Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.1998, Síða 2
2
ÞRIÐJUDAGUR 20. OKTÓBER 1998
Fréttir
ÍE krefst þess að Læknafélag íslands eyði segulbandsupptökum:
Hljóðrituðu í laumi
- hafa sjálfir rætt um nauðsyn persónuverndar en virða ekki, segja menn íslenskrar erfðagreiningar
Fundur fulltrúa Læknafélags ís-
lands og íslenskrar erfðagreiningar,
sem haldinn var i höfuðstöðvum
lækna í Hlíðasmára i Kópavogi fyr-
ir nokkrum dögum, var hljóðritaður
og hafa fulltrúar fyrirtækisins og
lögfræðingur þess lýst furðu sinni á
þeim vinnubrögðum. Segja þeir um
að ræða brot á viðurkenndum sam-
skiptaháttum, þegar hljóðritaður er
fundur án vitundar og samþykkis
annars aðilans. Ekki hafi verið jafn-
ræði með mönnum á þessum lokaða
fundi, þegar annar aðilinn telur sig
vera að eiga óformleg samskipti eða
viðræður í trúnaði meðan hinn get-
ur nýtt sér vitneskju sína um hljóð-
ritun í því sem hann segir og gerir
á fundinum.
„Má raunar segja að steininn taki
úr þegar í ljós kemur að Læknafélag
íslands, sem að undanfomu hefur
öðram fremur rætt um nauösyn
persónuvemdar og trúnaðarsam-
bands í samskiptum við lækna,
skuli með svo grófum hætti brjóta
gegn viðurkenndum grunnreglum í
siðuðum sam-
skiptum," segir
Baldur Guðlaugs-
son, lögmaður Is-
lenskrar erfða-
greiningar, í
bréfi til Læknafé-
lags íslands.
Fundurinn
sem hér um ræð-
ir var haldinn í
tilefni af komu
erlends tölvusér-
fræðings, Ross
Andersons, sem
hér var staddur á vegum Læknafé-
lagsins. Fundurinn var haldinn að
beiðni læknanna og umræðurefnið
hinn miðlægi gagnagrunnur á heil-
brigðissviði og verndun persónu-
upplýsinga.
í síðustu viku barst íslenskri
erfðagreiningu vitneskja um að
nafngreindir fulltrúar Læknafé-
lagsins, sem fundinn sátu, ræddu
það opinskátt að Læknafélagið
hefði látið hljóðrita fundinn. Gæti
Kári Stefánsson
- taiaði opið á
fundinum en var
„teipaður".
félagið af þeim
sökum allt eins
birt opinberlega
allt sem fram fór
á fundinum.
Lögmanninum
var falið að
kanna hvort rétt
væri. Þá átti lög-
maðurinn að
óska eftir að fá
upptökuna af-
henta eða fá
hana eyðilagða í
vitna viðurvist.
Framkvæmda-
stjóri Læknafé-
lags íslands
sagði í símtali við lögmanninn á
fimmtudaginn að hann vissi ekki
til að fundurinn hefði verið hljóð-
ritaður, enda hefði hann ekki setið
fundinn. Tók hann að sér að kanna
málið. Á föstudaginn hringdi fram-
kvæmdastjórinn í Baldur lögmann
og sagði að formaðurinn mundi
hafa samband við hann. í þessu
Guðmundur
Björnsson, for-
maður Læknafé-
lagsins - vill
ekki afhenda
spóluna eða
eyðileggja hana.
samtali kom fram að framkvæmda-
stjórinn sagðist vita núna að fund-
urinn hefði ekki verið hljóðritað-
ur. Skömmu síðar hringdi sími lög-
mannsins og var kollega hans hin-
um megin þráðarins, Guðni Á.
Haraldsson hæstaréttarlögmaður,
sem hringdi á vegum Læknafélags-
ins. Hann hafði aðra sögu að segja.
Nefnilega að fundurinn hefði verið
tekinn upp á segulband. Reglan hjá
læknum væri að hljóðrita alla
fundi í félaginu til að auðvelda rit-
un fundargerða. Kröfu um að eyða
spólunni var hafnað. Guðni sagði
að upptakan yrði ekki notuð, en
bætti síðan við að fulltrúar Lækna-
félagsins sem fundinn sátu myndu
þó styðjast við hana í frásögnum af
því sem sagt hefði verið „í vitna
viðurvist" á fundinum.
Nú er þess krafist af íslenskri
erfðagreiningu að Læknafélagið
eyði umræddri segulbandsspólu
frá fyrrgreindum fundi, en hún er
sögð geymd í eldtraustri hirslu.
