Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.1998, Blaðsíða 25
MIÐVIKUDAGUR 4. NÓVEMBER 1998
41
dv______________________________Myndasögur
u
3
p-H
p—I
O
Jh
K
Fréttir
Dómþolar, yngri en 18 ára:
Verði vistaðir á
meðferðarheimilum
Fangelsismálastofnun og Barna-
verndarstofa hafa gert með sér sam-
komulag um vistun fanga, yngri en 18
ára.
Markmið samkomulagsins er að
dómþolar, yngri en 18 ára, verði að
jafnaði vistaðir á meðferðarheimilum
sem rekin eru samkvæmt ákvæðum
laga um vernd barna og ungmenna
þar sem fram fer sérhæfð meðferð.
Talið er að það sé viðkomandi dóm-
þolanda fyrir bestu.
Fangelsismálastofnun mun til-
Ný skýrsla fyrir Landsvirkjun:
Þjóðhagslegur
ávinningur 90
milljarðar
í nýrri skýrslu alþjóðlega ráðgjaf-
arfyrirtækisins Resource Strategies
kemur fram að samkeppni verði á
íslenskum raforkumarkaði.
Skýrslan var unnin fyrir Lands-
virkjun. Stjórn Landsvirkjunar er
með því að móta stefnu varðandi
samkeppni á raforkumarkaði. í
skýrslunni er Landsvirkjun gefin
góð einkunn. Þar segir að þjóðhags-
legur ávinningur af starfsemi
Landsvirkjunar frá 1966-1997 sé um
90 milljarðar. í skýrslunni segir að
ekki sé neitt gangrýnisvert að finna
í fjárfestingaröðun Landsvirkjunar.
Jóhannes Geir Sigurgeirsson,
stjórnarformaður Landsvirkjunar,
segir að vilji sé að taka þátt í um-
ræðu um samkeppni á raforkumark-
aði. Stjórn Landsvirkjunar hafi ekki
mótað endanlega stefnu í þeim mál-
um en unnið mun vera að því.
-RR
kynna Barnaverndarstofu um alla
óskilorðsbundna fangelsisdóma sem
berast til fullnustu þar sem dómþolar
eru yngri en 18 ára. Barnaverndar-
stofa mun ákveða á hvaða meðferðar-
heimili ungir fangar eru vistaðir
hverju sinni. Áður en ákvörðun um
vistun í meðferð er tekin mun Barna-
verndarstofa kanna afstöðu viðkom-
andi barnaverndarnefndar til máls-
ins. Dómþoli mun þó ekki verða
vistaður í meðferð gegn vilja sínum og
gert er ráð fyrir því að samið verði
við viðkomandi dómþola og forsjárað-
ila hans um vistun í meðferð í að
minnsta kosti sex mánuði, óháð lengd
refsitimans. -RR
▲
Nýr umboðsmaður
r»i^
Reykholli, Biskupstungum
Bjarni Kristinsson Brautarhól/Bjarnabúð sími 486 8999
Nýr umboðsmaður
Sauðárkrókur
Ólöf Jósefsdóttir
Furuhlíð 5
sími 453 5888