Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.1998, Blaðsíða 4
4
ÞRIÐJUDAGUR 20. OKTÓBER 1998
Fréttir
Stuttar fréttir i>v
Könnun DV á því hverja kjósendur vilja fá í landsmálapólitíkina:
Flestir nefndu borgarstjóra
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borg-
arstjóri er sá einstaklingur sem
flestir vilja fá í framboð til Alþingis
úr þeim hópi sem ekki er þar nú. Þá
er sterkur vilji fyrir því aö fá Jón
Baldvin Hannibalsson, sendiherra í
Washington, aftur í landsmálapóli-
tikina. Þetta eru helstu niðurstöður
skoðanakönnunar DV sem fram-
kvæmd var í síðustu viku.
Spurt var: Hvaöa einstakling vilt
þú fá í framboð til Alþingis sem ekki
er þar nú? Úrtakið var 600 manns,
jafnt skipt á milli höfuöborgarsvæð-
is og landsbyggðar sem og kynja.
Spurningin virðist hafa komið
flatt upp á þátttakendur en einungis
33,2 prósent tóku afstöðu. Aðrir voru
óákveðnir eða neituðu að svara.
Af þeim sem afstöðu tóku vildi
14,1 prósent fá Ingibjörgu Sólrúnu
Gísladóttur borgarstjóra aftur í
landsmálapólitíkina. Hefur hún
verulegt forskot á aðra sem nefndir
voru. Jón Baldvin Hannibalsson er
ofarlega í huga margra kjósenda en
9,0 prósent nefndu hans nafn. Kári
Stefánsson, forstjóri íslenskrar
erfðagreiningar, kom næstur á eftir
Jóni Baldvin en 3,5 prósent nefndu
hann. Þar á eftir komu Sverrir Her-
Hvaða einstakling vilt þú fá í framboð
til Alþingis sem ekki er þar nú?
Inglbjörg Sólrún
Gísladóttir
Jón Baldvin
Hannibalsson
A1” :
Kári Stefánsson
Sverrir
Hermannsson
Guömundur
Gunnarsson
mannsson, fyrrverandi bankastjóri,
og Guðmundur Gunnarsson, for-
maður Rafiðnaðarsambands íslands,
en hvor um sig fékk atkvæði 3,0 pró-
Kratar vilja prófkjör
DV, Akureyri:
A aðalfundi kjördæmisráðs Al-
þýðuflokksins á Noröurlandi
vestra, sem haldið var um helgina,
var samþykkt að ganga til form-
legra viðræðna við Alþýðubanda-
lag og Kvennalista um sameigin-
legt framboð í kjördæminu. Þá var
einhugur um það á fundinum að
efnt yrði til sameiginlegs prófkjörs
flokkanna vegna uppröðunar á
lista framboðsins.
Steindór Haraldsson, formaö-
ur kjördæmisráðs Alþýðuflokks-
ins, segir að vissar „girðingar"
verði að hafa uppi þrátt fyrir að
prófkjörsleiðin verði farin, t.d.
hvað varði kynjaskiptingu og bú-
setu þeirra sem veljast í efstu
sæti framboðslistans. „Ég á alls
ekki von á öðru en að Alþýðu-
bandalag og Kvennalisti sam-
þykki að fara þessa leið og sjálf-
ur tel ég aö Alþýðubandalag
muni fá efsta sætið eftir slíkt
prófkjör," segir Steindór.
Nú liggur fyrir að fjórir aðilar
hafa gefið sig upp sem „kandí-
data“ varðandi efstu sætin. Það
eru Alþýðu-
bandalagskon-
umar Kristín
Anna Gunnars-
dóttir á Sauðár-
króki og Signý
Jóhannesdóttir á
Siglufíröi og krat-
arnir Kristján
Möller á Siglu-
firði og Jón Sæ-
mundur Sigur-
Jón Sæmundur
Sigurjónsson.
jónsson, starfsmaður í heilbrigðis-
ráðuneytinu og fyrrverandi þing-
maður á Norðurlandi vestra.
Steindór Haraldsson segir að
þar sem nýtt fólk sé að koma fram
í sameiningarframboðinu sé próf-
kjör mjög góð leið fyrir það fólk að
kynna sig i kjördæminu. „Það er
þörf breytinga hér, hér hafa sömu
þingmennimir verið lengi í kjör-
dæminu enda er allt að fara hér til
helvítis,“ segir Steindór. -gk
senta þátttakenda í könnuninni.
Loks nefndu 2,0 prósent Áma Sigfús-
son, fyrrum oddvita sjálfstæðis-
manna í borgarstjóm, og Stefán Jón
Hafstein ritstjóra.
89 nefndir á nafn
Svipað hlutfall tóku afstöðu til
spurningarinnar í hópi karla og
kvenna. Alls vom 89 einstaklingar
nefndir í könnuninni. Svör þátttak-
enda tóku oftar en ekki mið af bú-
setu en fólk úr nánasta umhverfi
viröist ofar í huga en aðrir.
