Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.1998, Síða 5
ÞRIÐJUDAGUR 20. OKTÓBER 1998
5
Fréttir
Stofnfiskur hf.:
Einkavæðingarnefnd latin
yfirfara málið aftur
Frétt DV föstudaginn 9. október af
einkennilegri einkavæðingu fiskeldis-
fyrirtækisins Stofnfisks, þar sem með
í kaupunum átti að fylgja ríkisstyrkur
upp á tæpar tvær milljónir króna á
mánuði til ársloka 2006, var rædd á
Alþingi í síðustu viku. Fréttin varð til
þess að einkavæðingarnefnd hefur
verið falið að fara á ný yfir málið.
Björn Sigurbjömsson, ráðuneytis-
stjóri í landbúnaðarráðuneytinu, stað-
festi þetta í samtali við DV sl. föstu-
dag. Bjöm sagði jafnframt að Ríkis-
endurskoðun hefði gert athugasemdir
við ýmislegt í bókhaldi fyrirtækisins
og það væri meðal þeirra álitaefna
sem skoðuð yrðu. Vigfús Jóhannsson,
forstjóri Stofnfisks, sagði í gærkvöld
að öfundarmenn væri að eyðileggja
góð viðskipti. Hann sagði að ekki
væri verið að leyna einu eða neinu.
„Við erum orðnir uggandi og finnst að
illa hafi verið farið með okkur,“ sagði
Vigfús.
Stofnfiskur er hlutafélag að lang-
mestu leyti í eigu ríkisins og er arf-
taki Laxeldisstöðvar ríkisins í Kolla-
firði. Landbúnaðarráðuneytið gerði
samning um laxeldi og kynbætur á
eldisfiski 6. maí 1996 og viðbótarsamn-
ing 2. október sama ár. í þeim samn-
ingum er endurskoðunarákvæði sem
segir að samningsaðilar geti endur-
skoðað samninginn með eins árs fyr-
irvara miðað við áramót. í þeim
samningi sem DV sagði frá og var for-
senda sölu á fyrirtækinu, er hins veg-
ar ekkert slíkt endurskoðunarákvæði.
Sá samningur var gerður 17. april
1998. Aðeins er tilgreind samnings-
upphæðin í honum, sem er eins og
fyrr segir tæplega tvær milljónir á
mánuði og gildistími til ársloka 2006.
í samningnum frá 17. april er fjall-
að um að Stofnfiskur stundi kynbætur
á eldislaxi fyrir landbúnaðarráðu-
neytið, beiti til þess bestu aðferðum
og noti til þess minnst 200 laxafjöl-
skyldur til að tryggja hámarksfram-
farir. I samningnum er einungis talað
um lax, en ekki minnst á aðrar eldis-
tegundir, svo sem bleikju eða regn-
bogasilung. Hann tekur því einungis
til ræktunar og kynbóta á laxi. Stofn-
fiskur hefur flutt út hrogn til Chile í
nokkrum mæli, bæði lax, en einnig
bleikju og regnabogasilung. Ráðuneyt-
isstjóri var spurður hvort það sam-
ræmdist markmiðum samningsins og
hvort ekki væri verið að nota ríkis-
styrkinn til þess að rækta aðrar teg-
undir en þær sem samningurinn tek-
ur til. Hann kvaðst ekki nægilega
kunnugur þessu máli til að geta skor-
ið úr um það en visaði á Vigfús Jó-
hannsson, forstjóra Stofnfisks, að
svara þeirri spurningu.
Kaupandi afurða Stofnfisks í Chile
er fyrirtæki sem heitir Patagonia.
Forstjóri Stofnfisks, Vigfús Jóhanns-
son, eiginkona hans, Þórdís Helga
Sveinsdóttir, og Hans Kossmann í
Chile eru skráðir stjórnarmenn í íyr-
irtæki sem heitir Patagonia á íslandi
ehf. Þetta fyrirtæki var skráð í firma-
skrá 2. mars á þessu ári. Tilgangur
fyrirtækisins er í firmaskrá inn- og
útflutningur með fiskafurðir auk ann-
ars. DV spurði Bjöm Sigurbjörnsson
ráðuneytisstjóra hvort hann teldi að
það samrýmdist störfum forstjóra
Stofnfisks að reka einkafyrirtæki í
sömu viðskiptum og Stofnfiskur er í.
Það er eitt af því sem við erum að at-
huga,“ sagði Bjöm.
Vigfús Jóhannsson sagði í gær-
kvöld að margoft væri búið að leið-
rétta þetta. „Fyrirtækið Patagonia
er ekki í neinum rekstri og í öðru
lagi var þetta í raun stofnað til þess
eingöngu að efla viðskiptasambönd
Chilemanna á íslandi, einkum í
kringum skipasmíðar, fyrirtækið í
Chile er eigandi að skipasmiðastöð
þar,“ sagði Vigfús.
„Ein ástæðan fyrir því að þetta
kemur upp er að hópur manna
berst af hörku gegn þessari einka-
væðingu á félaginu. Stjómin studdi
það einróma og taldi það vera rétta
lausn og fyrirtækið óx og dafnaði.
