Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1998, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1998, Blaðsíða 17
MÁNUDAGUR 2. NÓVEMBER 1998 17 SALA RÍKISSJÓÐS Á 49% HLUT í FBA FBA er fjárfestingarbanki; fjármálafyrirtæki sem vinnur á heildsölumarkaði og sérhæfir sig í þjónustu við atvinnulífið. Hlutabréf fyrir 4.665 milljónir króna til sölu Nú geta allir íslendingar, sem þess óska, keypt hlut í FBA og tekið þannig þátt í að byggja upp sterkt og framsækið viðskiptaumhverfi sem gera mun ísland hæfara í samkeppni við önnur lönd. Ef þú hefur áhuga á að kynna þér þetta tækifæri betur, bendum við þér á að snúa þér til bankans þíns, verðbréfafyrirtækja eða heimsækja vefsíðu okkar, www.fba.is. Starfsemi FBA er sérhæfð Allt skipulag hans miðar að því að þjóna atvinnulífinu. Einfalt skipurit miðar að því að tryggja nálægð við viðskiptavininn, hraða í ákvarðanatöku og sveigjanleika. Mál eru skoðuð ofan í kjölinn og fara ekki á milli margra aðila áður en ákvörðun er tekin. Einfaldleikinn leiðir einnig til hagkvæmni í rekstri sem aftur skilar sér í hagkvæmari fjármögnun fyrir viðskiptavini og betri afkomu fyrir hluthafa. Bankinn hefur á að skipa starfsfólki sem hefur þekkingu og hæfni til að tengja saman þarfir viðskiptavina og afurðir fjármálamarkaðarins. Lausnir eru sérsniðnar að þörfum hvers við- skiptavinar. FBA lánar til allra helstu atvinnugreina FBA byggir á traustri arfleifð forvera sinna, fjárfestingarlánasjóða atvinnuveganna. Bankinn hefur því sterk tengsl við sjávarútveg, iðnað og skyldar atvinnugreinar og býður þessum aðilum hefðbundin lán auk þess að þjóna þeim á mörgum nýjum sviðum. Frá fyrsta starfsdegi, 1. janúar sl., hefur FBA jafnframt fjölgað þeim atvinnugreinum sem hann þjónar og veitir nú nýjum viðskiptavinum hjá sveitarfélögum, þjónustufyrirtækjum, verslunum og fjármála- fyrirtækjum víðtæka þjónustu. ATVINNULÍFSINS H F Sala hlutabréfa fer fram um allt land Sala á hlutabréfum Ríkissjóðs í FBA fer fram hjá öllum bönkum, sparisjóðum og verðbréfafyrir- tækjum landsins. Söluaðilar eru: Búnaðarbanki íslands hf., Fjárvangur hf., Handsal hf., Islandsbanki hf., íslenskir fjárfestar h£, Kaupþing h£, Kaupþing Norðurlands hf., Landsbanki íslands hf., Landsbréf hf, Sparisjóðirnir, Verðbréfastofan hf., VÍB hf. Þú getur nálgast skráningarlýsingu og skráð þig fyrir hlut í útboðinu: hjá öllum bönkum og verðbréfafyrirtækjum á intemetinu: www.fba.is hjá FBA, Ármúla 13a, Reykjavík

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.