Þessir vom nefndir þrisvar: Ást-
þór Magnússon, Gísli Gíslason, Guð-
rún Halldórsdóttir, Guðrún Péturs-
dóttir, Hannes Hólmsteinn Gissurar-
son, Jón Sigurðsson, Kristján Júlí-
usson og Smári Geirsson.
Þessir vom nefndir tvisvar: Ámi
Gunnarsson, Ámi Steinar Jóhanns-
son, Ásdís Halla Bragadóttir, Davíö
Scheving Thorsteinsson, Guðmund-
ur Jónsson, Guðrún Agnarsdóttir,
Guðrún Helgadóttir, Helgi Hjörvar,
Jakob Bjömsson, Matthías Bjarna-
son, Pálmi Matthíasson, Sigrún Stef-
ánsdóttir og Valdimar Bragason
Eitt atkvæði:
Eftirtaldir fengu eitt atkvæði
hver: Jón Steinar Gunnlaugsson,
Svanur Kristjánsson, Jón Arnar
Magnússon, Pétur Guðjónsson,
Benedikt Davíðsson, Bubbi
Morthens, Páll Óskar Hjálmtýsson,
Friðrik H. Sophusson, Björgvin H.
Bjömsson, Frímann Eiríksson, Páll
Skúlason, Þorvaldur Gylfason, Birg-
ir Ármannson, Jörmundur Ingi Han-
sen, Guðlaugur Þór Þórðarson, Ell-
ert Eiríksson, Jóhann Ársælsson,
Þórhallur Sigurðsson, Pétur
Ottesen, Sveinn Waage, Guðfríður L.
Grétarsdóttir, Ólafur Jóhann Ólafs-
son, Arthur Bogason, Magnús Gunn-
arsson, Ólafur Ragnarsson, Guðjón
Þórðarson, Kolfmna Baldvinsdóttir,
Sigurður Geirdal, Karl Sigurbjöms-
son, Þórveig Kristín Árnadóttir,
Steingrímur Hermannsson, Aðal-
steinn Baldvinsson, Þórarinn V.
Þórarinsson, Júlíus Vífill Ingvars-
son, Eyþór Amalds, Guðný Ýr Jóns-
dóttir, Margrét Pála Ólafsdóttir, 111-
ugi Jökulsson, Vilhjálmur Þ. Vil-
hjálmsson, Bjarni Ármannsson,
Salóme Þorkelsdóttir, Auður Eiríks-
dóttir, Eiríkur Jónsson, Ingimundur
Sigurpálsson, Guðrún Jónsdóttir,
Þórarinn Tyrfingsson, Gunnþórunn
Jónsdóttir, María Kristinsdóttir,
Kristinn H. Gunnarsson, Markús
Möller, Lárentínus Kristjánsson,
Smári Haraldsson, Halldór Jónsson,
Bjöm Snæbjömsson, Kristjón Krist-
jónsson, Ingi Bjöm Albertsson, Ingi-
björg Steingrímsdóttir, Kristín Arn-
alds, Pétur Pétursson, Hrafnkell A.
Jónsson og Guðmundur Birgisson.
-hlh
Eitt þúsund á mann
Mikið lifandis skelfing
hefur íslenska þjóðin verið
á miklum villigötum. Raun-
ar alveg frá lýðveldisstofn-
un. Hér hafa menn verið að
hamast í alls kyns fram-
kvæmdum, virkjunum,
fjárfestingum og mann-
virkjagerð. Og í leiðinni
hafa verið eyðilagðir heilir
hektarar af islenskri nátt-
úra, vegir lagðir um dali og
firði, fallvötnum beint í
nýja farvegi og ógrynni af
auðu og óspilltu landi hafa
verið lögð undir húsabygg-
ingar sem eru til lýta.
Hreinna lýta. Svo kemur í
ljós að öllu þessu hefði auð-
veldlega mátt komast hjá,
með því einu að íslending-
ar hefðu lagt til hliðar sem
nemur einum þúsundkalli
á ári!
Þetta segir prófessor í
hagfræði, hámenntaður maöur uppi í Háskóla,
sem heitir Ragnar Ámason og Ragnar færir fyrir
því hagfræðileg rök að bjarga megi Eyjabökkum,
þar sem nú er verið að tala um að virkja, með því
einu að hver og einn borgi þúsund krónur. Þaö
jafngildir arðinum af nýrri virkjun og um leið
em slegnar tvær flugur í einu höggi, vegna þess
að náttúran og Eyjabakkamir fá þá að vera í friði
fyrir náttúruspjöllum þjóðarinnar og arðurinn
verður meiri heldur en af raforkunni sem virkj-
unin á að framleiða.
Af hverju var okkur ekki sagt frá þessu fyrr?
Hagfræöin er jú gömul vísindagrein og byggir á
lögmálum sem hafa fyrir löngu verið fundin upp.
Getur það veriö að hagfræðingar síðustu áratuga
hafi verið svona illa að sér að geta ekki reiknað
út arð af einum þúsundkalli? Eða höfðu þessir
menn engan sans fyrir náttúraperlum landsins
og þeim spjöllum sem unnin hafa verið, vegna
þess misskilnings að þjóðin græddi á því að
virkja?
