Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1998, Blaðsíða 2
2
MÁNUDAGUR 2. NÓVEMBER 1998
Fréttir
Hátt í 50 mematæknar á Landspltala segjast hætta nauðugar:
Háskalegt ástand
- segir Páll Torfi Önundarson, yfirlæknir rannsóknadeildar Landspítalans
47 meinatæknar á rannsóknarstof-
um Landspítala hættu störfum í fyrra-
dag. Meinatæknamir hafa krafist
kjarabóta í átt við það sem greitt er
fýrir meinatæknastörf á öðrum heil-
brigðisstofnunum á vegum hins opin-
bera. Samningafundir á fóstudag meö
fulltrúum Rikisspitala og á laugardag
með ftdltrúum fjármálaráðuneytisms
urðu árangurslausir og meinatæknar
hættu því störfúm og mættu ekki til
starfa í gær, á fyrsta degi nóvember-
mánaðar. Læknaráð Landspítalans
kom saman til fundar síðdegis í gær
og lýsti áhyggjum af ástandinu. í
ályktun ráðsins segir að nú starfi að-
eins innan við Qórðungur meina-
tækna á spítalanum. Unnið sé eftir
neyðaráætlun og fyrirsjáanlegt að
ekki verði hægt að halda úti sólar-
hringsvakt nema í fáeina daga. Nauð-
synlegt sé að draga nú þegar úr starf-
semi legudeilda, bráðamóttöku og
göngudeilda spítalans.
Eldur í
Landakirkju
Mesta mildi þykir að ekki varð
stórtjón þegar eldur kom upp í
Landakirkju í Vestmannaeyjum
síðdegis í gær. Brunalúður við
kirkjuna fór í gang en staðarhald-
ari og lögregla fóru umsvifalaust
á staðinn og náðu að slökkva eld-
inn með duftslökkvitæki. Kvikn-
að hafði í út frá kertum sem
stóðu á tréborði á miöju kirkju-
gólfinu. Kirkjan hafði fyllst af
reyk og þurfti slökkvilið að koma
á staðinn og reykræsta.
Landakirkja er ein elsta kirkja
landsins og að sögn lögreglu í
Vestmannaeyjum mátti litlu
muna að eldurinn næði að læsa
sig í ómetanlega innanstokks-
muni. -þhs
„Okkur langar allar að vinna
áfram á spítalanum en við bíðum eft-
ir að þeir fái áhuga á að tala við okk-
ur, en ég veit að nokkrar okkar byija
strax í dag að leita sér að vinnu,“
sagði Anna Svanhildur Sigurðardótt-
ir, talsmaður meinatæknanna sem
hættir eru störfum á spítalanum.
Hún segir að grunnlaun þeirra hafi
verið lægri en meinatækna á öðrum
Anna Svanhildur Sigurðardóttir,
talsmaður 47 meinatækna á Land-
spítala sem hættu störfum á laugar-
dagskvöld.
stofnunum innan Ríkisspítala auk
þess sem ýmsfr skúffusamningar
eins og óunnin yfirvinna viðgangist
þar en ekki á Landspítalanum. „Á
okkar deildum hafa aldrei fengist
neinir slíkir samningar, sem á öðr-
um minni einingum innan Ríkisspít-
ala þar sem fólk fær greidda 20-30
óunna yfirvinnutíma. Samningar
innan stóru spítalanna eru einfald-
lega lélegri af því við erum fleiri.
Þannig er farið að því að spara innan
ríkisspitalabáknsins," sagði Anna
Svanhildur.
„Ég er að gera mér vonir um það að
við getum skilað kannski einum
fimmta venjulegra afkasta í sambandi
við blóðrannsóknir. Þá á ég eingöngu
Frá fundi læknaráðs Landspítala í gær. Ráðið lýsti áhyggjum af ástandinu á
spítalanum í kjölfar uppsagna meinatækna. DV-myndir JAK
Páll Torfi Önundarson, yfirlæknir
rannsóknarstofa Landspítala í blóð-
meina- og meinefnafræði.
við bráðarannsóknir, þegar þarf að
átta sig á þvi í hendingskasti hvað sé
að sjúklingi sem t.d. kemur í bráða-
móttöku, er á gjörgæslu, eða þá ný-
burar á vökudeild,“ sagði Páll Torfi
Önundarson, yffrlæknir á rannsókn-
arstofúm Landspítalans í blóðmeina-
og meinefnaffæði. Hann sagði að með
útgöngu meinatækna væri að skapast
háskalegt neyðarástand á spítalanum.
Hann kvaðst óttast að afleiðingar þess
gætu orðið mjög alvarlegar.
„Eina lausnin sem við sjáum í
þessu máli er sú að samningsaðilar
verða að setjast niður og hætta að
tala yfir hausamótum hvor annars
heldur tala saman. Ég er þó hræddur
um að til að lausn finnist á þessu
máli verði æðstu yfirmenn heilbrigð-
ismála að koma að því,“ sagði Páll
Torfi enn fremur.
