Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.1998, Síða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.1998, Síða 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 20. OKTÓBER 1998 Frjálst, óháð dagblað Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaöur og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: EYJÓLFUR SVEINSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ÖSSUR SKARPHÉÐINSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjóri: PÁLL ÞORSTEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLTI11,105 RVÍK, SÍMI: 550 5000 FAX: Auglýsingar: 550 5727 - RITSTJÓRN: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999 GRÆN númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777 Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/ Vísir, netútgáfa Fijálsrar fjðlmiðlunar: http://www.visir.is Ritstjórn: dvritst@centrum.is - Auglýsingar: dvaugl@centrum.is. - Dreifing: dvdreif@centrum.is AKUREYRI: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 4611605 Setning og umbrot: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Filmu- og plötugerð: ÍSAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. - Prentun: ÁRVAKUR HF. Áskriftarverö á mánuði 1800 kr. m. vsk. Lausasöluverð 160 kr. m. vsk., Helgarblað 220 kr. m. vsk. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Þrengdur kostur illmenna Flest okkar vilja hafa frelsi til að fara þangað, sem okkur langar til að fara, þegar við höfum tíma og pen- inga. Við viljum ekki, að okkur sé meinað að heimsækja staði, sem aðrir fá að koma til. Þetta gildir ekki sízt um þá, sem hafa nóg af tíma og fé til umráða. Langflestir staðanna, sem fólk vill fara til, eru innan marka Evrópusambandsins. Þar eru London og París, Kaupmannahöfh og Amsterdam, Róm og Aþena. Þar eru Costa del Sol og Costa Brava, Mallorca og Kanarí, Algar- ve og Lignano. Þar eru skíðalöndin í Ölpunum. Ef handtaka hryðjuverkamannsins Pinochets í London leiðir til, að hann verði framseldur til Spánar, þar sem sem hann er eftirlýstur fyrir morð, er stigið mikilvægt skref í þá átt, að illmenni heimsins þori ekki að stíga fæti á umráðasvæði Evrópusambandsins. Fjársterkir óþokkar hafa ýmsar ástæður til að sakna þess að geta ekki lengur komizt til Evrópu. Sumir vilja leita sér þar lækninga eins og Pinochet. Aðrir vilja kom- ast í næturklúbba og fmimannsklúbba. Einhverjir þeirra vilja sjá sögufræga staði með eigin augum. Aukin áherzla á mannréttindi er ein afleiðing þess, að vinstri miðjan hefur tekið völdin um nærri alla Evrópu. Thatcher eða Mayor hefðu látið Pinochet í friði. En það gerði Blair ekki. Hann lét taka einræðisherrann höndum og framselur hann vonandi fljótlega til Spánar. Ekki er einungis sanngjamt, að Pinochet mæti örlög- um sínum á Spáni. Ekki er síður mikilvægt, að öðrum fúlmennum heimsins séu send þau skilaboð, að þeir skuli ekki hætta sér í þann heimshluta, sem flestir vilja heimsækja, ef þeir hafa til þess tíma og fé. Pinochet er einn þeirra, sem telur eðlilegt að láta kvelja og drepa þúsundir manna, af því að þeir hafa aðr- ar skoðanir á pólitík en hann. Hann er rakinn óþverri eins og raunar margir fLeiri, en var svo ógætinn, að láta nokkra Spánverja fylgja Chilemönnum í dauðann. Erfitt er að hamla gegn því, að nótar Pinochets taki völd á ýmsum stöðum í þriðja heiminum. Reynslan sýn- ir, að efnahagslegar þvinganir ná takmörkuðum árangri og koma fremur niður á saklausum almenningi en glæpamönnunum, sem verið er að reyna að siða. Viðskiptaþvinganir á írak draga til dæmis ekkert úr prjáli og eyðslu Saddams Husseins, en færa almenningi í landinu ómældar hörmungar. Þessa