Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.1998, Blaðsíða 20
24
ÞRIÐJUDAGUR 20. OKTÓBER 1998
íþróttir unglinga
Stjarnan haföi lykilvopn innan sinna raða:
Tveir eins úr Garðabæ
Erum með
mjög gott lið
Þeir eru tvíburar, heita Guöjón og Siguijón Lárussynir og eru
tveir af efnilegustu körfuknattleiksmönnum í Stjömunni. Guðjón
er þegar byrjaður að spila lykilhlutverk í meistaraflokki en að-
eins slæm handarmeiðsli úr körfuboltaleik í fyrra hafa valdið því
að Sigurjón leikur ekki þar við hlið tvíburabróður síns.
Guðjón og Sigurjón hafa æft lengi saman i körfubolta og eru
sammála um það að sú samkeppni sem hefúr ávallt ríkt á milli
þeirra hafi hjálpað að gera þá að betri leikmönnum. Það er
nefnilega ekki ónýtt að geta spilað einn og einn við annan sem
bæði er svipaður á hæð og getu, svo maður tali ekki um ef
hann er bókstaflega alveg eins.
Strákamir eru nokkuð bjartsýnir þó ekki hafi gengið allt of
vel í þessari fyrstu umferð. Þeir sögðust sakna leikstjómanda
síns sem leikur einnig með meistaraflokki og telja að með fullt
lið sé Stjaman vel inni í baráttunni um efstu sætin í vetur.
Jón Hafsteinsson, til
vinstri, er stórskemmti-
legur leikmaður í liði
Keflavíkur og hann er
bjartsýnn á veturinn.
Hann segir að liðið hafi
átt hræðilegan leik á
móti ÍR en annars unnið
hina leikina sannfær-
andi. Liðið sé með góðar
skyttur, breiðan hóp og í
raun sterkt á öllum víg-
stöðvum og hann býst við
að keppnin komi til með
að standa á milli Kefla-
víkur og KR í vetur.
1. umferð drengjaflokks í körfubolta fór fram um helgina:
Drengir góðir
- það stefnir í spennandi og skemmtilegan vetur í drengjaflokki
í 1. umferð drengjaflokks
KR-Keflavík................59-73
Sveinn Blöndal 18 - Davíð Jónsson 17
Stjarnan-Tindastóll .......53-60
Jón Gunnar Magnússon 17 - Friðrik
Hreinsson 22
Keflavík-ÍR ...............69-71
Jón Hafsteinsson 30 - Benedikt
Pálsson 20
KR-Tindastóll..............67-53
Sveinn Blöndal 20 - Friðrik
Hreinsson, Gunnlaugur Erlendsson
Urslit
15
Það er ekki hægt að segja annað
en að boðið hafi verið upp á
stórskemmitleg tilþrif og spennandi
og vel leikinn körfubolta í fyrstu
umferð drengjaflokks sem fram fór i
Hagaskóla í Reykjavík um síðustu
helgi. Nokkrir strákar þar eru þeg-
ar famir að spila með meistara-
flokki, aðrir banka fast á dymar og
enn aðrir em efni í stórskemmti-
lega körfuknattleiksmenn.
Liðsheild ÍR
ÍR kom nokkuð á óvart
með að vinna þessa fyrstu
umferð en þeir voru ekki
meðal allra sterkustu liða í
fyrra þegar þessir strákar
skipuðu 11. flokk. Þá unnu
Keflvíkingar tvöfalt og
voru því fyrirfram taldir
með sterkasta liðið. En
annað kom á daginn, ÍR-lið-
ið spilaði á liðsheildinni, all-
ir fyrir einn og þrátt fyrir að
vanta einn efnilegasta
körfuknattleiksmanninn á ís-
landi, Hreggvið Magnússon,
sem nú þegar er orðinn
lykilmaður í meist-
araflokki ÍR,
unnu þeir
Keflavík
og þessa Jj
fyrstu
um-
ferð.
Breidd Keflavikur
Keflvíkingar em tvöfaldir meist-
arar frá því í fyrra og þeir áttu í litl-
um vandræðum nema gegn ÍR. Lið-
ið býr yfir mikilli breidd auk þess
að tveir af skemmtilegustu leik-
mönnum í þessum flokki, Sæmund-
ur Oddsson og Jón Hafsteinsson
spila þar lykilhlutverk. Það sem
háir liöinu er skortur á meiri sam-
vinnu milli leikmanna í liðinu sem
háði þeim þó ekki
nema á móti baráttu-
glöðum ÍR-ingum.