Þetta var rakið dæmi um það
hvemig á að einkavæöa á þennan
hátt. Þarna vom verkefni sem rík-
isstofnanir gegndu áður fyrir helm-
ingi meira fé. Einhverra hluta
vegna hefur mönnum misfarist
mjög að halda á þessu máli og
klára það þannig að vel mætti fara.
Menn hafa leikið lausum hala með
upplýsingar eins og þessar, farið
illa með þær og skapað tortryggni.
Framtíðin var björt en vegna þess-
ara óvenjulegu starfshátta kringum
málið emm við að missa af tæki-
færinu. Við byggðum þetta upp úr
nánast gjaldþrota rekstri á sínum
tíma, síðan leggst hafbeit af en við
ákváðum að nýta þekkinguna með
sölu á afurðunum til útlanda. Laxa-
hrognin vom orðin söluvara,"
sagði Vigfús í gær. Hann neitaði
því að bleikjuhrogn hefðu verið
flutt út, aðeins laxa- og regnbogasil-
ungshrogn. -SÁ/JBP
Byssumenn við Nauthólsvík
- reyndust vera að undirbúa árshátíð
Síðdegis í gær var lögreglunni í
Reykjavík tilkynnt um þrjá menn
sem létu vígalega við Nauthóls-
vík. Var sagt að þeir væru vopn-
aðir.
Þegar lögreglan kom á staðinn
reyndist vera um að ræða þrjá
káta pilta úr menntaskóla á höf-
uðborgarsvæðinu. Þeir vora með
byssu, gamla herbyssu, sem raun-
ar var óhlaðin. Vora piltamir að
taka upp á myndband atriði sem
þeir hugðust sýna á árshátíð í
menntaskólanum.
Lögreglan gerði byssuna upp-
tæka enda reyndist ekki vera
leyfi fyrir henni.
Lögreglumaður á vakt sagði við
D V að fólk þyrfti að láta vita og fá
leyfi fyrir uppákomum af þessu
tagi. Vegfarendur væra margir á
þessum slóðum og fólk hefði
Lögreglunni í Reykjavík var til-
kynnt um byssumenn við Naut-
hólsvfk síðdegis í gær. Reyndust
vera þarna á ferðinni þrír mennta-
skólapiltar við undirbúning á at-
riði fyrir árshátíð í skólanum sín-
um. DV-mynd S
hringt skelfingu lostið þegar það
hefði séð menn vera að veifa
byssu í kringum sig. -JSS
Grand Cherokee Laredo ‘94 ek. 114 þús.
km. Ásett verð: 2.690 .000.
Tilboðsverð: 2.490.000.
Lán til allt að
36 mán.
Fyrsta greiðsla
á næsta ári!
Þu getur lika
fengið
óskabílinn
þinn á
VISA/EURO.
Grand Cherokee Limited 94, ek. 52 þus.
km. Ásett verð: 3.090.000.
Tilboðsverð: 2.850.000.
Peugeot 405 auto '92, ek. 124 þús. km
Ásett verð: 870.000.
Renault 19RN 95, ek. 76 þus. km
Ásett verð: 840.000.
Tilboðsverð: 700.000.
Tilboðsverð: 670.000
Opið laugardaga
og sunnudaga
frá kl. 13-17
MMC Lancer st. '88, ek. 142 þús. km
Ásett verð: 390.000.
Tilboðsverð: 290.000.
Renault 19RN '95, ek. 90 þus. km
Ásett verð: 840.000.
Tilboðsverð: 590.000.
Lada Samara 4 d., '93, ek. 69 þús. km
Ásett verð: 290.000.
Tilboðsverð: 190.000.
2
554
Daihatsu Feroza '89, ek. 115 þús. km.
Ásett verð: 550.000.
Tilboðsverð: 450.000.
Nissan Sunny 4x4 stw '95 ek. 104 þús.
km. Ásett verð: 1.090.000.
Tilboðsverð: 890.000.
Opel Astra '97, ek. 40 þús. km.
Ásett verð: 1.190.000.
Tilboðsverð: 990.000.
Toyota Corolla LB '89, ek. 141 þús. km.
Ásett verð: 430.000.
Tilboðsverð: 340.000.
Nissan Sunny '89, ek. 134 þús. km.
Ásett verð: 380.000.
Tilboðsverð: 250.000.
Oherokee Laredo '90, ek. 117 þús. km.
1 sett verð: 1.200.000.
Tilboðsverð: 1.050.000.
NYBYLAVEGUR
VW Jetta '87, ek. 190 þús. km
Ásett verð: 260.000.
Tilboðsverö: 120.000.
MMC Pajero st., turbo dísil ssk.
Ásett verð: 780.000.
Tilboðsverð: 600.000.
Ford Econoline '89, ek. 156 þús.
km.
Ásett verð: 780.000.
Tilboðsverð: 520.000.
SIMI
2600 • OPIÐ VIRKA DAGA 9-18