Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.1998, Blaðsíða 33

Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.1998, Blaðsíða 33
ÞRIÐJUDAGUR 20. OKTÓBER 1998 37 Málverk eftir Kristin G. Harðarson. Óttaleysi við nýjungar og dirfska Sýningu Kristins G. Harðar- sonar í Menningarmiðstöðinni í Gerðubergi fer nú að ljúka. Hún hófst með Sjónþingi sem er mál- þing þar sem gestum gefst kostur á að kynnast manninum á bak við verkið. Kristinn G. Harðarson hefur verið virkur í myndlistinni frá því hann lauk námi í Hollandi árið 1976 og tók hann þátt í fyrstu sýningum í Galleri SÚM á árun- um 1976-1978. Ekki er auðvelt að festa Kristin við ákveðnar skil- greiningar enda spannar ferill hans tíma mikilla umbrota sem hann var sjálfur virkur og mót- andi þátttakandi í. Sýningar Kristinn hefur unnið í flest efni, má segja að allur hans ferill ein- kennist af óttaleysi við nýjungar og mikilli dirfsku í framsetningu hugmynda. Hann hefur búið til innsetningar í rými, hugmynda- verk, hefðbundna skúlptúra, teikningar og málverk, soðið í járn og saumað út í léreft. Til marks um það hve fjölhæfur Kristinn er í vali á efni og vinnsluaðferðum má geta þess að í einu verka hans frá árinu 1993 er að finna fataló, neglur, karton, blýant, lit, sígarettustubba, út- saumsgarn, dauðar flugur og plast. Á síðustu árum hefur Krist- inn þó æ oftar sýnt málverk í raunsæisstíl. Mannvirkjaþing Mannvirkjaþing verður haldið á Grand Hótel fimmtudaginn 22. októ- ber. Hefst þingið kl. 8.30 um morg- uninn og því lýkur 16.30. Umfjöllun- arefni: Vistvænar íbúðir á komandi öld. Hvað kosta tæknileg gæði? Breytingar á formi íslenskra íbúða. Framtíðarsýn, aukin tölvunotkun heima fyrir. Góð eða slæm hönnun íbúða. Húsasótt, hljóðvist, tæknileg mengun innan dyra. Hvernig móta íbúðir fjölskyldulífið? Heiðursgest- ur er Jón Kristinsson, arkitekt og prófessor við Tækniháskólann i Delft, vinningshafi Konunglegu Shell-verðlaunanna 1998. Alsaga og félagssaga Gunnar Karlsson flytur erindi sitt: Alsaga og félagssaga á hádegis- verðarfundi Sagnfræðingafélagsins. Fundurinn hefst kl. 12.05 í fundarsal á 2. hæð í Þjóðarbókhlöðu. Samkomur Málstofa á Bifröst Þorgeir Örlygsson, prófessor við Háskóla íslands, mun flytja fyrir- lestur á málstofu Samvinnuháskól- ans miðvikudaginn 21. október. Fyr- irlesturinn fjallar um hlutverk Tölvunefndar á næstu öld. Málstof- an hefst kl. 15.30 í hátíðarsal Sam- vinnuháskólans á Bifröst og eru all- ir velkomnir. Leikhúsumræður á Súfistanum Birgir Sigurðsson, höfundur Óskastjörnunnar, sem sýnd er í Þjóðleikhúsinu, verður gestur kvöldsins á Leikhúsumræðum á Súfistanum ásamt Hallmari Sig- urðssyni leikstjóra. Melkorka Tekla Ólafsdóttir flytur inngang og leikkonumar Elva Ósk Ólafsdóttir og Halldóra Björnsdóttir leika stutt- an kafla úr verkinu. Umræðumar hefjast kl. 20.30 og em allir vel- komnir. Hljómsveitin Sóldögg leikur á Gauki á Stöng annað kvöld og á fhnmtudagskvöld. Gestir