Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1998, Blaðsíða 19
MÁNUDAGUR 2. NÓVEMBER 1998
19
Skúli Sverrisson
rafbassaleikari.
Austrænn djass
Balkandjasssveitin Pachora er sennilegast
minna þekkt hérlendis en þeir einstaklingar sem
hana skipa. Fyrir utan rafbassaleikarann Skúla
Sverrisson eru meðlimir sveitarinnar þeir Chris
Speed, sem leikur á klarínett, og Jim Black
trommu- og slagverksleikari, sem báðir hafa
leikið hér nokkrum sinnum áður og léku inn á
„Dofinn", plötu Hilmars Jenssonar, árið 1995.
Djass
Ársæll Másson
Fjórði maðurinn er svo Brad Shepik sem leikur
á portúgalskan gítar og saz, strengjahljóðfæri
svipað gítar. Tónlist þeirra hefur ósjaldan heyrst
í Knitting Factory, sem er einn virtasti djass-
staður New York og gróðrarstía nýjunga og til-
raunamúsíkur. Einnig er starfandi útgáfufyrir-
tæki með sama nafni, og er nýleg plata Pachora
gefin út undir merki Knitting Factory. Pachora
kom hingað til lands á vegum plötubúðarinnar
12 tóna og hélt tónleika í Loftkastalanum á
fimmtudagskvöld.
Tónlist hljómsveitarinnar byggist á austur-
lenskum hefðum af ýmsum toga. Til dæmis
hefðu þeir sem hafa hlustað á gríska
Bouzoukitónlist kannast við ýmislegt í tónlist-
inni, og einnig hljómaði torkennilegt strengja-
hljóðfæri Brads Shepik stundum líkt og ind-
verskur sítar. Lögin voru ýmist eftir meðlimi
hljómsveitarinnar eða austurlensk þjóðlög, og
iðulega sett saman í syrpur. Þegar John Coltra-
ne forðum heillaðist af þessum austrænu skölum
flutti hann þá inn í bíboppið, sem var hans tón-
list. Meðlimir Pachora byggja á nýrri djasshefð-
um, og útkoman verður þá vitaskuld önnur og
öðruvísi.
En hvernig svo sem reynt er að lýsa tónlist-
inni þá er hitt víst að flutningur hennar var
hreint út sagt frábær, enda eru allir meðlimir
sveitarinnar framúrskarandi tónlistarmenn. Jim
Black er einn skrautlegasti slagverksleikari sem
undirritaður hefur heyrt i, og ekki skaðar að
stórskemmtilegt er að horfa á hann spiia. Það
eru heldur ekki margir sem fara í fótin hans
Skúla i rafbassaleik, og var oft á tíðum ótrúlegt
að heyra og sjá tök hans á hljóðfærinu. Þótt eyru
gagnrýnandans væru búin að fá nóg af sefjandi
áhrifum austrænnar menningar við lok dag-
skrárinnar þá létu ánægðir áheyrendur ekki á
sér standa og kríuðu út aukalag með dúndrandi
lófaklappi.
Áður en Pachora fór á sviðið lék „íslenski
hljóðmúrinn", Óskar Guðjónsson og Jóhann Jó-
hannsson, á tenórsaxófón og tölvu. Óskar hefur
undanfarið þreifað tónlistargyðjuna á ýmsum
stöðum og útkoman yfirleitt verið áhugaverð,
þótt þeim Hljóðmúrsfélögum tækist ekki að
heilla mig í þetta sinn.
menning
Perla í bókahafi
I nýútkomnu ljóðasafni, Perlur úr ljóðum
íslenskra kvenna, hefúr Silja Aðalsteinsdóttir
valið Ijóð úr verkum 45 skáldkvenna, sú elsta
(Guðný frá Klömbrum) er fædd 1804, sú
yngsta, Eva María Jónsdóttir, árið 1971.
Aldurspönn ljóðanna í þessu riti er um
það bil 150 ár, svo þar gefur að
líta margbreytileg efni.
Ljóðin mynda á vissan hátt
sjálfstæða, listræna heild,
nokkurs konar lífssögu. í fyrstu
fjalla þau um bernskuna, þá ung-
lingsárin, því næst fullorðinsár
og margvíslegt hlutskipti kvenna
sem eru ungar stúlkur, unnustur,
mæður, ástkonur, eiginkonur, ein-
stæðar konur, gamlar konur. Ljóðin
tjá þær kenndir og hugsanir sem
leita á einstakling frá vöggu til grafar;
veita innsýn í hugðar- og viðfangsefni
á ýmsum tímum, bæði í sögulegum og
persónulegum skilningi.
