Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.1998, Side 14

Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.1998, Side 14
14 Fólk sem a sjónvarp Sjónvörp skipa heiðursess á flestum heimilum. Þó eru til örfáir sérvitringar sem ekki vilja eiga sjónvarp og leggja margar og persónulegar ástæður til grundvallar. Tilveran grennslaðist fyrir um ástæður Gunnhildur Una Jónsdóttir myndlistarnemi blaðar í listasögubók. Sjónvarpið vill hún hins vegar ekki sjá. DV-mynd S sjónvarpsleysisins hjá þremur einstakling- um sem ekki eiga sjónvarp. Brynjar Karlsson hefur verið án sjónvarps í næstum fimm ár og kann því vel. DV-mynd Teitur Gunnhildur Una Jónsdóttir myndlistarnemi: Erlent blaður og innlent kjaftæði Nei, það er ekkert sérstakt prinsipp hjá mér að eiga ekki sjónvarp, mér finnst bara frekar leiðinlegt að horfa á það,“ segir Gunnhildur Una Jóns- dóttir myndlistamemi, en hún er ein þeirra sem ekki eiga þetta al- genga heimilistæki. „Þegar ég fór að búa ein voru sumir sem spurðu mig með vorkunn í rómnum hvort þeir ættu að reyna að leysa vand- ann, en það hvarflaði ekki að nein- um að ég vOdi frekar vera án tæk- isins. Fólk varð jafnvel hálfmóðgað þegar ég afþakkaði æ ofan í æ göm- ul rykfallin sjónvarpstæki sem höfðu verið dregin upp úr gleymd- rnn kössum í geymslum. í fyrra lét ég undan þrýstingi fjöldans og þáði að láni agnarsmátt tæki og hélt að ég yrði eitthvað betur upplýst. Svo þegar ég áttaði mig á því að ég var búin að þurrka rykið af kassanum vikulega í hálft ár án þess að kveikja nokkru sinni á því, skilaði ég tækinu. Þannig að nú er ég aft- ur farin að móðga hina og þessa sjónvarpslánara út i bæ.“ Gunnhildur segir að það sé alis ekki einangrandi að eiga ekki sjón- varp eins og sumir virðist halda, þvert á móti tali maður frekar við fólk á kvöldin og geri eitthvað upp- byggilegt heldur en að láta mata sig. Ef það gerist eitthvað merki- legt í dagskránni megi svo alltaf bjóða sér í heimsókn á sjónvarps- heimili. „Mér þykir tíminn svo dýrmæt- ur að ég get ekki hugsað mér að eyða honum í sjónvarpsgláp. Það eru svo margar bækur sem ég á eft- ir að lesa og miklu notalegra að hlusta á góða tónlist og hugsa en að sitja yfir erlendu blaðri og inn- lendu kjaftæði. Ég fylgist með frétt- um í útvarpinu og morgunfréttirn- cir á Rás eitt eru það besta sem ég get hugsað mér að vakna við. Svo ef ég vil sjá myndir af ónýttum her- þotum NATO eru alltaf öðru hvoru ágætar myndir af þeim í blöðun- um.“ Gunnhildur segist þrátt fyrir allt hafa alist upp á eðlilegu sjónvarps- heimili. Hún man til dæmis eftir mikilli angist sem greip hana þeg- ar hún var sex ára í heimsókn hjá afa sínum og ömmu, sem aldrei hafa átt sjónvarp, og missti af Stundinni okkar. „En síðan þá hef- ur sjónvarpsþörf ekki verið eitt af því sem plagar mig og ég vona að hún berji seint að dyrum.