á Gaukn- um eiga von á því að heyra í bland við eldra efni nýtt frumsamið efni af væntanlegri geislaplötu sem kemur út um næstu mánaðamót. Nýtt lag, Villtur, sem verður á plötunni, er þegar farið að hljóma á öldum ljós- vakans. Þegar Sóldögg hefur lokið sér af á Gauknum heldur sveitin norður yfir heiðar og leikur á föstu- dagskvöld á Hlöðufelli á Húsavík og á laugar- dagskvöld í Sjallanum á Akureyri en það kvöld verður 987 klúbburinn opnaður. Soldögg leikur á Gauknum annað kvöld og fimmtudagskvöld. Skemmtanir Kaffi Reykjavík í kvöld og annað kvöld mun söngvcir- inn og lagasmiðurinn Ingi Gunnar Jóhanns- son skemmta gestum á Kaffi Reykjavík. Næstu þrjú kvöld frá fimmtudegi til laugar- dagskvölds mun hljómsveitin Karma sjá um að halda uppi fjörinu á þessum vin- sæla skemmtistað. Veðrið í dag Hvassviðri eða stormur Vaxandi austan- og norðaustanátt um allt land, síðdegis og fram á nótt verður víða hvassviðri eða stormur sunnan- og vestanlands en stinn- ingskaldi eða allhvasst norðaustan til. Norðanlands hvessir einnig í nótt. Rigning sunnanlands en él annars staðar. Hiti 2 til 7 stig sunn- an- og vestanlands en nálægt frost- marki á Norður- og Austurlandi. Á höfuðborgarsvæðinu verður vaxandi austanátt og þykknar upp, gola eða kaldi í fyrstu en allhvasst eða hvasst með kvöldinu og dálítil slydda eða rigning. Norðaustlægari og þurrt í nótt. Hiti 0 til 4 stig. Sólarlag í Reykjavík: 17.52 Sólarupprás á morgun: 8.35 Síðdegisflóð í Reykjavík: 18.31 Árdegisflóð á morgun: 6.50 - stórstreymi Veðrið kl. 6 í morgun: Akureyri alskýjaö -1 Akurnes léttskýjaö -1 Bergsstaöir hálfskýjaó -3 Bolungarvík alskýjaó 1 Egilsstaöir -5 Kirkjubœjarkl. alskýjað 1 Keflavíkurfl. skýjaö 2 Raufarhöfn alskýjaö -1 Reykjavík skýjaö 2 Stórhöföi alskýjaö 3 Bergen hálfskýjaö -3 Kaupm.höfn Algarve heiöskírt 15 Amsterdam skúr 8 Barcelona léttskýjaö 9 Dublin skýjaö 8 Halifax heiöskírt 10 Frankfurt þokumóöa 5 Hamborg rign. á síö.kls. 5 Jan Mayen úrkoma í grennd -6 London skýjaö 6 Lúxemborg þoka 3 Mallorca léttskýjaö 9 Montreal léttskýjaö 10 New York skýjaö 15 Nuuk léttskýjaö -2 Orlando léttskýjað 23 París léttskýjaö 6 Róm alskýjaö 16 Vín skýjaö 8 Washington skýjaö 16 Winnipeg heiðskírt -3 Snjóþekja og hálka Þjóðvegir landsins eru allflestir vel færir en þó er nokkuð um hálku, hálkubletti og snjóþekju. Á leið- inni Reykjavík-Akureyri er snjóþekja í Varma- hlíð-Norðurá, Vatnsskarði, Öxnadal og Öxnadals- heiði. Á Vestfjörðum er snjór og hálka á nokkrum leiðum meðal annars í Óshlíð og Súðavík-Ísafjörð- Færð á vegum ur. Á Suöurlandi austur um eru hálkublettir og snjóþekja meðal annars á leiðinni Hvolsvöllur-Vík, þar sém einnig er vegavinnuflokkur að lagfæra veg- inn. Á Austurlandi er krap á leiðinni um Köldu- kinn. Ástand vega í*- Skafrenningur m Steinkast 12 Hálka E Vegavinna-aögát 0 Öxulþungatakmarka 113 Þungfært (£) Fært fjallabílum Ófært Nótt Þórunn Litla stúlkan á mynd- inni, sem fengið hefur