-JBP
Eskifjörður:
Verksmiðju-
met af
kolmunna
DV, Esldfirði:
Loðnuverksmiðja Hraðfrysti-
húss Eskiíjarðar hefur nú tekið
á móti rúmlega 30 þúsund tonn-
um af kolmunna. Þetta er meira
en verksmiðjan hefur nokkru
sinni áður móttekið af
kolmunna. Kolmunninn fer all-
ur í bræðslu og er hrein viðbót
við það sem verksmiðan hefur
úr að moða í loðnu og síld. Það
sem af er október hefur verið
landað 8.500 tonnum en í sept-
ember bárust að landi 8.900
tonn. Fyrsta kolmunnanum var
hins vegar landað siðari hluta
aprílmánaðar. Miklar vonir eru
bundnar við veiðar á kolmunna
í nánustu framtíð og horfa út-
gerðarmenn og eigendur loðnu-
verksmiðja hýrum augum á
málið. -Regína
Reykur á sólbaðsstofu:
Skelfing
greip um sig
„Ég lá í rólegheitum í Jjósa-
bekknum þegar stúlka kallaði
skyndilega að það væri eldrn- í
húsinu. Það var bankað á allar
hurðir. Þegar ég steig upp úr
bekknum var mikill reykur og
maður var alveg að lognast út
af. Ég komst í buxumar og
skreið út úr klefanum. Það var
fullt af fólki og allir skelfingu
lostnir,“ segir Ragnar Ottósson
sem var staddur í sólbaðsstofu
við Hraunberg í Reykjavík sl.
föstudagskvöld. Sólbaðsstofan,
sem er á þriðju hæð hússins,
fylltist af reyk eftir að kveikt
var í teppi á fyrstu hæð. Margt
var á sólbaðsstofunni, að sögn
Ragnars, þegar atvikið átti sér
stað sl. fóstudagskvöld.
„Þetta var mikill reykm- í
fyrstu en sem betur fer sjatnaöi
hann fljótlega og fólkið róaðist
þegar ljóst var að enginn eldur
var á hæðinni. Það var álitið að
einhverjir piltar hefðu kveikt í
teppi á fyrstu hæð hússins.
Slökkvilið kom síðan og
reykræsti sólbaðsstofuna," segir
Ragnar. -RR
Maður slasaðist f Vesturvör í Kópavogi í gærmorgun þegar hann fékk stóran járnbita í höfuðið. Maðurinn stóð við
hlið vörubíls sem verið var að bakka út á götuna. Stór járnbiti stóð aftur af bflnum. í þann mund sem vörubíllinn
bakkaði út á götuna kom flutningabfll eftir götunni og lenti á járnbitanum. Járnbitinn rann þá til og lenti á höfði
mannsins. Hann var fluttur á slysadeild með talsverða áverka á höfði. DV-mynd S
Nýjar upplýsingar sem Ragnar Hall rannsakar eru frá lögreglumanni í Reykjavík:
Lýsti yfir vitneskju
lögreglustjórans
- um horfin fikniefiii - talið hæpið að upplýsingamar breyti fyrri niðurstöðum
Þær nýju upplýsingar sem Ragn-
ar Hall hæstaréttarlögmaður hefur
fengið til að rannsaka um málefni
lögreglunnar í Reykjavík er yfirlýs-
ing lögreglumanns sem segist meðal
annars hafa upplýst Böðvar Braga-
son lögreglustjóra um að ákveðið
magn fíkniefna hefði horfið úr
vörslum Bjöms Halldórssonar, fyrr-
um lögreglufulltrúa fikniefnadeild-
ar. Hins vegar lá ekkert fyrir um
það hjá lögreglumanninum hvert
þau efni hefðu getað farið - í
geymslu, út úr húsi eða eitthvað
annað.
Hér er ekki um að ræða fíkniefhi
sem eru umfram þau 3,5 kíló sem
embættið hefúr ekki getað gert grein
fyrir. Samkvæmt upplýsingum DV
er hér í raun ekki um nýja fleti að
ræða því Ragnar og reyndar Atli
Gíslason hafa báðir rannsakað
meinta vitneskju Böðvars um horfin
efni. Ekkert kom fram við rannsókn-
ir þeirra sem bentu til að Böðvar
hefði haft vitneskju um horfin efni.
Því er ekki gert ráð fyrir að „ný
rannsókn" Ragnars muni breyta ein-
hverju um fyrri niðurstöður.
Þessar nýju upplýsingar komu
fyrst fram hjá lögreglunni í Reykja-
vík. Þaðan voru þær sendar ríkislög-
reglustjóraembættinu. Þar sem ríkis-
lögreglustjóri starfaði á síðustu
misserum sem varalögreglustjóri í
Reykjavík taldist embættið vanhæft
og sendi það dómsmálaráðuneytinu
málið. Það hefur nú óskað eftir að
Ragnar Hall rann-
saki þessar nýju
upplýsingar.