“ segir Gunnhildur. -þhs r Asdís Arnardóttir sellóleikari: Truflar friðinn á heimilinu Brynjar Karlsson eðlisfræðingur: Margir vorkenna mér að vorkenna mér margir óskaplega og fólk er sýknt og heilagt að bjóðast til að gefa mér gömul sjónvörp. Ég afþakka jafnan slík boð enda finnst mér sjón- varpsleysið afar þægilegt. Það eru nokkur ár síðan ég seldi sjónvarpið mitt og kannski var það vegna þess að ég er svolítill sjónvarpsfikill i mér. Það kom fyrir að maður eyddi drjúgum tíma i að horfa á alls kyns rusl. Það rann síðan upp fyrir mér að dagskráin í sjónvarpi væri meira og minna tímasóun," segir Brynjar Karlsson eðlisfræðingur. Brynjar segist enda engan tíma hafa fyrir sjónvarpsgláp ofan á mikla vinnu sína auk þess sem hann sé að gera upp heila íbúð. Sjónvarpið hefur þó einu sinni nýst honum vel. „Ég bjó i sjö ár í Frakklandi og þá horfði ég talsvert á sjónvarp enda sjónvarpsgláp kjör- in leið tU að læra tungumál. Nú, þegcir ég kunni frönskuna, þá fannst mér sjónvarpið aftur vera til mikiil- ar óþurftar.“ Það er langt frá því að Brynjar fylgist ekki meö þjóð- og heimsmál- um en hann segist gjama hlusta á sjónvarpsfréttir í útvarpi. „Maður missir ekki af neinu þótt maður horfi ekki á sjónvarp. Það má finna upplýsingar um alla hluti í dagblöð- unum eða útvarpi. Það getur þó stundum reynt á í kaffitímanum á morgnana þegar menn eru að rifja upp og ræða sjónvarpsefni gær- kvöldsins. Þá er eins og maður sé af annarri plánetu. Það er nefnilega viðtekið í þessu þjóðfélagi að flestir vilja vera eins, horfa á það sama og tala jafnvel um það sama. Mér varð þetta ekki ljóst fyrr en ég hafði dval- ið í nokkur ár erlendis." Brynjar segist ekki í neinum til- fellum fara í önnur hús til þess aö horfa á eitthvað í sjónvarpinu, það einfaldlega heilli sig ekki. „Ég slappa miklu frekar af með því að lesa. Láttefhi ýmis konar höfðar til mín og ég er mikill smekkmaður þegar kemur að reyfurum," segir Brynjar Karlsson. -aþ Mér hefur alltaf þótt sjónvarpið vera streitu- valdur og trufla heimilisfriðinn. Þegar ég er heima við þá vil ég slaka á með öðrum hætti og ég hefði svosem ekki mikinn tíma til að horfa á sjónvarp þó ég vildi. Þá sjaldan að ég hef tíma aflögu þykir mér oftast miklu betra að lesa eða hlusta á tón- list,“ segir Ásdís Arnardóttir, sellóleikari og tónlistar- kennari. Ásdís segir sambýlismanninn, Ludvig Forberg tón- listarmann, samstiga í þessari stefnu en hún segir þau alls ekki í neinni afneitun á heiminn. „Við erum ánægð með þetta svona og í stað sjónvarpsins hlust- um við talsvert á gömlu gufuna. Það kemur þó fyrir að ég bregð mér í heimsókn til ná- inna ættingja þeg- ar eitthvað merki- legt er á seyði. Það er helst þegar góð- ir umræðuþættir eru á dagskrá og svo hef ég alltaf verið svolítið hrif- in af Bráðavakt- inni. Annars höfð- ar stærstur hluti sjónvarpsdagskrár- innar ekki mikið tO mín.“ Fólk sem á ekki sjónvarp sætir gjarna gagnrýni og sumum finnst það á köflum jafnvel skrýtið. Ásdís vís- ar þessu alfarið á bug og segir vini og vandamenn al- mennt sátta við að ekki sé sjónvarp á heimilinu. Flest- ir séu því jafnvel fegnir að sjónvarpið sé ekki að trufla þegar þeir koma í heimsókn. „Ég er ánægð með þetta svona en það er ekki þar með sagt að ég verði alltaf sjónvarpslaus enda geri ég engar langtímaáætlanir í þessum efnum. Hins vegar eru ótal hlutir sem mig langar að eignast áður en ég splæsi í sjónvarp," segir Ásdís Amardóttir. -aþ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.