leið má aðeins fara að vel athuguðu máli og með vel skilgreindum markmið- um, sem líklega er unnt að þvinga fram. Persónulegar þvinganir á hendur óbótamönnunum sjálfum, nánustu ættingjum þeirra og samstarfsmönn- um, eru hins vegar auðveldar í framkvæmd og hafa eng- ar sjáanlegar aukaverkanir í för með sér. Heft ferðafrelsi skerðir lífsgæði þeirra, sem eiga það skilið. Það verður áfall fyrir úrhrök mannkyns, ef þau verða formlega eftirlýst í einstökum löndum Evrópusambands- ins og síðan framseld, hvar sem til þeirra næst á þessu mikilvæga svæði heimsins. Þessi hefting ferðafrelsis er refsing á tungumáli, sem þau skilja. í framhaldi af réttmætri handtöku Pinochets í London og væntanlegu framsali hans til Spánar er mikilvægt, að lönd evrópska efnahagssvæðisins taki þessa aðferð upp á arma sína og setji um hana fastar reglur, svo að pólitísk- um hryðjuverkamönnum séu þær ljósar. Handtaka Pinochets sýnir breytt gildismat með nýjum tímum og nýjum herrum. Hún er dæmi um, að þjóðum heims tekst stundum að stíga spor ffarn eftir vegi. Jónas Kristjánsson „í gömlum hverfum eru tré orðin stór og tignarleg vfðast hvar og bárujárnshúsin öldnu eru óðum að hverfa," segir m.a. í grein Jónasar. Reykjavík - borgin okkar ar sem og Klambratún. Tjömin og umhverfl er perla borgarinnar. I gömlum hverfum eru tré orðin stór og tignar- leg vlðast hvar og bám- járnshúsin öldnu eru óðum að hverfa. Ann- aðhvort eru þau endur- nýjuð eða ný hús reist í staðinn. Glæsileg ný hverfi teygja nú anga sína til Rauðavatns og Korpúlfsstaða. Ætla má að faðir borgarinn- ar, Skúli Magnússon, yrði býsna hreykinn sæi hann nú hvemig umhorfs er. „Umferöin hefur aukist geysi- lega undanfarin ár. Borginni hef- ur þó ekki tekist aö ganga nægi- lega vel frá hávaöamengun á nokkrum stöðum og fjölmargir íbúar lifa viö óþolandi ástand án þess aö bætt hafi veriö úr.u Kjallarinn Jónas Bjarnason efnaverkfræðingur Hefur fólk veitt því verðuga athygli hvað borgin er fal- leg? Vissulega er margt fólk of las- burða til þess og aðrir hafa ekki efhi á því að fara um borgina á fallegum sumardegi, því mið- ur. Margt ber fyrir augu. Útsýni í allar áttir, eyjar og sund undan ströndum, hvert öðru fegurra. Esjan er einstök með mikilli dýpt. Tré og gróður Borgin hefur tek- ið miklum stakka- skiptum á síðustu áratugum. Nú er það siður að planta trjám við öll hús og borgin sér um að koma trjám fyrir með helstu umferð- aræðum og á opnum svæðum sem verða þar með lífrænni og fegurri. Einnig hafa mörg opin svæði verið vel skipulögð, trjám og blóm- um sáð og plantað með grænum og vel hirtum grasbölum á milli víð- ast hvar. Að sjálfsögðu er ekki öllu lokið í þeim efnum en þess er aö vænta. Sums staðar, eins og við Sæbraut í noröri, hefur falleg steinhleðsla verið lögð og gang- braut meðfram. Við suðurhlið borgarinnar eru gangbrautir einnig. Laugavegurinn er blátt áfram orðinn stórkostlegur, göngugata að hluta til frá Skóla- vörðustíg að Barónsstíg, en við þann stíg neðar er fjósið gamla sem Baróninn á Hvítárvöllmn byggði um síðustu aldamót. Ing- ólfstorg, Lækjartorg og torg við Hallgrímskirkju eru til fyrirmynd- Og þó... Umferðin hefur aukist geysilega undanfarin ár. Borginni hefúr þó ekki tekist að ganga nægilega vel frá hávaðamengun á nokkrum stöðum og fjölmargir íbúar lifa viö óþolandi ástand án þess að bætt hafi verið úr. Enn fremur hafa verið leyfðar nýjar byggingar utan skipulags eða illa skipulagðar og hafa breytt forsendum fjölmargra íbúa til útsýnis og lífsrýmis. Þótt flugvöllur verði áfram þarf að gera margt á því svæði öllu. Flugstööin gamla er óviðunandi með öllu. Nauthólsvík er enn ófrágengin og margt er