Sögðust hafa
fengið efni
fyrir upplýs-
ingar
Samkvæmt
heimildum DV
hefur einnig kom-
ið til álita að rann-
saka framburði tveggja manna
tengdra fíkniefnaheiminum sem
sögðust hafa fengið fíkniefhi fyrir
að veita fíkniefnalögreglunni upp-
lýsingar. Eftir því sem DV kemst
næst hefúr ekkert komið fram enn
þá sem sannar þessa framburði.
Þrálátur orðrómur hefur verið á
síðustu misserum um að fíkniefna-
lögreglan veitti efni fyrir upplýsing-
ar um tiltekin sakamál en eins og
fyrr segir hefur slíkt ekki sannast.
-Ótt
Björn
Halldórsson.
Stuttar fréttir i>v
Neita áHtadrápi
Fimm menn sem sakaðir eru um
að hafa skotið tæplega 50 álftir í
Þykkvabæ fyrir um hálfum mánuði
segjast aðeins kannast við að ein álft
hafi verið skotin. RÚV sagði frá.
Fram með
Héraðsdómur
hefur úrskurðað
að Búnaðarbanki
Islands skuli veita
Hauki Holm,
fréttamanni Stöðv-
ar 2, aögang að
gögnum um hveij-
ir gistu í íbúð
bankans í Lundúnum. RÚV sagði frá.
Lokað á morgun
Útfor Guðrúnar Katrínar Þorbergs-
dóttur forsetafrúar fer fram á morgun
og hefst kl. 10.30. Útvarpað og sjón-
varpað verður beint frá athöfhinni.
Skrifstofur Stjómarráðsins og aðrar
opinberar stofnanir verða lokað fyrir
hádegi og til klukkan 13.00.
Vi|ja lausn
Hafín er undirskriftasöfnun á Sel-
fossi þar sem skorað er á Ingibjörgu
Pálmadóttur heilbrigðisráðherra að
taka nú þegar á vandamálum
Sjúkrahúss Suðurlands og heilsu-
gæslunnar áður en meira tjón hlýst
af. Vandamálin tengjast fram-
kvæmdastjóra og yfírsfjóm sjúkra-
hússins, að mati þeirra sem að þessu
standa.
Minningarsjóður
Forseti íslands
hefur tiikynnt um
að vegna fjölda
áskorana verði
stofnaður minn-
ingarsjóður um
Guðrúnu Katrínu
Þorbergsdóttur til
eflingar menntun
og þroska ungs fólks.
Nýtt starfsheiti
Tillaga til þingsályktunar um nýtt
starfsheiti fyrir ráðhema var til um-
ræðu á Alþingi í gær. í henni er lagt
til að finna starfsheiti sem teljist
nothæft fyrir bæði karla og konur.
Guðný Guðbjömsdóttir er flytjandi
tillögunnar.
Enn nýtt farslmafélag
Fyrirtækið Martel ehf. hefur fengið
leyfi til að reka farsímafélag á íslandi.
Fyrirtækið ætlar ekki að fara í sam-
keppni við farsímafélögin tvö sem fyr-
ir em, heldur stækka þjónustusvæði
fyrir farsíma. Bylgjan sagði frá.
dagbækur
Villa á sér heimiidir
Verktakar Sjónvarpsins sem leita
óskráðra sjónvarpstækja komu inn
á heimili í Breiðholti nýlega og þótt-
ust fyrst vera frá Félagsvísindastofn-
un að gera skoðanakönnun en snem
svo við blaðinu eftir að húsráðandi
hafði sagst eiga sjónvarpstæki á
heimilinu. Morgunblaðið sagði frá.
Fjárdráttur
Formaður Verslunarmannafélags
Ámessýslu hefúr látið af störfúm
eftir að staðfest hefúr verið að hann
dró sér fé úr sjóöum felagsins. Boð-
að hefur verið til aðalfúndar í félag-
inu í næstu viku vegna málsins.
Morgunblaðið sagði frá.
Kartöflusvik
Kartöflubóndi er grunaður um allt
að 16 milljóna undanskot frá skatti á
árunum 1992-1995. Um 60 manns
gengu í hús fyrir bóndann og seldu
kartöflumar. Morgunblaðið sagði frá.
Hver segir af sér?
Guðmundur
Gunnarsson for-
maður Rafiðnað-
arsambandsins
gagnrynm em-
bættismenn Heil-
brigðiseftirlits og
VinnueftirUts
fyrir slælega
framögngu gagnvart Technoprom-
export. Hann spyr í Morgunblaðinu
í dag hver þeirri ætli að segja af sér.
Lokun frestað
ísl. jámblendifélagið hefur frestað
því að slökkva á ofnum verksmiðj-
unnar á Grundartanga til 1. nóvem-
ber. Ástæðan er sú að Landsvirkjun
hefúr frestað að skerða afgangsorku
tU verksmiðjunnar sem áður var
búið að boða. -SÁ