Páll Torfi sagði aö launakjör
þeirra meinatækna og fleiri sér-
greinastétta sem starfa á Landspítal-
anum, og raunar á báðum stóru
sjúkrahúsunum í Reykjavík, væru
mun lakari en á öörum sjúkrahúsum
og heilbrigðisstofnunum. Það hefði
valdið því að þessir sérfræðingar
sæktu í störf annars staðar, bæði hjá
opinberum aðilum og einkaaðilum.
Þetta væri mjög varasöm þróun, ekki
síst í ijósi þess að stóru sjúkrahúsin
væru miðstöðvar rannsókna og
kennslu fyrir landið allt og því þyrfti
mesta fagþekkingin að vera þar til
staðar. -SÁ
Bastesen fékk ekki að „hitta“ Keikó:
Nei, frá Ameríku
„Það kemur mér ekki á óvart að ég
fái ekki að sjá dýrið,“ sagði norski
stórþingsmaðurinn og hvalveiðimað-
urinn Steinar Bastesen eftir að hann
fékk fréttir um að Free Willy Keikó-
samtökin vildu ekki heimila honum
að fara út að kví Keikós i Vestmanna-
eyjum eins og til stóð á laugardag.
Stjóm samtakanna tók af skarið
eftir nokkurt þóf og meinaði stór-
þingsmanninum norska aðgang að
háhymingnum og vill ekki blanda sér
inn í umræður um hvalveiðar.
Bastesen, sem er helsti talsmaður
hvalveiöa í Noregi og útgerðarmaður
hvalveiöibáts, varð ekki hissa á við-
brögðum Keikósamtakanna. Hann er
reyndar þekktur fyrir að hafa látið
hafa eftir sér ummæli eins og þau að
Keikó væri heppilegri sem hvalborg-
ari á borðum neytenda en sem hvalur
í búri.
Bastesen óskaði sjálfúr eftir því á
fostudag að fá að fara út að kví Keikós
ásamt DV á laugardeginum. Það tók
nokkrar klukkustundir að fá svar eft-
ir að fyrst var haft samband við Hall
Hallsson, talsmann samtakanna. Síð-
an kom nei-iö. Það kom frá forsvars-
mönnum Keikósamtakanna í Banda-
ríkjunum. Þeir era að vinna að vís-
indaverkefni sem snýst um að láta há-
hyming sem hefur verið fangaður lifa
sem lengst í upphaflegu umhverfi -
ekki blanda sér í umræður um veiðar
á hvölum sem eiga helst að vera dauð-
ir áður en mannshöndin snertir þá og
era unnir til manneldis. rt/-Ótt
Steinar Bastesen var m.a. á fundi Sjávarnytja í Reykjavík um helgina. Hann fékk
ekki að fara út að kví Keikós eins og gert hafði verið ráð fyrir. DV-mynd GTK
Forsvarsmenn meöferðarheimilisins Virkisins segja Qárhagsstööuna bága:
Verðum að fá svör frá yfirvöldum
„Við verðum að fara að fá ein-
hver svör frá yfirvöldum um hvort
þau ætli að styrkja starfsemi með-
ferðarheimilisins. Heimilið mun-
um við geta rekið með herkjum til
áramóta en síðan er framhaldið
óvíst fáum við ekki svör frá þeim
ráðuneytum sem við höfum rætt
við,“ sagði Marsibil Sæmundsdótt-
ir, framkvæmdastjóri meðferðar-
heimilisins Götusmiðjunnar/Virk-
isins, við DV í gærkvöld.
Það eru 15 manns, faglært eða
fólk með reynslu af fikniefnamál-
um, sem vinna hjá heimilinu fyrir
16-20 ára ungmenni. Það var opnað
í sumar í húsnæði í Dugguvogi en
nú stendur til að fá mjög heppilegt
húsnæði I jaðri Mosfellsbæjar.
Marsibil sagði að heimilið hafi
sótt um samtals 24 milljóna króna
árlegan styrk hjá dóms-, félags-
mála- og heilbrigðisráöuneytun-
um. Ráðuneytum sem öll koma að
fikniefnavandanum. 22 hafa dvalið
á heimiliinu frá því það var stofn-
að í júní, þar af eru sex sem hafa
lokið meðferð og eru „edrú“ og
komnir í vinnu. Árangurinn af
starfi heimilisins er því talinn
ótvíræður því þarna er verið að
vinna með einstaklinga sem
myndu kosta samfélagiö mikla
fjármuni væru þeir virkir fíklar.
Sem stendur eru 12 vistmenn í
Virkinu.
