Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.1998, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.1998, Blaðsíða 7
MIÐVIKUDAGUR 4. NÓVEMBER 1998 7 Fréttir Óánægja með ný biðskýli SVR: Ekkert skjól fyrir kulda og vindi - segja margir viðskiptavinir SVR Margir Reykvíkingar eru ósáttir með ný biðskýli SVR. Skýlin eru opin að neðan og í hornunum þannig að kuldi og vindur á greiða leið inn í þau. „Þessi nýju skýli eru alveg ómöguleg. Þau eru svo opin að þau veita ekkert skjól fyrir kulda og vindi. Það blæs undir þau og eins í gegnum hornin á þeim. Þessi nýju skýli eru nokkuð smart en gömlu skýlin voru mun hlýrri og hentuðu mun betur íslenskum að- stæðum. Nýju skýlin eiga miklu frekar heima í sólarlöndum en hér uppi á Fróni," segir Anna M. Jóns- dóttir, Reykvíkingur sem ferðast með strætisvögnum SVR á hverj- um degi. Anna er eins og fleiri Reykvík- ingar afar ósátt við 120 ný biðskýli sem sett hafa verið upp á fjölförn- ustu leiðum SVR í höfuðborginni. Margir viðskiptavinir SVR hafa. haft samband við DV og lýst yfír óánægju sinni með nýju skýlin. Þau hafa víða leyst af hólmi gömlu biðskýlin sem af mörgum voru álitin betri og sérstaklega hlýrri en þau nýju. Gömlu skýlin voru al- veg lokuð að neðan og í hornum og aðeins opin að framan. Nýju skýl- in eru hins vegar opin að neðan og í homum og kuldinn og vindurinn á greiða leið að þeim sem bíða inni í skýlunum. „Ég þarf að bíða stundmn í ein- hverjar mínútur eftir strætó. Ef það er kalt í veðri og kaldur vind- ur, eins og verið hefur undanfarið, þá skelfur maður úr kulda í þess- um nýju skýlum. Þau veita ekkert skjól. Það var miklu skárra að bíða í hinmn skýlunum því þau voru lokuð og veittu miklu meira skjól,“ segir Guðmundur Einars- son, annar viðskiptavinur SVR, sem DV spjallaði við. Borginni að kostnaðarlausu „Það kom tilboð frá erlendum að- ila um að setja upp 120 biðskýli borginni að kostnaðarlausu. Þessir aðilar sjá um allt viðhald og rekstur og það kostar borgina ekki neitt. Það var því mikill fengur fyrir borg- ina að auka þjónustu við viðskipta- vini SVR með því að geta bætt við 120 biðskýlum sér að kostnaðar- lausu. Það er ekki svo að við höfum tekið gömlu skýlin og hent þeim heldur hafa þau verið sett upp í út- hverfum og á aðra staði. Nýju skýl- in eru í þéttbýlinu og á helstu leið- um,“ segir Lilja Ólafsdóttir, for- stjóri SVR, aðspurð um málið. „Ég skal fúslega viðurkenna aö þau eru dálítið opin að neðan í homunum. Þessi skýli eru ekki full- komin og þau hafa sína kosti og galla. Þau hafa marga kosti umffam gömlu skýlin. Þau eru á betri undir- stöðum og mun stöðugri en þau gömlu. Þau eru bjartari og sést vel inn í þeim og út úr þeim. Gömlu skýlin voru svolitið drungaleg. Auk þess eru þessi nýju mun stærri en þau gömlu," segir Lilja enn ffemur. -RR Hærra frítekjumark námslána eykur sjálfstæði námsmanna og bætir skattheimtu. Kjósum Kristján Pálsson alþingismann í2. sætið í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjaneskjördæmi þann 14. nóvember næstkomandi. Kosningaskrifstofur eru í: Hamraborg 5, Hafhargötu 37a, Kópavogi, Reykjanesbæ, s. 564 3492 Opið: 17-21 virka daga, 11-17 um helgar. Kleinur og heitt á könnunni, allir velkomnir. Stuðningsmenn s. 421 7202 Heiniasíða: www. Bílasalan Skeifunni 5 BMW 740ÍA, 286 hö. '95, ek. 80 þús. km, blásans., 4 d., ssk., 18” álf., einn með öllu. Verð 5.400.000 . BMW 740ÍA, 286 hö. '95, ek. 128 þús. km, svartsans., 4 d., ssk., leður, einn með öllu. Verð 5.400.000 . BMW 740 iA '93, ek. 64 þús. km, steingrár, ssk., ABS, toppl., saml., þjófav., leður, hraðast. o.fl. Verð 3.300.000. BMW 5181 '92, ek. 55 þús. km, grár, 4 d., saml., litað gler, álf., innsp. o.fl. Verð 1.490.000. BMW 325 iS coupé '94, ek. 60 þús. km, blásans., 2 d., saml., ssk., álf., ABS, toppl., leður, M3 innr. Verð 2.850.000. BMW 325ÍS 192 hö. '94, ek. 97 þús. km, 2 d., svartur, bsk., ABS, toppl., saml., álf., leðuro.fl. Verð 2.800.000 M. Benz 200E '93, ek. 97 þús. km, 4 d., vínrauður, bsk., CD, ABS, saml., líknarb., álf. o.fl. Verð 1.900.000. Toyota Corolla touring XL '91, ek. 91 þús. km, 5 d., bsk., blár/tvílitur, saml., litað gler o.fl. Verð 820.000. Ford Contour GL '95, ek. 59 þús. km, 4 d., vínrauður, ssk., ABS, saml., þjófav., hraðast. o.fl. Verð 1.550.000. MMC L300 Minibus 2400 I '91, ek. 237 þús. km, 9 m., bsk. Stórt lán getur fylgt, má gr. m. VN. Verð 670.000. M. Benz 309 dísil húsbíll '83, ek. 25 þús. km á vél, bsk., tvöfalt gler í öllu, gasmiðstöð o.fl. Verð 1.300.000. MMC Pajero, stuttur, V6 '89, ek. 151 þús. km, 3 d., hvítur, bsk., CD, þjófavöm, álf. o.fl. Vcrð 790.000. Toyota Land Cruiser II bensin '87, ek. 205 þús. km, hvítur, 3 d., bsk., nýyfirfarinn, 33” dekk o.fl. Verð 690.000. Nissan Terrano II SGX SE '97, ek. 35 þús. km, blár, 5 d., bsk., toppl., þjófav., saml., upph. o.fl. Verð 2.280.000. Chevrolet Silverado 1500 Z71 '89, ek. 131 þús. km, 2 d., svartur, saml., hraðast., álf., o.fl. Verð 1.350.000. Nissan Patrol GR Diesel Turbo '91, ek. 122 þús. km, grásans., saml., 31” dekk, krókur o.fl. Verð 1.600.000. Grand Cherokee limited '93, ek. 142 þús. km, hvítur, ABS, saml., ssk., CD, leður, álf. o.fl. Verð 2.490.000. Grand Cherokee limited '96, ek. 35 þús. km, vínrauður, ssk., CD, ABS, toppl., saml., þjófav. o.fl. Verð 3.950.000. Vegna mikillar sölu undanfarið vantar allar gerðir bifreiða á skrá og á staðinn. Sími. 568 50 20.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.