nú aftur? Já, þorskur. Þorskur. Sá
guli. Bíddu. Bíddu þorskur. Nú
kemur Keikó og étur þig. Ekki
svona hratt. Þorskur. Bíddu. Ohh
... Þarna slappstu naumlega. Nei
nei, ekki naumlega. Ég er aumingi.
Föstudaqur
11. september kl. 17.45]
Var búinn að gleyma rokinu.
Gamla góða rokinu. Minnir á laug-
ina í Mexíkó, þegar þeir settu öldu-
tækið í gang. Marina. Man Marinu.
Hvar ætli hún sé núna? Hún var
sæt. Ógeðslegt þetta síldarbragð í
bita?“ Pabbi var töffari. Græn-
lenskur djöfull. Hnísa. Hún er sæt.
Hvað á ég að segja? Og svo er ég
svo andfúll ömgglega. Það er síldar
ógeðs lykt út úr mér. Ég skelf allur
á hreifunum. Ég er pempía.
Hollywood hefur eyðilagt mig.
Jæja. Here we go.
HNÍSA: „Hæ.“
KEIKÓ: „Hæ.“
HNÍSA: „Er verið að veiða þig?“
keikó: „Veiða mig?“
hnísa: „Já, af hverju ertu í þessu
neti?“
keikó: „Þetta er kvíin mín.“
HNÍSA: „Kvíin þín?“
KEIKÓ: „Já. Ég var að koma.“
HNÍSA: „Hvaðan varstu að koma?“
keikó: „Frá Newport... Ameríku."
hnísa: „Vá. Ameríku. Þú hefur ör-
ugglega verið ... Varstu lengi þar?
Þú talar dáldið skrýtið. Með
skrýtnum hreim. Þú hefur verið
lengi i Ameríku. Eru hvalir friðað-
ir þar líka? Þú veist að það má ekki
veiöa þig. Af hverju léstu veiða
þig? Vá hvað þetta er stórt net. Þeir
veiða okkur samt stundum. Hnís-
urnar sko. Mamma var veidd. Eða
ég hélt það. Samt var hún ekkert
veidd. Hún fór bara smá. Mamma
er algjör pía. Hún eltir alla báta
sem hún sér. Hún fór til Vest-
mannaeyja. Þú veist þama ...
klettana. Eða ég sko kom þangað
einu sinni. Ógeðslega langt að
synda þangað. Hefur þú komið til
Föstudagur
11. september_____kl. 12.20
Var búinn að gleyma hvað sjór-
inn er dimmur. Dimmur. Gott. Get
látið mig hverfa. Meira prívasi.
Djöfuls jet-lag. Brad enn að svamla
þarna uppi. Ætlar hann að vera
héma i allan vetur? Af hverju varð
hann ekki eftir í Newport? Orðinn
þreyttur á þessum þjálfurum.
Aldrei neitt að marka þá. Free
Willy Keikó hvað. Samt skárra hér
en í lauginni. Vil ég frelsi? Ahh ...
Verkjar enn í hreifana. Harðsperr-
ur í sporðinum. Hvað er þetta? Æ
já ... ég man. Hvað hét þetta nú aft-
munninum. Þoli ekki síld. Nei! Nei
nei nei nei.... Góðan daginn gamli
kall! Hnísa! Hnísa. Langt síðan
maður hefur séð hnísu. Hún horfir
á mig. Augnakontaktur. Ég þori
ekki ... Ég syndi burt. Nei. Ég er
aumingi. Samt net á milli okkar og
ég þori ekki! Keikó! Fuck you!
Farðu og talaðu við hana. Vonlaus
í kvennamálum. Hvar er Brad?
Brad kynnti mig fyrir Marinu. Líf
mitt með mönnum. Hvað á ég að
segja? Hvaða pick-up-lines eru not-
aðar í sjónum? Ég er að fríka út.
Mamma sagði aö pabbi hefði kom-
ið til sín með sel í kjaftinum og
sagt: „Má ekki bjóða dömunni
Vestmannaeyja?"
keikó: „Við ERUM í Vestmannaeyj-
um.“
hnísa: „Er það? Ó já. 0, ég get ver-
ið svo rugluð. Ég meinti ekki Vest-
mannaeyja. Ég meinti hinar þarna
M
KEIKÓ: „Er ungfrúin ef til vill að
tala um Færeyjar?"
HNfSA: „Já, Færeyjar. Auðvitað.
Færeyjar. Vá maður. Fyrirgefðu.
Ég er stundum alveg úti að synda.
Hvað, af hverju er hann svona
lafandi, bakugginn á þér?“
keikó: „Já það? ... það var ... Ég
lenti í slysi. Var að sýna í Mexíkó.“
HNÍSA: „Mexíkó? Vá. Þú talar svo
furðulega. Stundum skil ég ekkert
hvað þú segir. Kví og svona ... og
Geximó. Þú ert skrýtinn strákur.
Heyrðu ég verð að fara. Vinur
minn fór að veiða handa mér.
