Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.1998, Side 11
MIÐVIKUDAGUR 4. NÓVEMBER 1998 ★ menning
■**
Þægilegt að vera núll
„Ég veit ekki hvort þaö var vegna þess að verkið var íslenskt, og Island er eitt-
hvað sem er svo óralangt í burtu, eða af því að það var gestaleikstjóri eða af því
að við vorum að vígja nýtt svið, en við vöktum ótrúlega mikla athygli. Ekki að-
eins komu umsagnir í öllum staðarblöðum og jafnvel landsblöðum eftir frumsýn-
ingu heldur voru viðtöl víða fyrir frumsýningu - i blöðum og útvarpi. Alls stað-
ar var þessi áhugi.“
Ásdís Skúladóttir leikstjóri er að segja frá veru sinni í finnsku borginni Vasa
þar sem hún setti upp Ég er meistarinn eftir Hrafnhildi Hagalín Guðmundsdótt-
ur. Frumsýnt var 21. október á nýrri Studiosenu finnlands-sænska leikhússins
þar í borg. íslenskt leikrit, íslenskur leikstjóri og meistarann leikur íslenski
leikarinn Sigurður Karlsson. Hann fær lofsamlegar umsagnir - þykir glæsileg-
ur á sviði og ná kaldhæðni og
fyndni hlutverksins einstaklega
vel en vera um leið fullkomlega
sannfærandi í harmrænni hlið
þess. Meðleikarar hans eru eins
ungir og persónur verksins og
auka á sannfæringarmátt verksins
ekki síst vegna þess þó að ekki séu
þau eins þjálfaðir leikarar og
meistarinn.
Sjálf fær Ásdis falleg orð í um-
sögmmum fyrir að hafa búið til
þétta, dramatíska sýningu sem þó
nýtir sér til fulls gamansemina
sem víða er i textanum. Einn gagn-
rýnandi notar meira að segja orð-
ið „tryllir" um sýninguna, og allir
nefna tónlist og ljós sem mikil-
væga þætti í henni.
„Fólk hefur auðvitað miklar væntingar til manns þegar maður kemur svona
að utan tii að leikstýra verki,“ segir Ásdís, „af einhverju er maður boðinn á stað-
inn. Þó hefur enginn neinar fyrirfram skoðanir á persónu manns né því sem
maður hefur áður gert, og það er svo þægilegt! Það er ótrúlega góð tilfinning að
vera núll.“
Frést hefur að Wasaleikhúsið í Vasa vilji ráða Ásdísi í annað verkefni. Að-
spurð segir hún að enginn viti sína ævina fyrr en öll er, - „en næst verður mað-
ur auðvitað ekki lengur núll, og þá verður allt svolítið flóknara!"
Sigurður Karlsson verður í Vasa út leikárið. Eftir að Meistaranum sleppir fer
hann að leika í Bréfberanum frá Arles eftir Ernst Bruun Olsen.
Meistarinn og undrabarnið hans. Sigurður
Karlsson og Ann-Luise Bertell í hlutverk-
um sínum.
Maorgir eru marlíðendur
Heiti fimmtándu ljóðabókar Jóhanns Hjálmarssonar kemur eflaust ýmsum
spánskt fyrir sjónir, en samnefndu upphafsljóði bókarinnar fylgir tilvitnun í
Eyrbyggju: „Og er mjög leið á kveldið, mælti Geirríður við Gumilaug: „Það vildi
ég að þú færir eigi heim í kveld, því margir eru marlíðendur; eru og oft flögð
undir fógru skinni.““
Svo kann að fara mörgum lesanda, jafnvel þeim sem Eyrbyggju-fróðari eru en
undirritaður, að merking orðsins sé þeim enn á huldu . En einn höfuðkostur
góðra skálda er jú að nýta sér margræði orða, og Jóhann Hjálmarsson gerir það
víða í þessari bók. Þannig er áðurnefnt upphafsljóð bókarinnar aldarfarslýsing,
ekki aðeins tiundu aldar og magnþrungins söguheims Eyrbyggju, heldur og okk-
ar eigin aldar. Þessu margræða ljóði lýkur þannig :
Vió marlíöendur sjáum þetta allt,
hugum aö ástinni, flnnum girndina vaxa.
Hún vekur okkur svo aö viö líóum
um veröld hinna þróttlausu, heim þeirra daga
sem ekki er okkar heimur, sem er
athvarf þar sem viö morknum aö lokum sœlir
undir mold aö kirkju sem viö höfum sjálfir látiö gera.
Horfin ástríöa okkar og blóö,
órólegt, staðfestulaust, óendanlegt og úfiö haf.
Marlíðendur skiptist í þrjá hluta; fara þar fyrst fimm ljóð sem vísa
til fomsagna en þó kveikjan sé þaðan komin er skírskotunin svo víð að ekki
verður skáldiö sakað um fymsku. í mínum huga er til að mynda ljóðið „Fífil-
bleikur hestur", eitt knappasta en jafnframt eitt minnisstæðasta ljóð bókarinn-
ar, bein skírskotun til annars hlutans, ljóða sem ort era á Spáni og um Spán, þó
að það hafi undirtitilinn „Víglundar saga“:
Fífilbleikur hestur
er lagöur spjóti
liggur í valnum.