til óprýðis en sjórinn mun sundhæfur með tilliti til sýkla. Hvað með loforð borgar- stjóra um sund yfir víkina? Mannlífið skapar deilur eins og vera ber. Mikill gróandi er á fjöl- mörgum sviðum athafha fólks. Blaða- og bókaútgáfa er með ein- dæmum fyrir litla borg. Leikhús- verk eru flutt í þremur leikhúsum og víðar. Kafíihús hafa sprottið upp eins og gorkúlur og vínveit- ingastaðir eru fleiri en nokkum grunaði. Margir telja það af hinu illa. Ástandið í Austurstræti að næturlagi og hinar tíðu líkams- árásir eru ljótur blettur á borg- inni. Hvort það fylgi breytingum í vínveitingaleyfum eða ekki, er ósannað mál. „O tempora, o mor- es“: sögðu Rómverjar. Eða: Þvílík- ir tímar, þvílíkir siðir. Þetta hef- ur víst alltaf verið sagt. Uppeldi bama og ungliriga og ástand á heimilum koma einnig við sögu. Miðlægar skoðanir Um fátt er meira rætt en mið- stöð gagnagrunna erfðaefna (miðlægur er óskiljanlegt) og þátt Kára Stefánssonar í því sam- bandi. Nýlega birti þýska sjón- varpsstöðin ZDF frétt um málið. Þar var sagt að Kári ætlaði sér að koma upp einstæðri „súper“ gagnagmnnsmiðstöð sem heimil- aði honum að skyggnast inn í erfðatengda sjúkdóma með áður óþekktum hætti. Fréttin var í aðal- atriðum rétt en lituð sterkum lit- um. Hún var borin undir Kára sem sagði hana lýsa fremur hugs- unarhætti og menningu Þjóðverja. Það hefur verið leiðinlegur plag- siður margra í engilsaxnenskum þjóðum að senda glósur í garð áð- umefndrar þjóðar vegna fortíðar. Kári þekkir hana og margbreytni til botns hvorki meira né minna. Umsögn hans líkist meir fyrirætl- unum hans með erfðaefni Islend- inga og hugsunarhætti en um- ræddri þjóð. Jónas Bjamason Skoðanir annarra Skattaóværan af skemmtistöðunum „Það hefur lengi verið viðurkennd staðreynd að margir óprúttnir einstaklingar hafa komist upp með stórfefld skattsvik og svindl við rekstur skemmti- staða og veitingahúsa. Tekjum hefur verið stungið undir stól ... Svindl og svik af þessu og ýmsu öðru tagi hafa gefið þessari starfsemi ömurlegt orðspor sem samtök heiðarlegra atvinnurekenda í greininni hafa reynt að spoma við ... í sumum tilvikum er þeg- ar búið að ákæra veitingamenn fyrir skattalaga- og bókhaldsbrot sem nema jafnvel tugum milljóna króna ... Þeir sem vinna að þessum málum viður- kenna hins vegar fyrstir manna að enn sé langt í land að hreinsa óværuna af þessari vaxandi atvinnu- grein.“ Elías Snæland Jónsson í Degi 17. okt. Land á vogarskálum „í aldarlok er sú spuming áleitin hvemig þjóðin eigi að nýta sér náttúruauðæfi í óbyggðum; auðæfi sem þjóðin hefur til þessa haft þokukenndar hug- myndir um. En nú er spurt af þunga og þess veröur varla langt að bíða að stefna til framtíðar verði mörkuð; landkostimir em svo að segja á vogarskál- um. Eigum við að virkja allt það vatnsafl sem rann- sóknir benda til að geti verið fysilegur kostur, eða eigum við að vemda þessi ósnortnu víðemi?... Það hlýtur að vera krafa landsmanna að rækilega séu kynntir virkjunarkostir og rannsóknir sem á að ráð- ast í. Hefur það verið gert? Ef svo er, þá hefur það ekki verið að gagni.“ Gísli Sigurðsson í Lesbók Mbl. 17. okt. Kristleg útvarpsstöð? „Að sjálfsögðu er engin þörf á því frekar en öðrum útvarps- eða sjónvarpsstöðvum á vegum ríkisins. Ríkið á ekki að reka fjölmiðla. Kirkjan á að treysta fjölmiðlum almennt til þess að segja frá því sem inn- an hennar vébanda er að gerast og það sem kirkj- unnar menn ættu frekar að einbeita sér að er hvem- ig þeir geta best staðið að því að koma boðskap sín- um á framfæri við fjölmiðlana - og þar með fólkið í landinu." Ólafur Hauksson í Degi 17. okt.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.