„Við höfum haldið starfsemi
okkar gangandi með styrktarfé frá
samfélaginu og bankafyrirgreiðsl-
um og eigum útistandandi 4 millj-
ónir króna vegna sölu á pennum
og skrifblokkum til fyrirtækja,"
sagði Marsibil. Hún sagði að þar
sem svör hefðu ekki borist enn frá
yfirvöldum sé mjög erfitt að skipu-
leggja meðferðarstarf sem muni
standa yfir lengur en til áramóta.
Þetta komi t.d. niður á ungmenn-
um sem hafa ætlaö sér að taka þátt
í meðferð sem mun standa fram á
fyrstu mánuði næsta árs.
-Ótt
Stuttar fréttir i>v
Loka skrífstofu flokksins
Margrét Frí-
mannsdóttir, for-
maöur Alþýöu-
bandalagsins,
lagði til á aöal-
fúndi miðstjómar
flokksins í dag að
skrifstofu hans í
Reykjavík yrði lokað vegna mikilla
skulda. RÍJV sagði frá.
Dekkin slá í gegn
Harðkomadekkin hafa slegið í
gegn hér á landi en þau era íslensk
uppfinning. Svo mikil eftirspum
hefúr verið eftir þeim að framleið-
endur hafa ekki undan. Um 3000
dekk hafa veriö seld á síðastliðnum
þremur vikum en það er álíka mik-
ið og seldist allan síðasta vetur. Stöð
2 sagði frá.
Tyggjóbaninn
Nú hefur bæst við nýr liðsmaður í
baráttuna gegn tyggjóklessum á gang-
stéttum og heitir Gumbuster. Tækið
notar eingöngu vam sem hitað er upp
við gufu þannig að engar skemmdir
verða á umhverfi. Stöð 2 sagði frá.
Hjörleifur ekki viss
Hjörleifur Guttormsson segir að
ekki sé víst að hann leiöi rauðgrænt
framboð í Austurlandskjördæmi.
Hann segir að nefnt hafi verið við
sig að bjóða fram í Reykjavík en að
það sé algjörlega frá öörum komið.
Hann segir ekki ólíklegt að nýja
hreyfingin nái inn þingmanni á
Austurlandi. Stöð 2 sagði frá.
Batnar viö Kyoto-bókunina
Samkeppnisstaða stóriðju á ís-
landi batnar ef breytingartillaga ís-
lendinga við Kyoto-bókunina verður
samþykkt. Þetta sagði Tryggvi Felix-
son hagfræðingur á málþingi um
áhrif virkjana norðan Vatnajökuls
sem nokkur náttúruvemdarsamtök
boöuðu til i hátíðarsal Háskóla ís-
lands í gær. Sjónvarpið sagði frá.
Sólveig íhugar framboð
Sólveig Péturs-
dóttir, þingmað-
ur Sjálfstæðis-
flokks, íhugar al-
varlega að bjóða
sig fram til emb-
ættis varafor-
manns Sjálfstæð-
isflokksins.
Landssamband sjálfstæðiskvenna
skoraði á hana á fundi sínum. RÚV
sagði frá.
Aukning á feijuflugi
Von er á því að viðkoma ferjuflug-
véla aukist mikiö hér á landi á næst-
unni. Suðurflug hefúr samið við
stóran erlendan aðila sem mun
mæla með aðstöðu Suðurflugs fyrir
millilendingu feijuflugvéla. Samn-
ingurinn hefur að sögn forráða-
manna Suðurflugs gífurlega þýðingu
og þetta sé góður stökkpaliur fyrir
fyrirtækið. Stöð 2 sagöi frá.
Dýralæknum fækkaö
Þegar ný lög um dýralækna taka
gildi um áramót fækkar embættum
héraðsdýralækna úr 31 í 17. Héraðs-
dýralæknar eru mjög óánægðir með
þróun mála og segja að ekki hafi
verið hlustað á þá viö gerð laganna.
Sjónvarpið sagði frá.
Ekki kosiö aftur
Félagsmálaráðuneytið hefur úr-
skurðað að úrslit kosninga á Raufar-
höfn í vor muni standa. Helgi Ólafs-
son kærði kosningamar til félags-
málaráðuneytis vegna aðseturs-
skipta konu nokkurrar rétt fyrir
kosningar. Sérstök nefnd í héraði
hafði áður komist að sömu niður-
stööu og ráöuneytið. Stöð 2 sagði frá.
Skref til jafnaöar
Stjómmála-
fræðingar telja
líkur á því að til-
laga um breytta
kjördæmaskipan
verði samþykkt.
Ólafur Þ. Harðar-
son segir að
misvægi at- ________________
kvæða sé meira á Islandi en öörum
Noröurlöndum. Hann segir að tillag-
an sé veralegt skef tO batnaðar en
misvægið verði samt sem áður
meira en á hinum Norðurlöndun-
um. Sjónvai-pið greindi frá.
-sm