Hann verður brjálaður ef ég verð
sein. Ég er alltaf sein. Ekki láta
veiða þig. Sjáumst. Bæ.“
Jesus Christ. How stupid can
you get? Hvemig á ég að fara að
búa með þessu? Kannski bara best
að vera í kvínni, með Brad. Þó
hann sé enginn heimspekingur og
ömurlegur kokkur þá er allavega
skárra að hlusta á hann en þetta.
Þvílík heimska! Og ég sem var að
pæla í henni! Hún líka af annarri
tegund. Perri get ég verið. Hnísur.
Ljóskur hafsins. „Er verið að veiða
þig?“!!! Na na na na na ... Mexíkó
örugglega bara eitthvað fraktskip
fyrir henni. Jesus. Hver var þessi
Jesus? Brad segir þetta alltaf.
Margt sem ég veit ekki. En samt.
Keikó kallinn er heill stjörnufræð-
ingur miðað við þetta sjávarlið.
Hvernig meikaði ég þetta á sínum
tíma? Ég meina, hún vissi ekki
einu sinni hver ég var. Er Keikó
ekkert númer hérna í sjónum?
Fylgist þetta lið ekkert með? Fuck
it. Jæja. Malli tómur malli. Nú
syndi ég upp, í mat. Kondu nú
Brad minn kæri. Farðu nú í flot-
búninginn og settu síld í Keikó.
Settu sild í Keikó. Elsku besti Brad
minn. Og klóraðu svo kallinum
þínum á bakinu eftir matinn.
Keikó kemur! Keikó kemur! Look
who’s coming for dinner!
Föstudaqur
2. október kl. 14.0:
Þrjár vikur í kvínni. Þetta er
ágætt. Já já. Keikó kallinn syndir
og syndir. 16 hringir í morgun. 16
eftir hádegið og bla bla bla ... Rosa-
fjör hjá mér alltaf. Þorskur. Þorsk-
ur. Nú skal ég ... á...og ... ah ... djöf-
uls. Þetta gengur ekki lengur. Get
ekki veitt. Bara kann það ekki.
Ekki nema þessi dauðyfli sem Brad
laumar í kvína annað slagið. Kalla
það nú ekki að veiða. Þó það nú
væri að maður geti slafrað í sig
dauðum þorski. SEM BúiÐ er að
DREPA FYRIR MANN. Þarf að æfa
viðbragðið. Nei, höfrungarnir
mættir aftur. Eru þetta þeir sömu?
Skárra en ekkert að spjalla við þá.
KEIKÓ: „Blessaðir."
höfrungur 1: „Ert þú Keikó?“
keikó: „Sá er hvalurinn."
höfrungur 1: „Vá. Þú ert Keikó.
Strákar, ég sagði ykkur það að
hann væri hérna! Ég sagði að hann
væri kominn! Sagði ég það ekki?
Ég meina. Þetta er Keikó! Megum
við koma við þig?“
KEIKÓ: „Ef ykkur dreymir um að
leggjast í mexíkanska inflúensu, þá
er ykkur guðvelkomið að stinga
nefinu inn I sóttkvína."
höfrungur 2: „Hefur þú hitt Moby
Dick?“
KEIKÓ: „Moby Dick! Ha ha ha ha ...
Hef ég hitt Moby Dick? Ha ha ha ha
... þið eruð nú alveg dásamlegir
drengir mínir. Moby Dick!! Ha ha
ha ha ...“
HÖFRUNGUR 2: „Hvemig er að vera
frægur?"
keikó: „Það er, drengir mínir, ef
satt skal segja, alveg ömurlegt hlut-
skipti. Alveg ömurlegt. Og varla á
nokkurn hval leggjandi."
höfrungur 2: „Af hverju ekki?“
KEIKÓ: „Sjáið nú til dæmis þennan
hljóðnema þarna? Need I say
more?“
HÖfrungur 1: „Af hverju talarðu
svona skringilega? Er þetta amer-
iskur hreimur?"
keikó: „0 nei nei, drengir mínir.
Það er hinn mesti misskilningur.
Þetta er nú bara gamli góði Norð-
urmýrarhreimurinn. “
höfrungur 1: „Þetta er snillingur!
Strákar, ég sagði ykkur það. Hval-
urinn er séní!“
höfrungur 3: „Ertu hommi?"
KEIKÓ: „Ef það væri nú svo gott.
Nei drengir mínir, Keikó er það
sem kallað er „sjálfkynhneigður."
HÖFRUNGUR 2: „Sjálfkyn...eygður,
hvað er það?“
KEIKÓ: „Jæja, elsku drengirnir
mínir. Nú er Keikó orðinn full
djúpur fyrir ykkur. Nú skuluð þið
fara upp að anda.“
Hallgrímur Helgason
9. október 1998 f ÓkUS
föld
ánægja!
Hringdu og
pantaðu
16" pizzu
með 5
áleggsteg.
fyrir aðeins
1400 kr.