Skotmenn
Stólanna
Tvær mestu
skytturnar
komuúrröðum
J Tindastóls því
þeir Frið-
rik Hreins-
son og
Gunnlaugur
Erlendsson
skor-
uðu samtals 27 þriggja stiga körfur
og 159 af 251 stigi Stólanna eða rúm
63%. í sigurleik gegn ÍR skoruðu
þeir félagar samtals 59 stig af 76,
Friðrik 33 og Gunnlaugur 26.
Heimamenn misstigu sig
Uppgangurinn er mikill hjá KR í
yngri flokkunum og þó svo að liðið
hafi misstigið sig að þessu sinni má
alls ekki gleyma þeim í vetur. Það
háðu liðinu vissulega slæmir kaflar
þar sem allur kraftur og áhugi virtist
hverfa hjá leikmönnum en þegar
strákamir eru með hugann við efnið
spila þeir listafagran og stór-
skemmtilegan körfubolta.
Úr fimleikunum
Ólafur Sigurðsson er lykilmaður
ÍR-inga og einn allra skemmtilegasti
leikstjómandi sem er að koma upp
úr yngri flokkunum. Ólafur skoraði
50 stig í umferðinni en þær vora
ekki margar körfur sem ÍR skoraði
þess utan þar sem hann átti ekki
heiðurinn af stoðsendingunni. Auk
frábærra sendinga er hann illstöðv-
anlegur einn á einn þegar hann
keyrir upp að körfunni.
Ólafur segist hafa grætt mikið á
að hafa farið í fimleika á sínum
yngri árum, þá sérstaklega hvað
varðar styrk I kálfum, en öragglega
einnig hvað varðar liðleika og vald
yfir líkamanum i hinum mögnuðu
keyrslum upp að körfunni. Þess má
þó geta að Ólafur er enn í 11. flokki.
Eftirminnilegasta atvikið frá
helginni er að hans mati sætur sig-
ur á Keflavík sem hann innsiglaði á
vítalínunni í blálokin.
-ÓÓJ
Ólafur Sigurðsson úr ÍR.
100% vítanýting
Stighæsti maður umferðarinnar var Friðrik Hreinsson hjá Tinda-
stóli. Hann skoraði 92 stig i 4 leikjum sem gerir 23 stig að meðaltali
en auk þess nýtti hann öll 14 víti sín og skoraði flest allra, 14
þriggja stiga körfur. Friðrik er góður skotmaður og lyk-
ilmaður í liði Sauðkrækinga. Hann er vongóður með
veturinn og segir að Stólamir stefiii á að taka annan
hvorn titilinn í vor og telji sig eiga góðar likur á að
gera svo. Liðið hafi verið inni í öllum leikjunum í
þessari umferð og hafi alveg getað unnið þá tvo
sem töpuöust með örlítið meiri heppni.
Hópurinn hefur verið lengi saman og þó svo að
hann hafi þynnst sé hann enn sterkur.
=
s CD CO
'O oo
'<7T ■
E 3 KCD co oo
Stjaman-ÍR .................59-67
Guðjón Lárusson 15 - Benedikt
Pálsson 19
Tindastóll-Keflavík.......62-75
Friðrik Hreinsson 22 - Sæmundur
Oddsson 19
KR-Stjaman..................87-65
Halldór Úlriksson 26 - Hjörleifur
Sumarliðason 14
Tindastóll-ÍR ..............76-62
Friðrik Hreinsson 33 - Ari
Guðmundsson, Ólafur Sigurðsson 15
Keflavík-Stjaman ...........87-52
Jón Hafsteinsson 22 - Kjartan
Loftsson 13
ÍR-KR.......................64-63
Ólafur Sigurðsson 18 - Ólafur
Ægisson 21
Lokastaðan:
ÍR 6, Keflavík 6, KR 4, Tindastóll 4,
Stjaman 0.
Stigahæstir:
Friðrik Hreinsson, Tindastóli ... 92
Jón Hafsteinsson, Keflavík ....82
Sveinn Blöndal, KR.............71
Gunnlaugur Erlendss., Tindastóli 67
Davíð Jónsson, Keflavík .......60
Flestar 3 stiga körfur:
Friðrik Hreinsson, Tindastóli ... 14
Gunnlaugur Erlendss., Tindastóli 13
Davíð Jónsson, Keflavik ........9
Fnörik Hreins-
son hja iinda
stóli skoraöi
23 stig að
meðaltali i um-
feiðirtni.
ÍR-liðið sem varð efst í fyrstu umferð drengjaflokks. Liðsheildin var þeirra helsti styrkur en þeir unnu þrjá af fjórum
leikjum, þar á meðal tvöfalda meistara Keflavíkur frá því í fyrrra. DV-myndir ÓÓJ
aaSbl