Bókmenntir
Haukleg mýri, hólar og skörð.
Hvenœr förum viö héöan
heim í Austfjöröu ?
Geirlaugur Magnússon
Hesturinn er oft táknmynd dauðans í spænskri ljóðlist, en Spánn og spænsk
ljóðlist hafa löngum verið Jóhanni hjartfólgin. Ljóðin í öðrum hluta bera með
sér andblæ þessa sólríka en hrjóstruga lands, og saga Spánar á þessari öld er
skáldinu einnig ofarlega í huga, einkum borgarastríðið. Þess gætir í mörgum
ljóðanna, svo sem „Spænskur kirkjugarður", „Skuggi Paradísar" og „Úlfamir".
En hér era einnig náttúruljóð sem þó hafa alltaf manninn sjálfan í miðdepli, til
dæmis „Við Miðjarðarhaf', og önnur minnisstæð ljóð, prósa-ljóðið „Segl og blæ-
vængur", „Leit“ og ekki síst lokaljóðið „Heimkoma", knappt en margrætt í ein-
faldleik sínum.
Þriðji hluti bókarinnar kann í fyrstu ekki að mynda jafn samræmda heild og
tveir þeir fyrri en hér er þó margt ágætra ljóða svo sem „Fiðrildin skammlífu",
„Hefúrðu horft?" „Vindamir" og skemmtilega metafýsísk ljóð um andstæður og
afstæði. Jafnvel írónía sem ekki hefur verið aðal Jóhanns lætur á sér kræla í
ljóðinu „Það er rétt „:
Þaö er rétt
aö ég hef margort þetta Ijóö
Reyndar hefur verið sagt að skáld séu mestalla sína ævi að yrkja sama ljóðið,
en þó margt sé kunnuglegt af yrkisefnum Jóhanns í Marlíðendum er mér til efs
að hann hafi sent frá sér heilsteyptari bók á sínum skáldferli. Og það era gleði-
tíðindi öllum ljóðunnendum.
Hörpuútgáfan gefur Marlíðendur út smekklega eins og þess forlags er von og
vísa. Kápumynd Jóru Jóhannsdóttur er og til prýði.
Jóhann Hjálmarsson:
Marlíöendur
Hörpuútgáfan 1998
13% lækkua
í 3 verðflokkum
Lækkun á mínútugjaldi á dagtaxta
til landa i verðflokkum 2, 4 og 5
Nú hafa símtöl til útlanda lækkað um 13-14% á dagtaxta í flokkum
2,4, og 5. Þar með er mun ódýrara að vera í símsambandi við vini og
kunningja erlendis, auk þess sem lækkunin hefur talsverðan spamað
í för með sér fýrir þá sem stunda viðskipti við útlönd.
Dagtaxti Krónur á mínútu Gildir frá 08:00 til 19:00 til Evrópulanda Gildir ftá 08:00 til 23:00 til annarra landa Dagtaxti Krónur á mínútu Gildir frá 08:00 til 19:00 til Evrópulanda Gildir frá 08:00 til 23:00 til annarra landa
38.OO 55.00
EK 44-oo KS 64.OO
M Andorra fiKf Austurríki IA
Belgía Azoreyjar m
Frakkland Eistland
HoUand K ítaUa
írland Lettland & M
& Lúxemborg Liechtenstein N
M Mónakó |^f Litháen M
Spánn Madeira m
0 O Portúgal 0
Pólland
h 1* San Marínó j*.
Slóvakia
Sviss
Tékkland
Ungverjaland
• Gjald fyrir handvirka þjónustu í 115 er kr. 30,00 á mínútu aukalega
í öllum gjaldflokkxun, nema í 8. flokki kr. 60,00 á mínútu.
• Viðbótargjald fýrir farsíma er kr. 14.94 á minútu eða brot úr mínútu.
• Svarskref kr. 3,32 ertekið í upphafihvers símtals.
Kvöld- og næturtaxti verður óbreyttur í öllum flokkunum.
Dagtaxti
Krónur á mínútu
Gildir ftá 08:00 til 19:00
til Evrópulanda
Gildir frá 08:00 til 23:00
til annarra landa
73.00
ay. 84.00
Albanía
Alsír
Astelit (Rússl.)
Ástralía
Bosiua/HersegÓYÍna
Brasilía
Búlgaría
CombeUga (Rússl.)
Comstar (RússL)
Filippseyjar
Gíbraltar
GrUddand
Hong Kong
Hvíta-Rússland
Japan
Júgóslavía
Kolatelekom (Rússl.)
Króatía
Kýpur
Líbýa
Makedónía
Malta
Marokkó
Moldavía
Nýja-Sjáland
Rúmenía
Rússland
Singapúrlz^
Slóvenía
I Suður-Afríka [
* Suður-Kórea [
Taíland j^SI
Taívan I1m™B
Túnis
Tyrkland
Úkraina