nafnið Nótt Þórunn, fæddist á fæðingardeild Barn dagsins Landspítalans 28. júlí síð- astliðinn kl. 22.45. Hún var 13,5 merkur og 50 sentímetrar við fæðingu. Foreldrar hennar eru Bertína Rodriguez og Ótt- ar Gunnarsson og er hún þeirra fyrsta bam. Chip Hazard, foringi hinna striðsóðu hermanna. Smáir hermenn Smáir hermenn (Small Soldiers), sem Háskólabíó sýnir í dag, er kvik- mynd þar sem blandað er saman leiknum atriðum, brúðum og tölvu- grafík. Fjallar myndin um tvo ftokka hermanna sem undir venju- legiun kringumstæöum væru aðeins leikfóng fyrir baráttuglaða stráka en vegna tæknilegrar fullkomnunar öðlast þeir líf í myndinni og heyja miskunnarlaust stríð sín á milli þar sem annar aöilinn er sóknaraðili en hinn varnaraðili. í aðalhlutverkum eru ungir leikai-ar og þar ber helst að telja Kirsten Kunst sem varð heimsfræg þegar hún lék ungu blóðsuguna í Interview with a Vampire og Gregory Smith. Þeim til ///////// Kvikmyndir ÍÉ(S trausts og halds eru meðal annars Dennis Leary, Kevin Dunn, Ann Magnuson og Phil Hartman. Það eru mun þekktari leikarar sem ljá stríðsbrúðunum raddir sín- ar. Þar eru fremstir í flokki Tommy Lee Jones, Frank Langella, Emest Borgnine, Bruce Dem og George Kennedy. Leikstjóri Small Soldiers er Joe Dante. Nýjar myndir i kvikmyndahúsum: Bíóhöllin: Kærður saklaus Bíóborgin: Hestahvislarinn Háskólabíó: Primary Colors Háskólabíó: Smáir hermenn Kringlubió: A Perfect Murder Laugarásbíó: Species II Regnboginn: Dr. Doolittle Stjörnubíó: Vesalingarnir Krossgátan T~ r~ 3- r n r 8 1 p )o r mmM ij 3 £ rr J 1 b ir □ r Lárétt: 1 oft, 6 haf, 8 barn, 9 fullmik- ið, 10 kærði, 11 virðast, 14 traustur, 16 sjávargróður, 18 pípa, 19 gröf, 21 eyri, 22 reynd. Lóðrétt: 1 líða, 2 blóm, 3 nýlega, 4 hæfar, 5 vanræki, 6 venju, 7 þýtur, 12 vökvaði, 13 hey, 15 varg, 17 mjúk, 18 óður, 20 þegar. Lausn á síðustu krossgátu: Lárétt: 1 skorða, 7 lyf, 8 armi, 10 enska, 11 Sk, 12 náin, 14 stó, 16 úr, 17 eikur, 18 tál, 19 kara, 20 ós, 21 gárar. Lóðrétt: 1 slen, 2 kyn, 3 ofsi, 4 rakni, 5 amstur, 6 bik, 9 raskar, 1? árás, 15 órar, 16 út, 17 elg, 19 ká. Gengið Almennt gengi LÍ 20. 10. 1998 kl. 9.15 Eininq Kaup Sala Tollqenai Dollar 67,810 68,150 69,600 Pund 115,000 115,580 118,220 Kan. dollar 43,820 44,100 46,080 Dönsk kr. 10,9270 10,9850 10,8700 Norsk kr 9,0840 9,1340 9,3370 Sænsk kr. 8,6780 8,7260 8,8030 Fi. mark 13,6600 13,7400 13,5750 Fra. franki 12,3870 12,4570 12,3240 Belg. franki 2,0126 2,0247 2,0032 , Sviss. franki 51,0000 51,2800 49,9600 1 Holl. gyllini 36,8200 37,0400 36,6500 Þýskt mark 41,5400 41,7600 41,3100 ít. líra 0,041970 0,04223 0,041820 Aust. sch. 5,9020 5,9380 5,8760 Port. escudo 0,4045 0,4071 0,4034 Spá. peseti 0,4885 0,4915 0,4866 Jap. yen 0,586800 0,59040 0,511200 irskt pund 103,550 104,190 103,460 SDR 96,070000 96,64000 95,290000 ECU 81,8100 82,3100 81,3200 Símsvari vegna gengisskráningar 5623270 ?’•

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.