í formála bókarinnar veltir Silja Aðalsteins-
dóttir því upp hvort „konur gangi nær sjálfum
sér í Ijóðum sínum en karlar" (9). Áhrifa-
mestu ljóð þessarar bókar fjalla einmitt um
sorgina og söknuðinn, til dæmis tregróf Guð-
Bókmenntir
Ólína Þorvarðardóttir
nýjar frá Klömbrum, „Sit eg og syrgi“ (96) þar
sem „Sársaukinn á sér ekki endastöð" eins og
segir í samnefndu ljóði Berglindar Gunnars-
dóttur (123), nema þá helst dauðann sem í
ljóði Þuríðar Guðmundsdóttur er miskunn-
samur andspænis grimmd lífsins. „Og samt
óttumst við dauðann / en elskum lifið“ (Þver-
sögn, 138).
Auðvelt er að bera saman ljóð eldri og yngri
skáldkvenna, sem oftar en ekki standa hlið
við hlið á síðum bókarinnar. Er athyglisvert
að sjá hve efnistök geta verið lík, þrátt fyrir
mismunandi ljóðform, og þótt áratugir og ólík
lífskjör skilji höfundana að. Ágústína Jóns-
dóttir heldur „dauðahaidi í unað djúps-
ins“ og vonar að henni „skjóti aldrei
upp á yfirborðið" (Brim, 63); háifri öld
áður setti Hulda sömu hugsun í ann-
að form: „Gleymt er allt í faðmi þín-
um / og mig sjáifa síst ég þekki /
síðan þú rændir ástum mínum“
(Þú hlustar Vör, 62).
Titill bókarinnar gæti leitt ein-
hvem til að halda að þar sé
heildarúrval úr verkum ís-
lenskra skáldkvenna frá upp-
hafi. Hér eru þó hvorki Ijóð
eftir yngstu skáldkonurnar né
heldur þær elstu. Hið siðarnefnda
skýrist trúlega af þvi að nafngreindar skáld-
konur eru hverfandi lltill hluti af hinni
skráðu (viðurkenndu) bókmenntasögu fyrr en
komið er fram á þessa öld „þó að trú manna
sé nú að konur eigi einhvern hluta eddu-
kvæða og ef til vill meiri hluta hinna áhrifa-
miklu þjóðkvæða „ (9), eins og segir í formála.
Einhverjir hljóta þó að sakna hér ljóðamæla
eftir elstu nafnþekktu skáldkonurnar, til
dæmis Steinunni Refsdóttur, Jóreiði i Miðj-
umdal og Steinvöru Sighvatsdóttur, eða
seinni tíma skáldkonur á borö við Sigríði
skáldu, Steinunni Finnsdóttur, Látra-Björgu,
Vatnsenda-Rósu, Ólínu Andrésdóttur eða
nöfnu hennar Jónasdóttur.
Engu að síður er hér mikil breidd vel val-
inna Ijóða og frágangur allur til fyrirmyndar.
Bókin stendur vel undir nafni sem „perla“ í
bókaflóðinu að þessu sinni, og mun áreiðan-
lega halda glampa sínum lengi eftir að það er
yfirstaðið.
Perlur úr Ijóðum íslenskra kvenna
Silja Aðalsteinsdóttir valdi Ijóðin,
Hörpuútgáfan 1998 - 142 bls.
sHs*. -JF
Z) a i ha tsu
Daihatsu ... undir hamrinum Gran Move
3 ára ábyrgð
DAIHATSU
fínn í rekstri
Aðgangur öllum heimill
Daihatsu Gran Move er rúmgóður og lipur fjölnotabíll sem
hentar jafnt í stutta snúninga sem lengri ferðalög.
Sætin eru þægileg, lofthæð mikil og dyrnar stórar.
Aðgengi er öllum auðvelt og barnastólar valda engum
vandræðum. Farangursrýmið er einnig sérlega notadrjúgt
og hægt er að stækka það úr 400 lítrum í 850 lítra.
Daihatsu hefur jafnframt lagt mikla áherslu á öryggi við
hönnun Gran Move. Farþegarýmið er sérstaklega styrkt og
krumpusvæði dreifa höggi við árekstur.
Brimborg-Þórshamar
Tryggvabraut 5 • Akureyri
Sími 462 2700
I Bílasala Keflavíkur I Bíley 1 Betri bílasalan
Hafnargötu 90 • Reykjanesbæ Búðareyri 33 • Reyðarfirði Hrísmýri 2a • Selfossi
I Sími 421 4444 | Sími 474 1453 I Sími 482 3100
Boðinn og búinn
Af ríkulegum staðalbúnaði Gran Move má nefna vökvastýri,
rafknúnar rúður og spegla, samlæsingu, útvarp og segulband
með fjórum hátölurum, plussáklæði, fjóra höfuðpúða,
tvískiptan málmlit, álfelgur, tvo loftpúða og styrktarbita
í hurðum. Sjálfskiptingin hefur fjóra gíra og stillingu fyrir
þrenns konar akstursmáta. Allir bílarfrá Daihatsu eru með
sex ára ryðvarnarábyrgð og þriggja ára almenna ábyrgð.
Beinskiptur kr.1.348.000
Sjálfskiptur kr. 1.468.OOO
Tvisturinn
Faxastíg 36 • Vestmannaeyjum
Sími 481 3141
BRIMBORG
Faxafeni 8 • Sími 515 7010
..