Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.1998, Side 8

Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.1998, Side 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 20. OKTÓBER 1998 UPPBOÐ Utlönd Stuttar fréttir i>v Nðfn vinningshafa birtast f DV á miðvikudögum. KLIPPTU ÚT' UGO) Karl og Camilla í skemmti- siglingu Karl Bretaprins og ástkona hans, CamiIIa Parker Bowles, fóru í síðasta mánuði í vikulanga skemmtisiglingu við Grikklands- strendur ásamt vinum sínum, að því er bresk blöð greindu frá í gær. „Þau voru svo sæt saman að mér vöknaði um augu,“ sagði starfsmaður bresku hirðarinnar í samtali við blaðið Daily Mail. Um miðjan næsta mánuð mun Camilla halda stórveislu í Highgrovekastala, sveitasetri Karls, á fimmtugsafmæli prinsins. Synir Karls verða meðal gestanna tvö hundruð ásamt íjölda fulltrúa konungsfjölskyldna Evrópu. Atvinna í boði Vegna aukinna umsvifa óskar Frjáls fjölmiölun eftir að ráða í eftirtalin störf: Umbrot Vinna við umbrot og útlit DV. Auglýsingar Útlit og gerð auglýsinga. Ljósmyndadeild Tölvuvinnsla á myndum og Ijósmyndun. Grafadeild Gerð grafa, myndvinnslu og fleira. Þekking á Quark, Freehand, Photoshop, Word, Internetinu og auga fyrir hönnun og uppsetningu nauðsynleg. í boði eru fjölbreytt og krefjandi störf á spennandi nútíma fjölmiðlun og vinna við fullkomnustu og nýjustu tœki sem eru á markaðnum. í öllum tilvikum er um vaktavinnu að ræða. Umsóknir berist til DV, Þverholti 14, fyrir kl. 19.00 þriðjudaginn 20. október 1998, merkt: „DV-atvinna“. Hundruð flýja árás Hundruð Kosovo-Albana flúðu aðfaranótt mánudags heimili sín eftir að hersveitir Serba gerðu stórskotaliðsárásir á bæi Alban- anna. Gates fyrir rétt Réttarhöld hófust í gær í máli bandarískra yf- irvalda gegn fyrirtæki Bill Gates. Bill er sakaður um einokun og brot á lögum um hringamyndun með því að setja vefvafra fyrirtækis síns inn í Windows-stýrikerfið. Clinton hafnar Bill Clinton Bandaríkjaforseti hefur hafnað boði lögfræðinga Paulu Jones um að greiða henni sem svarar 140 milljónum ís- lenskra króna gegn því að hún hætti við málsókn. D’Alema myndar stjórn Massimo D’Alema , leiðtogi stærsta vinstri flokksins á ítalska þinginu, vonast til að hafa lokið stjómarmyndun í lok vikunnar. Uppreisn bæld niður Stjórnarher Georgíu tókst í gær að ná næststærstu borg landsins, Kutaisi, úr höndum uppreisnar- manna innan hersins. 500 brunnu til bana Lík þeirra 500, sem bmnnu til bana við olíuleiðslu í Nígeríu, hafa verið sett í fjöldagröf við hlið leiðslunnar. Ekki var hægt að bera kennsl á líkin. Hetti höfuðleðrinu af Pólsk móðir fletti höfuðleðrinu af 18 ára dóttur sinni í ölæði. Mæðgumar höfðu rifist og er talið að kona hafi ætlað að skera hár dótturinnar með beittum hníf. Eldri umsóknir óskast endurnýjaðar. Þessi maöur er einn meira en fjögur hundruö manna og kvenna sem lifa viö sorphauga suðaustur af San José, höfuðborg Miö-Ameríkuríkisins Kosta- ríku. Fólkiö safnar saman plasti, pappír og málmhlutum sem þaö selur síö- an í endurvinnslu. Símamynd Reuter Framhald uppboös á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálf- um sem hér segir: Steinsholt, Leirár- og Melahreppi, þingl. eig. Ólafur H. Ólafsson, gerðarbeiðendur Búvélar ehf., Lánasjóður landbúnaðarins og Rfldsútvarpið, miðvikudaginn 21. október 1998 kl. 11.30. Vatnsendahlíð 39, Skorradal, þingl. eig. Rúnar Guðjón Guðjónsson, gerðarbeið- endur Olíufélagið hf. og Tollstjóraskrif- stofa, miðvikudaginn 21. október 1998 kl. 10.30. SÝSLUMAÐURINN í BORGARNESI. Takið þátt í krakkapakkaleik Kjörís og DV! Klippið út Tigra og límið á þátttökuseðil sem fæst á næsta sölustað Kjörís krakkapakka. Sendið svo inn ásamt strikamerkjum af krakkapökkum. Utanríkisráöherra ísraels stóð við loforð sitt: Neitaði að taka í hönd Arafats Ariel Sharon, harðlínumaðurinn í embættl utanríkisráðherra ísraels, stóð við fyrri heitstrengingar sínar á mánudagskvöld þegar hann sat andspænis Yasser Arafat, forseta Palestínumanna, við kvöldverðar- borð á friðarfundunum í Bandaríkj- unum: Hann neitaði að taka í hönd- ina á honum. Sharon og aðrir helstu ráðherr- amir í stjórn Benjamins Netanya- hus, forsætisráðherra ísraels, snæddu með Bill Clinton Banda- ríkjaforseta og Arafat í tvær klukkustundir. Tilgangurinn var að reyna að þoka friðarviðræðunum, sem haldnar eru í Wye Mills í Mar- yland, skammt frá Washington, eitt- hvað áleiðis. Eitthvað virðist þó vera djúpt á samkomulagi. Clinton aflýsti tveggja daga kosn- ingaferðalagi til Kalifomíu, sem átti að heflast í dag, til að geta verið á fundarstað, ef það mætti verða til að brúa bilið milli öryggiskrafna Isra- elsmanna og krafna Palestínu- manna um að fá aukið land á Vest- urbakkanum í sinn hlut. Kvöldverðarfundinum var ætlað að eyða þeirri miklu tortryggni sem er milli deilendanna. Það gekk þó ekki betur en svo, að sögn ísrael- skra heimildarmanna, að spennan undir borðum var áþreifanleg. Samningaviðræðurnar hófust í Washington á fimmtudag en síðan var sest niður á gamalli plantekm uppi í sveit. Bandarískir embættis- menn þrýstu mjög á að samkomulag tækis fyrir sunnudagskvöld. Sprengjutilræði í ísrael í gær setti svo strik í reikninginn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.