Okkur munar auðvitað ekkert um að borga
þúsund krónur á ári til að skapa arð fyrir þjóð-
ina og lifa í góðæri af þeim arði, sem þúsundkall-
inn skapar. Það er miklu betri aðferð, handhæg-
ari, auðveldari, hagkvæmari og umhverfisvænni,
heldur en þessi ósvinna að byggja og reisa orku-
ver upp um allar koppagrundir, til að græða á
framleiðslunni, þar sem gróðinn er langt fyrir
neðan þúsund á mann.
ímyndið ykkur mistökin við Sultartanga og
Þjórsárvirkjun alla, sem er tómt hagfræðilegt
rugl ef marka má hagfræðinginn í Háskólanum.
Svo ekki sé nú talað um þau spjöll sem unnin
hafa verið í landnámi Ingólfs með því að byggja
höfuðborgina í stað þess að vernda þar umhverf-
ið og borga þúsund krónur til að ferðamenn
hefðu getað notið þeirrcU' náttúra sem kvosin
býður upp á.
Nei, ég borga glaður minn þúsundkall ef
menn hætta við þessa vitleysu að reisa orkuver
og vegi og hús og verksmiðjur úti um allt land,
þar sem náttúran er til að horfa á en ekki til að
spilla. Rífum öll mannvirki og hverfum aftur til
náttúrannar.
Dagfari
Guðrúnar Katrínar minnst
Á fundi bæjarstjórnar Seltjamar-
ness minntist forseti bæjarstjómar,
Erna Nielsen,
Guðrúnar
Katrínar Þor-
bergsdóttur for-
setafrúar. Guð-
rún Katrín sat í
ýmsum nefndum
fyrir bæjarfélag-
ið á árunum
1978-1994 og var ötull málsvari
flokks síns í bæjarmálum Seltjam-
amess. Bæjarstjóm minntist for-
setafrúarinnar með vinsemd og
virðingu og sendir forseta íslands,
hr. Ólafi Ragnari Grímssyni, og
fjölskyldu hans innilegar samúðar-
kveðjur Seltiminga.
Á toppinn
Ríkisútvarpið greindi frá því að
íslendingarnir fimm, sem freista
þess að ganga á fjallið Amu Dablam
í Himalayafjallgarðinum, áætli að
ganga á toppinn í dag. Þeir reikna
með að komast upp á fjórum tím-
um.
Framboö hefur aukist
Framboð á nautgripum til slátr-
unar hefur heldur aukist síðustu
vikur, þó helst á Norðurlandi en
annars staðar á landinu er fram-
boðið minna. Biðlisti eftir slátrun
nautgripa er þó mun styttri nú en
undanfarin haust. Bændablaðið
greindi frá.
Loftsteinn á himni
Rikisútvarpið greindi frá því að
skært ljós hefði víða sést á himni í
fyrrakvöld. Likur benda til að loft-
steinn hafi brunnið upp í gufu-
hvolfinu.
IOGT mótmælir
Framkvæmdanefhd Stórstúku ís-
lands, IOGT, mótmælir harðlega
þeirri ákvörðun
borgaryfirvalda
að heimila vín-
veitingar í
íþróttahúsum og
í tengslum við
íþróttakappleiki.
Framkvæmda-
nefndin hvetur
dómsmálaráðherra til að sefja nýja
reglugerð sem tekur af öll tvímæli
um bann við áfengisauglýsingum.
íbúð brann
Slökkviliðið á Sauðárkróki var
kaOað að bænum Fagranesi á
Reykjaströnd í fyrrakvöld. Þar
hafði komið upp eldur í lltilli íbúð
á 2. hæð og urðu talsverðar
skemmdir á íbúðinni. Ríkisútvarp-
ið greindi frá.
Dýralæknum fækkar
Ný lög um dýralækna taka gildi
um áramótin. Með þeim er héraðs-
dýralæknum fækkað umtalsvert á
Suðurlandi og á Skagafjarðar- og
Eyjafjarðarsvæðinu en annars stað-
ar verða breytingarnar minni.
Bændablaðið greindi frá.
Ferðamönnum fjölgar
Rannsókn sýnir að verði ráðist í
Fljótsdalsvirkjun muni ferðamönn-
um fjölga á Austurlandi. Ríkisút-
varpiö greindi frá.
Námskeið RKÍ
Námskeið Rauða kross íslands
um slys á bömum - forvarnir og
skyndihjálp, verður haldið 21. og
22. október kl. 20-23. Námskeið í
sálrænni skyndihjálp verður haldið
28. og 3. nóvember kl. 19-23. Bam-
fóstrunámskeið fyrir nemendur
fædda 1984-1986 verða haldin 2., 4„
9. og 11 nóvember kl. 18-21.
Skylduaðild
Þórólfur Sveinsson, formaður
Landssambands
stjómarmaður í
Bændasamtök-
um íslands, seg-
ir í viðtali í
Bændablaðinu
að ekki sé annað
að sjá en að
skylduaðild að
félagssamtökum bænda sé framtíð-
arfyrirkomulag. -SJ
kúabænda og